Alþýðublaðið - 29.01.1969, Side 7
29. janúar 1969 ALÞÝÐUBLAÐIÐ. í
Sigurjón Ari Sigurjónsson:
Hagsmunafélög hveríanna
Þegar ný íbúðahverfi rísa
af grunni á mjög skömmum
tíma koma oft í ljós ýmis
vandamál, sem erfitt er að
leysa svo öllum líki. Fjár-
magnsskortur til hinna ýmsu
framkvæmda borgarinnar
koma í veg fyrir það að íbú-
um hinna nýju íbúðahverfa
verði strax sköpuð. sama að-
staða og íbúar eldri borgar-
hluta búa við. Ogj er þar
margt sem orsakar. Hin yngri
hverfi eru að mestu byggð
ungu fólk'i með mikinn fjölda
barna, kallar það á að bygg-
ing skólahúsnæðis í næstai ná
grenni verður brýn nauðsyn.
Örar ferðir strætisvagna, leik
vellir, barnagæzla, aðstaða til
íþrótta.ðkana, verzlanir og
önnur almenn þjónusta,
verða smátt og smátt krafa
fólks sem alizt hefur upp við
þetta sem sjálfsagðan hlut í
uppvexti sínum í eldri hverf
um borgarinnar. Síðan kem
ur krafan um götur með var
anlegu slitlagi, gangstéttir,
lýsingu, löggæzlu o. s. frv.
Hinir stóru barnaskólar
gömlu hverfanna verða „út-
úr“ og fullnægjia fyllilega
þörf, kannske í fyrsta sinn.
Unga fólkið þyrpist burt en
eftir situr eldra fólk í full
mótuðum borgarhverfum,
með alla almenna þjónustu
fyrir hendi.
Unga fólkið sem er að móta
og byggja upp sitt eigið heim
ili hefur lítinn tíma til félags
legra starfa, það er of niður
sokkið í að komia sér upp hús
næði sínu til þess að virða
fyrir sér, það sem ábótavant
er, þar til þörfin, vöntunin
gerir vart við sig Maður sem
er að byggja sér hús í frítíma
sínum, áttar sig ekki á því
fyrr en hann er fluttur að eng
in verzlun er kannske í nám-
unda við hið nýja hejmili
hans eða þá að engin strætis
vagn ekur um hið nýja hverfi
sem hann flutti í. Þá er rokið
upp til handa og fóta, gengið
hús úr húsi og safnað undir
skriftum, gerð krafa og sk'ln
ingurinn á vandanum ein-
hliða. Það mætti taka fjölcía-
mörg dæmi, hliðstæð og ólík.
Þarno, er þörf félagslegrar
samstöðu allra íbúa í hinu
nýja hverfi. Félag sem mót
ar skoðanir fólksins og bend
ir á ráð til úrbóta á tímabils-
bundnum vandamálum.
Félag sem ekki er kröfu-
hafi heldur samstöðuaðili, þar
sem málin eru rædd við við-
komandi borgaryfirvöld og
aðra sem hlut eiga að máii til
þess að leysa vandann. Eitt
hinna nýju hverfa í Reykja-
vík sem byggt hefur verið
upp á mjög skömmum tíma
er Árbæjarhverfi, þar er starf
andi slíkt félag. Framfarafé
lag Seláss og Árbæjarhverfis.
Að vísu stendur þetta fé'lag á
gömlum merg. Stofnað 1954.
En það hefur fylgzt mjög vel
með öllum hagsmunamálum
breyttrar aðstöðu í Árbæiar-
hverfi, allt frá því að örfáir
sumarbústaðir og einstaka í-
búðarhús voru í hverfinu,
vatnslaus, rafmagnslaus, með
nánast enga. þjónustu af
hendi borgarinnar, í það að
verða mörg þúsund manna í-
búðarhverfi með ýmsa sér-
stöðu meðal a’nnarria hverfa í
Reykjavík.
