Dagur - 14.04.1948, Side 8
Dagur
Miðvikudaginn 14. apríl 194S
Dúntekja landsmanna nemur
4-5000 kg. á ári
Smekklegar iðnaðarvörur úr æðardún geta
verið dýrmæt útflutningsvara
Brezkir skíðamenn iáta vel af
dvöl sinni hér á Akureyri
en benda á ýmislegt, sem betnr iuá f ara
Ólafiir Sigurðsson ráðunautur
á Heilulandi í Skagafirði hefur
verið gestkomandi liér í bænum
undanfarna daga. ,,Erindi mitt
liingað að þessu sinni er m. a. að
athuga um möguleika á að koma
hér upp hreinsunarstöð fyrir æð-
ardún,“ sagði Ólafur í viðtali við
blaðið. — „Ársframleiðslan af
æðardún nemur 4-5000 kg. á ári,
en alls hafa hartnær 400 jarðir
hlunnindi af dúntekju. Aðeins
ein dúnhreinsunarstöð er til í
landinu, í Stykkishólmi, og annar
hún hvergi nærri hreinsun á
öllum dún, sem til fellst í land-
inu. Er því mikil nauðsyn að
koma upp nýrri hreinsunarstöð.
Hefur Samband ísl. samvinnu-
félaga áhuga fyrir málinu og er
unnið að undirbúningi á þess
vegum, þykir mér líklegt að mál
þetta komizt á rekspöl á næst-
unni.“
Er dúnframleiðslan í vexti,
eða hnignar vörpunum yfirleitt?
Yfirleitt má segja, að dúntekj-
an gangi saman. Veldurþvífólks-
fæðin á hlimnindajörðunum, en
það er reynsla allra, sem til
þekkja, að ef vörpin njóta ekki
nægilegrar umönnunar, þá hrak-
ar þeim. Of lítið er gert að því,
víða að halda vargi í skefjum og
hirðingu yfirleitt ábótavant. Til
þess að örfa vörpin aftur, þarf
að bæta úr þessu og líklega væri
nauðsynlegt jafnframt að koma
upp útungunar- og uppeldis-
stöðvum fyrir æðarfuglinn.
Sýslufundi Eyjafjarðarsýslu
lauk sl. föstudag og hafði þá'stað-
ið í nokkra daga. Helzta mál
fundarins var uppkast að reglu-
gerð fyrir rafveitusjóð Eyjafjarð-
arsýslu. Ekki var gengið frá mál-
inu á fundinum, heldur ákveðið
að beina því til hreppsfunda í
sýslunni, sem síðan sendi oddvita
sýslunefndarinnar ályktanir sín-
ar og verði því lokið í maímánuði.
Var svo ráð fyrir gert, að kall-
aður yrði saman aukafundur
sýslunefndar til þess að taka end-
anlegar ákvarðanir í málinu.
Gagnfræðadeild M. A.
Sýslunefndarmenn Arnarness-
hrepps, Saurbæjarhrepps og
Svarfaðardalshrepps báru fram
tillögu, þar sem sýslunefndin
skorar á ríkisstjórnina að fresta,
fyrst um sinn, framkvæmd þess
ákvæðis hinna nýju fræðslulaga,
að gagnfræðadeild skuli lögð
Reynslan sýnir að mikið af ung-
unum ferst árlega áður en þeir
ná að verða sjálfbjarga. Þyrfti að
hjálpa stofninum með útungun
og uppeldi.
„Hvað verður um dúnfram-
leiðsluna? Notum við hana inn-
anlands eða er hún flutt út?
Nú hin síðustu ár hefur mest
af framleiðslunni verið selt hér
innanlands. Með auknum pen-
ingaráðum hefur fleira fólk en
áður komið sér upp æðardúns-
sængurfatnaði og er það ágætt.
Eitthvað mun hafa verið flutt út.
Æðardúnninn íslenzki er eftir-
spurður á erlendum markaði,
enda sjaldgæf vara. Það er vafa-
laust að við gætur unnið hér verð
mætar útflutningsvörur úr dún-
inum, t. d. alls konar stoppuð
teppi, svefnpoka o. s. frv. og
fengið dýrmæta dollara og ann-
an gjaldeyri fyrir. Þessi tæki-
færi, til þess að fullvinna þessa
vöru í landinu sjálfu og gera hana
eins verðmæta og kostur er, hafa
ekki verið nótuð hér.Þettaþarf að
breytast. Við þurfum .að vinna að
því að auka dúntekjuna, og koma
henni í sem bezt verð. Virðist
mér nú vUxandi skilningur með-
al ýmsra ráðamanna á þessu
máli.“
Haesta sala „Kaldbaks44
Kalóbakur seldi afla sinn í
Bretlandi í s.l. viku, 4336 kits fyr-
ir 14.181 sterlingspund. Er þetta
hæsta sala skipsins til þessa.
niður við Menntaskólann á Akur-
eyri.' Var till. samþykkt einróma.
