Dagur - 11.02.1948, Page 6
6
DAGUR
Miðvikudaginn 11. febrúar 1948
*★*★*★*★**★*★*★*★*★*★*★*★*★*★*★*★*★*
MAGGIE LANE
Saga eftir Frances Wees
------ 16. DAGUR ___
(Framhald).
„Nei, hann er ekki hrifinn, en það er ekki hægt að verzla við
hana.“
„Er hún þá ástfangin af Georg?“
„Það þykir mér ólíklegt.“
„Á hún von á barni?“
„Mér þykir það einnig ólíklegt, en annars veit eg það ekki.“
„Já, en það er einmitt þetta, sem henni virðist geðjast minnst að
„Eg hefi heyrt margt sagt um fegurð hennar. Allir segja, að hún
hafi blátt áfram lýst upp þessa næturklúbbsholu, sem hún vann í.“
„Ef maður lítur á augu hennar, hárið, — já og vöxtinn, — þá má
sjálfsagt segja, að það sé ekki fjarri lagi.“
„En Anthony, hvers vegna í ósköpunum keyptuð þið hana ekki
út úr spilinu? Menn botna ekkert í, hvers vegna þið gerðuð það
ekki. Georg elskar hana ekki, og hvað var þá til fyrirstöðu?"
„Annars ætti það ekki að breyta neinu. Þetta getur aldrei orðið
neitt hjónaband. Það hefði verið miklu heppilegra, hvað sem öllu
öðru leið, að borga henni ríflega og þagga allt niður.“
„Jt, en það er einmitt þetta, sem henni virðist geðjast minnst að
af öllu saman. Hún tekur það ekki í mál.“
„En það er þó hið eina skynsamlega í málinu.“
Anthony leit á hana og var hugsi. Hann leit fram hjá henni, út í
salinn, á fólkið þar. Þetta átti að heita heldia fólkið í borginni. Það
var þetta fólk, sem hafði mótað lífsviðhorf Soffíu og hennar líka,
já, og Carverfjölskyldunnar. Það mundi sjálfsagt allt saman vera
sammála Soffx'u. Hann komst ekki lengra í þessum hugleiðingum
sínum, því að Soffía hvíslaði: „Æ, það var leiðinlegt. Þarna kemur
Helena, og allir vita að þú ert hér. Það var óheppilegt, að svona
skyldi hittast á. Eg held að Helena hefði átt að fara eitthvað burt
í nokkra mánuði á meðan er að’fyrnást yfir þetta hneyksli hans
Georgs.“ 1 '■ .......
„Með hverjum er hún þarna? Er það, sem mér sýnist, að það sé
Paul Avery?“
„Jú, það er enginn efi. Hvað boðar þetta, Anthony?“ spurði Soff-
ía, íbyggin á svipinn.
Anthony horfði á Helenu og fylgisvein hennar, er þau gengu yfir
gólfið. Helena var eins og hún átti að sér að vera, föl og einbeitt.
Paul Avery var miðaldra piparsveinn, sem ekki fór of gott orð af.
„Hvað áttu við?“ spurði Anthony. „Eg sé ekki að það boði neitt
„Þú fylgist ekki með borgarlífinu lengur, Anthony,“ svaraði
Helena. „Og það er varla von, þú ert búinn að vera svo lengi fjar-
verandi. En það er á allra vitorði, að Paul er loksins að hugsa um
að festa ráð sitt. Hann hefir athugað okkur allar nákvæmlega að
undanförnu, en hefir ennþá ekki tekið neina ákvörðun."
„Heldur þú að nokkur taki hann alvarlega?"
„Vitaskuld gerum við það. Hann er stórauðugur og á gamla
Averyseti-ið, einhvern eftirsóknarverðasta einkabústað hér um
slóðir. Og Paul gæti vel orðið sómasamlegasti eiginmaður. Og þú
gleymir því, Anthony," hélt hún áfram og brosti, „að sumar okkar
hafa einhvern veginn týnt beztu árunum á meðan þið voruð í burtu
í stríðinu. Við erum ekki eins ungar og við áður vorum. Eg er víst
nær því eins gömul og þú, og þegar maður stendur á þrítugu held
eg að nauðsynlegt sé að athuga framtíðaráætlanir sínar mjög ná-
kvæmlega."
