Alþýðublaðið - 28.02.1969, Blaðsíða 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 28. febrúar 1969
Fer nýtt geimfar af stað á mán udag?
Máriudagurinn 3. marz
1969 er enn einn merkisdag
urinn í sögu bandarískra
geimvísinda. Þá verður geinr
farinu Appollo-9 skotið á loft
með eldflaug af gerðinni Sat-
úrnus V; í geimfarinu verða
þrír menn, þeir James M. Mc
Divitt> Russell L. Scliwei-
kart og David R. Scott. Þeir
munu gera ýmsar æfingar í
geimnum — þ.á.m. mun
Schvvetkart ganga í „lausu
Iofti“ *— og vinna að ýmsum
mikilvægum rannsóknum, er
eiga að auðvelda mönnum
lendingu á tunglinu, er þar
að kemur. Gert er ráð fyrir,
að för Appollos-9 ta,ki tíu
daga.
Porveri AppoLIos, App-
oUo-8, sem einnig var skip-
aður þrem geimförum, eins
og menn muna, fór tíu; sinn
um umhverfis tu.nglið í 70
mílna Q12 kílómetra) fjar-
lægð í desembermánuði síð-
astliðnum. Þar var um að
íræða vísindalegt afrek, sem
þegar hefur verið skráð á
spjöld sögunnar. För App-
ollos-9 er næsta eti.g Appollo-
áætlunarinnar 'K-onefndu,
sem miðar að því að koma
mönnum til tunglsins. För
hans mun þó ekki þykja jafn
miklum tíðindum sæta og för
nafna hans áttunda, enda
halda þeir McDivitt, Schwei-
kart og Scott sig við jarðsvið
ið í þessari þriðju lengstu
geimferð veraldarsögunnar,
sem nákvæmlega tekur níu
daga tuttugu og tvær klukk
stundir og fjörtíu mínútur,
ef allt gengur að óskum.
Sá þáttur í ferð Appollos-
9, œm líklegt er að veki
hvað mesta athygti almenn
ings, er ,,geimganga“ Schw-
eickárts, sú sem áður er á
minnzt. Á fjórða degi ferðar
innar mun Russel L. Schw-
eickart stíga úr geimfarinu,
litast um í geimnum, gera
ýmsar merkilegar athuganir
og tilraunir - og síða'st en
ekki sízt sjást í sjónvarps-
tækjum frænda sinna á jörðu
n,iðri. Schweickart dvelur um
tvær klukkustundir utan
geimfarsinu og ber þá í til
raunaskyni nýjan geimfara-
búning, sem ætlunin er, að
þeir noti, sem fyrstir stíga á
land á tunglinu þegar þar að
kemur 'Hann verður þó skdj
anlega ekki, í sams konar
skóm og þeir, enda „jarðveg
ur“ annar og ólíkur! Á „geim
göngu“ sinni verður Schw-
eickart tengdur geimfari
þeirra félaga með nælonlínu,
súrefnisbirgðir sínar ber
hann á bakinu — og í fögg
u.m sínum hefur hann bæði
sendá og móttökutæki. Fjar-
skiptatækin gera honum ekki
aðeinu kleift að hafa samband
við félaga sína innl í geim
farinu, heldur og við vísinda
menn á jörðu niðrt.
Bandariskur aimenningur
mun fá tækifæri til að fylgj
ast vel með ferð Appolloe-9
í sjónvarpstækjum sínum,
ekki síður en ferðum hinna
fyrra geimfara. En það eru
ekki einungis Bandaríkja-
menn, sem orðið geta þessa
aðnjótandi, heldur og millj-
ónir manna um heim allan,
ef áhugi er fyrir hendi. Sam
bandsgervihnettir hátt yfir
Atlaratshafi og Kynrahafi
munu sjá til þess.
