Dagur - 16.03.1944, Síða 1
4NNALL
DAGS
r
=☆=
Nýlega er látinn að heimili
sínu hér í bænum, Hafnarstræti
13, Adolf Kristjánsson, skip-
stjóri, valinkunnur dugnaðar- og
sæmdarmaður.
★
Mannalát. — 3. þ. m. lézt á
Miðlandi í Öxnadal Aðalsteinn
Hallsson bóndi þar, tæplega átt-
ræður að aldri, f. 11. júní 1864.
Aðalsteinn var Svarfdælingur,
en fluttist með konu sinni,
Kristjönu Þorleifsdóttur, að
Varmavatnshólum árið 1921.
Hafa þau búið síðan í Öxnadal,
fyrst á Hólum og nú lengi á
Miðlandi. Einkadóttir þeirra
hjóna er Elínborg, kona Jónasar
í Hrauni. En tvær dótturdætur
sínar fóstruðu þau í Öxnadal og
auk þess er fóstursonur þeirra,
Guðmundur Þorláksson, nátt-
úrufræðingur, sem að líkindum
dvelur nú í Grænlandi, þar sem
hann var með dönskum rann-
sóknarleiðangri í stríðsbyrjun.
Aðalsteinn var hinn bezti
drengur.
Þá er látinn 5. þ. m. í sjúkra
. húsinu á Akureyri Þórhallur M.
Kristjánsson frá Sæborg við
Hjalteyri, aðeins tæplega hálf
fertugur að aldri. Lætur hann
eftir sig konu, Þórhönnu Rögn-
valdsdóttur og fimm börn þeirra
í ómegð.
Þórhallur var vel gefinn máð
ur og einkar vinsæll. Er þungur
harmur að láti hans.
Nýr sagnaþáttur hefst í blað-
inu í dag. Er hann af Ara
administrator Sæmundsen, skráð-
ur af Jónasi Rafnar, yfirlækni
★
Pétur Ólafsson, fyrrum bóndi
á Hranastöðum, átti 75 ára af-
mæli 9. þ .m. — Pétur er greind
ur sæmdarmaður og hefir haft
með höndum fjölinörg trúnaðar
störf fyrir sveit sína og leyst þau
öll vel af hendi. Kona hans er
Þórey Helgadóttir, systir Einars
sál. garðyrkjufræðings. Meða
barna þeirra er Jakob, ritstjóri
íslendings.
★
Austlendingamót var haldð
veitingahúsinu Norðurland síð
astl. laugardagskvöld. Var mót
þetta mjög fjölsótt af Austlend
ingum búsettum í bænum og
gestum þeirra. Var fyrst allleng
setið undir borðum við kaffi
drykkju og fóru jafnframt fram
ræðuhöld og söngur. Eftir að
staðið var upp frá borðum
skemmtu menn sér við dans og
samræður lengi nætur. Fór mót
ið mjög vel fram og var hið
ánægjulegasta. Eru slíkar sam
komur sem þessi vel til þesi
fallnar að glæða átthagatryggð,
sem er raunar þáttúr eða jafnve
undirstaða ættjarðarástarinnar.
★
Alþingi var frestað síðast
föstudag. Næst keinur það sam
an 10. júní. til þess að ganga frá
lýðveldisstjórnarskránni, eftir aí'
þjóðaratkvæðagreiðslan hefirfar-
ið fram.
XXVII. árg.
SJÁLFVIRK SlMASTÖÐ VERÐUR STOFNSETT HERIBÆNUM
HiÐ NÝJA PÓSTHÚS TEKUR VÆNTANLEGA TIL STARFA A ÞESSU ARI
Samtal við Guðmund J. Hlíðdal, póst- og
símamálastjóra, um iramkvæmdir póst- og
símamálastjórnarinnar íiér á Akureyri og
samgöngur í lofti og á landi í framtíðinni
DAG U R
Akureyri, fimmtudaginn 16. marz 1944
11. tbl.
pÓST- og SÍMAMÁLASTJÓRI, Guðmundur J. Hlíðdal, kom
hingað til bæjarins, flugleiðis, s. 1. mánudag og dvelur hér
þessa dagana í ýmsum embættiserindum varðandi rekstur pósts og
síma. Tíðindamaður „Dags“ kom að máli við símamálastjórann í
gær og spurði frétta af framkvæmdiun í sambandi við hina nýju
póst- og símabyggingu, sem hér er í smíðum.