Anthony lét sem hann tæki ekki eftir þessu síðasta innleggi, en
Soffía lét það ekki á sig fá. Eftir andartaks þögn hélt hún áfram.
„Auðvitað hefir Georg farið alveg hræðilega illa með Helenu, og
mér sýnist hún ætla að taka því eins og við mátti búast. Hún veit
að ekkert mundi Georg sárna meira en hún giftist Paul Avery og
auðvitað er það fyrsta husgun hennar, að ná sér niðri á Georg.
Hún væri ekki mannleg ef hana langaði ekki fyrst og fremst til
þess.“
„Þjónn, reikninginn!" sagði Anthony.
Soffía stóð á fætur og Anthony hjálpaði henni í pelsinn. „Ástand-
ið er óþolandi, Anthony,“ sagð ihún, „og mér finnst þið verðið að
gei a eitthvað og það fljótt. Þú fyrirgefur, þótt eg tali svona við þig,
en annars ætla eg auðvitað ekki að blanda mér í ykkar málefni.
En þú veizt mér þykir vænt um móðm- þína, og eg veit að hún
tekur sér þetta allt saman ákaflega nærri. Sumt af vinafólki henn-
ar lætur að vísu, sem ekkert sé, en annað forðast hana nú eins og
heitan eldinn, og eg veit ekki hvort er betra. Meðaumkun er aldrei
skemmtileg. Og svo er mér náttúrlega ekki sama um Helenu, og
aumingja Georg, hann á víst ekki sjö dagana sæla, jafnvel
þótt....“ Hún þagnaði skyndilega.
„Jafnvel þótt hvað?“
„Þú sagðir að hún væri falleg.“
i (Fi-amhald).
i .
- GREIN EDENS
(Framhald af 5. síðu).
velmegun geta þróast samtímis.
Ef við skiljum þetta gjörla, þess-
ar kennisetningar sem búa á bak
við áróður kommúnista og stefnu
þeirra yfirleitt, verður það alveg
augljóst, að efnahagslegt heil-
brigði Vestur-Evrópu er ekki að-
eins eftirsóknarvert í sjálfu sér,
en heldur einnig einasti vegurinn
til friðar í framtíðinni. Því sterk-
ari sem samvinnuböndin verða á
Vesturlöndum, því nær verðum
við því marki, að koma á fullum
skilningi og samkomulagi.
Miklir innanlandserfiðleikar
í Rússlandi.
Það er eitt atriði í stefnu og
starfsaðferðum Sovétstjórnarinn-
ar, sem er mörgum undrunarefni.
Það er það ógagn, sem talsmenn
stjórnarinnar gera málstað henn-
ar, með hinu ofsalega orðbragði,
sem þeir nota gegn þeim, er þá
greinir á við. Ætla mætti, að
hófsamlegar ábendingar mundu
oft á tíðum frekar greiða úr
ágreiningi. En mennirnir í Kreml
eru of skynsamir til þess að vinna
sínum málstað tjón með svo
klaufalegum aðferðum án þess að
gild ástæða sé til. Sannleikurinn
er sennilega sá, að þessar síend-
urteknu árásir á hin vestrænu
lönd, eru nauðsynlegar til þess að
halda uppi áhuga manna heima
fyrir
Erfiðleikarnir, sem fyrir hendi
eru innan landamerkja Sovét-
ríkjanna, eru stórkostlegir. Við
ættum að líta með skilningi og
samúð á marga þeirra, því að
þeir eru afleiðing eyðileggingar-
innar, sem þýzki innrásarherinn
gerði í landinu. En það virðist
svo, sem Sovétleiðtogarnir óttist
mjög samband og kynni þeirra
eigin þjóða og vestrænna þjóða,
og hið ofsafengna orðbragð sé
þaulhugsuð ráðagerð til þess að
fyrirbyggja möguleika slíkra
kynna.
Ef þetta er rétt til getið, þá má
um það segja, að þessi ráðagerð
sé óþörf með öllu. Það er ekki
okkar hlutverk að vinna gegn
þjóðfélagsskipan kommúnismans
innan landamerkja Sovétríkj-
anna. En við höldum því fram, að
þær þjóðir, sem kjósa sér frelsi,
eigi að fá frið til þess að njóta
þess frelsis án íhlutunar.
