Dagur - 11.06.1947, Síða 4

Dagur - 11.06.1947, Síða 4
4 DAGUR Miðvikudagur 11. júní 1947 r, — — — --— ...- DAGUR Ritstióri: Haukur Saorrason Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta: Marínó H. Pétursson Skriistofa í Hafnarstræti 87 — Sími 166 Blaðið kemur út á hverjum miðvikudegi Árgangurinn kostar kr. 25.00 Gjalddagi er 1. júlí. Prentverk Odds Bjömssonar Bjargræðistímanum breytt í stríðstíina ^LDREI MUN íslenzkum verkalýð liafa verið att út í hæpnara né óheillavænlegra verkfall en það, sem kommúnista-forsprakkarnir á Dags- brún liafa nú leitt yfir verkamenn í Reýkjavík. Fyrsta og helzta skilyrðið fyrir því að svo stórfelld vinnudeila, sem sú, er nú er ha'fin, verði unnin, er auðvitað það, að verkfallsmenn sjálfir séu ein- huga í baráttunni og þeirn sé ljós þýðing og nauð- syn deilunnar og sá siðferðilegi grundvöllur, sem hún er reist á. Ekkert af þessu er fyrir hendi að þessu sinni. Það er þegar orðið svo ljóst. sem verða má, að verkalýðsfélögin úti um land óska alls ekki eftir kaupstreitu né verkfallsbrölti, og mun því allur þorri þeirra alls ekki standa nreð Dagsbrúnar-forkólfunum í þessu máli. íslenzkir verkamenn búa nú við betri kjör og hafa hlotið meiri réttarbætur en stéttarbræður þeirra njóta víðast hvar — ef ekki alls staðar — annars staðar í heiminum. Þetta er þjóðfélagi okkar til sórna, og nú reið á mestu, að allir þegnarnir stæðu einhuga um að tryggja það sem bezt, að þessum tiltölulega góðu kjörum og miklu réttarbótum yrði haldið uppi í framtíðinni með blómlegu atvinnulífi og tryggri fjárhagsafkomu ríkisins og allra þegn- anna. Tiil þess að svo mætti takast, var vinnufrið- ur og sameiginlegt og öflugt viðnám gegn dýrtíð og vaxandi fjárhagsöngþveiti fyrsta og helzta skil- yrðið. Öllum hugsandi og heiLskyggnum mönn- um — og þá ekki síður verkamönnum en öðrum — er hins vegar fullljóst, að í þessu tilfelli er bein- línis og af ráðnum hug að því stefnt að brjóta nið- ur allar varnir gegn dýrtíðarbölinu og magna fjárhagsöngþveitið að því marki, að ríkisstjórnin fái þar við ekkert ráðið framar, og verði hún því að hrökklast frá af þeim ástæðum. Til þess eru refirnir auðvitað fyrst og fremst skornir, og allt er þetta gert í þeirri von, að neyðin og vandræðin, er af þessu leiðir, muni skola forkólfum kommún- ista aftur upp í ráðlierrastólana, sem þeir flæmd- ust úr sl. vetur fyrir eigin aðgerðir og misheppn- aða pólitíska spákaupmennsku. ¥ RÆÐU þeirri, er Emil Jónsson viðskiptamála- i ráðherra hélt á aðalfundi Verzlunarráðs íslands nú á dögunum, upplýsti hann það — sem raunar var áður vitað — að gjaldeyrissjóður þjóðarinnar er nú að fullu uppetinn, og verði því tekjur og gjöld — innflutningur og útflutningur — að standastá hér eftir, ef allt á ek'ki að keyra um þvert bak í efnahagsmálum þjóðarinnar. Þó kvað ráðherrann ÍVamtíðarhorfur allar mjög í óvissu og raunar mjög ískyggilegar. Sala afurða gengi mjög erfiðlega vegna hins .geysiháa verðs, er við krefðumst og þyrftum að fá vegna hins gífurlega framleiðslukostnaðar. Eina vonin væri