Dagur - 03.03.1948, Side 2
DAGUR
Miðvikudaginn 3. marz 1948
FRÉTTAPISTLAR ÚR SKAGAFIRÐI:
Smíði Héraðsskóla Skagfirðinga
hafin í Varmahlíð
Lokið skólabyggingu á Sanðárkróki
Þegar Snorri námsstjóri Sig-
fússon var hér á ferð í vet-ur,
stakk hann upp á því, að sérstak-
ur góðviðrisskattur yrði lagður á
Skagfirðinga. Oefað er nú nóg
rúmið í ríkiskassanum, en trúlegt
þætti mér að Skagfirðingar gerð-
ust háværir um það leyti, sem
slík fyrírmæli yrðu lögfest. Hinu
er ekki að neita, að veðurfar hef-
ir verið með ágætum hér í Skaga-
firði, það sem af er þessum vetri.
Er það þó engin nýlunda að hér
sé góðviðri, því að fram-Skaga-
fjörður mun tvímælalaust með
veðursælustu héruðum landsins.
Að vísu snjóaði töluvert út með
firðinum austanverðum fyrri-
partinn í vetur. Nokkur snjór féll
einnig út að vestan, svo að jarð-
lítið varð jafnvel á tímabili. En
um miðbik héraðsins getur varla
heitið að fest hafi snjó. Nokkuð
hefir verið stormasamt, einkum í
framanverðri Blönduhlíð. Keyrði
þó fyrst um þverbak að kvöldi
hins 1. febrúar sl., en þá gerði
hér eitt hið mesta rok, sem menn
muna. Skaðar urðu töluverðir.
Þök fuku af hlöðum og heytjón
varð víða, en allt varð það þó
vonum minna.
★
Eins og geta má nærri hafa
mjólkurflutningar gengið mjög
greiðlega um héraðið í vetur. En
mjólkurframleiðsla fer hér alltaf
vaxandi. Bændur leggja að von-
um áherzlu á að fjölga kúm, því
að sauðfjárstofninn gengur alltaf
saman, enda undirlagður hinum
illræmdu karakúlpestum. Fjár-
skipti hafa verið ákveðin vestan
Héraðsvatna á næsta hausti og í
austanverðri sýslunni gera
menn ráð fyrir að viðurskurður
fari fram haustið 1949. Um það
munu svo nokkuð deildar mein-
ingar hvort vænta megi að pest-
unum verði útrýmt með þessum
aðgerðum, en vart mun nú hægt
að snúa við á niðurskurðarbraut-
inni úr því sem komið er.
Mjólkurbú er starfandi á Sauð-
árkróki og er það rekið í sam-
bandi við kaupfélagið. En kaup-
félagið eykur nú starfsemi sína
eins og vera ber. Á sl. ári byggði
það stórt vörugeymsluhús og
ostakjallara. Þá kom það og á fót
vélaviðgerðarverkstæði. Að vísu
munu 2 eða 3 slík verkstæði hafa
verið starfandi fyrir á Sauðárkr.,
en þau önnuðu hvergi nærri því,
sem gera þurfti. Og ef að sú von
manna rætist, að vélakostur
sýslubúa aukizt fremur en
minnkti, þá má vera ljóst, að við-
gerðaverkstæði K. S. kemur í
góðar þarfir. Forstöðumaður þess
er Ingi Sveinsson.
★
Á SL. HAUSTÍ var hafin bygg-
ing væntanlegs héraðsskóla í
Varmahlíð. Aðstæður leyfðu þó
ekki að langt yrði komizt með
verkið að þessu sinni. Lokið var
við að steypa sundklefa og grafa
fyrir aðalbyggingunni. En hálfn-
að verk þá hafið er, segir mál-
tækið og oft hefir sú orðið raunin
á. Eftir er svo að vita hvort hinni
dásamlegu gjaldeyrisstjórn Ólafíu
sálugu tekst ekki að afsanna
þetta spakmæli, hvað viðkemur
Varmahlíðarskólanum a. m. k.
Þegar fyrst var rætt um stofn-
un héraðsskóla að Varmahlíð ótt-
uðust ýmsir að hann myndi draga
nemendur frá Hólaskóla. Eg held
að sá ótti sé ástæðulaus. Reynsla
Borgfirðinga sýnir, að Reykholt
og Hvanneyri geta auðveldlega
verið nágrannar og vegnað þó
báðum vel. Bændaskólarnir eru
sérfræðiskólar. Þangað sækja
þeir, sem nema vilja búvísindi.
