Alþýðublaðið - 24.01.1969, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐUBLA.ÐIÐ 24. janúar 1969
iYÐIÖÍBl^Ð
Ritstjórar: Kristján Bersi Ólafsson (áb.) og 'Benedikt Gröndal. Símars
14900-14903. — Auglýsingastjóri: Sigurjón. Ari Sigurjónsson. — Augi
lýsingasímir 14906. —• Aðsetur: AlþýSuhúsið við Hverfisgötu 8—10,
Rvík. •— Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Sími 14905. — Áskriftargjalcl.
kr. 150,00, í lausasöíu kr. 10,00 eintakið. — Útg.: Nýja útgáfufélagið h,f.
FÆÐINGARSTYRKURINN HÆKKI
Um síðustu áramót voýu dag-
gjöld sjúkrahúsa hækkuð allmik
ið. Hafði verið mikið tap á rekstri
sjúkrahúsanna, áður en hækkun
in kom til framkvæmda. Það tap
Igreiddu ríki og bæjarfélög.
Hækkun díaggjaldanna hafði
[þær afleiðingar á fæðingarheim
iLuim, 'að kostnaður sængur-
Ikvenna varð allmiklu hærri en
fæðingarstyrkurinn. Kom það
mörgum konum og bamsfeðrum
jþeirra á óvart, að þurfa allt í einu
að greiða álitlega upphæð.
Þetta kom sér að sjálfsögðu illa
og var í ósamræmi við þá hefð,
sem ríkt hefur í almannatrygging
um á íslandi, að fæðingarstyrk-
jurinn dugi nokkurn veginn fyrir
sjúkrahúskostnaði, Hafa íslénd-
íngar í því sloppilð við fjáhags-
éhyggjur af því að koma börn-
um sínu.m í þennan heim, en til
samanburðar má geta þess, að í
Bandaríkjunum þarf fólk yfir-
leitt lað greiða 40-80.0Ö0 krónur
fyrir fæðingu á sjúkrahúsi.
í gær birti Alþýðublaðið viðtal
við Eggert G. Þorsteinsson félags
málaráðherra, þar sem hann
segir, að eðlilegt sé að hækka
fæðingarstyrkinn, svo að hið
gamla kerfi haldist og styrkur-
inn hrökkvi fyrir sjúkrahúskostn
aði. Til þess þarf lagabreytingu,
og mun ráðherrann flytja frum
varp um þá breytingu, þegar
þing kemur saman eftir mánaða
mótin.
KERAMIK
íslendingaT verða að auka fjöl
breytni atvinnuvega sinna. Um
það eru allir sammála og þessi
orð eru sí og æ endurtekin. En
til að svo igeti orðið, verður að
nota ekki eitt heldur öll tæki-
færi, og sjá til þess að margvís-
legar framleiðslugreinar, stórar
og smáar, geti hagnýtt vaxtar-
möguleika.
Um þessar mundir eru hér á
landi í heimsókn tékkneskir sér-
fræðingar í keramikframleiðslu.
Koma þeirra er árangur af heim
sókn Gunnars J. Friðrikssonar,
formanns Félags íslenzkra iðn-
rekenda, til Tékkóslóvakíu. Tek
ur Glit h.f. á móti Tékkunum,
enda hefur það fyrirtæki mikinn
áhuga á að auka framleiðslu sína.
Eftir allmiklar rannsókir á ís-
lenzkum hráefnum, sem. fram
hafa farið í Tékkóslóvakíu, eru
sérfræð'ing-arnir sannfærðir um,
að úr þessum efnum megi fram-
leiða margvíslega vöru. Benda
þeir til dæmis á veggflísar. Einn-
ig telja Tókkarnir möguleika á
að nota perlustein og basalt til
ýmissar framleiðslu.
Vonandi verður því tækifæri,
isern hér gefst til iað fá tæknilega
kunnáttu inn í landið, ekki sleppt.
Það væri búbót að geta stórauk-
ið hér keramikframleiðs'lu.
WWWVmVWVMWHWWW
BÍLAR - BÍLAR
v Höfum kauperidur að nýlegum 5 manna bílum, einnig að
góðum vörubílum.
BÍLA OG BÚVÉLASALAN,
v/Miklatorg, sími 2-31-36.
Tilboð óskast
í notaða rafgeyma og brotaaluminium. Tilboð verða opn
aið i skriístófu vorri Austurstræti 7 kl. 11 fyrir hádegi þann
28. janúar.
Sölunefnd varnarliðseíg-na. /
Aðalfundur
Síldar- og fiskimjölsverksmiðju Akrancss lif. Akranesi
verðu-r haldinn á skrifstofu fyrirtækisins á Akurbraut 13
Akr^fjesi fimmtudaginn 6. febrúar kl. 20,30 síðdegis.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðaifundarstörf.
2. Önnur mál.
STJÓRNIN.
KÓPAV06UR
Börn eða unglingar óskast til að bera Alþýðu-
blaðið til áskrifenda í Austur- og Vesturbæ.
Upplýsmgar í síma 40753.
Erlendar
fréttir í
stuttu máli
BONN 23.1. (ntb reuter):
Lögreglan í borginni Sie-
gen, um 68 kílómetra fyr
ir austan Bonn, handtók
í dag þrítugan umferðar-
sala frá Köln, sem svipar
mjög íil lýsingarinnar á
einum mannanna þriggja
sem fyrir skömmu myrtu
þrjá fallhlífahermenn og
særðu tvo í árás á lier-
hækistöð eina við Lebach'
í Saarland.
SAIGON 23.1. (nt.b-afp):
Ríkisstjórn Suður-Viet-
nam hefur bannað útgáfu
Saigon-dagblaðsins „Quy-
et Tien“ á þeim forsesd
um, að blaðið sé hliðhollt
kommúnistum.
WASHINGTON 23.1. ntb-
reuter): Fjármálaráðu-
nautur Nixons Banda-
ríkjaforseta, Robert P.
Mayo, lýsti því yf ::r í dag,
að forsetinn færi fram á
lækkun fjárlagafrum-
varps Johnsons, fyrrver-
andi forseta, fyrir fjár-
hagsárið 1969.
PRAG 23.1. (ntp-afp);
Tveir forystumenn frels-
isaflanna í Tékkóslóvakíu
Ota Sik og Edward Gold
stucker eru komnir aft
ur til Prag, en þeir hafa
verið í útlegð síðan inrt-
rás Varsjárbandalagsins
var gerð í ágúslmánuði
síðastliðnum.
AÞENU 23.1. (ntb-reut-
er): Tveir grískir stúdent
ar voru í dag dæmdir til
16 ára fangelsisvistar af
herrétti í Aþenu fyrir að'
hafa tekið þátt í samsæri
um að steypa rikisstiórn
landsins og koma á komm
únistisku stjórnarfyrLr-
komulagi.
OTTAWA 23.1. (ntbreut
er): Utanríkismálaráð-
herra Kanada, Mitchell
Sharp, lýsti því yfir i
dag, að Kanadamenn
hefðu í hyggju að taka
upp viðræður við Kína
kommúnista um gagiv
kvæma þjóðréttarlega við
urkenningu.