Dagur - 14.12.1944, Blaðsíða 4

Dagur - 14.12.1944, Blaðsíða 4
4 Fimmtudaginn 14. desember 1944 Hátíðleg afhending norsku minningar- töflunnar í gær Það var Hjelvik höfuðs- maður, sem kom því til leiðar, að gjöfin var gefin í gærkvöldi fór fram í Akur- eýrarkirkju hátíðleg afhending norsku minningartöflunnar, sem norski herinn, er hér dvaldi, gef- ur Akureyrarkaupstað, og frá var oreint í síðasta blaði. Norski o vísikonsúllinn á Akureyri, J. ' Jentoít Indbjör framkvæmda- stjóri, afhenti gjöfina, en bæjar- stjórn Akureyrar og vígslu- biskupinn, sr. Friðrik J. Rafnar, veittu henni móttöku. Er svo ráð fyrir gert, að taflan verði greypt inn í vegg kirkjunnar, austan kórsins. í bréfi, sem norski konsúllinn hér ritaði bæjarstjórninni, er hann tilkynnti gjöfina, segir svo: „Silfurplata þessi er gefin sem tákn þakklætis fyrir samúð, hjálp og stuðning, sem veittur var norsku hersveitunum, þegar þær dvöldu hér, bæði af Akureyrar- kaupstað og bæjarbúum og sér- staklega af Akureyrarkirkju. Hjelvik höfuðsmaður, sem var foringi hersveitanna hér, og sem kom því til leiðar, að gjöf þessi var gefin, átti sjáffur að koma til Akureyrar og vera viðstaddur afhendinguna, en varð því mið- ur að hætta við það vegna þýð- ingarmikilla skyldustarfa, sem hann ekki mátti fresta. Hann biður mig að bera Akureyrar- kaupstað sínar beztu kveðjur og biður einnig, að silfurplatan megi tileinkast kirkjunni, sem sé í samræmi við ósk yfirstjórnar hersins." Söfnun skólabarna. (Framhald af 1. síðu). um og afhent sérstaklega í því skyni. Mánudaginn 11. þ. m. var norska konsúlnum á Akureyri og norsku leikkonunni frú Gerd Grieg boðið upp í barnaskóla kl. 11 árd. og afhentu börnin þeim kr. 10.000, er skyldi vera jóla- gjöf frá skölabörnum á Akureyri til norskra barna. Var samkomusalur skólans fánum skreyttur. Settur skóla- stjóri, Hannes J. Magnússon, setti samkomuna og stjórnaði henni, en Snorri Sigfússon, námsstjóri flutti ávarp á norsku til gestanna, og tvær litlar stúlk- ur lásu upp ljóð á norsku eftir Nordahl Grieg og Arne Garborg. Frú Grieg ávarpaði börnin, las upp norska þjóðsönginn og þakkaði gjöfina. Konsúlllndbjör flutti einnig stutt þakkarávarp. Að lokum voru sungnir þjóð- .söngvar Noregs og íslands. Var athöfn þessi öll hin hátíðlegasta. Menntaskólinn á Akureyri aÞ henti nýlega sömu aðilum kr. 4000.00 til Noregshjálparinnar. Var fé þessu safnað af nemend- um og kennurum skólans. DAGUR r - Frá för forseta Islands vestur um haf Forseti íslands og La Guardia, borgarstjqri í New York á leið til ráðhúss New York borgar. Þar var forsetanum mjög vel fagnað. Lokið við umbætur á húsi h.f. Nýja Bíó Nýlega er lokið við allmiklar umbætur á húsi h.f. Nýja-Bíó hér í bænum. Reist hefir verið viðbótarbygging austan við hús- ið og komið fyrir vistlegum sn-yrtiherbergjum kvenna og karla. Jafnframt stækkar gólf- pláss í afgreiðslumiðasölunni til muna. Eru þessar umbætur til mikilla