— Á bæjai'stjórnarfundi Ak-
ureyrar fyri-a þiiðjudag hafði
bæjarstjórn samþykkt ályktun
sama efnis og Stúdentafélag Ak-
ureyrar gerði svipaða ályktun á
fundi sínum fyrir nokkru.
Önniir störf sýslunefndar.
Sýslunefndin samþykkti þá
ráðstöfun sýslumanns, að heimila
Dalvíkurhreppi að kaupa jörðina
Böggvisstaði fyrir kr. 207.000. —
Breytmg var gerð á fjárskila-
reglugerð sýslunnar, verða aðeins
tvær löggöngur, en þó er hrepp-
um heimilt að ákveða þrjár, að
fengnu leyfi sýslumanns.
Sýsluvegasjóðsgjald var ákveð-
ið 12% af jarðeignum, 6% af hús-
um. — Sýslunefndin veitti 38700
kr. til menntamála, 32000 kr. til
heilbi-igðismála og 11950 kr. til
búnaðarmála.
Gegnir erf iðu hlutverki
Lucius D. Clay yfirhershöfðingi
Bandaríkjamanna í Þýzkatandi,
gegnir erfiðu hlutverki. Rússac
ieggja nú mikla áherzlu á að gera
Vesturveldunum sem erftðast
fyrir um hersetu í Berlín, mcð
hverskonar hindrunum á sam-
göngum og óbilgirni í allri sam-
búð. Clay hefur vaxið að áliti fyr-
ir stjórnsemi, skipulagshæfileika
og einurð í skiptum við Rússa.
Tilboði Akureyrar
í dráttarbrautina
ekki lekið
Gísli Kristjánsson, framkv.stj.
fyrir byggingu dráttarbi-autar
Akureyrar, hefir undanf arið ■
dvalið í Reykjavík við athugun á
kaupum dráttarbrautar, sem
Slippfélag Reykjavíkur vill
selja, svo sem greint var frá í
síðasta blaði. Braut þessi er um
16 ára gömul og er talin nú geta
tekið upp 500 tonna skip. Með
Gísla til athugunar á gæðum
brautarinnar var Gunnl. S. Jóns-
son, fyrrum framkvæmdastjóri
Odda.
Samkv. tillögu Gísla og hafnar-
nefndar heimilaði bæjarstjórn
honum að gera 335 þús. ki*. tilboð
í dráttarbrautina, ef vitamála-
stjóri samþykkti hana hæfa til að
njóta fjái'framlags ríkissjóðs til
hafnarmannvirkja. Vitað var, að
Marzilius Bernharðsson, skipa-
smiður á ísafirði, og sennilega
fleiri, mundi gera tilboð í drátt-
ai-brautina móti Akureyrarbæ. —
Þegar tilboðin voru opnuð,
reyndist tilboð Marziliusar 350
þús. kr., en Slippfélagið hefir lýst
yfir, að það láti eigi dráttarbraut
þessa undir 375 þús kr. Er hún
því enn óseld.
Stórum æskilegra væri að fá
nýja og vandaði’i dráttarbraut,
en orsök þess, að boðið hefir ver-
ið svo hátt í 16 ái*a gamla braut í
Reykjavík, er sú, að búizt er við
allt' að 2ja ára afhendingax-tíma
dráttai-brautar erlendis frá.
Theodór Friðriksson
látinn
Nýlega lézt í Reykjavík Theo-
dór Friðriksson, rithöfundur, 72
ára að aldi'i. Theodór var Þing-
eyingur og' dvaldi lengst æfinnar
hér nyrðra. Ritaði hann margar
bækur, skáldsögur og frásagnir,
úr lífi norðlenzks alþýðufólks.
Fyrir páskana dvaldi hér
brezkur skíðamaður úr British
Ski Club og varáskíðumhér.íná.-
grenninu og nú hafa tveir brezjcir
skíðamenn dvalið hér í nokkra
daga og hyggjast verða hér eina
10 daga enn. Loks er von á
nokkrum gestum í viðbót nú um
og eftir miðjan mánuðinn.
Skíðamennii*nir, sem hér dvelja
nú, eru þeir Mr. Morrel og Mr.
Reid frá London. Er Mr. Reid
meðlimur í British Ski Club en
lögfræðingu rað starfi. Mr. Morr-
el hefir nýlokið herþjónustu og er
þetta fyrsta orlof hans nú um
langt skeið.
Dagur hittl þá félaga að máli
að Hótel KEA og ræddi við þá
um dvölina hér. Auglýsing í
tímariti brezka skíðafélagsins
vakti athygli þeirra á því, að e. t.
v. væri hentugt að stunda vetrar-
íþróttina hér og eftir að þeir
höfðu kynnt sér fræðslubækling
sem Ferðaskrifstofa ríkisins hefir
gefið út, ákváðu þeir förina.
