Alþýðublaðið - 29.08.1968, Side 3

Alþýðublaðið - 29.08.1968, Side 3
Nýlega komu upp tvö taugaveikibróðurtilfelli í Kópavogi. Báðir sjúklingarnir liggja nú á lyfjadeild Borgarsjúkrahússins og eru þeir hafðir í einangrun frá öðrum sjúklingum. Ekki tókst blaðinu að afla sér upplýsinga um það, hvernig sjúkdóminn har að, en hins vegar upplýsti héraðslæknirinn í Kópa- vogi, að fleiri hefðu ekki tekið sjúkdóminn en þeir tveir, sem hér um ræðir. Hringrásin / kerfinu Frá því er skýrt hér að ofan að tvö taugaveikibróður tilfelli hafi komið upp j Kópavogi fyrir skömmu. Blaðið gerði ítrekaðar til- raunir til að fá nánari upp- lýsingar vim málið — um líðan sjúklinganna og hvort tekizt hefði að rekja upp- runa sjúkdómsins. Hringdi blaðið í landlæknisembætt- ið, en það vildj. ekkert um málið segja, vísaði hinsveg- ar á héraðslækninn í Kópa- vogi. Héraðslæknirinn vildi ekkert um málið segja en benti á kveðinn lækni á Borgarsjúkrahúsinu, sem ekkert vildi segja, en vísaði á yfirlækninn, sem aftur vfsaði á landlæknisembætt- ið. Þannig hringdi blaðið í fjóra staði eftir upplýsing- um þessum án þess að fá nokkurt viðunandi svar, þar sem sá síðastj vísaði á þann fyrsta. Þetta er dæmi um hringrás skriffinnsk- unnar. Héraðslæknirinn í Kópavogi sagði, að báðir sjúklingarnir væru nú í einangrun á lyfjadeild Borgarsjúkrahússins. Ennfremur sagði hann, að sér væri kunn- ugt um, að einn sjúklingur til viðbótar, sem tekið hefði tauga- veikibróður, lægi á sama sjúkra húsi. Kvað hann nokkurn veg- inn víst, að það tilfellj væri að rekja suður til Spánar, en sjúkl- ingurinn hafi verið nýkominn þaðan, þegar sjúkdómurinn gerði vart við sig. Það hlýtur að vera sanngirn- iskrafa, að læknar upplýsi, hvern ig sjúkdómurinn er tjlkominn í Kópavogi. Taugaveikibróðir er sjúkdómur, sem gert hefur vart við sig hér og þar um landjð öðru hverju að undanförnu. Þetta er ófögnuður, sem þarf að uppræta. Sjúkdómurinn berzt nær eingöngu með saur, og er því sóðaskap og aðgæzluleysi Margar málverka- sýningar í bænum llm þessar mundir eru á döf inni allmargar málverkasýn ingar í bænum og fer hér á eftir yfirlit yfir þær. JÓN JÓNSSON sýnjr í Bogasal Þjóðminjasafnsins og verður sýn ins hans opin til sunnudags- kvölds. Hún er opin daglega frá^ kl. 2-10. Aðsókn að sýningunni hefur verjð sérstaklega góð og salan einnig. Selzt hafa 28 mynd ir af 34. STEINGRÍMUR SIGURÐS- SON sýnir í Casanova, nýbygg- ingu MR. Verður sýningin opin til hálf tólf á sunnudagskvöld, en daglega frá' 2-10. Steingrím- ur sagði tíðindamanni blaðsins, að andlega væri hann mjög á- mægður með sýninguna. Hins vegar gæti hann ekki'gefið hag- fræðilega skýrslu fyrr en eftir tvo daga. Spánverjinn PLATERO sýnir í sýningarsal verzlunarinnar Pers íu að Laugarvegi 30. Hefur sýn- ingin verið alivel sótt, endja fremur nýstárleg frá bæjardyr- Framhald á bls. 10 í meðferð matar um að kenna, ef sjúkdómurinn stingur sér niður á heimilium. Taugaveikibróðir getur ver- ið erfiður viðureignar úti um land, þar sem hann getur borizt með skepnum. Er þess skemmst að minnast, að búfé var skorið niður í Eyjafirði fyrr í sumar, er taugaveikibróður hafði gert vart við sig. Orðrómur hefur verið á kreiki um þiað;, 4á'i |laug/j.