Alþýðublaðið - 29.01.1969, Page 3
29. janúar 1969 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3
Miðstöð hjarta-
verndar verður
í Genf í Sviss
Reykjavík — ÞG.
Hér á landi er staddur
Borek Zofka, framkvæmda-
stjóri alþjóðasamtaka hjarta*
félaga. Zofka er lögfi'æðingur
og tók við þessum störfum í
ágúst sk, en hann hefur um
20 ára skeið gegnt ýmsum
opinberum störfum, m.a. hjá
Sameinuðu þjóðunum.
Hingað til hafa samtökin haft
aðsetur í Bandaríkjunum, en nú er
verið að flytja skrifstofur þeirra til
Genfar. Þar er alþjóðaheilbrigðis-
inálastofnunin eins og kunnugt er,
og er mjög hagkvæmt, að hjarta-
samtökin séu í nábýli við þá stofn-
ún, því þau hafa mikil samskipti
við hana. Auk þess eru ráðstafanir
þessar af stjórnmálalegum ástæð-
um, þótti hcppilegra að hafa stofn-
unina í hlutlausu landi.
Zofka er á leiðinni til Banda-
ríkjanna til þess að ganga eridan-
lega frá flutningnum til Sviss, en
kom við hér í því skyni að kynna
Gyðingar
l'ramhald at 1. síðu.
hjá Sameinuðu þjóðunum hafa túlk-
að málstað Israels hjá SÞ og fengið
skilningsríkar undirtektir. Hefur U
Tliant, aðalritari Sameinuðu þjóð-
anna, lýst sorg sinni og hryggð
vegna hengingar mannanna fjórtán
og í sama- streng tók utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, Willianm
Rogers, sem kvað þjóð sína undrun
■og felmtri slegna. Þá hefur brezka
ríkisstjórnin vottað Israelsmönnum
og írökskum Gyðingum samúð sína.
sér starfsemi Hjartaverndar. Er
hann var spurður, hvernig honum
litizt á starfsemina, lauk hann sér-
stöku lofsorði á þjóðskrána, sem
hann sagði, að væri einstæð að
nákvæmni. En eins og kunnugt er,
er fólk tekið til rannsóknar eftir
þjóðskránni, og með hjálp hennar
er unnt að hafa eftirlit með því,
að allir sem valdir hafa verið gang-
izt undir rannsókn.
Zofka lét í ljós undrun sína
yfir, að í þessu litla og lítt iðn-
þróaða þjóðfélagi séu hjarta- og
æðasjúkdómar algengasta dánar-
orsökin.
Borek Zofka
1 gnKKss rAKm mmsmm
Alþýðufickkskonur
Kvenfélag Alþýðuflokksins í Reykjavík heldur fu .d n.k. fimmfu
dagskvöld kl. 8,30 í Ingólfscafé. Á fundinum flytur Björgvin Guð
mundsson viðskiptafræðingur erindi um atvinnuástandið og frú
Katrín Smári les upp smásögu. Félagskonur eru hvattar til að
fjölmenna. — STJÓRNIN.
BRIDGE-BRIDGE
Bridgestarfsemi Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur er nú að hefjast
að nýju og verður spilað í fyrsta sinn á árinu í Ingólfscafé n.k.
laugardag, 1. febrúar, ltl. 14. Stjórnandi verður að vanda Guð
mundur Kr. Sigurðsson, og í húsið er scm áður gengið frá Ingólfs
stræti.
Hafnarfjörbur
Alþýðuflokksfélag Hafnarfjarðar heldur fund í Alþýðuhúsinu við
Strandgötu n.k. fimmtudagskvöld kl. 21 stundvíslega.
DAGSKRÁ:
1. Fjárhagsáætlun bæjarins yrir 1969. Framsögu-
maður: Vigfús Sigurðsson bæjarfulltrúi.
2. Nýting hitaorkunnar í Krýsuvík: Framsögumað-
ur: Gísli Jónsson rafveitustjóri.
/ 3. Önnur mál.
( STJÓRNIN. ___ I
Rætf við atvinnunefndarmenn:
*
A Suðurlðndi barf að auka
Reykjavík — SJ.
Einar Elíasson, byggingar-
meistari á Selfossi, er einn
þeirra er situr í atvinnumála
nefnd fyrir Suðurland. Hann
sagð’i í stuttu viðtali við blað
ið, að atvinnuástandið væri
einna rerst í byggingariðnað-
inum; bera tók á atvinnuleysi
strax í haust og munaði einna
mest um samdrátt hjá tré
smiðju Kaupfélags Árnesinga,
Þá er mikið af hálfkláruðum
íbúðarhúsabyggingum, sem
vinna hefur stöðvazt við,
vegna bess hve mikið hefur
dregið úr lánveitingum Hús-
næðísmálastjórnar. Búr-
fellsvirkjun hefur verið
mikil atvinnubót. þar sem allt
að 200 manns úr héraðinu hafa
haft þar atvinnu. í dag er
okkur mesta hagsmunamál, að
útgerð geti hafizt af fullum
krafti í sjávarplássunum og í
kjölfarið komi aukjn nýting
sjávaraflans í landi, til að
veita aukna atvinnu. Það er
langmildlvægast að útgerð og
Einar Elíasson.
byggingariðnaðurinn stöðvist
ekki.