sú, að við gætum flotið eitthvað á hinu háa lýsisverði, sem héldist enn og hefði raunar farið hækkandi fram að þessu, sökum feitmetisskortsins í heiminum. Fisksala okkar bæði til Breta og Rússa byggðist eingöngu á því, að þessar þjóðir fengju hið eftir- sótta síldarlýsi með því einu móti að kaupa jafn- framt talsvert magn af fiski. Sakirstandaþvíþann- ig, að al.lir undirstöðuatvinnuvegir þjóðarinnar eru réknir með beinu tapi og á ábyrgð ríkissjóðs. svo að þeir stöðvist ckki til fulls. Allar vonir um það, að fjárhagshruni verði afstýrt, eru því bundnar við síldarútveginn einan, svo ótryggur og stopull sem hann hefir þó ávallt reynzt. Ekki leikur nokkur vafi á því, að kommúnistar munu leggja á það höfuðkapp næstu vikurnar að sk.era Daprir dagar. Á ERU þeir liðnir hinir döpru dag- ar, sem yfir okkur gengu í vikunni sem leið. Aftur ganga menn að störf- um sínum eftir að hafa .staldrad við um sinn til þess að votta þeim, er burtu voru kallaðir, virðingu og að- standendum samúð. Þessi samúð. var sterk og áhrifamikil. Hún kom frá dýpstu hjartarótum og snart allt það, sem gert var, hvort heldur það var á óryggjum eða í kirkju. Þess vegna skilja þessir dagar \ftir bæði íagra- og harmsárar minningar. frá Reykjavík og var stíluð „til þeirra, er sungu og léku við minningarathöfn- ina á Akureyri“. Og kveðjan er á þessa leið: „Hugheilar þakkir fyrir undurfagran og helgandi söng og hljóðfæraleik. Sigurveig og Rósa Vig- fúsdætur.“ — Kveðjan ber það með sér, að þessar góðu konur hafa ekki vitað, hverjir önnuðust þennan söng og hljóðfæraleik, en þær hafa hrifist af fegurð og helgi athafnarinnar og þess vegna senda þær kveðjuna. Þannig munu fleiri hafa hugsað þenn- an aag. Pappírsskorturinn í síðasta tbl. Dags birtist auglýsing frá KEA, þar sem viðskiptavinunum er tilkynnt, að vegna mikils pappírsskorts í landinu muni ekki veiða hægt að láta bréfpoka og aðrar umbúðir utan um allar vörur, sem afgreiddar verða í verzlunum. — Eru þar vinsamleg tilmæli til félagsmanna að halda til haga umbúðum hvers konar, og fara ekki fram á að fá meiri umbúðir um vörur en brýnasta nauðsyn krefur. Þegar eg las þessa auglýsingu, riíjaðist ujsp fyr- ir mér ástandið í þessum málum í Englandi á sl. ári. Við getum verið samhentir. ÞAÐ ER oft um það talað, að við sé- um ósamlyndir og ósamtaka Is- lendingar og satt er það, að oftar ber á þeim eiginleikum okkar en æskilegt væri. En á þessum sorgardögum kom það eftirminnilega í ljós, að við getum lika verið samhentir og samtaka. Framkoma bæjarbúa allra við sorgar- athafnirnar var í senn virðuleg og fög- ur og allt, sem gert var til þess að láta í Ijósi virðingu og þakklæti samfélags- ins til hinna látnu, var sérstaklega smekklegt og ástúðlegt. Allt frá því, að hinir látnu voru fluttir hér á, land unz þeir voru lagðir til hinztu hvíldar eða fluttir til sinna heimkynna, hvíldi blær virðuleika og sorgar yfir þessum bæ. Þar eiga allir óskilið mál, lærðir og leikir, yfirmenn og undirgefnir. En sérstaka þökk ber að gjalda þeim, sem með hógværð og smekkvísi