Dagur - 26.05.1944, Qupperneq 1
*
Söngmót
„HEKLU,,
8 karlakórar — 250 söngmerm
syngja hér um hvítasunnuna.
Annan hvítasunudag verður
hér á Akureyri söngmót norð-
lenzkra karlakóra. Aðkomukór-
ar, sem sækja mótið, eru þessir:
„Ásbirningar“ Sauðárkróki,
söngstj. Ragnar Jónsson „Heim-
ir“ Skagafirði, söngstj. Jón
Björnsson, „Karlakór Bólstaða-
h 1 í ðarhrepps", söngst j .Þorsteinn
Jónsson, „Karlakór Reykdæla“,
söngstj. séra Friðrik A. Friðriks-
son og „Karlákór Reykhverf-
inga“, söngstj. Sigurjón Péturs-
son. Einnig taka bæjarkórarnir,
Geysir og Karlakór Akureyrar
þátt í mótinu. Kórarnir mæta
til æfinga á Hvítasunnudags-
kvöld og annan syngja þeir
fimm konserta. Tvo í Nýja Bíó
kl 1 og kl. 4. Á þessum sam-
söngvum syngur hver kór 2 lög,
og eru það því 16 lög alls í
hverjum þessara samsöngva.
I kirkjunni kl. 6 syngur svo
hver kór eitt lag sjálfstætt og
allir kórarnir sameiginlega átta
lög og stjórnar sérhver söngstj.
einu lagi. Söngvararnir eru um
250 og rríun margan fýsa að
heyra svo f jölmennan hóp taka
lagið.
Gestirnir hafa ekki viðdvöl
nema þennan eina dag.
Að gefnu tilefni vill Lýð-
veldiskosninganefnd Akureyr-
ar lýsa yfir því, að orðrómur
um, að Sigurður Guðmunds-
son skólameistari og Snorri
Sigfússon skólastjóri hafi neit-
að tilmælum nefndarinnar
um að draga fána að hún á
skólum þeim, er þeir veita
forstöðu, laugardaginn 20.
þ. m., hefir ekki við rök að
styðjast. Sigurður Guðmunds-
son lét draga fána að hún þeg-
ar er hann fékk tilmæli um
það, en til Snorra Sigfússonar
náðist ekki fyrr en flaggað
hafði verið á skóla hans, að til-
hlutun nefndarinnar, og féllst
hann þá þegar á þá ráðstöfun.
Akureyri 22. maí.
Akureyrarnefnd
lýðveldiskosninganna.
N Ý K O M I Ð:
Barnafatnaður, svo sem:
PEYSUR,
BUXUR (utanyfir),
NÆRBUXUR,
SKYRTUR (ull og jessy),
SOKKAR,
BLÚSSUR,
GOLFTREY JUR,
VINNUGALLAR,
VINNUBUXUR,
VETTLIN G AR,
SKÍÐAHÚFUR,
LEISTAR.
\
Verzl. LONDON.
Lt
AGU
XXVII. árg.
Akureyri, föstudaginn 26. maí 1944.
21. tbl.
Pjóíaratkvæíagreiíslan am nióurfelling sam-
bandslagasamningsins og lýóveldísstjórnarskrána.
Þátttaka í atkvæðagreiðslunni allt að IOO°|oE;'og víða 100°
allir Islendingar
Nú taka nálega
höndum
Nákvæma skýrslu um þjóð-1
aratkvæðagreiðsluna og niður-
stöður hennar í öllum kjördæm- J
um landsins er ekki hægt að j
birta að þessu sinni, þar sem at-
kvæðagreiðslan ér enn óupp-
gjörð í ýmsum kjördæmum. —
Vitneskja er þó fengin um það,
að kjörsókn í öllum kjördæm-
um hefir verið framúrskarandi
mikil. í mörgum hreppum á
landinu hefir kjörsókn verið
hrein 100% þeirra, er á kjör-
skrá standa, þ. e. allir kjósend-
ur hafa greitt atkvæði, og alls
staðar annars staðar hefir litlu
munað að 100% næðust, t. d.
hér í Eyjafjarðarsýslu hefir
þátttakan verið 99% og svip-
uð mun hún víðast vera í sveit-
um. í einu kjördæmi, Vestur-
Skaftafellssýslu, greiddu allir
kjósendur atkvæði.