Satt er það að vísu, að nokkuð
skortir á að Hólar og Hvanneyri
séu fullskipaðir, eins og er. Or-
sakanna til þess er þó ekki að
leita í því, að skólar séu of marg-
ir á íslandi. Þær liggja dýpra, en
um það.skal annars ekki rætt.hér
að sinni.
Þá er að mestu lokið byggingu
skólahúss á Sauðárkróki. í því
starfa 3 skólar: barnaskóli, ungl-
ingaskóli og iðnskóli.
Við Steinsstaðalaug eru Lýt-
ingsstaðahreppsbúar að reisa
heimavistarbarnaskóla.
Loks hefir svo'staðið yfir hús-
mæðraskólabygging að Löngu-
mýri. Skóli hefir að vísu starfað
þar undanfarna vetur, en átt við
óhentugan og ófullnægjandi
húsakost við að búa.
★
Á öndverðum yfirstandandi
vetri átti karlakórinn „Heimir“
20 ára starfsafmæli. Minntist kór-
inn þessa tburðar með ágætum
samfagnaði að Varmahlíð. Voru
þar ræður fluttar í stórum stíl,
mikið sungið, mikið dansað og
mikið drukkið — af kaffi. Sagt
hefir verið um okkur Skagfirð-
inga, að við værum hestamenn,
gleðimenn og kvennamenn. Nú er
mér málið of skylt til þess að eg
vilji um það dæma. En víst er, að
ekki skorti gleðskapinn í afmæl-
ishæfi „Heimis“. Að öðru leyti
mun þess ekki hafa orðið vart á
því þingi, að áðurnefndir eðlis
kostir væru sérstaklega einkenn-
andi fyrir Skagfirðiriga.
Það kunna nú einhverjum að
þykja það lítil tíðindi og fáfeng-
leg þótt líkt þekktur sveitakór
verði 20 ára. Það er þó misskiln-
ingur. Að baki þessu tvítugsaf
mæli liggur mikið starf, sem á
rætur sínar í dugnaði, áhuga og
fórnfýsi þeirra, sem í kórnum
hafa starfað. Þess er vert að geta
að í kórnum starfa enn 6 af stofn-
endum hans. Kórfélagarnir eru
dreifðir um 5 hreppa sýslunnar
og héfir svo verið lengst af. Má
því nærri geta að oft hafi verið
erfitt að sækja æfingar. Áður fyrr
komu menn ríðanai, á skaptum
eða bara tveimur jafnfljótum, en
nú orðið geta flestir notað bíla.
„Það bendir allt til þess, að við
söngfélagarnir getum horft von-
glaðir fram á veginn, hvað kórinn
okkar snertir, en nokkru sinni
fyrr,“ sagði einn þeirra við mig
nú nýlega. Eg held, að Skagfirð-
ingar muni almennt taka undir
þá ósk. Þeim er yfirleitt ljóst, að
kórinn vinnur í raun og veru
margþætt menningarstarf og hér-"
aðið okkar yrði fátækara ef
„Heimir“ hyrfi af sviðinu.
★
Annar skagfirzkur menningar-
félgasskapur á merkisafmæli á
þessu ári. Það er Leikfélag Sauð-
árkróks, sem verður 40 ára. —
Undanfarna áratugi hefir það
haldið uppi leikstarfsemi, einkum
í sambandi við hina nafnfrægu
Sæluviku Skagfirðinga. Eiga hér-
aðsbúar áreiðanlega margar
ánægjulegar endurminningar frá
leiksýningum félagsins á liðnum
árum og munu, á þessum tíma-
mótum, minnast þess með þakk-
læti og óskum um vaxandi gengi
á ókomnum árum.
Sá maðurinn, sem að öðrum
ólöstuðum hefir borið hitann og
þungann af starfsemi fél., nú upp
á síðkastið, er Eyþór Stefánsson.
Hann er nú þjóðkunnur orðinn
af hinum sviphýru og hugljúfu
sönglögum sínum. Hitt vita e. t.
v. færri, að hann er einnig fjöl-
hæfur, smekkvís og öruggur leik-
ari og leikstjóri. Vonandi fáum
við Skagfirðingar sem lengst að
njóta hæfileika Eyþórs Stefáns-
sonar.