Naumur tími til stcfnu.
Tillögur Bevins utanríkisráð-
herra um vestrænt bandalag eiga
því skilið stuðning allra, sem
raunverulega vilja frið. Vonum
þvx, að þessi stefna verði fram-
kvæmd af dug og drengskap, því
að tíminn er naumur. Nú er um
það að velja að vei'ja frelsishug-
takið, ákvörðun okkar er að við-
halda frelsinu með því að öðlast
efnalegt sjálfstæði, og næsta
vei-kefni okkar er bandalag Vest-
ur-Evrópu. Takist okkur þetta,
tryggjum við framtíð frjálsra
þjóða. Við vinnum þá einnig mál-
stað friðarins ómetanlegt gagn.
Við getum sannað, að framför
getur ennþá tekist fyrir frjálsa
samninga, að alþjóðlegu trausti
og góðfýsi er ekki algjörlega út-
hýst í mannheimi, og að vonin sé
ekki aðeins hilling í augum hinna
þreyttu og þjáðu þjóða heimsins.
(Eftirprentun bönnuð).
Auglýsing
Nr. 2/1948 frá skömmtunarstjóra.
Viðskiptanefndin hefur samþykkt að heimila
skömmtunarskrifstofu ríkisins að veLta nýja auka-
úthlutun á vinnufatnaði og vinnuskóm.
Bæjarstjórum og oddvitum hafa nú verið sendir sér-
stakir skömmtunarseðlar í þessu skyni, og eru þeir
auðkenndir sem vinnufatastofn nr 2, prentaðir með
rauðum lit
Heimilt er að úthluta þessum nýju vinnufataseðlum
til þeirra, sem skila vinnufatastofni nr. 1, svo og til
annarra, er jxnrfa á sérstökum vinnufatnaði eða vinnu-
skóm að halda, vegna vinnu sinnar. Um úthlutanir til
þeirra, er ekki hafa í höndum vinnufatastofn nr. 1, skal
að öllu leyti farið eftir því sem fyrir er lagt í auglýs-
ingu skömmtunarstjóra nr. 21/1947, og gilda að öðru
leyti ákvæði þeirrar auglýsingar, eftir því sem við á.
Heimilt er að úthluta þessum nýju vinnufatnaðar-
seðlurn á tímabilinu 1. febrúar til 1. jiiní 1948, ogskulu
þeir vei-a lögleg innkaupaheimild á því tímabili.
Bæjarstjórum og oddvitum skal sérstaklega á það
bent, að klippa frá og halda eftir reitum fyrir vinnu-
skónum, ef þeir telja, að umsækjandi liafi ekki brýna
þörf fyrir nýja vinnuskó á umræddu tímabili.
Reykjavík, 1. febrúar 1948.
Skömmtunarstjóri.
Verkamannafélag Akureyrarkaupstaðar
og Verkakvennafélagið „Eining“
halda sameiginlega
ÁRSHÁTÍÐ
í Samkomuhúsinu, laugardaginn 14. þ. m. — Hefst
kl. 8.00 e. lr. með
SAMDRYKKJU.
Dagsltrá:
1. Samkoman sett.
2. Kórsöngur.
3. Ávarp frá Verkamannafélagi Ak.
4. Guitarsjril og söngur.
5. Ávarp frá „Einingu“.
6. Gamanvísur.
7. Leikþáttur.
8. DANS (Kalli og Haukur spila).
g
4o
-a;
K3
Aðgöngumiðar verða seldir í Skrifstofu Verkalýðs-
félaganna, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag, frá
kl. 3-7 e. h.
Alh. Áríðandi er, að miðarnir verði sóttir þessa daga.
Nefndin.
í^hk«hsíhkb
«iiiiiiiiiiiiliýiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimi»i>iiiiiiiimuiiiMi...nmmmm.. fli
| Tilkynning til viðskiptamanna:
Þeir viðskiptamenn félagsins, er lögðu inn |
1 eplaskammtmiða sína, geta sótt skammt sinn |
I á niðursoðnum ávöxtum næstu daga.
Verlunin Eyjafjörður hi.
• ii iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiiiiiimiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiinimimiiiiimiiiiiiiimiiiimiiiumui»»»»»»»»>•