\ lf óðfir hafi stungið sér niður á Akur- eyri aftur og hafi fréttamað- ur samband við Erlend Konráðs son lækni þar, en hann gegnir um stundarsakir starfj héraðs- læknis. Sagðist hann ekki hafa orðið var við nein ný tauga- veikS'JÞ-óðurtltfblBi á Akureyri eða í grennd. Hins vegar sagði hann, að um skeið hafi gengið slæmur magaveikifaraldur nyrð- ra. Þessi faraldur lýsi sér að mörgu leyti líkt og taugaveiki- bróðir, en rannsókn á sótt- kvéikjum hafi lejtt í ljós, að þar hafi ekki verið um taugaveiki- bróðursóttkveikjur að ræða Kvaðst’ Erlendur Konráðsson læknir ekki vita um neitt tauga- veikibróðuútiífeJW á Ak^reyit. nú. Kennarar á skólabekk I gærmorgun settust um 80 barnakennarar á skólabekk í Hagaskóla, þar sem þeim verða kynnt ýms ný hugtök í stærð fræði. m. a. mengjafræðin svo kallaða. sem Guðmundur Arn laugsson, rektor, kynnti sjón- varpsáhorfendum allrækilega s. I. ve'tur. Jafnframt hefst í dag framhaldsnámskeið í sömu fræðum fyrir þá kenn- ara, sem sóttu fyrsta nám- skeið þessarar tegundar, sem haldið var í fyrrahaust. Þátttaka í námskeiðum þess- um er góð, og sækja þau auk kennara úr Reykjavík kennarar víðsvegar af landinu. Við setn- ingu námskeiðsins í gær ávörp- uðu Jónas B. Jónsson, fræðslu- stjóri Reykjavíkur og Helgi Elíasson, fræðslumálastjóri, nem endur og kennara og fögnuðu því, að slík námskeið skyldu haldin, enda væri stærðfræðin breytingum háð og mættj aldrei staðna. Fræðslumálastjóri tóauð sér- staklega velkomna frú Agnete Bundgárd, yfirkennara frá Fred- riksberg, sem kemur nú hingað Framhald á bls. 10 Hverniq Dubcek var hand- tekinn Fréttaritari Reuters í Prag, Vincent Buist, hefur nú fengið frásögn af hand töku Alexanders Dubceks og fleiri tékkneskra komm- únistaforingja. Heimild hans er ónafngreindur miðstjórn armaðxu-. , Samkvæmt þessum upp lýsingum var Dubcek í ein'kastofu sinni ii aðal- stöðvum flokksins, þ.eg'ar sovézkíir faUlh:|tfai(hemmjenn umkringdu bygginguna.. Dubcek var í símanum að reyna að fá nákvæmar upp lýsingar um ástandið, þegar tveir vopnaðir hermenn ruddust inn i herbergið. Þeir rifu isímann úr hönd ium laði.ailritarainis, og sli.tu símann úr sambandi. Síðan ivar Dubcek og nánustu sam tetarf®misnn toams reknir inn í ákveðið herbergi í hús inu. Josef Smirkovsky þing- for£'eti og Oldrioh Cemik forsætisráðtoerra voru líka í bygigingunni, og sta;kk Smirkovsky nokkirum sykur molum í vasann um leið og toann vlar toandtekinn og halfði við orð, að hann þyrftii á toonum að toalda. Dubcek, Cernik og Smii fcovsky voru síðan, sendir með flugvél til lítillar her stöðvar í Slóvakíu, og þar Framhald á 14. síðu 29. ágúst 1968 - ALÞÝ0UBLAÐIÐ. ,3

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.