Dagur - 09.11.1944, Side 10
10
DAGUR
Fimmtudaginn 9. nóvember 1944
EFTIR STRÍÐIÐ
liggur ferðamannastraumurinn um ísland og fslendingar fljúga á
nokkrum klukkutímum til útlanda. Þá er nauðsynlegt að kunna
erlend mál.
LINQUAPHONE-KENSLUPLÖTURNAR
eru þess vegna ómissandi. — Höfum kensluplötur á ensku, þýsku,
frönsku, sænsku, ítölsku, rússnesku, spönsku, esperanto og latínu.
Höfum einnig GRAMMOFÓN A og NÁLAR. Sendum í póstkröfu.
Símar 495 og 466.
BÓKABÚÐ AKUREYRAR.
Ovenjulega
góðar heimsóknir
fá öll heimili bæjarins síðarihluta laugardags eða á
sunnudaginn (11. eða 12. Þ. m.). Þá ætla skátarnir
að heimsækja yður og bjóða til sölu happdrætris-
miða í hinu stórglæsilega happdrætti — til ágóða
fyrir BJÖRGUNARSKÚTU NORÐURLANDS.
1
AKUREYRINGAR! Veri ðnú samtaka um stuðn-
ing við eitt mesta velferðar- og metnaðarmál
Norðlendinga.
KAUPIÐ MIÐA! Þetta er ykkar mál framar flestu
öðru og allra Norðlendinga.
TAKIÐ VEL Á MÓTI HINUM GÓÐU
GESTUM.
UTANBÆJARMENN! Styðjið gott málefni,
kaupið miða þegar þið komið í bæinn eða látið
kaupa fyrir ykkur.
NOTIÐ SJAFNAR-VÖRUR
Aðalsafnaðarfundur
verður haldinn í kirkjukapell-
unni sunnudaginn 12. þ. m. á
eftir messu.
D A G S K R Á:
1. Lesnir upp reikningar kirkj-
unnar.
2. Rætt um hækkun sóknar-
gjalda,
3. Kosnir 2 menn 'í sóknarnefnd.
4. Önnur mál.
Sóknamefndin.
Handbók
um lýðveldiskosningarnar
20.—23. maí síðastl. með
lokaniðurstöðutölum at-
kvæðagreiðslunnar, stjórn-
arskránni, boðskap kon-
ungs, ummælum erlendra
blaða o. fl. fæst hjá
bóksölum.
í HAUST
var mér undirrituðum dreginn
hvítur lambhrútur með mínu
marki: sneitt fr. h., sneitt a. biti
a. v. Lamb þetta á eg ekki, og er
réttur eigandi beðinn að vitja
andvirðis þess og semja við mig
um markið.
Ingólfur Kristjánsson,
Jódísarstöðúm.
TVEIR HESTAR
! töpuðust í vor frá Auðbrekku í
Hörgárdal.
Steingrár, kubbhestur, klár-
gengur, átta vetra, óafrakaður
og styggur. Mark: Líklega gagn-
fjaðrað á báðum eða öðru evra.
Rauðjarpur, lítill, fimm
vetra, óafrakaður. Mark: Blað-
stýft a. fjöður fr. hægra, heilrifað
vinstra.
Þeir, sem kynnu að hafa orðið
varir við hesta þessa, eru beðni-
að gefa upplýsingar sem allra
lyrst.
Lyklakippa
tapaðist sl. laugardag,
í Hafnarstræti. Fin ’
andi skili á afgreiðó
„Dags“ gegn góðum
fundarlaunum.
fer fram á Vinnumiðlunarskrifstofunni dagana
13., 14. og 15. þ. m. mánudag, þriðjudag og mið-
vikudag kl. 3—6 síðdegis alla dagana. Þeir, sem láta
skrá sig gefi upp tekjur sínar 10 fyrstu mánuði
þessa árs — janúar—nóvember — ómagafjölda og
atvinnuhorfur, og annað það, sem venjulega er
krafizt við atvinnuleysisskráningu.
4 S
Akureyri, 6. nóvember 1944.
BÆJARSTJÓRI.
Vegna forfalla
geta tveir nemendur
fengið skólavist í
Hólaskóla.
SKÓLASTJÓRINN.
Vönduð en ÓDÝR
piano
væntanleg á næstunni.
Bókabúð Akureyrar
KENNARA VANTAR
við unglingaskólann á Drangsnesi í Strandasýslu. Kennslu-
tíminn er þrír mánuðir og hefst la'ust eftir næstu árarnót.
Fæði og húsnæði á staðnum. Reglusemi áskilin. Nánari upp-
lýsingar gefur JÓHANN FRÍMANN, skólastjóri, Akureyri |
eða ÁRNI RÖGNVALDSSON, Drangsnesi. |
VETRARFRAKKAR,
RYKFRAKKAR, kven og karla,
SKÍÐASTAKKAR, með og án hettu,
KVENKÁPUR,
HATTAR.
Kaupfjeiag Eyf irðinga
I Vefnaðarvörudeild.
Afgreiðslustúlku
vantar nú þegar.
Verzlunin Eyjafjörður h.f.
9*KÚS<HS<HSlS<HS<HS<HS»<HS0-<HS<HSlS<HS<HS<KS<HS<HS<HSíS<HS<HS<HS<HS<rfHS<H|HSÍHSf
RITSAFN
EINARS H. KVARANS
er komið út í 6 bindum. Kostar óbundið kr.
180.00. — Skinnband kr. 350.00. — Enginn
bókamaður getur án ritsafns Kvarans verið.
Fæst í
BÓKAVERZLUN Þ. THORLACIUS.
SKÍÐAEFNI
og hálfsmíðuð skíði (vélunnin), hentug
fyrir böm og unglinga. Seld ódýrt meðan
birgðir endast.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Byggingavörudeild.
Útgertlarmenn
skipstjórar!
Eg undirritaður hefi flutt áttavitavinnustofu
mína í LUNDARGÖTU 6 (bakhúsið). Aðgerðir
á áttavitum og vegmælum (patentlogg) fljótt og
vel af hendi leystar, gamlir áttavitar gerðir sem nýj-
ir. Hefi góða, enska áttavita til sölu. Látið einasta
fagmanninn á Norðurlandi annast aðgerðir og
leiðréttingar á siglingatækjum yðar. — Vegna inn-
flutningsörðugleika eru birgðir af áttavitum tak-
markaðar, talið því við mig sem fyrst.
Virðingarfyllst.
GUÐM. GUÐMUNDSSON, Lundargötu 6 (bak-
húsið). — Heima: Helga-magra-stræti 42. —