þæginda fyrir bíógesti. Samtal við frú Gerd Grieg. (Framhald af 1. síðu). sambandi við líknar- og hjálpar- starfsemi til handa norskum sjó- mönnum þar. Það var fyrir til- mæli héðan frá íslandi, að norska stjórnin leyfði mér að fara hingað og starfa hér, enda dvaldi maðurinn minn hér á landi þá. Eg starfaði síðan á veg- um Tónlistarfélagsins, Norræna félagsins og Leikfélags Reykja- víkur. — í Reykjávík var komið upp fjórum norskum leikritum og lék eg sjálf í tveim þeirra, en hafði leikstjórn á hendi í öllum. Þessi verk voru: Hedda Gabler, Veizlan á Sólhaugum, Pétur Gautur og Paul Lange og Thora Parsberg. Hið fimmta norska leikrit, sem eg hefi sett á svið hér er svo „Brúðuheimilið", sem sýnt var hér á Akureyri nú í vet- ur. — Það eru því fimm norsk leikrit, sem sýnd hafa verið hér á tveimur árum, en í hléum þeim, sem orðið hafa á milli sýn- inga þeirra, hefi eg dvalizt í Eng- landi“. — Og hvernig hefir yður fallið að starfa með íslenzkum leikur- um, og þá sérstaklega með okkar norðlenzku leikurum? „Mjög vel, æfinlega. Og um ykkar norðlenzku leikara vil eg segja, að þeir búa yfir mjög miklum hæfileikum. Frammi- staða þeirra í „Brúðuheimilinu" var aðdáunarverð, þegar tekið er tillit til hins stutta æfingatíma. — Það vill svo vel til, að hér eru ýmsir, sem hafa séð „Brúðuheim- ilið“ á leiksviði erlendis, og þeir hafa lokið upp einum rómi um það, að sýningarnar hér standist á margan hátt samjöfnuðinn. Eg er sannfærð um, að með þeim leikurum, sem völ er á hér í bæn- M.s. Snæfell nýkom- ið úr Englandsferð M/S SNÆFELL, skip Útgerðar- félags KEA, kom hingað úr Englandsför sl. mánudagsmorg- un. Skipstjóri var Gísli Eyland. Dagur kom að máli við skipstjór- ann skömmu eftir hingaðkom- una. — „Hvað er að frétta úr ferðinni? „Ekkert. Tíðindalaust," svarar Gísli. — Þið höfðuð stranga útivist? „Nokkuð svo. Fengum vond veður á báðum leiðum, en skipið reyndist traust og gott og allt gekk að öðru leyti að óskum.“ — Hvað segja Bretar? „Bretarnir? — Þeir segja svo sem ekkert, nema að þeir séu að 'vinna stríðið." — Hvernig er að verzla við þá núna? „Minnstu ekki á það. — Þarf leyfismiða fyrir hvern smáhlut, og nú er af sem áður var, þegar búðirnar voru fullar af fjöl- breyttum varningi. Fæst bókstaf- lega ekkert af nýtilegum hlut- um.“ Snæfell flútti fisk til Fleet- wood úr Eyjafirði og nærliggj- andi verstöðvum, en sement hingað heim aftur. um mætti fá glæsilegan árangur í leikstarfsemi og vonandi verð- ur sú raunin á komandi árum.