Alþýðublaðið - 24.01.1969, Blaðsíða 8
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 24. janúar 1969
ritstj. ÖRN
EÐSSON
Landsliöið sigraði
Sparta í hörkuleik
Óíþróttamannsleg framkoma
Tékkanna i fyrrakvöld
Miðvikudagurinn 22. janúar 1969
vcrður að teljast nierkur í sögu
körfuknattleiksins á íslandi, því ^ið
þann dag vannst stór sigur, þegar
íslenzka landsliðjð sigraði tékk-
nesku mei'starana Sparta Prag í
gcysispennandi og fjörlegum leik.
.Tékkarnir, sem álitnir eru vera
meðal fjögurra beztu félagsliða Ev-
rópu, komu hér við á leið sinni til
Bandarikjanna í desember sl. Þeirn
leik lyktaði með sigri Tékkanna,
76:62, eða 14 stiga munur, sem
mest var um að kenna hve illa
Islendingar yoru uhdir það búnir
að mæta hinum ótrúlega nákvæmu
skyttum Tékkamra.
Það var greinilegt á leik ís-
lenzka liðsins þegar í upphnfi leiks,
að mikið stóð til. Af ákveðni og
öryggi breyttu þe'ir stöðuhni úr 12
gegn 4 fvrir Tékka, í 15:13 íslandi
í hag. Liðið lék þétta svæðisvörn,
sem virtist konia Tékkunum á ó-
vart, og langskytturnar, sem reynzt
höfðu svo hættulegar í fvrri leikn-
um, voru nú óvirkar að jnestu. En
s\'o ága:tt lið,*“scm hið tékkneska
er, hefur venjulega eitthvað í poka-
horninu, þótt eitthvað bregðist. —
Meðal annars.með góðum leik hins
geysihávaxna Dousa (214 cm) tókst
Tékkunum að hálda i við Islending-
ana fram eftir hálfleiknum, en rcðu
ekki við lokasprctt lartdanpy sem
skoraði hvað eftir annað, og: tókst
Kolbeinn sézt hér s.kora I erfiðri stöðu
að koma sér upp átta stiga forskoti
fyrir hlé, 33:25 fyrir Island er
nokkuð betri aðstaða en í fyrri
leiknum, þegar staðan í hálfleik
var 41:27 fyrir Tékka.
Sjálfsagt hafa Tékkarnir unað
því illa að ná ekki betri árangri en
breyta stöðunni í 39:36 sér í hag
eftir 6' mínútur af seinni hálfleik.
Islendingarnir voru þó fljótir að
setia undir þennan leka, og fljótlega
stóð 44:41 þeim i hag. Eftir það
skildu aldrei meira en 3—4 stig lið-
in að og þegnr ein mínúta var til
leiksloka slóð 58:56 fyrir Island. —
I.andarnir skoruðu úr vítakasti, og
síðan skoruðu Tékkarnir úr tveimur
vitaköstum, og staðan var 59:58,
þegar Islendingarnir fengu boltann
til innvarps, og 33 sekúndur eftir
af leik. Þeir tóku þann kostinn, að
leika boltanum á milli sín, án þess
nð hætta á néitt, og þegar 3 sek.
voru eftir reið síðasta skotið af,
og þótt það lenti ekki í körfunni
breytti það cngu, því flautað var af
um lcið og boltinn lenti í höndum
Tékka.
Allir íslenzku leikmennirnir, sem
við sögu komu í leiknum, áttu skín
andi góðan leik, og á það jafnt við
utn sókn_ og vörn. Það kom þeim
ekkert úr jafnvægi, þótt Tékkarnir
breyttu um stund yfir í „tnaður á
mann vörn”j hcldur tókst þeirn á
því tímabili að bæta stöðuna frekar
en hitt. Hjörtur Hansson, Kolbeinn
Pálsson og Þorsteinn Hallgrímsson
skáru sig nokkuð úr, en þeir skor-
uðu 14 stjg hver, og stigakóngur-
inn frá síðasta Islandsmóti, Þórir
Magnússon, skoraði 7 stig, þrátt
fyrir að hanti var ekki mikið inn
á.' — Birgir fakobsson skoraði 8
stig, og Birgir Birgis 2.
Þrír Tékkanna skoruðu 12 stig
hvcr, og tveir 10 hvor.
★ HM í skautahlaupi fer
fram Dcventer 15. og 1(5.
marz n.k. Svíar hafa ákveð-
ið að senda G kcppendur til
mótsins.
—O—
★ Glasgow Rangers sigraði
DWS frá Amsterdam í fyrra-
kvöld með 2 gegn 1 í Borg-
arkeppni Evrópu. Rangers
fara þar með í undanúrslit í
kcppninni.
Þcrir Magnússon skorar úr hraðupphlaupi.
STOKKKEPPNIN A
HOLMENKOLLEN
Einn merkasti viðburðuri'nn
í Noregi á sviði íþrótta ár-
lega er Holmenkollenmótið.
í huga fólksins hefur mót ð
oftast verið háð fyrstu bcdg'
ina í marz. en að þessu sinni
fer það fram dagana 13. t;I
16. marz. Mótið nú verðyir það
71. í röðinni.
Á mótinu er kepnt í flest-
um greir.um skíðaíþróttarl!nn
ar, en það er stökkkeppnin,
sem ávallt vekt.tr mesta at-
hvgli á mótínu og það má
segja, að Oslóborg tæmíst beg
ar kennn'n fer fram, áhuginn
er það míkill. í fvrra voru
áhorfendur um 140 þúsund
op búizt er við fle;ri nú. Auk
Norðmanna taka margir
beztu stökkmenn álfumar
þátt í keppn'nni og góðir
stökkvarar hafa eirtnig kom-
ið frá Janan og Bandaríkjun
um og víðar að.
Dagana 7., 8. og 9. mafz
verður efnt til stökkkeppni í
r'sabrautinr.i f Vikersund og
þar vérða m a. keppe’ndur frá
Tékkóslóvakíu auk beztu
Norðmannanna,
Miðasala að Holmenkolíen
mótinu hefst í Osló í dag.
Ekki er ráð nema í tíma só
tekið.
Sovétrík?n sigra
Kanada
Sovétríkm sigruðu Kanada
í íshokkí í Qttawa í gær tneð
7 mörkum gegn engtt. Sevét
trrenn á’ttu 36 markskot, en
Kaniulamptm 16. ÁhorfeiuSnr
voru 15 þúsund.
V.-fajé^verjar
sigra Fwía
★ Vestur-Þjóðverjar sigrnða
Svía nýlega í liandknattieik
kvenna með 8 mörkum gegn
7. í hléi var staðan 6 gegn
3.
Kþróttakennarar!
Mun ð fundinn í Átthagasal
Hótel Sögu föstudagskvöldið
kl. 20.30.
Sjórn í. K.-í. :