í tilefni afmælisins hyggst fé-
lagið nú að taka til meðferðar
Gullna hliðið hans Davíðs. Er að
vísu mikið í fang færst, einkum
vegna þess hve óhentugt er hús-
næði það, sem félagið verður að
hlíta. Á hinn bóginn er ekki
ástæða til að ætla, að félaginu
revnist ofvaxið að flytja leikinn,
að því er kemur til kasta leikar-
anna. Þeir eru margir góðir „í
Króknum". Hefir það jafnvel
vakið undrun og eftirtekt leik-
menntaðra manna hve miklir og
góðir kraftar finnast í ekki stærra
þorpi en Krókurinn þó er. Hér
hlakka allir til að sjá Gullna
hliðið. Þórir jökull.
Mánudaginn 1. þ. m. var dregið
í happdrætti því, sem stofnað var
til á skemmtunum þeim, sem
haldnar voru á sunnudaginn í
Hótel Norðurlandi fyrir barna-
söfnun Sameinuðu þjóðanna.
Þessi númer voru dregin út:
Nr. 3 hrærivél.
Nr. 81 svefnpoki.
Nr. 182 þýddar skáldsögur.
Nr. 313 rjómaterta.
Nr. 700 Ódáðahraun I—III.
Nr. 58 Töframaðurinn.skálds.
Nr. 386 Don Quixote, skálds.
Nr. 60 100 kr. í peningum.
Munanna skal vitja sem fyrst
til frú Þorbjargar Gísladóttir,
Strandgötu 29.
Bílgrind,
Chevrolet ’42, til sölu.
Lengsta gerð.
Jón Ólafsson,
Bifreið A 337.
Fermingarkjóll
til sölu í Norðurgötu 35
Sími 468.
SUNNAN FRA SUNDUM
★ ★
Sveinn Suðræni skrifar úr Rvík.
FJÖLDI UNGRA Reykvíkinga,
pilta og stúlkna, hverfur úr bæn-
um um hverja helgi, þegar færð
og veður leyfir, og heldur upp á
heiðar með skíði sín. íþróttafélög
bæjarins hafa flest reist myndar-
lega skála einhvers staðar á
Hellisheiðinni, eða þar í grennd,
og eru þeir viðlegustaðir unga
fólksins á þessum ferðalögum. —
Virðist „hreyfing" þessi líkleg til
andlegra og líkamlegra heilsu-
bóta, og allir, sem skíðagöngur
hafa iðkað, vita hve heilnæm og
hreystiaukandi sú íþrótt er, sé
hún iðkuð með gætni og forsjá.
En þetta tvennt, gætnina og
forsjálnina, virðist sumt af þessu
fólki skorta tilfinnanlega, og hef-
ir oft reynst mesta heppni, að
ekki skuli alvarleg slys hafa af
hlotizt. Mest brögð eru að fyrir-
hyggjuleysi þess, hvað klæðnað
snertir, og kunna björgunarmenn
jess margar sögur að segja, því
til sönnunar. En svo fer auðvitað
hér,-sem oft vill verða, að nokkrir
glópar vekja meiri athygli heldur
en þeir mörgu, sem haga sér
hyggilega og komast allra sinna
ferða aðstoðarlaust, og efla
hreysti og dirfsku í hóflega örð-
ugum átökum við snjóinn og
vetrarveðráttuna á heiðum uppi.
Eg hefi.stundum séð þessa skíða-
mannahópa leggja af stað í „rútu-
bílnum" skömmu eftir hádegi á
laugardögum. Og eg hefi sáröf-
undað þá um leið og eg hefi hugs-
að með mér, að þarna sæi eg vott
reirra mestu framfara, sem orðið
hafa í uppeldi æskulýðs borgar-
innar á síðustu árum, — og heill
sé þeim, er að slíkum framförum
standa.
OG ÞÁ IIEFIR mér komið
annað til hugar. Það er að vísu
gott og blessað, að einhver hluti
þeirra tekna, sem Áfengisverzl-
un ríkisins skapar, renni til
stúkna og annarrar bindindis-
starfsemi, — en væri þeim hluta,
— eða nokkrum hluta hans —
ekki eins vel varið, eða jafnvel
betur, til þess að styrkja og efla
þessa „hreyfingu“ og það, sem
henni er tengt? Væri þeim pen-
ingum ekki vel varið, ef reist
væri fyrir þá leyfisdvalarsetur á
fjöllum uppi, fyrir borgaræskuna,
og samtök mynduð, til þess að
venja hana á ferðalög upp um
fjöll og firnindi, enn meira en
verið hefir? Eg örvænti ekki um
framtíð reykvískra æskumanna.