í sambandslagasáttmálanum
frá 1918 var tilskilin 75%
þátttaka í þjóðaratkvæða-
greiðslu um uppsögn sáttmál- Sambandsslitin. Lýðveldisstjórnarskráin:
ans sem lágmark. Margir voru já nei auð. óg. já nei auð. óg.
hræddir við þetta ákvæði, en nú Akureyri 3256 .20 64 51 3065 114 163 49
er það í ljós komið, að sá ótti Reykjavík 24528 150 255 295 24015 405 658 150
var ástæðulaus, því að, eins og Hafnarfjörður 2235 11 2192 21 11 24
að framan greinir, er þátttakan Isafjörður 1402 16 35 35 1229 153 86 20
langt yfir þetta lágmark. Seyðisfjörður 470 2 9 7 457 7 18 6
Enn er ekki kunnugt, hvern- Siglufjörður 1559 5 16 17 1534 8 46 9
ig atkvæði hafa fallið, nema í Vestmannaeyjar 1888 7 29 31 1855 17 61 22
kaupstöðunum og örfáum Borgarfjarðarsýsla 1856 6 1826 12 4 22
sveitakjördæmum. Birtast tölur Mýrasýsla 1101 2 1087 3 13 11
um það hér á eftir. Þær tölur V.-Húnavatnssýsla 853 5 838 8 1 7
sýna, að aðeins örlítill minni Gullbr. og Kjösars. 3226 8 3171 15
hluti greiðir atkvæði á móti Alauðir og ógildir 42.
sambandsslitum og lýðveldis- V.-Skaftafellssýsla 919 4 916 6
stjórnarskránni. Benda má t. d.
á Akureyrarkjördæmi í því
sambandi. Þar eru 3256 með
skilnaði, en aðeins 20 á móti.
Það er 1 á móti 163. Með lýð-
veldisstofnun eru þar 3065, en
á móti 114. Það er 1 móti 27.1
hinum kaupstöðunum geta
menn séð hlutfallstölurnar af
skýrslu þeirri um atkvæða-
greiðsluna þar, sem birt er hér á
eftir.
Það skal sannast um það lýk-
ur, að sveitakjöræmin verða
ekki eftirbátar kaupstaðanna í
þessum efnum, nema síður sé.
Það skal sannast, að vilji
þjóðarinnar kemur skýrt í ljós
við nýafstaðna þjóðaratkvæða-
greiðslu, og að sá vilji beinist
saman.
eindregið að fullu sjálfstæði ís-
lendinga.
En það er slíkur þjóðarvilji,
sem á að ráða um stjórnarhætti
á Islandi, hann og ekkert annað.
Það skal sannast, að nú taka
nálega allir íslendingar höndum
saman.
KJÖRSÓKNIN.
Bráðabirgðayfirlit um kjör-
sóknina lítur þannig út: (Mun
væntanlega breytast lítilshátt-
ar þegar öll utankjörstaðarat-
kvæði eru fram komin).
Reykjavík 96%, Borgar-
fjarðarsýsla 98,7%, Mýrasýsla
99,2%, Snæfells- og Hnappa-
dalssýsla 98,6%, Dalasýsla
99,9%, Barðastrandarsýsla
98,5 %, V.-ísaf jarðarsýsla 98 %,
ísafjarðarkaupstaður 97%, N.-
ísafjarðarsýsla 98%, Strarída-
sýsla 98,8%, V.-Hunavatns-
sýsla
sýsla
99,7%,
99.1%,
A.-Húnavatns
Skagafjarðar-
ýsla 99,5 %, Sigluf jörður
9,4%, Eyjafjarðarsýsla
98,6%, Akureyri 97%, S.-
Þingeyjarsýsla 99%, N.-Þing-
eyjarsýsla 99,7%, Norður-
Múlasýsla 98,8%, Seyðisíjörð-
ur 100%, Suður-Múlasýsla
99,1%, A.-Skaftafellssýsla
98%, V estur-Skaftafellssýsla
100%, Vestmannaeyjar 99%,
Rangárvallasýsla 99,9%, Ár-
nessýsla 99,5%, Gullbringu- og
Kjósarsýsla 99,7%, Hafnar-
fjörður 98,7%.
