Dagur - 02.06.1948, Page 5
Miðvikudaginn 2. júní 1948
Ð A G U R
ij
Eeioinaar um sKoiamaim
r r
I tilefni af grein Olafs Jónssonar
Eftir SNORRA SIGFÚSSON, námsstjóra
— SEINNI GREIN. —
Svokallaður annarsdagsskóli
hefir stims staðar verið reyndur
í sveitum, þar sem löng var
heimangangan. Hefir þá yngri
hópurinn komið annan daginn, en
hinn eldri hinn. Þetta hefir víðast
gefist þar vel. En eg er hræddur
um að öðru máli myndi gegna í
bæjunum. Það hefir lítillega verið
reynt í þorpi, en þar varð sagan
önnur. Þó held eg að annarsdags-
skóli yrði líklegri til þrifa í þétt-
býlinu heldur en það fyrirkomu-
lag, að börnin væru svo sem
mánuð í skóla í einu og svo ann-
an heima eða svo. Sannleikurinn
•»
er nú sá, að þrátt fyrir allt, er
dagleg skólaganga öllum fjölda
bæjarbarnanna uppeldislegnauð-
syn, eins og málum er háttað nú,
enda held eg að allur þorri for-
eldra líti einnig svo á. Um lengd
skólaársins má deila. Það er nú
frá 12 vikum í allt að 36 vikur. En
aðgætandi er, að þeir sem lengst
hafa skólaárið hafa stuttan skóla-
dag, aðeins 2—3 40 mínútna
stundir, og svokallaður vor- og
haustskóli bæjarbarnanna fer að
mestu í útivist og kennslu þar.
En aftur á móti á að stefna að því,
að heimanám barnanna minnki
eða hverfi að'mestu, og yrði það
stór léttir bæði fyrir börnin og
heimilin. Á eg hér einkum við
stóru þorpsskólana og bæjarskól-
ana, sem lengst hafa skólaárið,
því að þeirra tími á að vera næg-
ur til þess að börnin læri það, sem
rétt er og sanngjarnt af þeim að
heimta, þar sem framhaldsnám
blasir nú við flestum, sem vilja.
Þá munu og hin margendurteknu
próf í lesgreinum barnaskólanna
einnig smátt og smátt hverfa, og
önnur vinnubrögð og gpnað mat
tekið upp á vinnu og athugunum
barnanna, sem lyft gæti meir
undir áhugann til sjálfsnáms. Og
ef námsþreytan er eins almenn
og ýmsir vilja ætla, sem raunar
hinir fullsetnu framhaldsskólar
benda til að ekki hafi við nægileg
rök að styðjast, mun mega ætla,
að minnkandi lexíunám og
prófaþvarg og þá einnig minna
heimanám, létti nokkuð á börn-
unum og gefi þeim meira svigrúm
til að sinna leikjaþörf sinni og
frjálsræði. Á því hefi eg aftur á
móti litla trú, að kennarar séu á
stjái milli heimilanna í bæjunum
og kenni þar einu og einu barni í
einu. Öll aðstaðan þar mælir gegn
slíkum vinnubrögðum. ,
Eg er sammála Ó. J. um það, að
litlir skólar séu heppilegri upp-
eldisstofnanir en stóru skólarnir,
en þeir verða aftur á móti dýrari
í rekstri, og hefir það sjónarmið
líklega verið allþungt á metum
hingað til. Skólabákn eins og
Austurbæjarskólinn í Rvík verð-
ur ekki framar byggt hér á landi.
Nú er þar í ráði að byggja smærri
skóla og víðar um borgina. Þann-
ig mun þróunin víðar verða, t. d.
hér á Akureyri, því að hin nýja
viðbót við húsið hcr var meir
gerð til að koma fyrir Ijósa- og
lækningastofum og gera litlar
kennslustofur viðunandi, en
beinlínis til þess að stækka skól-
ann að verulegu ráði. Næst mun
lítill skóli reistur niðri á Oddeyr-
inni, ætla eg.
Á vegamótum.
Það má kalla að við stöndum nú
á vegamótum, máske fremur en
nokkru áinni fyrr. Mikil þjóðlífs-
bylting og ískyggileg er að gerast.
Sveitauppeldis njóta nú miklu
færri en áður. Og það er erfitt
fyrir þjóð, sem ætíð hefir búið
dreift, að vera í svo að segja ein-
um svip varpað inn í kös þéttbýl-
isins, með öllum þeim uppeldis-
legu annmörkum, sem því fylgja.
