Dagur - 03.02.1944, Side 4

Dagur - 03.02.1944, Side 4
4 DAGUR Ritstjóm: Ingimcxr EydaL Jóhann Frímann, Haukur Snorrason. Afgreiðslu og innheimtu annast: Sigurður Jóhannesson. Skrifstofa við Kaupvangstorg. — Sími 96. Blaðið kemur út á hverjum fimmtudegi. Árgangurinn kostar kr. 15.00. Prentverk Odds Björnssonar. „Útskæklai4-sjónarmið Reykjavíkurvaldsins pllHÖIUNDAR þeir, sem túlka sjónarmið broddborgaraklíku þeirrar í Reykjavík, er raunverulega myndar innsta kjarna og leyndar- ráð Sjálfstæðisflokksins, eru hversdagslega ekki yfrið hreinskilnir menn. Kjósendaveiðarnar úti um sveitir og sjávarþorp — og jafnvel í höfuð- staðnum sjálfum — myndu ganga stórum tregleg- ar en ella, ef þeir flíkuðu mjög önglinum berum og kynnu illa eða ekki þá góðu íþrótt slyngra veiðimanna að dylja agnhaldið vendilega í ein- hverri litfagurri og lostætri tálbeitu. Það er því — frá þeirra sjónarmiði — fremur handvömm og breyskleiki en lofsverð dyggð, er þeim verður það á stöku sinnum að segja sannleikann um hugar- far sitt, skoðanir og stefnti, afdráttar- og umsvifa- laust. Það hefir t. d. vafalaust verið á einu slíku „veiku augnabliki“, að Sigurður Kristjánsson glopraði út úr sér hinum landfleygu og „klass- isku“ ummaalum, er hann kallaði bændur lands- ins „mennina með mosann í skegginu". Foringja- lið flokks hans vildi sjálfsagt nokkuð til þess vinna, að þau orð væru ótöluð, á meðan flokkur- inn verður þó enn að dálitlu leyti að sækja fylgi sitt og umboð út í sveitirnar og treysta að nokkru á vígsgengi sitt frá þeim rustafengna og ósnyrta lýð, sem þar býr, að dómi þessa virðulega alþing- ismanns höfuðstaðarins og skoðanabræðra hans. Nú hefir aðalritstjóri „Morgunblaðsins" — höf- uðmálgagns Reykjavíkurvaldsins — á öðru „veiku augnabliki" gert nýja, opinskáa og harla mikilsverða játningu um hugarfar sitt og sam- herja sinna í garð „útskækla“ landsins, svo sem Akureyrar og sveitanna hér nærlendis. Voru þau ummæli orðrétt eftir honum höfð í síðasta tbl. ,,Dags“, og munu þau vafalaust eiga eftir að verða álíka fræg og „klassisk" eins og einkunnarorð „Mosaskeggs“. — Svo mikla athygli — og óþokka — hafa ummæli Morgunblaðs-ritstjórans vakið hér, að ritstj. „íslendings" hefir talið sig tilneydd- an að veita „kollega" sínum og flokksbróður hæfilega ofanígjöf — svona til málamynda a. m. k. — Birtir hann í síðasta tbl. „ísl.“ ummæli „Morgunblaðsins" um þetta mál. orðrétt að öðru en því, að hann fellir niður klausuna um „út- skæklana", og var þar þó mestur kraumurinn í. Að svo búnu bætir ritstj. svohljóðandi athuga- semd við frá eigin brjósti: „Gefa þessi ummæli nokkra hugmynd um, hvar greinarhöf. (þ. e. ritstj. Morgunbl.“) ætlast til, að verksmiðja þessi verði'reist, og mun engum á óvart koma. (Leturbr. hér). Öll fyrirtæki munu eiga að rísa upp í Rvík. Þangað á að reyna að safna öllu landsfólkinu..