í 113 hreppum var kjör-
sóknin 100%, — þar á meðal í
eftirtöldum hreppum héríEyja-
firði: Öngulsstaða-, Hrafnagils-,
Saurbæjar-, Árskógs-, Öxnadals-
og Grímseyjarhreppum.
Talning atkvæða í Eyjafjarð-
arsýslu fór fram í gær, en var
ekki lokið fyrr en svo seint, að
blaðið hefir ekki fregnir af úr-
slitum.
Þessar tölur höfðu borizt,
þegar blaðið fór í pressuna. Yf-
irleitt eru þær ekki endanleg
úrslit atkvæðagreiðslunnar, þar
sem víðast er eitthvað af utan-
cjörstaðaratkvæðum ókomið:
Brunar
í bænum s. I. nótt
Tveir brunar urðu hér í bænum sl.
nótt. Skipasmíðaskúr við skipasmíða-
verkstæði Nóa Kristjánssonar brann
að mestu í gærkvöldi og í nótt kom
upp eldur á neðstu hæð hússins
Hafnarstræti 20 (Höepfner), þar sem
er eitt af útibúum K. E. A. í bænum.
Eldsins á Tanganum varð vart um
4d. 10.30. Var eldurinn laus í norður-
enda hússins, þar sem vélaverkstæðið
Oddi var áður til húsa. Hafði Nói
Kristjánsson húsið á leigu, en Valtýr
Þorsteinsson útgerðarmaður var að
smíða trillubát í húsinu. Brann norð-
urendinn að mestu og allt sem í hon-
um var. Blaðinu er ókunnugt um
hvort hús og bátur var vátryggt. —
Eldsins í innbænum varð vart um kl.
2 í nótt. Er komið var á staðinn, var
reykur um allt húsið og eldur í skil-
rúmum í suðurenda hússins (á bak
við búðimar). Slökkviliðinu tókst
brátt að slökkva, en þá höfðu orðið
miklar skemmdir á búðum og vörum
í þeim af reyk, vatni og eldi.
INNRÁSARKORT
af Evrópu.
í Bókaverzlun
Þ. Thorlacius.
Ókunnugt um auða og ógilda.
Tilraun með upp-
eldi hreindýra í
Eyjafirði
Sl. mánudag flutti önnur ís-
lenzka flugvélin 5 hreind_ýrs-
kálfa austan frá Egilsstöðum
hingað. Kálfarnir eru eign nokk-
urra manna í bæ og sveit, sem
hyggjast gera tilraun með upp-
eldi hreindýra í héraðinu. —
Flutningurinn gekk vel og voru
kálfarnir allir við beztu heiisu
við hingaðkomuna. — Það eru
þeir Jón Geirsson, læknir. Ari
Jónsson og Árni Jóhannesson,
bændur að Þverá í Öngulsstaða-
hreppi, Rósa Jónsdóttir, sama
stað og Helgi Stefánsson á
Þórustöðum, sem standa að
þessu og verða kálfarnir hafðir
á Þverá. Friðrik Stefánsson,
hreindýraeftirlitsmað ur ríki sins,
náði dýrunum og kom með
þeim hingað.
Þetta er í annað sinn, sem
slík tilraun er gerð hér á síðari
árum. Hina gerði Matthías
læknir Einarsson í Reykjavík.
Hefir hún tekist vel. — Verður
fróðlegt að sjá, hversu kálfarnir
á Þverá dafna.
NÝJA BÍÓ
sýnir í kvölcl kl. 9:
í Leyniþjónustu Japana
(Sýnd í síðasta sinn).
Á annan hvítasúnnudag.
kl. 5 og 9:
FRÚ MINIVER
ATH.:
Aðgöngumiðar að sýn-
ingunum á annan hvíta-
sunnudag verða seldir
frákl. 11-12 f. h. ogvið
innganginn, en ekki frá
kl. 1-3 eins og venjul.