Það er því ekki að undra þótt
sitthvað sé að, því* að villigöturn-
ar eru margar á leið hinnar nýju
þéttbýlismenningar, sem við
verðum nú að reyna að skapa,
og það hygg eg og vona, að þar
verði hlutur skólanna drjúgur til
framdráttar aukins þroska og
meiri siðmenningar. Sveitirnar
verða í þessum efnum vel settar
þegar þær hafa eignast sín skóla-
heimili, er smátt og smátt munu
rísa þar, og gleður það mig ein-
læglega, að O. J. virðist eindregið
hallast að þeirri úrlausn málanna
þar.
„Völd“ stéttar barnakennara
held eg að enginn þurfi að óttast,
því að þau eru harla lítil. Sú stétt
er ekki ýkja stór starfshópur og
hefir ekki verið aðsópsmikil í
streitunni um eigin hagsmuni.
Var sá hópur þó einna vérst sett-
ur fram á hin allrá síðustu ár. Og
enn er hinn mesti hörgull á
mönnum ,sem vilja gefa sig að
barnakennslu, og sýnir það, að
aðrir vegir þykja fýsilegri til fjár
og frama. Og af allnánum kynn-
um við kennarana um fjóra ára-
tugi þykist eg geta sagt það með
sanni, að þar hafi yfirleitt verið
og séu góðir menn og samvizku-
samir að verki.
«■»
Allt veltur á manninum sjálfum.
Eg skal svo ljúka þessum hug-
leiðingum með því að vitna til
niðurlags erindisins, sem eg
nefndi og hefi áður vitnað til:
,;.... Við lifum á öld mikillar
tækni og véla. Voldug öfl hafa
verið leyst úr læðingi. En enn er
óséð hvort hin mikla þekking og
tækni verður til þess að þroska
mannskepnuna eða tortíma henni.
Það fer eftir því, hvort hinn
sprenglærði óviti kann og vill
nota þau vopn, er hann ræður nú
yfir, sér og öðrum til farsældar
eða eyðileggingar. Allt veltur á
manninum sjálfum, hvort hinar
beztu eigindir í eðli hans, eða
hinar lakari, ná þar yfirhönd-
inni. Mannræktin er því hið
mikla stórmál allrar veraldar nú,
ræktun guðseðlisins í hugarfari
og hjartalagi manhanna. Sú rækt
á og þarf að vera æðsta markmið
alls uppeldis, bæði í heimilum og
skólum. Og þar hvílir hin þyngsta
skylda á heimilunum. Þau leggja
grundvöllinn. Skólinn á óhægra
um vik. Hann tekur við hópum
ólíkra einstaklinga, meira og
minna mótuðum af heimili og
umhverfi, verður að sinna öllum
og á því örðugra með einstakl-
inginn. Skólanum kann því jafn-
an aðvera hætt við að nota sama
mælikvarðann á alla, og freista
þess ógernings, að steypa þá í
sama mótið. Þetta eru hinir miklu
vankantar á öllu skólauppeldi
eins og það er nú, og mun máske
jafnan verða. En þó verður að
vænta þess, að kennslu og upp-
eldishættir skólanna fái þá end-
urskoðun og endurbót í framtíð-
inni, að einstaklingurinn fái þar
sem bezt notið sín.“
í fyrri hluta þessarar greinar
slæddust m. a. þessar prentvill-
ur: í 6. línu 4. dálks að ofan
stendur: — Skólinn á líka við
þann yfirstíganlega örðugleika að
etja, — en á að vera óyfirstígan-
lega öi'ðugleika að etja o. s. frv. —
í næst síðustu línu kaflans: Nám
eða iðjuleysi, stendur---að séu
þegar vaxandi ungviði nauðsyn-
legur þroskagjafi, en á að vera:
hverju vaxandi ungviði-------o.
s. frv.
— Fokdreifar
(Framhald af 4. síðu).
halda uppi 1100% dýrari lögreglu
nú en fyrr.
Þá eru það þrifnaðarmálin. Þau
eru nátengd lögreglumálunum. Ar-
ið 1934 var kostað til þrifnaðarmála
kr. 14.000,00, en nú kr. 238.000,00.
Virðast því fjárframlög til þessara
mála nú og fyrr mjög liagstæð fyrir
nútímann, bæði miðað við fólks-
fjölda og hækkun verðlags.
Gunnar Jónsson.
Hersýningin á Raúðatorginu.