“, o. s. frv. í þessum dúr. — Má um þetta segja, að bragð sé að, þá barnið finnurl En eftir á að hyggja: Ritstj. „ísl “ hefði heldur ekki — fremur en öðrum — þurft að koma það á óvart, hvað fyrir Reykjavíkurvaldinu og flokk þess vakti í fyrra, þegar það leitaðist við að hrifsa til sín síðustu leifar byggðavaldsins á þingi þjóð- arinnar með vanhugsaðri stjórnarskrárbreytingu, nýrri kjördæmaskipan, uppbótarþingsæta-fargan- inu, og allri þeirri ringulreið og ólögum, sem af því ráðleysi hafa flotið. En sá góði maður reynd- ist þó ekki framsýnni né trúrri hagsmunum „út- skæklanna" en svo í þann tíð, að hann lagðist þá af allri orku sinni og viti á sveif með þeim mál- staðnum, er síður skyldi, DAGUR r Frá Italíuvígstöðvunum Amerískai fluévélar varpa sprenéium á brýr yfir Tíber-fljót, 100 km. noröur af Róm. — Bandamenn halda uppi loftsókn á saméönéuleiðir þýzka hersins á Ítalíu daé oé nótt. „Hlutleysi" og einokun. pORRÁÐAMENN Ríkisútvarpsins okkar virðast halda, að þeir séu alveg sjálfkjörnir til þess að leggja úrslitadóm á ýmsa menningarviðleitni þjóðarinnar, svo sem bókmenntir, út- gáfustarfsemi og fleira þess háttar. Allir eiga þessir dómar raunar að vera uppkveðnir í anda og krafti hins marg-umtalaða og hálofaða „hlut- leysis“ þessarar ríkisstofnunar, en æði mörgum mun þó finnast sem mönnum og stofnunum sé í fram- kvæmdinni gert ærið mishátt undir höfði á þeim stað og „réttlætið" og „hlutleysið11 harla brestótt og stopult. Útvarpið mun t. d. hafa sett sér fastar reglur um efni og orðalag auglýsinga þeirra, sem þar mega birtast, og verða þær allar að ganga i gegnum ritskoð- un þess, svo að tryggt sé, að þær full- nægi þessum kröfum. Mun þar hvorki mega gæta nokkurs áróðurs né skrums af neinu tagi, enda mun ýms- um slikum tilkynningum hafa verið breytt mjög eða þær jafnvel alls ekki birtar af þessum ástæðum. Væri að vísu gott eitt um þetta að segja, ef eitt væri látið þar yfir alla ganga, en þvi fer raunar víðs fjarri. Ritskoðarar Útvarpsins hafa t. d. fellt niður mjög hógværlega orðaðar upplýsingar í slíkum tilkynningum og í annan stað neitað að birta auglýsingar um út- komu blaða og rita, þótt þar hafi að- eins verið getið höfunda og nafna á greinum þeirra, en á sama tíma hefir það birt á eiéin kostnað upptalningar á slíkum hlutum viðvíkjandi útkomu annarra blaða, bóka og rita og jafnvel frá eigin brjósti lokið lofsorði á ein- stakar greinar, bækur og rit, á sama tíma og annars slíks lestrarefnis, sem sent hefir verið Útvarpinu til um- sagnar, hefir verið þar að litlu eða engu getið. Og sumir menn og stofn- anir hafa orðið að þola þá meðferð, að almenn og hógværlega orðuð þekkingaratriði hafa verið felld niður úr útvarpstilkynningum þeirra sem „ofyrði“, á sama tíma og Útvarpið upplýsti það t. d. um miðlungsskáld- sögu þýdda, að útkoma hennar hefði þótt „stórkostlegur viðburður“ á Norðurlöndum (!!) Stofnunum, sem einstakir menn eða félög ættu og rækju, myndi vart hald- ast slík hlutdrægni uppi til lengdar, en reynslan virðist sýna það fullljóst, að þegnunum reynist erfitt og næst- um því ókleift að spyrna við broddun- um, þegar einokunarstofnanir