skipulögðu þær opinberu athafnir, sem hér fóru fram. I látleysi sinu og fegurð voru þær tjáning þess, sem þúsundir manna í þessum bæ og um landið allt, hugsuðu og fundu. Þann- ig geta Islendingar starfað og staoið saman á örlögþrungnum augnablik- um. Fögnr kveðja að sannan. EG GET ekki stillt mig um að segja hér frá kveðju, sem barst hingað norður daginn eftir að jarðsett var hér frá kirkjunni, en þeirri athöfn var út- varpað, sem kunnugt er. Hún sýnir, að fylgst var með því um landið, sem hér gerðist, og að hinn fagri blær athafn- arinnar hefir náð út fyrir veggi kirkj- unnar. Þessi kveðja kom í símskeyti éinnig á þessa lífæð þjóðarlíkam- ans. svo að lionum megi blæða fjáihagslega út til fullsl T ÍKIÆGT er, að vinnudeila sú, sem nú er hafin, verði bæði löng og hörð. Atvinnurekendur munu ekki láta undan fyrr en í fulla hnefana, og rí'kisstjórnin mun telja sig tilneydda, svo að dýrtíðinni verði ekki sleppt í skefjalausan algleyming, þegar verst gegnir, að standa fast gegn frekari launahækkunum nú um stund. Enginn fær séð það fyrir, hvað herkostnaðurinn kann að verða mikill og örlagaríkur fyrir þjóðarheildina. Ef til vill kunna þau ósköj), að verkalýðshreyting ökkar hefir lent í lröndum ábyrgðarlausra pólitískra sjaá- kaupmanna og glæfralýðs, að leiða hrun og gereyðileggingu yfir atvinnuvegi okkar og fjár- hag og þar með yfir sjálfstæði þjóðarinnar og framtíð og til- veru hins unga, íslenzka lýðveld- is. Næstu vikur og mánuðir munu leiða það í ljós, hversu margir landsmenn vilja gerast böðlar á þeim blóðvelli, þar sem „íslands ógæfu verður allt að vopni.“ Því ekki „Útvarp Akureyri?“ UTVARPIÐ gerði vel og myndar- lega að útvarpa athöfninni héð- an. Útvarpið mun hafa tekist ágæt- lega og hafa heyrzt vel hvarvetna á landinu. Þetta sýnir, að það er hægt að útvarpa héðan ,ef viljinn er með hjá forráðamönnum stofnunarinnar og er þess að vænta, að þetta verði upphaf þess, að héðan hefjist reglulegt útvarp. Því ekki að útvarpa messum úr Akureyrarkirkju annað slagið? Um víða veröld Bvezka hvalveiðafélagið Vnited Whalers hefir þegar selt 'alla hvalolíu- framfeiðslu sína fyrir næsta veiði- tímabil og er verðið 90 sterlingspxmd smálestin. * Nýlega er lokið þjóðaatkvæða- greiðslu í Sviss um það, hvort stefna beri að því að þjóðnýta helztu at- vinnugreinar landsins eða ekki. Sviss- ar höfnuðu þjóðnýtingunni með yfir- gnæfandi atkvæðameirihluta. * Nú hefir verið upplýst, samkvæmt þýzkum skjölum, hvar norska skáldið Nordahl Grieg er grafinn, en hann týndist, sem kunnugt er með flugvél yfir Berlín í desember 1943. Norsk nefnd er farin til Þýzkalands til þess að hafa upp á líki skáldsins. Mun það vetða flutt heim til Noregs. * Hvalveiðiskipið Balaena, sem var á leið heim til Englands frá Suðuríshaf- inu fyrir nokkru, kom þar að fyru ut- an vesturströnd Afríku, sem hvalur og heljarstór kolkrabbi börðust upp á líf og dauða. Þessi bardagi skýrir stór og mikil ör, sem stundum er að finna á hvölum og þykir nú upplýst, að helj- arstórir kolkrabbar dvelji í hafinu undan strönd