ÞEIR HEITA ÝMSUM nöfnum,
foringjar kommúnista eins og aðrir
dauðlegir menn. Dimitroff er lor-
sjón Búlgaríu og Tító allsherjarguð
Júgóslaviu. Hér á íslandi lieitir leið-
togi rétttrúaðra Brynjólfur Bjarna-
son. Og yfir öllum litlu spámönn-
unum vakir alsjáandi auga föður
Stalins. — Það er venja í þeim lönd-
um, sem tekið hafa átrúnað komm-
únista, að merkisdagar þessara for-
ingja eru, með valdboði, gerðir að
þjóðhátíðardögum. Þá eru hersýn-
ingar miklar haldnar, dagskipanir
útgefnar, og risastórar myndir og
áróðursspjöld liengdar á annað
hvert liús .Þá lirópar lýðurinn sig
hásan — undir eftirliti lögreglunnar
— yfir þeirri náðargjöf forsjónar-
innar, að senda þjóðunum slíka
menn. Hér á íslandi hefur þjóðin
ekki þennan austræna átrúnað því
ella mundi miðvikudagurinn síð-
asti hafa verið lögskipaður frídagur
um land allt. Heljarstórar myndir
og risavaxnar áletranir hefðu þá
uppfrætt fólkið og fjöldafundir á
hverju torgi mundu hafa samþykkt
ályktanir, sem lögreglan hefði haft
tilbúnar á vélrituðum blöðum í
vösum skrautlegra einkennisbún-
inga. Því að s. 1. miðvikudag voru
liðfn finnntíu ár síðan Brynjólfur
Bjarnason sá ljós þcssa heims. En
þótt þessi framtíðardraumur komm-
únista — um einræði Brynjólfs og
sálufélaga hans — liafi ckki rætzt, er
hugarþel litla safnaðarins úti á ís-
landi með sama markinu brcnnt og
fÞRÓTTIR OG ÓTILÍf
Vormót, II. fl., Þór — K. A.
4:0.-— Þessi leikui' fór fram á
þriðjudagskvöld, 23 .maí, í kulda-
veðri. Fyrri hálfleikur var
skemmtilegur, þótt ekki væri til-
komumikill, og lauk með 1 : 0
Þór í vil. — Síðan jók Þór sókn-
ina, Hinrik og Haddi — t. d. —
tilþrifagóðir, en K. A. dalaði
heldur, eins og oft vill verða, þeg-
ar verulega fer að halla á. Freyr
varði þó vel, — sérstaklega fram-
an af, — en er ekki nógur fljótur
að átta sig, hvort hlaupa skuli úr
marki rnóti knetti eða ekki. Þarna
léku margir efnilegir menn í
báðum liðum. Verður áreiðanlega
til þeirra horft og hrópað á næstu
árum, ef þeir halda áfram að œfa
og gæta hófs bæði í því og öðru.
Sveinn Kr. dæmdi leikinn.
Á fimmtudagskvöldið sl. var
svo háður síðasti leikur vormót-
anna, meistarafl., K. A. og Þór
5 : 2 mörkum.
Eftir hálftíma leik, nokkuð
jafnan, stóð' l: 1 mark' Upphlaup
voru góð á báðar hliðar og vörn-
um vel upp stillt, — Þór skoraði
næsta mark og fékk rétt á eftir
annað færi — upp úr góðru horn-
skoti, en knöttur missti aðeins
marksins. Þetta var nóg, en ekki
of mikið, fyrir.K. A.-liðið, sem nú
hóf harða sókn. Lauk þeirri vörn
með ágætu skoti — frá Baldri —
neðan í slána og inn í netið. Stóð
svo litla stund 2 : 2.
Upphlaup á báðar hliðar, en
vörn Þórs varð óstöðugri en áður
og fyrir leikhlé hafði K. A. skorað
2 mörk í viðbót Én þá fékk Þór
goluna til liðs við sig og var að-
allega leikið á vallarhelmingi K.
A. síðari hálfleik., Þór fékk mörg
ágæt færi, fríspörk á st.uttu feéri í
mark, hornskot og „fría fætur“,
en alltaf brást síðasta viðbragðíð,
„punktinn 'ýfir í“ — gott mark-
skot. Vissúlega vóru menn um-
setnir, vörn K. A. fljót og örugg:
Ottó, Jósteinn, Helgi, en það virt-
ist í mörgum tilfellum varla geta
dugað. En Sveinn gætti líka
marksins mjög vel í þessum leik.
Þórsliðið vantaði sýnilega æfingu,
og fór, er á leið, að bregðast
sóknarviljinn og samleikur. En
fengi framlína K. A. knöttinn
voru upphlaupin hröð. Oftar en
hjá játningarbræðrunum úti í hin-
um stóra heimi. Reynt er að tjalda
þvi, sem til er. Þessvegna var það,
að „Verkamaðurinn" kom út í
skrautútgáfu á miðýikudaginn var.