rikis- valdsins beita þá ójöfnuði og rang- sleitni. Slík er ein blessun hins marg- lofaða ríkisrekstrarskipulags. Miðunarmaðurinn í Perluhöfn. n MERÍSKT blað sagði eftirfarandi sögu nú ekki alls fyrir löngu: í ófriðarbyrjun hafði verið fundið upp rafbylgju-miðunartæki, sem Radar nefnist. Með því átti m. a. að mega finna og miða fjarlægð og stefnu óvinaflugvéla. — Þegar Japan- ar gerðu hina alræmdu árás á Pearl Harboi, eyddu fjölda herskipa og 250 flugvélum og drápu fólk í tugum þús- unda fyrir Vestmönnum, var Radar- miðari þar á staðnum. Hann miðaði japönsku flugvélamar, þegar þær voru í 220 km. fjarlægð, eða þremur stundarfjórðungum áður en þær komu. Hann tilkynnti liðsforingja sínum þetta, en hann tók ekkert mark á orðum hans. — Tvisvar kom miðar- inn aftur og sagðist hafa talið um 50 flugvélar, sem óðum nálguðust og ekki væri von á neinum slíkum hóp þeirra eigin flugvéla úr þessari átt. En enginn trúði vesalings miðaranum. — Eftir árásina flugu Japanar til suð- urs og voru herskip nú send í sömu átt til árása á stöðva;skipin, en fundu þau hvergi. — Miðarinn fylgdi þó flugvélunum., einnig eftir að þær voru úr augsýn, og fann, að þær höfðu villt skipunum sýn. Þær beygðu til norðuis þangað, sem stöðvarskip þeirra voru. En í öllu þessu fáti tókst miðaranum ekki að koma athugun sinni á framfæri nógu fljótt, og stöðv- arskip Japana komust undan. „Máninn líður“. J^ÝJA-BÍÓ hér sýnir um þessar mundir stórmynd með þessu nafni eftir hinni frægu skáldsögu Steinbecks. Lýsir myndin innrás Þjóð- verja í Noreg og æfi fólksins í litlum námubæ þar undir hernaðaroki naz- ista. Heyrzt hefir, að sumir menn hér í bænum kalli myndina „hlutdrægan stríðséróður", og mun það þó sannast orða, að þótt kvikmynd þessi lýsi ástandinu í Noregi ekki sérstaklega fagurlega, séu lýsingar hennar þó til- tölulega meinlausar og hófsamlegar — aðeins svipur hjá sjón — í saman- burði við hinn harmsögulega og hrikalega veruleika sjálfan. Getur skoðun þessara manna naumast verið nema af tveim rótum runnin: Annað tveggja er hún ávöxtur ótrúlegrar ein- feldni, barnaskapar og þekkingarleys- is um eðli og aðferðir hinnar nazis- tisku stríðsvélar alls staðar í heimin- um, eða þá að ekki þarf að fara í neinar grafgötur um það, „hvorum megin við götuvirkin" þessir menn hefðu staðið, ef svo hefði farið, að hlutur nazista hefði komið upp í styrj- öldinni að lokum, eða þýzk innrás verið gerð í þetta land — eins og vel gat farið, ef önnur og sterkari öfl hefðu ekki komið í veg fyrir það í tæka tíð. Verða þau forlög eða for- sjón, er bjargað hefir okkur íslending- um frá þaim voða, aeint fullþökkuð. Fimmtudaginn 3. febrúar 1944 , MODIR, KONA, MEYJA Blessuð börnin eru alltaf að meiða sig. Hver móðir þekkir þessi orð af eigin reynslu. Sem bet- ur fer er það sjaldnast, að meiðslin eru svo alvar- leg, að leita þurfi læknis, en gott er að kunna á því fljót skil í hvert sinn, hvað gera þarf og hafa jafnan heima nauðsynlegustu sáraumbúðir o. s. frv. Nýlega las eg grein í