Áform eru uppi um það að
Sláturfélag Suðurlands hefji í
vor endurbyggingu á húsum
sínum á Selfossi með það
fyrir augum að vinna úr land
búnaðarafurðum. Er gert ráð
fyrir að SS myndi starfrækja
allt árið og hefja vinnslu kjöt
vara. Þá hefur verið mikið
rætt um að reisa þangmjöls
verksmiðju, og mikill áhugj á
því að hefjast sem fyrst handa
við gerð varanlegs vegar milli
Reykjavíkur og Selfoss, og
byrja við Selfoss fil að bæta
fyrst vegakerfið innanhéraðs.
Þá má nefna áð mjkill áhugi
er á að fá brú yfir Ölfusár-
ósa til að tengja Þorlákshöfn
við héraðið. Þá þyrfti almennt
að efla atvinnufyrirtæki í
sjávarþorpunum, og þá sér
staklega fyrirtæki sem ynnu
úr sjávarafla. ,
Hveragerði á mikla fram-
tið fyrir sér sem ferðamanna
bær, þar þyrfti að reisa hótél
í sambandl við heilsulindir stað
arins og fyrir ferðamenn, sem
vilja ferðast um héraðið, en
Suðurland hefur margt að
bjóða erlendum sem innlend
um ferðamönnum.
Framkvæmdarnefnd bygg-
ingaáætlunar á Selfossi gerir
sér vonir um fjárveitingu á
Framhald á 9, síðu-
Næstum algjört at-
vinnuleysi á Hofsósi
Reykjavík — SJ.
í Atvinnumálanefnd Norður
iands situr m.a. Þorsteinn
Hjálmarsson símstöðvarstjóri
á Hofsósi. Hann sagði, að þrír
staðir stæðu einna verst að
vígi á Norðurland.i — Hofsás,
Þórshöfn og Raufarliöfn. Á
Hofsósi hefur verið svo til
algjört atvinnuleysi frá því í
október, en tilvera fólksins
byggist fyrst og fremst á fisk
veiðum og starfsemi frystihúss
ins. Eini báturinn, sem er
nógu stór til að sækja langt, er
nú bundinn við bryggju vegna
fjárhagsörðugleika. ðleðal
íbúanna, sem eru um 300, gæt
ir að vonum allmikillar svart
sýni. Útgerðin hefur byggzt
að talsverðu leyti á bátum um
og innan við 30 tonn, en sýni
legt væri að í framtíðjnni yrði
að gera út mun stærri báta til
togveiða, frá 130—200 tonn,
svo að atvinna geti haldizt
nokkuð jöfn allt árið.
Hofscsbúar eiga nú í smíðum
í Stálvík skip, sem á að af-
henda í maí. Það er í frásög-
ur færandi að næstum hvert
einstaka heimili í þremur lirepp
Þorsteinn Hjálmarsson
um lagði fram hlutafé til
kaupa á þessu skipi. Verð
skipsins hæltkar nú talsvert
mjkið vegna gengisfellingarinn
ar og þarf því að koma til
riielri aðstoð frá hinu opin-
bera, ef takast á að koma skip
inu á veiðar strax.
í bígerð er að stofna málm
iðnaðarverksmiðju á Hofsósi
er framleiðir m.a. hljóðkúta í
bíla og dráttarvélar, ennfrcm
ur kjötbrautir í sláturhús.
Þessi verksmlðja gæti útveg-
að nokkrum mönnum fasta át
vinnu árið um kring. Hér er
engöngu um framtak Hofsós-
búa að ræða. Þá er hafnar-
garður í smíðum og á að ljúka
við hann á þessu ári, en hætt
er við að það fé, sem lirepps
búar eiga að leggja fram, sé
ekki fyrlr hendi, nema at-
vjnnuástand batni.
Ráðgert er að kaupfélagið
á Hofsósi sameinist Kaupfé-
lagi SkagfirðXnga, en frysti
húsið verði þá selt hlutafélagi
á staðnum, sem myndi sam-
eina i kringum það útgerð og
fiskvinnslu.
Þorsteinn sagði, að það
væri vissulega góð liugmynd,
að bátar, sem væru á veiðum
fyrXr Norðurlandi. dreifðu afla
sínum á sem flestar liafnir. én
fyrst og fremst þyrfti að efla
útgerð í hverju þorpi. Þor-
steinn kvaðst ekki sérstak-
lega bjartsýnn á að starf at
vinnumálanefndanna hefði í
för með sér skjótar úrbætur,
en vissulega væru vonXr bundn
ar við þær £ framtíðinni.
iWMWWHMWWMWMWWWWMWWWWWWWmtWWWWWWWWWWWWfWWyij