Dagur - 13.01.1944, Blaðsíða 8

Dagur - 13.01.1944, Blaðsíða 8
8 DAGUR ÚRBÆOGBYGGÐ □ RÚN 59441197 - 1 Atkv.: I. O. O. F. = 12511481/2 = KIRKJAN: Messað í Aktir- eyrakirkju næstk. sunnudag kl. 2 e. h. Fermingarbörn eru beðin að mseta við messu næstk. sunnudag kl. 2 e. h. Áheit á Akureyrarkirkju: kr. 50.00 fró ónefndum. Þakkir. — Á. R. Næturvörður í Akureyrar-Apóteki til n.k. mánudaéskvölds. Eitir það í Stjömu-Apóteki. Næturlæknar: í nótt, föstudaésnótt, Victor Gestsson. Lauéardags og surmudaésnótt: Jón Geirsson. Mánu- daésnótt: Pétur Jónsson. Þriðjudaés- nótt: Victor Gestsson. Miðvikudaés- nótt: Jón Geirsson. • Sjúkrasamlaésskriistoían: Opin 10 —12 f. h. og 3—6 e. h., nema á laug- ardögum, aðeins kl. 10 f. h. til 1 e. h. Berklavarnastöð Rauða-Krossins í Nýja sjúkrahúsinu, opin á þriðjudög- um og föstudögum kl. 2—4 e. h. Trúloiun sína opinberuðu sl. gaml- ársdag ungfrú Kristín Jensdóttir og Arnaldur J. Þór garðyrkjumaður á Reykjum. Hjónaefni. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Málfríður Tuli- nius (Hallgríms Tulinius) og Hektor Sigurðsson, Flóventssonar, lyfjafræð- ings, Akureyri. Slysavarnaíélaé karla heldur fund í húsi Verzlunarmannafélagsins kl. 2 e. h. á sunnudaginn kemur. Gjafir til væntanlegrar vinnustofu blindra, Akureyri: Ónefnd kona kr. 25. — Frú Dómhildur Jóhannesdóttir kr. 300. — Áheit kr. 25. — Áheit frá N. N. kr. 15. — Með þökkum móttek- ið, f. h. Blindravinafélags íslands. — Skarphéðinn Ásgeirsson. St. Brynja nr. 99 heldur fund í Skjaldborg þriðjud. 18. þ. m. kl. 8.30 e. h. stundvíslega. — Dagskrá: Inn- taka nýliða. Upplestur, gamanleikur og dans. Félagar fjölmennið og komið með nýja innsækjendur. Fundarinn bjTjar stundvíslega kl. 8.30 e. h. Barnastúkan Bernskan heldur fund í Skjaldborg næstk. sunnudag kl. 1 e. h. B-flokkur skemmtir og fræðir. — Foreldrar! Hvetjið börnin til þess að sækja stúkufundina og greiða gjöld sín. — Gæzlumaður. Aðalfundur kveniélaésins „Hííf“ verður haldinn í Skjaldborg næstk. mánudag og hefst kl. 8.30 e. h. — Kaffidrykkja. Barnastúkan Samúð heldur fund n. k. sunnudag kl. 10 f. h. í Bindindis- heimilinu Skjaldborg. Mjög áriðandi að félagar mæti. I Frá Kristneshæli. i í tilefni af 50 ára afmæli hefir j kvenfélagið „Framtíðin“, Ak- j ureyri, gefið Vinnustofusjóði I Kristneshælis 500 krónur. ! Þakka ég félaginu þessa rausn- I arlegu gjöf og óska því gæfu I og gengis í framtíðinni. JÓNAS RAFNAR. Hús til sölu Tilboð óskast í hæð í nýju húsi. Laus til íbúðar 14. maí n. k. Réttur áskilinn til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. RJÖRN HALLDÓRSSON. — Kvenfélagið Framtíðin Framhald af 1. síðu.) þpim tíma. Aldamótaárið stofn- aði félagið „aldamótasjóð" er geyma skal til ársins 2001, en eft- ir það má verja 4/5 vaxta sjóðs- ins í sama augnamiði. Af öðrum menningarmálum er „Framtíð- in“ hefir ýmist stutt eða haft for- göngu um, má nefna: Kvennaskólamálið. Þegar 1915 skoraði félagið á bæjarstjórn, að láta reisa kvennaskóla á Akur- eyri. Sumardvöl bama. Félagið beitti sér fyrir því fyrr á árum, að kaupstaðabörnin fengju vist á góðum heimilum í sveit. Elliheimili á Akureyri. Árið 1921 hóf félagið að safna fé til byggingar elliheimilis á Akur- eyri. Er sá sjóður nú orðinn 55.725 krónur og auk þess á sjóð- urinn 1/3 af Hótel Akureyri (eldra), gjöf frá Friðjóni Jens- syni lækni. Bæjarstjórn Akureyr- ar hefir veitt félaginu lóð fyrir elliheimilið á Eyrarlandstúni og þar hyggst það reisa heimilið strax og tímar leyfa. Hefir félag- ið hér stutt vel merkilegt nauð- synja- og menningarmál fyrir bæinn, þótt í kyrrþey hafi verið, og er nú komið vel a veg með að hrinda því í framkvæmd. Árið 1913 hafði „Framtíðin“ forgöngu að stofnun Sjúkrasam- lags Akureyrar. Var hér mjög merkilegt nýmæli á ferð, því að slík samlög voru mjög fátíð þá. Samlagið starfaði til ársins 1936 er núverandi sjúkrasamlag var stofnað samkvæmt lögum. Sjúkrahússmálið. Árið 1937 hét „Framtíðin" sjúkrahússmáli bæjarins stuðningi sínum í 10 ár og hefir síðan safnað fé til bygg- ingar sjúkrahúss hér og stutt málið á annan hátt, svo sem með láni úr elliheimilissjóði félags- ins, o. fl. Sjúkrahússöfnun félags- ins nemur nú 57.600 kr. Þegar þess er minnzt, að auk þess að vinna svo myndarlega að þess- um stórmálum, hefir félagið haft margvísleg önnur störf með höndum og hefir haldið uppi fjölbreyttu félags- og skemmt- analífi, — þá verður ljóst, að þau störf er þessi fámenni hópur kvenna hefir unnið í frístundum sínum, er mjög mikill og eftir- tektaverður. Félagið hefir gefið út stórkost- lega vandað minningarrit, prent- að á úrvals myndapappír og myndum prýtt, og kemur það út í dag. Steindór Steindórsson fiá Hlöðum hefir skráð. Þá efnir „Framtíðin" til veg- legs hófs að Hótel Norðurland í kvöld. Þá hefir félagið minnzt þess- ara tímamóta á þann veglega hátt að afhenda eftirtaldar gjaf- ir: Til vinnustofusjóðs Kristnes- hælis kr. 500.00. Til sjóðs blindraheimilis kr. 500.00. Hús- gögn i setustofu handa sjúkling- um í Akureyrarspítala. Núverandi stjórn félagsins er þannig skipuð: Formaður frú Gunnhildur Ryel, ritari frú Anna Kvaran, gjaldkeri frú Soffía Thorarensen. Nautgripastofn eyfirzkra bænda (Framhald af 1. síðu.) 426.90 kr. rneiri afurðir heldur en meðalkýrin 1930, með sama verði bæði árin. Gleggra yfirlit um það hvað á- unnizt hefir í sambandinu, og hver munur er á arðsemi kúa, fæst ef til vill með því að flokka kýrnar eftir því hve mörgum fitueiningum þær skila á ári. Mætti þá setja í 1. flokk þær kýr, sem skila 14000 fitueiniilg- um og þar yfir á ári. Fyrstu árin, 1930-36, eru í 1. fl. 10-20 kýr á ári eða til jafnaðar um 2% af fullmjólka kúm, en eftir 1936 fer 1. fl. að vaxa og 1942 eru 1. fl. kýrnar orðnar 76 eða 7.2% af fullmjólka kúm. Aftur hefir lélegustu kúnum fækkað