Fórust símamálastjóra m. a. orð á þessa leið:
— Vonandi tekst að koma
I
íinni nýju byggingu allri undir
þak á sumri komanda. Bakálma
hússins er nú steypt í fullri hæð,
en á framhúsið, er snýr að Hafn-
arstræti, vantar enn tvær efstu
hæðirnar. Verið er að innrétta
neðstu hæðina, sem aðallega er
ætluð fyrir póstafgreiðslu og al-
menningsafgreiðslu símans. Er
gert ráð fvrir að pósthúsið geti
tekið til starfa í hinni nýju bygg-
ingu á þessu ári.
— En hvað líður sjálfvirku
stöðinni fyrir bæinn?
— Það er ætlun símamála-
stjórnarinnar að koma upp hér
sjálfvirkri stöð og er Iiið nýja
hús m. a. reist með það fyrir
augum. En fyrsti liðurinn í þeim
framkvæmdum verður að vera
endurbætur á línukerfi bæjar-
ins. Sjálfvirk stöð þarfnast að
mestu neðanjarðarlína, og er því
gagngerð breyting á núverandi
kerfi nauðsynleg, áður en sjálf-
virk stöð getur tekið til starfa
hér. Af skiljanlegum ástæðum
verður ekki hægt að hefja þær
framkvæmdir að neinu ráði, fyrr
en ófriðnum lýkur, og mögu-
leikar til efnisútvegunar rýmk-
ast, og er þó ekki þar með sagt,
að það þurfi að dragast lengi úr
þessu.
Hvað er að segja um hina
nýju skipan, sem tekin var upp
á póstflutningum hingað norð-
ur á þessum vet-ri, og framtíð
þeirra mála?
— Mikil áherzla hefir verið
lögð á, að halda uppi greiðum
samgöngum milli Reykjavíkur
og Akureyrar á þessum vetri
og hefir í því efni náðst tiltölu-
lega góðúr árangur, þótt nokkr-
ar tafir hafi orðið á að undan-
förnu, af alkunnum ástæðum.
En mikinn hluta vetrar tókst að
halda uppi tveim ferðum í viku,
fyrir póst og farþega, og síðan
einni ferð á viku og er, svo sem
kunnugt er, ekið milli Suður
lands og Sauðárkróks, síðan
Öxnadalsheiði varð ófær bif-
reiðum, og síðan flutt með skipi
milli Sauðárkróks og Akureyrar,
um Siglufjörð. Má það furðu
legt teljast, að þessi leið skuli
hafa verið opin á sama tíma og
leiðirnar milli Reykjavíkur og
Suðurlandsundirlendisins hafa
verið meira og minna tepptar.
Um framtíðaffyrirkomulag* ferð-
anna á þessari leið ej enn ekki
hægt að segja neitt ákveðið
énda alhnikil óvissa um sam-
göngur milli Reykjavíkur og
Borgarness eftir strand Faxaflóa-
batsins „Laxfoss".
— En sérleyfin á sumri kom-
anda á þessari leið?
Um jiað mál er ekkert unnt að
segja eins og stendur, með þ\ í
að enn er ekki búið að ganga frá
samgöngum um leigu annars
skips í stað ,,Laxfoss“, en þó er
þess vænzt, að jrað takist og þá
mun skipulagsnefnd fólksflutn
inga með bifreiðum taka til at
hugunar og gera tillögur um sér
leyfisveitingar á þessari leið.
— Hyggst póststjórnin að taka
flugið í þjónustu póstsamgangn
anna jafnótt og möguleikar til
þess eru fyrir hendi?
— Tvímælalaust. Flugsam-
göngur innanlands verða að auk-
ast mjög mikið upp úr stríðinu.