Afríku og eru armar þeirra taldir vera allt að 70 feta lang- ir. Þar var pappírsskorturinn svo mikill, að engar umbúðir voru látnar í té utan um svo að segja. hvaða varning sem var. — Meira að segja brauðin voru send heim í kössum, án nokkurra umbúða. — Þótt slíkt sé á engan hátt æskilegt, þá töldu þeir meiri nauðsyn að framleiða og fá brauð, heldur en pappír og tóku þeinr með fegins hendi þótt allsber væru! Hver einasta húsmóðir hafði meðferðis stóra innkaupstösku eða rájr, eins og við köllum þær, þegar hún fór að verzla og stakk þar f varningi sínum. — Sumar höfðu með sér umbúðir til þess að búa urn það nauðsynlegasta. Aldrei heyrði eg nokkurn mögla vegna þess arna, enda hefði slíkt til lítils reynzt. Nú er röðin komin að okkur. Hlutur hinnar íslenzku húsmóður hefir verið góður undanfarin ár, og hún hefir ekki haft yfir miklum örðugleik- um að k varta, — Nú reynir á hana að sýna þegn- skajD í þessu atriði, því að Jrað er einkanlega á hennar valdi og verkahring að bregðast vel við. Hér er gott tækifæri til að temja sér nýtni og sýna um leið Jaegnskap, og við ættum að vera þakklátar fyrir að fá slíkt tækifæri. — Við skulum því allar, ungar sem gamlar, vopnast ráptöskunni og varðveita hvern poka og j)aj:>pírssnepil, senr við komuifis yfir. „Puella“. * Varðveittu vöxt þinn Fæstum konum stendur á sama um vöxt sinn, en þeim hættir aftur á móti til að gleyma þeiiTÍ staðreynd, að ef ekkert er gert til þess að halda honum í góðu lagi, er rnikil hætta á ferðum. Hættast er Jreim konum, sem stunda enga íþrótt og vinna litla eða enga líkamlega vinnu, svo og þeim, sem fást við mjög einhæf störf, standa t. d. eða sitja í sömu stöðu mestan hluta dags eða vinna þannig verk, að mest eða aðallega reynir á einhvern einn hluta líkamans. Húsmæður standa hér vel að vígi, því að störf þeirra eru svo margvísleg og krefjast svo fjöl- breyttra hreyfinga, að þau ættu að geta verið þeim góð og nægileg leikfimi. En til Jaess þarf luismóðirin að liafa hugfast við hvert verk, að hrey.fingin reyni rétt á hana, hvort heldur hún er áð klemma upja þvott, bóna gólf, bursta skó eða hvað annars það kann að vera. En oft vill þetta gleymast og er Jrví gott að kunná nokkrar líkamsæfingar og iðka þær eins oft og við verður komið. Hér skal að sinni aðeins bent á eina æfingu, sem auðvelt er fyrir hverja konu að gera. Æfingin er létt, en ávöxturinn gæti orðið Jiyngri á meta- skálunum, heldur en þig rennir grun í. — 1. ÆFING. Þú liggur endilöng á gólfinu með hendur niður með síðunum en fæturna úppi á litl- um bekk eða skemli. Öðrum fæti er lyft upp með beinu hné (eins og myndin sýnir) —og hendurnar samtím- is teygðar upj) með höfðinu. Brjóstkassinn er þaninn og gættu vel að maginn sé eins lítill og unnt er. Fóturinn er settur liægt niður, hendur samtímis og slakað á brjóstjjennslunni. — Síðan er hinum fætinum lyft eins o. s. frv. Endurtakist 8 sinnum, síðar 12 sinnum. — Hvíldu þig svo með því að kreppa þig saman og setja hnén upp undir brjóst.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.