verulega. Árin 1930—36 eru þær kýr, sem ekki skila 8000 fitueiningum á ári 120—200 pr. ár, eða um 20% af fullmjólka kúm, en 1942 er sá flokkur 68 kýr, eða 6.4%. Eðlilega hefir fóðurneyzla aukizt nokkuð. Fyrstu árin telja bændur sig gefa 16—1700 fóður- einingar kúnni á ári að meðal- tali, en 1942 verður meðal fóðnr- eyðsla á kú 1950 fóðureiningar. En það þarf heldur enginn að búast við miklum afurðum af kúm, nema farið sé vel með þær. Ef athuguð er fóðureyðslan hjá þeim 76 kúm, sem skila yfir 14000 fitueiningum árið 1942, þá er hún til jafnaðar 2102 fóð- ureiningar á kú, en þær kýr hafa skilað til jafnaðar 3835 kg. mjólk með 3.97% meðal fitu, sem gerir 15234 fitueiningar eða 7,25 fitueiningár fyrir hverjst fóðureiningu, en hinar 68 kýr, er ekki ná 8000 fitueiningum ár- ið 1942, fá aðeins 1708 fóðurein- ingar hver og skila í staðinn til jafnaðar 2181 kg. mjólk með 3.34% meðal fitu, sem gerir 7278 fitueiningar eða 4.30 fitu- eingar fyrir hverja fóðureiningu. Fyrrtöldu kýrnar skila 2.95 fitueiningum meira fyrir hverja fóðureiningu og sé fitueiningin virt á 30 aura verður munurnn 89 aurar á fóðureiningu. Eða með öðrum orðum: góðu kýrnar borga 44.50 krónum hærra verð fyrir hestburð af töðu, heldur en lélegu kýrnar. Óvarlegt mun þó að segja, að eigendur góðu kúnna græði svo mikið á hverjum töðuhestburði, >em kýrnar fá, hitt mun sanni nær, að eigendur lélegu kúnna tapa ekki svo lítilli upphæð á ári á {reim. Þá má geta þess, að á skýrslu yfir ófullmjólka kýr 1942 voru margar kvígur, sem að fyrsta kálfi reyndust mjög vel, þó nokkrar er skiluðu um og yfir 3000 1. með góðri meðal fitu. Kvígur er þannig fara af stað, gefa vonir um, að ekki þurfi að verða afturför með afurðir kúnna á næstu árum, ef lag verð- ur á heilsufari kúnna, en á því vill nú víða vera misbrestur. Kalkskortur í kúm gerir nú víða vart við sig og er illt til að vita, ef héraðið þarf lengi að vera án dýralæknis. Síðast, en ekki sízt, má geta þess, að á sl. vori voru haldnar nautgripasýningar hér 1 hérað- inw, oft fengu 94 Výr i *amb*nd»' Fimmtudaginn 13. janúar 1944 Verkamannafélag Akureyrarkaupstaðar heldur fund í Verklýðshúsinu föstudaginn 14. þ. m.. kl. 8.30 e. hád. D a g s k r á : 1. Inntaka nýrra fólaga. 2. Atvinnuleysið og tillaga um atvinnubætur. 3. Kosin afmælisnefnd. 4. Onnur mál. F. h. félagsstjómarinnar, Marteinn Sigurðsson. SILKISOKKAR •• á aðeins kr. 5.50 pr. parið KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA V ef naðarvörudeild NYUNG! Hefi fengið örfá stykki af stóláklæðum og púðum i klassiskum stil. Munstrin handsaumuð, óuppfyllt. Hannyrðaverzlun Ragnh. G. Björnsson svæðinu 1. verðlaun og er það há tala, ekki sízt, ef tekið er tillit til þess, að sýningarnar voru illa sóttar, vegna þess hve tíðarfar var óhagstætt. Ekkert naut á sambandssvæð- inu var svo gamalt, að það gæti fengið 1. verðlaun, en öll, sem aldur höfðu