amerísku kvennablaði, þar sem barnalæknir gefur mæðrunum ráð og leiðbeiningar um það, hvernig þær eigi að haga sér þegar slík smáslys ber að höndum. Þótt fæst af því sé nýtt eða sérlega merkilegt í augum þeirra, sem ærna hafa reynsluna í þessum efnum, þá má um þetta segja, að sjaldan sé góð vísa of oft kveð- in eða hoíl ráð of oft endurtekin. Eg réðist því í að snara þessum leiðbeiningum á íslenzku og birta þær hér. Hinn ameríski læknir segir svo jn. a.: ★ Börnin gleypa oft smáhluti án þess komi að sök, en sé það opin öryggis- næla, er bezt að kalla á lækninn i flýti. Litla vinnukonan getur orðið fyrir smáslysi í eldhús- inu. Bezt er því, að hafa jafnan bruna- áburð í húsinu, til að grípa til. Enginn kemst svo á fullorðinsár, að hann skeri sig ekki í fing- ur eða rífi sig á nagla einhvern tíma. Aðalatriðið er að búa um sárið strax. Þegar bömin gleypa hluti: Ef þér eruð hrædd- ar um að barnið hafi gleypt eitthvað, þá varist að láta það sjá hræðslumerki á yður. Gangið fyrst úr skugga um að barnið hafi raunverulega gleypt hlutinn. Ef svo er og um smáhlut er að ræða, sem hefir gengið liðlega niður, er sjálfsagt að fylgjast vel með því, hvort barnið skilar honum innan fárra daga. Ef ekki, láta gegnumlýsa það. Sitji hluturinn í hálsinum, þá er ekki rétt, að berja barnið í bakið, eins og margir gera þó, eða vaða með fingurinn ofan í hálsinn, heldur láta barnið borða þykkan graut, eða mjúkt brauð eða eitt- hvað þess háttar. Maturinn festist þá við hlutinn, drífur hann niður í magann og varnar því oft að oddur eða rönd særi innyflin. Síðan er sjálfsagt að fylgjast með því hvort barnið skilar hlutunum og gegnumlýsa það, ef móðirin verður ekki vör við neitt. ★ Brunafleiður og sár: Þá kemur ekki ósjaldan fyrir að barnið brennir sig á heitum ofni, heitu vatni, gufu eða einhverju þvílíku. Bezt er að hafa jafnan brunaáburð heima og grípa til hans strax. Ef áburður er ekki við hendina er gamalt húsráð að bera natron, leyst upp í teskeið af vatni, á sárið. Annað ráð er að laga lútsterkt te og bera það á sárið, kalt. Ef um lítils háttar fleið- ur er að ræða, er gott að nota „koldkrem“. Sprengið aldrei brunablöðrur, því að þær eru vörn líkamans gegn því að óhreinindi komist í sárið. Ef fleiður eða blaðra er stórt, er sjálfsagt að vitja læknis. Ef brunablaðra springur, skal gæta þess vandlega að engin óhreinindi komist í sárið. ★ Rispur og fingursár: Að skera sig í fingur eða rífa sig á nagla eru slys, sem henda allan uppvax- andi lýð, einhverntíma, sé barnið hraust og fjör- ugt. Venjulega er slíkt varla í frásögur færandi, en vert er þó að minnast þess, að úr smáskeinu getur orðið lífshættulegt mein, ef eitrun kemst í sárið. Þess vegna er bezt að hreinsa slík sár taf- arlaust, bera á þau þunna joðblöndu og vefja síðan með venjulegu sárabindi. (Framh.). ★ Eins og kol þarf til glóða og við til elds, svo þarf þrætugjarn- an mann til að kveikja deilur. (Orðskviðir Salomons),

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.