“ — Svo að þér kveðjið okkur þá hér nyrðra og landið allt með hlýjum hug. — „Já, það getið þér verið vissir um. Eg hefi eignast „nýtt fóstur- land“, — ef kveða má að því á þann veg, — og eg kveð la'nd og þjóð með söknuði. — En nú líð- ur e. t. v. að stríðslokum og þá er fyrsta hugsun allra Norð- manna: að koma heim/ Þangað er förinni heitið. — Til Englands fyrst, — hvað biðin verður löng veit eg ekki, — veit enginn." „Dagur" vill nota tækifærið til þess að þakka frú Grieg fyrir störf hennar og áhuga í þágu íeiklistarmála Akureyrar. Hún hefir verið hér kærkominn og góður gestur. Virðing okkar fyr- ir hinum mikla listaarfi Noregs hefir vaxið af störfum hennar hér. Allir íslendingar munu óska henni góðrar og skjótrar hcimkomu, Jarðarför HRAFNHILDAR SVÖVU PÁLMADÓTTUR, sem andaðist þann 10. þ. m., er ákveðin þriðjudaginn 19. des. með bæn frá heimili okkar, Munkarþverárstræti 22, kl. 1 e. h. Fyrir hönd fjarstadds eiginmanns og barna. Pálmi H. Jónsson. Þórunn Antoníusardóttir. Konan mín, STEFANÍA JÓNSDÓTTIR, sem andaðist 11. þ. m., verður jarðsungin að Ytri-Bægisá 20. desember. — Athöfnin hefst kl. 1 é. h. Friðbjörn Björnsson. Jarðarför ÞÓRÐAR ÞÓRDARSON AR firá Hvammi í Arn- arneshreppi fer fram frá Möðruvallakirkju 21. (les. kl. 1 e. h. F. h. ættingja og skyldmenna. Dómliildur Arnaldsdóttir. Nýjustu bækurnar! Glitra daggir, grær fold, fræg sænsk skáldsaga Ofan jarðar og neðan, eftir Theodór Friðriksson Byggð og saga, eftir Ólaf Lárusson prófessor Minningar Sigurðar Briem Ritsafn Einars H. Kvaran, I,—VI. Heimskringla Snorra Sturlusonar, í skinnbandi Áfangar, eftir Sigurð Nordal, II. bindi Útlaginn og Móðirin, eftir Pearl S. Buck Katrín, saga frá Álandseyjum Bandaríkin, eftir Stephen Vincent Benét Saga Kommúnistaflokks Ráðstjórnarríkjanna Ramona, saga frá Ameríku Dáðir voru drýgðar Nikulás' Nickleby, eftir Charles Dickens Á brotnandi bárum, ljóðmæli Gísla á Eiríksstöðum Enn fremur: Mikið af barna- og unglingabókum Góð bók er bezta jólagjöfin. — I Bókaverzlun Gunnlaugs Tr. Jónssonar I Fjárhagsáætlun Akureyrar. (Framhald af 1. síðu). 000. — Lýðtrygging og lýðh jálp (sjúkra-, elli- og örorkulaun) 532.000. — Menntamál 440.500. — Ýms útgjöld 517.800, — þar af til sjúkrahússins 100.000, — Gagnfræðaskólans 100.000, — Kvennaskólans 50.000 og íþróttahússins 25.000. — Til Matthíasarbókhlöðu 50.000. — Tekjumegin eru útsvörin vita- skuld meginuppistaðan, kr. 2.094.700.00. Aðrir "helztu tekju- liðir eru: Skattar af fasteignum kr. 199.000. — Tekjur af fast- eignum 97.600. — Endurgr. fá- tækrastyrkir kr. 80.000. — Fram- lag tryggingarstofnunar ríkisins kr. 236.000. — Hluti bæjarsjóðs af stríðsgróðaskatti 70.000. Ým- isl. kr. 183.200, — þar á meðal tekjur af grjótmulningi 50.000 og þátttaka ýmsra stofnana, svo sem hafnar og rafveitu, í stjórn kaupstðarins, HROSSAKET nýtt, saltað og reykt, mör og flot. REYKHÚSIÐ Norðurgötu 2. Sími 297. Fjármark mitt er: miðhlutað, biti framan hæ<3ia' og stíft vinstra. BRENNIMARK: SJV. JÓN VALDEMARSSON. Hrísey. Fatnaðarsöfnun handa Norðmönnum. (Framhald af 1. síðu). söfnunarmennirnir koma, svo að starfið gangi greiðlega. Vér væntum hinna beztu undirtekta og þökkum liðsinni yðar fyrir- fram. — Er ekki að efa, að bæjarbúar muni bregðast drengilega við og gefa af góðum hug og örlátum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.