Það, sem eftir er af árinu
1969 og árið 1970 munu all
ar mannaðar geimferðir
Bandaríkjamanna beinast að
tunglinu. Að för Appollós-9
lokinni verður farið að hugsa
fyrir ferð Apolló(s-10 í apríl-
eða maímánuði. í júlí eða
ágúst er svo ætlunin að
mannað geimfar, Apolló-11,
lendi á tunglinu í fyrsta
skipti í sögu mannkyns. Eft
ir enn aðra tvo mánuði mun
svo Apolló-12 lenda þar og
enn tveimur mánuðum uíðar
Apolló-13. Þannig mutiu
hvorkii fleiri né færri en sex
bandarískir gaimfarar í þrjú
skipti hafa haft „tungl-jörð“
undir fótum í árslok 1969,
— það er að segja, ef guð lof
ar.
Að minnsta kosti tvær
tungllendingar í viðbót eru
svo fyrir'hugaðar árið 1970 —
Apollos - 14 og Apollos - 15.
Það hefði þótt fjarstæðu
kenndur draumur fyrir nokkr
um áratugum, að árið 1970
hefði mönnum tekizt að kom
ast til tunglsins. Nú bend'r
hins vegar alljt til þess', að
sú draumsýn verði innan
skamms orðin að veruleika.
Þar með bætist enn einn þátt
ur við mannkynssöguna, þált
ur sem á engan sinn líka. í
þeim þætti fara menn eins
og James McD’ivitt, Rusþel
Schweckart og David Scott
með mikilvæg hlutverk. Þejx
-hafa varðað oss veginn til
stjarnanna ...
mannaðar geimferðir til þessa
Flug-
Heiti Þjóð- Dagar og wími (klst. mín.):
greimfars: erni: í lofti: Áhöfn:
Vostok 1 Sovétr. 12.2. 1961 Gagarin 1:48
Freedonf 7 Bandar. 5.5. 1961 Síhepard :15
Liberty Bell Eandar. 21.7. 1961 ■Grissom : 16
Vostok 2 Sovétr. 6,—7.8. 1961 Titov 25:18
Friendship 7 Bandar. 20.2. 1962 Glenn 4:55
Aurora 7 Bandar. 24.5. 1962 Carpenter 4:56
Vostok 3 Sovétr. 11,—15.8. 1962 Nikolayev 94:22
Vostok 4 Sovétr. 12: —15.8. 1962 Popovich 70:57
Sigma 7 Bandar. 3.10. 1962 Sdhirra 9:13
Faith 7 Bandar. 15i-16.5. 1963 Cooper 34:20
Vostok 5 Sovétr. 14,—19.6. 1963 Bykovski 119:06
Vostok 6 Sovétr. 16,—19.6, 1963 Ters'hfcova 70:50
Voshkod 1 Sovétr. 11,—13.10. 1964 Feoktistov
Voshkod 2 Bandar. 18,—19.3. 1965 Komarov Yegorov Belyayev 26:02
Gemini 3 Bandar. 23.3. 1965 Leonov Grissom 4:53
Gemini 4 Bandar. 3,—7.6. 1965 Young McDivitt 97:56
Gemini 5 Bandar. 21,—29.8. 1965 Wihite Cooper 190:56
Gemini 7 Bandar. 4.-18.12. 1965 Conrad Borman 330:35
Gemini 6 Bandar. 15.-16.2. 1965 Lowell Schirra 25:51
Gemini 8 Bandar. 16.3. 1966 Stafford Armstrong 10:42
Gemini 9 Bandar. . 3. — 6.6: 1966 Scott Stafford 72:21
Gerrtini 10 Bandar. 18,—21.7. 1966 Cernan Young 70:47
Gemini 11 Bandar. 12—15.9. 1966 Oollins Conrad 71:17
Gemini 12 Bandar. 11,—15.11. 1966 Gordon Lowell 94:35
Soyuz 1 Sovétr. 22.-23.4. 1967 Aldrin Kor^arov 26:45
Apollo 7 Bandar. 11,—22.10. 1968 Sdhirra 260:09
Soyuz 3 Sovétr. 26,—30.10. 1968 Eirele Cunningham Beregovoy 94:51
Apollo 8 Bandar. 21.-27.12. 1968 Borman 147:00
Soyuz 4 Sovétr. 14.-17.1. 1969 Lowell Anders Shatalov 71:14
Soyuz 5 Sovétr. 15,—18.1. 1969 Yieliseyev Khrunov Volynov N 72:46
Yeliseyev Khrunov . : - J.