til að fá 2. verðlaun fengu 2. verðlaun, hin loforð um fóðurstyrk síðar. Á fundinum var samþykkt í einu hljóði, að félögin skuli leggja fram mikið meira fé en verið hefir, til starfseminnar. Er óhætt að segja, að á fundinum hafi ríkt mikill áhugi fyrir fram- tíðarstarfinu. Og er það góður árangur af 13 ára starfi naut- griparæktarfélaganna hér, að geta sýnt á skýrslum mikið aukn- ar afurðir kúnna og ekki síður má þakka það undangengnu starfi að nú skuli vera fyrir hendi hjá bændum almennt, sá áhugi og skilningur, sem ekki horfir í fjárútlát fyrir þá starf- semi, er ekki skilar árangri nema á mjög löngum tíma og vel getur orðið þeim til gagns sem utan við starfið standa, en á þó að koma að mestum notum fyrir eftirkomendurna. Slikan áhuga er gleðilegt að finna nú, á þeim tíma þegar mest er talað um, að stéttir og einstaklingar þessa þjóðfélags hugsi ekki um annað, en að skara eld að sinni köku, hvað sem öllum öðrum líði og hvað sem morgundagur- inn kunna að bera f skauti sínu. Eyvindur Jónsson. FÉLAGSRÁÐSFUNDUR K. E. A. (Framhald af 1. síðu). talsvert minni sl. ár en árið áð- ur. — Þorskafli var tregur yfir vertíðina og bátum hefir heldur fækkað frá fyrra ári. — Lang- mestur hluti fiskjarins var flutt- ur út f ís, aðallega með færeysk- úm skipum, Veyptn fijKínn Arshátíð Karlakórs Akureyrar verð- ur haldin að Hotel Norðurland laug- ardaginn 29. þ. m. Styrktarfélagar gefi sig fram við formann félagsins fyrir 20. þ. m. af útgerðarmönnum við fjörð- inn fyrir milligöngu Kaupfélags- ins. Þessi flutningur nam alls um 3820 tonnum, sem er um 25% minni en árið 1942. Hraðfrysti- hús félagsins unnu alls um 356 þús. kg. af hraðfrystum fiski til útflutnings og er það um 50% meira magn en árið áður. Otflutningsvörur landbúnað- arins 1943, svo sem kjöt, ull og gærur eru enn óseldar og ekki mögulegt að spá neinu ennþá um hvérnig takast muni um sölu. Otlánsdeild sú, sem sett var á laggirnar f ársbyrjun 1943 starf- aði allt árið og voru veitt úr henni samtals tæplega 550 þús. kr. lán, sem öll voru greidd upp fyrir áramót. Hagur félagsmanna gagnvart félaginu hefir enn batnað tals- vert á árinu. Innstæður aukizt í reikningum og innlánsdeild, en engar skuldir myndast. — Mjög lítið er vafalaust um aukningu á fasteignum eða lausafé öðru en peningum og jafnvel má gera ráð fyrir að bú- stofn hafi víða verið skertur sl. haust eins og fyrr getur. Veltur því á miklu fyrir framtíðaraf- komu manna, að takast megi að varðveita þær innstæð.ur, sem þegar eru fengnar og geyma þær til þess tíma, þegar ráðlegt þykir að verja þeim í arðbærar fram- kvæmdir og endurbætur, sem orðið hefir að leggja á hilluna undanfarin ár. — 1 þeirri von óska eg öllum fé- lagsmönnum Kaupfélags Eyfirð- inga farsæls komandi árs um leið og eg þakka þeim gott og ánægjulegt samstarf i liðna ár- inw". ^

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.