Alþýðublaðið - 26.01.1969, Síða 4
'4 Ai^ÍÐUBLAÐIÐ 26. janúar 1969
„Ástin hefur hýrar brár"
f i
Eftirfarandi vísu er talið að Jón
biskup Arason hafi kveðið, er
hann heyrði, að lögmannsdtSmur
iiefði verið rofinn á þeim feðg-
uni og þeim ætlað líflát:
Vondslega 'ihefur )l>ss veröldin
blekkt,
•vélað og tælt oss nógu frekt,
ef ég skal dæmdur af danskri slekt
og deyja svo fyrir kóngsins mekt.
★
1 Páll lögmaður Vídalín ávarp-
aði konu sína, en hún var geð-
mikil og samkomulag þeirra hjóna
ekki nema í meðallagi gott:
i'
Þó þú lofir fögru, fljóð,
fer það sem er vani:
Sættin verður á svenskra móð,
sem þeir gera við Dani.
★
IVÍér hefur verið bent á, að vísa
sú, er eignuð var Bjarna Gíslasyni
á Þorsteinsstöðum í síðasta vísna-
þætd, sé eftir Hannes Guðmunds-
son og prentuð í ljóðabók hans
Orum, sem út kom árið 1925.
Þar er vísan á þessa leið:
Hans var jafnan höndin treg
að hjálpa smælingjonum.
Gengur hann ekki glæpaveg,
eii götuna meðfram honum.
Höfundar eru tveir að þessari
vísu: Einar E. Sæmundsson og
Karl H. Bjarnason.
> i
Margur er kátur maðurinn,
og meyjan hneigð fyrir gaman,
en svo kemur helvítís heimurinn
og hneykslast á öllu saman.
★
Isleifur Gíslason á Sauðárkróki
notaði einatt nýtÍ7,kulegar kenn-
ingar í kveðskap sínum. Næstu
tvær vísurnar eru af því taginu:
Astarfífan fauk af stað
fyr’ legghlífa nérði.
Bónorðshrífu ýtti hann að
undirlífa gerði,
Kærleiksamboð upp hann tók,
ástargambri hreyfði.
En hárkamba eyjan klók
engin sambönd leyfði.
★
Þessi vorvísa er líka eftir Isleif:
Himinprýðin yljar allt,
erjur hríðar dvína;
yfir lýð og landið kalt
leggur blíðu stna.
Andrés BjÖrnsson var sem kunn-
ugt er góður hagyrðingur. Jóhann
í Sveinatungu flutti frumvarp á
Alþingi um eyrnamörk, sem átti
litlu fylgi að fagna. Hann bað
Andrés að kveða eitthvað um
eyrnamörkin og andstæðingana,
sem Andrés og gerði samstundis:
Eyrnamörk eru óþörf hér í
salnum;
þekkist allur þingsins fans
á þessum parti líkamans.
★
Gísli Olafsson á Eirj'ksstöðum
orti þessar bjartsýnisvísur eða
hvað sem við viljum nú kalla
þær:
Finnst mér hæfa að hlæja dátt,
helzt það svæfir trega,
þó að gæfan gefi smátt
gullið ævinlega.
Flest í Ieyni fellir mann.
Fátt vill meinum bægja.
Lífsins eina ánægjan
er að reyna að hiæja.
Kolbeinn Högnason í Kollafirði
yrkir um Laxárdal í Kjós:
Ljósasalar lýkst upp hlið,
léttur svali morguns hlær.
Breiður dalur brosir við,
bæjaval á hendur tvær.
★
Þura í Garði yrkir á þessa leið
og er ljót sagan, ef hún er tekin
bókstaflega.
Um mannlífsástir veit ég vel,
varð fyrir skoti stundum.
F.n ég er eins. og Jessabel,
sem étin var af hundum.
★
Þessi vísa er líka eftir Þuru
og segir líka frá einhverjum óskap
legum örlögum:
Aður var hann eins og bjór
eltur, mjúkur, hvítur, stór;
nú er hann eins og skorpinn skór;
skratti er að vita hvernig fór.
Minna er um dýrt kveðnar vís-
ur en áður var, þó bregður þeim
fyrir ennþá. stöku sinnum. Fyrir
skömmu barst mér þessi sléttu-
bandavísa og undirskriftin var
Ranki.
Kætir skapið — aldrei ér
illskeytt Stjórnip sanna.
Bætir tapið — sjaldan sér
sólskin vegna .anna.
★
Sigurður Breiðfjörð yrkir um
sjálfan sig og andlegheitin:
Þegar ég ráfa og hengi haus,
þið haldið það skálda draúma,
en þá er ég svö þankalaus,
sem þorskurinn lepur strauma.
Finn ég glöggt, þá andinn er
að í smiðju ljóða,
skrokkurinn enga aðstoð .lér,
utan ég vilji hljóða.
★
Þessi snjalla ástavísa, sem seint
mun fyrnast eða úreldast,. er líka
eftir Sigurð Breiðfjörð, og er bezt
að klykkja út með henni að þessu
Astin hefur hýrar brár,
en hendur sundurleitar,
ein er mjúk, en önnur sár,
en þó báðar heitar.
REIÐAEIGENDUR
HafáS þér verndað hreyfillnn með LIQUI-MOLY sliffagi?
Hafið hugfast, að ein dós af LIQUI-
MOLY sem kostar innan við 150.00 kr.
rnyndar smurhúð sem er 59—60% hálli
en olía. EMcert getur fjarlægt þessa húð
nema vélarslit. Brœðslumark MOLY er
2500° C, þolir 225 þús. punda þrýsting
þ ferþumlung og 8000 FPM Engar sýrur,
'kemisk efni eða þvottaefni geta haft
áhrif á þessa húð, jafnvel, við verstu skil
yrði endist einn skammtur af LIQUI-
MOLY í a.m.k, 4.800 km. akstur
LIQUI-MOLY er Molybdenum disulfide (MOS2) málmurinn í fljótandl ásftandi Síðan A.
J. Lockrey tók að gera MOLY YBDENUM flj átandi hefur það farjð sigurför irni allan heim
og valdiS byltmgu í vélarsmurningu. Hér á íslandi hefur LIQUI-MOLY verið selt í 15 ár,
á iþessu tímabili hefur fjöldi af olíubætiefnum og eftirlíkingum á LIQUI-MOLY komið á mark-
aðinn sem flesit eru nú gloymd.
LIQUI-MOLY fæst á benzínafgreiffslum og smurstöffvum.
Nánari uppl. veittar hjá LIQUI-MOLY.umboffinu á íslandl.
Vetrarútsala á kápum
mikill afsláttur.
KÁPU— OG DÖMUBÚÐIN,
Laugalvegi 46 — Sími 19768.
rrp-!
ÍSLENSKA VERZLUNARFÉLAGIÐ HF.
Laugavegi 23. — Sími 19943,
■^Tútboð
Ti'lboð óskast í sölu á rafbúnaði í dreifistöðv-
ar fyrilr Rafmiag’nsveitu Reykjavíkur.
Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri.
INHKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAR
VONARSTRÆTI 8 - SÍMI 18800
Kvenfélag
Alþýöuflokksins
í Hafnarfirði
heldur fund þriðjudaginn 28. janúar kl. 8,30
s.d. í Alþýðuihúsinu.
Fundiarefni:
Vigfús Sigurðsson bæjarfulltrúi ræðir um
ibæj'armál. — Upplestur — Bingó — Kaffi-
drykkja, STJÓRNIN.