Þetta var ekki reglulegur útkomu-
dagur blaðsins, heldur var þetta
nokkurs konar liersýning á Rauða-
torginu, viðleitni til þess að sýna
livað koma mundi, er „dagskipanir"
kommúnista væru orðnar lög lands-
ins. Persónudýrkun kommúnista —
sem var svo spaugilega opinberuð í
skrautútgáfunni — lielzt í hendur
við einræðis- og ofbeldistrú þeirra.
Venjulegu fólki er það lokaður
lieimur, hvernig menn, sem tæki-
færi hafa til þess að vefa sjálfstæð-
ir, liugsandi einstaklingar, geta
varpað frá sér öllum aðalmerkjum
sjálfstæðra manna til þess að gerazt
lágkúrulegir dýrkendur 'skurðgoða
og hugsunarlaus verkfæri flokks-
stjórna. En sálfræðingar hafa sjálf-
sagt gildar skýriíigar á þessunl fyrir-
brigðum á reiðum höndum.
einu sinni bróst þá skipun varn-
arliðsins hjá Þór — hopaði öll
vörnin, svo að hinir fengu leikið
lausum knetti upp undir vítateig.
Upp úr slíku gerði K. A. 5. mark-
ið, létt skot úr þvögu á markteigi.
Annars vai'ði Baldur oft vel, —
reyni meira á það í fyrri hálfleik
— rólegui', en þó djarfur að
hlaupa úr marki. Sverrir er bæði
duglegur og öruggur í vörninni
og í framlínu Þórs sást aldrei lát
á sókn Dúlla og' Eyjólfs, þótt að
þei mværi þrengt. Eyjólfur ætti
þó frekar aðjeika sem framvörð-
ur. — Margt fleira mætti um leik
og leikmenn segja, en það verður
að vera ógert nú.
Meðal margra áhorfenda var
knattspyrnuþjálfari landsliðsins í
Reykjavík, Joe Divene, og dóm-
ari var Karl Guðmundsson,
pekktur leikmaður í Val. Komu
teir hér norður til þess að vera
við þennan leik og sjá þar að
verki úrval knattspyrnumanna á
Akureyri — hvort nokkur myndi
hlutgengur þar í landsliði. Dómur
víst ekki fallinn í því máli.
Úr Glerárþorpi.
í Glerárþorpi er mikill íþrótta-
áhugi og dugandi fólk.
Sunnudaginn 23. maí var þar
keppni í frjálsum íþróttum milli
þorpsins og Arnarnesshrepps
(Hjalteyri). Kepptu 6 piltar frá
hvorum aðila, drengir enn í eitt
til tvö ár, og því hvorki fullþrosk-
aðir né vel þjálfaðir.
Helztu úrslit voru þessi:
100 m. hlaup:
1. Gísli Jónsson A. 13.5 sek.
2. Þóroddur Jóhannss. A. 13.6 sek.
3. Halldór Árnason G. 13.9 sek.
Kúluvarp:
1. Gísli Jónsson A. 11.61 m.
2. Kristján Kristjánsson G.
10.88 m.
3. Þór Árnason G. 10.38 m.
Langstökk:
1. Gísli Jónsson 5. 5.17 m.
2. Þóroddur Jóhannss. A. 5.03 m.
3. Kristján Kristjánss. G. 4.84 m.
400 m. hlaup: ,
1. Oðinn Árnason G. 61.0 sek.
2. Gísli Jónsson A. 61.1 sek.
3. Einar Gunnlaugss. G. 61.8 sek.
Kringlukast:
1. Gísli Jónsson A. 31.22 m.
2. Þóroddur Jóhannss. A. 29.59 m.
3. Hörður Hermannss. A. 29.52 m.
Þrístökk:
1. Hörður Hermánnss. A. 10.41 m.
2. Kristján Kristjánss. G. 10.37 m.
3. Þóroddur Jóhannss. A. 10.20 m.
Sjótkast — fullkomið spjót:
1. Kristján Kristjánss. G. 42.68 m.
2. Valdimar Axelsson A. 32.16 m.
3. Þór Árnason G. 30.0 m.
Arnarnesshreppur sigraði í
þessari keppni með 27 stigum. —•
Glerárþorp hlaut 15 stig. Móts-
stjóri var Yngvi Rafn, íþrótta-
kennari U. M. S. E. — Þegai' þess
er gætt, hve ungir þessir íþrótta-
menn eru — 14—17 ára — veður
kalt og aðstaða ill til keppni, má
telja árangur góðan. — Við skul-
um óska þessum ungu mönnum
til hamingju.
Afmælismót Þór — 6.—10: júní
— á að hefjast með Oddeyrar-
boðhlaupinu næsta sunnudags-
kvöld.