Fjöldi ungra karla og kvenna get
ur hiklaust talizt jjl kjörsprota á
íslenzkum þjóðarmeiði. En — allt
of margir unglingar höfuðborgar-
innar eru á villugötum. Maður
þarf ekki annað en að koma í
suma danssali borgarinnar, til
þess að sannfærast um það, og
sízt eru frásagnirnar af sukki og
svalli þeirra ungmenna, er þá sali
gista, oi'ðum auknar — því miður.
Nokkrir þeirra kunna að sjá að
sér og verða nýtir menn. En fjöl-
márgir þeiri'a hljóta óhjákvæmi-
lega að farast; verða ólánsaum-
ingjar og þjóðfélagsbyi’ði.-------
VIÐ HÖFUM með okkur öflug
og merk slysavarnafélög og
styrkjum þau, sem maklegt er, —
og þó ekki nóg. Og í hvert skipti,
sem þeim tekzt að bjai'ga mönn-
um úr háska, vekur það óskipta
gleði okkar, eins og það oi'sakar
þjóðarsorg, þegar svo illa fer, að
ekki verður bjöi'gun við komið
og menn farast. Og auk harmsins
teljum við þá jafnan að þjóð vor
hafi orðið fyrir óbætanlegu tjóni;
hún er svo fámenn, að hún má
helzt engan úr fylkingu missa á
starfsaldi-i. — En, hversu marga
missir hún úr fylkingu sinni, þá
er áfengið og allt, sem því er
samfara, gerir að voluðum aum-
ingjum á bezta aldri? Og hví
harmar enginn það tjón, eða eflir
þar til slysavarna? Eg þori að
fullyi ða, að þjóð vor missir á ári
hverju mai-gfalt fleiri í glötunar-
djúp þeirrar spillingar, en í sjó—
inn. Og við, sem álösurn, og það
með réttu, þeim mönnum, sem
eru svo kaldrifjaðir, að sigla fram
hjá nauðstöddum báti, án þess að
veita hjálp, — við horfum á fjölda
ungmenna farast, án þess að við
hefjumst handa um aðstoð og
björgun.
EG ER sannfærður um, að eitt
bjargráðið, sem þessum ungling-
um mætti helzt að gagni koma,
væri það, að fá þá til að verja
tómstundum sínum til holli'a
ferðalaga og þeirra íþrótta, sem
þeim eru tengd. Geti æskulýður
höfuðborgarinnar ekki fundið
sjálfan sig og köllun sína í faðmi
fjalla og öræfa, er eg hræddur
um, að hann leiti annars staðar
án árangurs. Eg hefi satt að segja
ekki nærri eins mikla trú á
stúkustai'fseminni í þessu sam-
bandi, enda þótt hún hafi verið
allnotatfi'júg á því sviði á sínum
tíma.
NÝJA BIO
synir
kvöld:
Hátíð í Mexico |
(Holiday in Mexico) 1
Metro Galdwyn Mayer- \
kvikmynd í eðlilegum lit- §
um, tekin oi Joe Pasternak, \
eftir sögu William Koz- i
lenko og Isobei Lennart. |
Aðalhlutverk leika: ^
WALTER PIDGEON |
ILONA MASSEY |
}OSE ITURBI
IANE POWELL
RODDY MC DOWALL
i Meðal laga, senx sungin eru og
I leikin i myndintii, má nefna:
| „Polonaise“ (leikið af Jose Iturbi),
j „Liebestod", eftir Wagner (Jose
: Iturbi leiknr), og
I „Ave Maria", eftir Schubert (sung-
É ið af Jane Powell, með kór og
I hljómsveit undir stjórn Jose
: Iturbi).
iKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKil
Karlakórinn
„GEYSIR“
lieldur AÐA L F U N 1)
fimmtudaginn 4. marz í
„Lóni", kl. e. h.
STJÓRNIN.
KHKtblKHKHKHKHKHKilKHKHKKH
immiiiiiiiiiÍMmiiiiiiiiiimmmmiHMiiiniii iiiiiiimmiiiniiM