Alþýðublaðið - 28.02.1969, Blaðsíða 3
Vísitala bíður
dubóta
Ástæða bcsSj að vísitala framfærslukostnaðar fyrir febrúar
byrjun hefur enn ekki verið birtj er sú, að einn liður henn-
ar hefur enn ekki verið fastákveðinn. Eru það fjölskyldu-
bætur en fyrir Alþingi liggur nú frumvarp um 10% hækkun
á þeim, og telur kauplagsnefnd sdg ekki geta reiknað út vísi-
töluna fyrr en afgreiðslu þess máls er lokið á Alþingi. Hins
vegar hefur nefndin veitt fulltrúum launþega og vinnuveit-
enda allar þær upplýsingar um framfærsluvísitöluna, sem
þeir 'hafa óskað efth'.
Kauplagsnefnd og Hagstofa Is-
íands sendu í gær út sameiginlega
fréttatilkynningu urn þetta atriði, og
fer hún hér á eftir:
„Vísitala framfærslukostnaðar í
febrúarbyrjun 1969 hefur ekki enn
vrið birt, en venja er að tilkynna
hana tveimur til þrem vikurn eftir
verðupptöku.
Astæðan fyrir þessu er sú, að
ekki er unnt að reikna einn þýð-
ingarmikinn lið vísitölunnar, þ.e.
fjölskyldubætur, fyrr en fjárupþ-
hæð þeirra til bótaþega hefur verið
ákveðin af Alþingi. Samkvæmt
frumvarpi um hækkun á bótum al-
mannatrygginga, sem Alþingi fjall-
ar nú urn, ,eiga fjölskyldubætur að
hækka um 10% frá og með árs-
byrjun 1969, og verður að sjálfsögðu
að taka tillit til þessarar breytingar
— -ef til hennar kemur — við út-
reikning á febrúarvísitölu 1969. Þó
að horfur muni vera á, að frum-
varp þetta verði samþykkt óbreytt,
verður Kauplagsnefnd að halda fast
við þá' starfsreglu — sem hefur fylgt
frá upphafi — að ganga ekki frá
framfarsluvísitölunni fyrr en endan-
legar verðupplýsingar liggja fyrir
um alla liði hennar. Af þessum sök-
um verður febrúarvísitalan ekki birt
fyrr en séð er, hver verður af-
I ramhaldrá: 4. siðu.
Þúsundir bóka á
niðursettu verði
Beykjavík VGK
Árlegur bókamarkaður Bóksalafélags íslands hefst í dag
kl. 9 f.h. í nýbyggingu ISnskólans á Skólavörðuholtl. Á
markaðnum eru þúsundir bókatitla; samsafn gamalla og
nýlegra bóka. Engin bók á markaðnum er þó yngr'j. en fjög-
urra ára.
Bóksalarnir Lárus Blöndal og setningu markaðarins. Oliver Steinn,
Jónas Eggertsson hafa séð um upp- bóksali, sagði á blaðamannafundi í
-----------------------:----------------------------------------------4
272 þúsunda
ávísanasvik
Reykjavík — ÞG.
I fyrrakvöld var rannsóknar-
lögreglunni tilkynnt frá einum bank
anna í borginni að maður nokkur
hefði selt ávísanir fyrir grunsamlega
háa upphæð.
Við rannsókn kom í Ijós, að ávís-
anirnar voru úr stolnu hefti sem
gefið er út af bankaútibúi úd á
landi. Hafði maðurinn selt þessum
eina banka ávísanir fyrir 272 þús.
kr., en ekki er enn vitað, hvort liann
hefur selt ávísanir í fleiri bönkum.
Maðurinn hefur haft snarar hend
ur, er hann hafði aflað sér fjár,
því að á þriðjudagskvöldið tók hann
sér far með flugvél til Luxemborg-
ar.
Ekki var unnt að fá gleggri upp-
lýsingar hjá rannsóknarlögreglunni,
en ráðstafanir eru nú gerðar til
þess að fá aðstoð lögreglunnar í
Luxemburg við að leia mannsins
og handtaka hann.
gær, að þetta væri 9. markaður
Bóksalafélagsins. Hinir markaðarnir
hefðu allir verið haldnir í Lista-
mannaskálanum og söknuðu bóksal-
ar þess húss, sem nú væri á brott.
Hefðu bóksalar fengið inni í ný-
byggingu Iðnskólans og hefðu for-
ráðamenn skólans sýnt þeim einstak-
an velvilja.
Jónas Eggertsson gerði lítillega
grein fyrir þeim bókum er á boð-
stólum væru. Sagði hann að árlega
hyrfu hundruð bókatitla af mörk-
tiðunum. Bækurnar eru flestar %
niðursettu verði en aðrar á sama
verði og hjá forlögunum. A það
helzt við um nýlegar bækur.
Nokkrir fágætir titlar eru á mark-
aðinum. Má þar nefna söguritið
Blöndu, sem ekki hefur sézt lengi
á boðstólum. Verður það til sölu í
heild á markaðinum.
Bókunum er skipt niður á borð-
unum eftir efni. Má þarna líta
ævisögur, þjóðlegan fróðleik, skáld-
sögur innlendar sem erlendar, Ijóð,
barnabækur, skemmtirit o. fl.
I dag verður markaðurinn opinn
frá kl. 9—22 og á rnorgun frá kl.
9—6.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 28. febrúar 1969 3
Lokub veiðisvæði
Myndin sýnir veiðisvæði sem lokað hefur .verið sam,-
kvæmt lögum um vísindalega verndun fiskimiða landgrunns.
ins og lögum um bann gegn veiðum með botvörpu og flot-
vörpu með síðari breytingum. Að öðru leyti er vísað á aug-
lýsingu frá sjávarútvegsmálaráðuneytinu, sem kemur í Al-
þýðublaðinu.
Sfúdentar vílja
kjósa rektor
Reykjavík — ÞG.
f gærmorgun héldu stúdentar geysifjölmennan fund i
anddyri Háskólans,_ Við náðum tali af formanni stúdenta-'
ráðs, Höskuldi Þráinssyni, þar sem liann var við lestur niðri j
á Landsbókasafni, og spurðum hann, hverjlr hefðu staðið fyrir;
fundinum, og hvert hafi vedið tilefni hans.
Ólafur Guðnrundsson, formaðurj
Stúdentafélagsins bar fram þessa;
tillögu, og var hún síðanaiædd, og';
samþykkt í lok fundarins. Tillagan;
var þess efnis, að fram fari almenn-
ar kosningar rneðal stúdenta um,
Framhald á 9. síðu.
— Þessi fundur var haldinn sem
almennur félagsfundur Stúdenta-
félags íslands, þar sem borin var
fram tillaga til stuðnings tillögu
stúdentaráðs við háskólarað um
aukin áhrif stúdenta á stjórn Há-
skólans og þátttöku í rektorskjöri.
BÚKAMARKAÐUR
Bóksalafélags íslands
Hinn árlegi bókamarkaður hefst í dag í Iðnskólanum
við Skólavörðutorg
Opið í dag frá kl. 9 f.h. til kl. 10 í kvöld.
1