Félagsmenn byggðu fyrir
eig ð fé og í frístundum sín-
um skólahúsnæði og leigðu
Reykjavíkurborg 1955 og var
það notað sem skóli í hverf
inu í rúman áratug, húsið er
mú félagsheimili með rnarg-
þættu starfi félagsins. Félag
ið hefur verið brautrvðjandi
fyrir ýmsum nýjungum sem
mjög vel hafa mælzt fyrir. T.
d. haft almenna fundi með
borgarstjóra og forystumönn-
um borgarstofnana, um ára-
bil. Nauðsyn á slíkri félags-
borgariinnar er hverjum
legri samstöðu í hveríum
manni augljós. Þarna kemur
fram ópólitískur félagsskap-
ur sem reynir af skilningi að
meta hvað beri að sameina
krafta íbúanna til að beriast
fyrir á hverjum tíma og fá
til þess nauðsynlegan stuðn-
ing og samvinnu þess sem
framkvæma á verklð.
Það væri vissulega nauðsyn
á að slík félög mynduðust í
sem flestum íbúðarhverfum
Reykj avíkurborgar.
Allir eiga erindi í Mími
Enska Danska Þýzka Franska ítalska
Spænska Sænska Norska Rússneska íslenzka
fyrilr útlendinga.
Sími 10004 og 11109 (kl. 1—7).
i
Initrömmim
ÞOBBJÖBZVS BENEDIKTSSOMAK
Mngólísstræii 7
TILKYNNING
FRÁ STOFNLÁNADEILD
LANDBÚNAÐARINS
Umsóknir um lán vegna framkvæmda á ár-
inu 1969 skulu hafa borizt bankanum fyrir
28. febrúar næstkomandi.
Umsókn skal fylgja umsögn héraðsráðunaut-
ar, skýrsla um búrekstur og framkvæmda-
þörf, svo og veðbókarvottorð.
Lánsloforð, sem veitt voru á síðastliðnu ári,
falla úr gildi 28. febrúar, hafi bankanum eigi
borizt skrifleg beiðni um að fá lánið á þessu
ári.
Engin ný skýrslugerð þarf að fylgja endur-
nýjunarbeiðnum.
Skjöl, sem borizt hafa vegna framkvæmda á
árilnu 1968 og ekki voru veitt lánsloforð um á
því ári, verður litið á sem lánsumsóknir 1969.
Stofnlánadeildin telur ástæðu tii þess að
hivetja bændur tii ýtrustu Ivarkárni með bygg
ingaframkvæmdir og aðra fjárfestingu á ár-
inu og telur horfur á, að ekki verði unnt að
gefa lánsloforð nema tii alveg bráðnauðsyn-
legra framkvæmda.
Reykjavík, 27. janúar 1969.
Stofnlánadeild Iandbúnaðarins
Búnaðarbanki íslands.
EJElEIEIEiggmmgEIEigEIEÍHEIEtgBlEl
i I m 1, m J mmmJ, imnnJ m tmmrU mi4 ' A J —4 i ■iw Cl ■'■■■* *'« "■* ■*»• ww* mmiiiill mmmmt mmmmi, ■■Iil il
EI
E1
51
51
Höfum flutt
verzlun okkar af
LAUGAVEGI 176 á
LAUGAVEC 178
r/ggingavörur h.f.
51
51
51
51
51
51
51
51
51
51
51
51
_E1
LAUGAVEGI 176 — SÍ M I 35697
Takið eftir - Takið eftir
Nú er fátt til bjargar, því góður tími til að taka til á háa
Ioftinu- Við kaupum allskonar eldri gerð húsgagna og hús-
muna suo sem buffetskápa, borð stóla, blómasúlur, klukkur,
rokka. prjóna- og snældustokka, spegla og margt íl.
Fornverzlunin Laugavegi 33 (bakhusið)
Sími 10059 — Sími heima 22926.