Stærsta og nauðsynlegasta átakið
í því efni verður, auk aukningar
á flugvélakosti landsmanna, að
fjölga flugvöllum víðsvegar um
land. Póststjórnin mun áreiðan-
lega notfæra sér bætta aðstöðu
í þessum efnum til bættra póst-
samgangna eftir því sem unnt ev.
— Notar póststjórnin íslenzku
flugvélina til póstflutninga
norður hingað, hvenær sem
tækifæri gefst?
Pósturinn er undantekningar-
laust sendur með flugvélinni,
þegar hann liggur fyrir og ör-
uggt er, að flogið verði. Hins
vegar er samgöngunum nú svo
háttað, að bíllinn, sem norður á
að fara í viku hverri, fer frá
Um borð í innrásarbát
Myndin er af amerískum innrásarbátum á leið til árásar á japanskar bæki-
stöðvar. — Bandaríkin hafa smíðað þúsundir slíkra skipa til notkunar á
Kyrrahafi og í væntanlegri innrás á meginland Evrópu.
ADALFUNDUR FISKISAMLAGS K. E. A.
Eyfirzkir útvegsmenn óska, að K. E. A.
annist ísfiskiitflutning og fisksölu í Eyja-
firði á yfirstandandi ári
J^ÐALFIJNDUR Fiskisamlags
K. E. A. var haTdinn hér í
bænuni sl. mánudag. Fundinn
sóttu út gerðannenn frá verstöðv-
unum liér tit með Eyjafirði. —
Voru rædd ýms mál er varða út-
gerðina hér og gerðar nokkrar
ályktanir um þau.
Framkvæmdastjóri Ú tgerðar-
félags K. E. A„ Gunnar Larsen,
flutti skýrslu um ísfisksölu og
útflutning félagsins á sl. ári og
Jakob Frímannssón fram
kvæmdastj, K. E. A. ræddi um
horfur í fisksölumálum. Að því
loknu urðu almennar umræður
Reykjavík kl. 7 að rnorgni, og þá
er ekki unnt að segja með vissu,
hvort flogið verði þann dag.
Undir slíkum kringumstæðum
verður vitanlega að senda póst-
inn með bílum.
Eg get fullyrt, að póststjórnin
hefir rnikinn áhuga fyrir aukn-
um flugsamgöngum og greiðari
póstflutningi með flugvélum, og
mun styðja jrað mál eftir föng-
um. Eins og sakir standa er
mönnum starsýnast á inanlands:
flugið, en ekki er vali á, að í
millilandaflugi eftirstríðsáranna
mun ísland hafa mikilla hags
muna að gæta. Þau mál eru að
vísu í óvissu ennþá, en jró hafa
verið mörkuð nokkur spor. Ar-
ið 1940 fór eg til Noregs, til
(Framhald á 8. síðu.
um hagsmunamál útvegsmanna
hér um slóðir.
í fisksölumálinu var eftirfar-
andi tillaga samjrykkt:
„Fundurinn skorar á K. E. A„
að taka að sér fisksölumálin
1944 eins og 1943, útvega fisk-
kaupaskip til þess að kaupa ís-
fisk í Eyjafirði, svo lengi sent
kostur er á, starfrækja frystilnis-
in eftir mætti, útvega mönnum
salt ef til þess þyrfti að grípa,
hafa á hendi sölu fiskjarins í
heild og gera allar nauðsynlegar
raðstafanir til jress að tryggja
sölu á afla útvegsmanna í firð-
inum“.
Fundurinn skoraði á K. E. A.
að stofnsetja hið fyrsta skipa- og
veiðarfæraverzlun. Mun félagið
hafa í huga að ln inda því í franr-
kvæmd, undir eins og tímar
leyfa.
„Geysir“ syngiir
á sunnudaginn
]£ARLAKÓRINN „GEYSIR“,
undir stjórn Ingimundar
Árnasonar, hefur fyrstu hljóm-
leika sína á jressu ári í Nýja-Bíó
næstkomandi sunnudag kl. 3 e.
h. — Kórinn hefir æft af kappi
að undanförnu og munu mörg
ný viðfangsefni á söngskránni.