Þeir félagar láta yfirleitt mjög
vel af dvölinni. Þeir hrósa matn-
um og aðbúð allri, en finnst dýr-
tíð mikil. Þeir hafa verið mjög
heppnir með veður hér og hafa
unað sér hið bezta á skíðum í ná-
grenninu. Segja þeir snjóinn
ágætan og brekkur skemmtileg-
ar, en nokkurn galla hvað þær
séu fjarri bænum. Annar þeirra
bendir á, að ef ætlunin sé að gera
Happdrætti
um 10 bíla 15. maí
Hinn 15. maí n. k. vei'ður dreg-
ið í happdrætti SlBS um 10 bíla
og verður aðeins dregið úr þeiin
númerum, sem seld eru. Fé það,
sem safnast í þessu happdrætti
fer til þess að fullgera stórhýsi
það, sem SÍBS hefur nú í smíð-
um í Reykjalundi. Til þess að
verkinu verði lokið á tilskyldum
tíma og Sambandið hafi fé til
framkvæmdanna, þarf að selja
um 50 þúsund miða enn. Heitir
SÍBS á landsmenn að styðja þetta
stórmerka mál enn með því að
taka þátt í happdrættinu og
kaupa miða.
Framtak SÍBS hefur vakið
mikla athygli erlendis.
í sumar fer hér fram stofnþing
Norræns berklavarnasambands,
að Reykjalundi, og verður hið
nýja hús þá vígt. Fimm fulltrúar
Norðurlandanna sækja stofn-
þingið. Er það haldið að Reykja-
lundi í heiðursskyni við starf
SÍBS, en berklavarnastarfsemin
er lengst komin hér á landi fyrir
forgöngu þess.
Vefnaðar og prjónavélanáms-
skeið verða haldin í Tóvinnusicól-
anum að Svalbarði 27. og 28.
apríl. Sjá auglýs. í blaðinu.
Akureyri að miðstöð fyrir vetrar-
iþrótkir,. þyrftu ferðamenn að éiga
aðgang að föstum skíðakennara
og leiðbeinanda og eiga kost á
fari í skíðabrekkurnar á vissum
tímum. Þótt þessari skipan hafi
ekki verið komið á, hefir það ekki
komið að sök hvað þeim félög-
um viðkemur, segja þeir, þar
sem ýmsir skíðamenn hér hafa
leiðbeint þeim og aðstoðað þá og
eru þeim mjög þakklátir fyrir
það'
Þótt þessir brezku gestir séu
hinir hressustu og uni sér hér vel,
getur þó hvorugur orða bundizt,
að þeir sakni bjórsins. „Hvers
vegna er ekki hægt að fá bjór á
íslandi?“ spyrja þeir. „Er það
trúarbragðaatriði að banna bjór-
brugg? Bjór er svo ósköp sak-
laus drykkur." — Þeir eru
hræddir um að erfitt verði að
sætta brezka skíðamenn við vist-
ina á íslandi, ef ekki er hægt að
útvega þeim almennilegan bjór!
Samsöngur Karlakórs
Mývatnssveitar
Karlakór Mývatnssveitar, und-
ir stjórn Jónasai* Helgasonar á
Grænavatni, hafði samsöng í
sámkomuhúsinu í Húsavík s. 1.
sunnudag við húsfyllir og ágæt-
ar viðtökur. Varð kórinn að end-
urtaka mörg lögin og syngja
aukalög. Einsöngvarar voru:
Sigurður Stefánsson, Steingrímur
Kristjánsson og Þráinn Þórisson.
Um kvöldið endurtók kórinn
hljómleikana að Breiðumýri.
Bókaríregn
„Hver gægist á glugga?“
Barnasögur eftir Hug-
rúnu. Bókaútgáfan Osp,
Reykjavík.
í þessari síðustu barnabók
sinni, segir Hugrún börnunum
sögur úr sveit og kaupstað. —
Fyrsta sagan og sú lengsta heitir
„Vinnan göfgar manninn“, og
gæti það nafn raunar verið eink-
unnaroi-ð bókarinnar. Þar er sagt
á skemmtilegan og aðgengilegan
hátt frá störfum barnanna í sveit
og við sjó, hollum leikjum, og
samvistum við dýrin. Sögurnr.r
'iFifa allar meira takmark en að-
eins það, að hafa ofan af fyrir
börnunum á meðan þau lesa þær.
Þæv miða að því að vekja hjá
þeim góðar og göfugar tilfinning-
aia, virðingu fyrir því sem goít
er og samúo rueð þeim, sem h’ti's
rnega s n. Þær eru ritaðar á iéitu
og aðgengilegu máli. Þessi bók
lætur ekki mikið yfir sér liið ytn.
en það er óhætt að mæla með
henn < > við •foreldra. Frágangt; r ei
góður og verðinu stillt í hóf.
Sýslunefnd og bæjarstjórn vilja
fresta afnámj gagnfræðadeildar
Rætt nm rafveitusjóð Eyjafjarðarsýslu