Dagur - 08.09.1948, Qupperneq 5
Miðvikudaginn 8. september 1948
D AGUR
5
IÞROTTA
Knattspyma.
Knattspyrnumót íslands í II.
flokki hófst fyrra sunnudag á
Akureyri. Liðin voru aðeins 3, —
frá íþróttabandalagi Akureyrar,
íþi'óttabandalagi Rvíkur og
Knattspy rnufélagi Sigluf j arðar.
— Siglfirðingar komu hingað á
laugardag. Veður var stillt og
gott á sunnudaginn og um kl. 5
e. h. var býsna góður kögur af
skvaldrandi og skrautbúnu fólki
um Þórsvöllinn. En þá hófst
fyrsti leikurinn, milli I. B. A. og
K. S. „Eru þessir litlu drengir
með,“ heyrðist einhver hrópa,
þegar „rauðbuxarnir“ hlupu inn
á völlinn. Já, víst voru þeir smá-
ir vexti sumir, — „en oft er lang-
ir-----“ o. s. frv. Við sjáum nú
til. Fararstjóri Rvíkinga, Ingi Ey-
vindsson, blés til leiks, K. S. hafði
goluna með sér, Akureyringar
hófu árásina og voru á fyrstu
mínútu við mark andstæðinga.
Ætla þeir virkilega að byrja strax
að „marka?“ — Nei, en horn fá
þeir á K. S. — vel tekið, en mark
næst ekki. Og nú tekur K. S.
völdin öllu meira um tíma, og
þegar 15 mín. eru af leik, sýnist
þei mmarkið alveg gefið,.— Her-
mann hlaupinn burt, Sverrir utan
við leikinn, en þrír K. S.-menn og
knötturinn fyrir opnu marki! Það
þarf ekki nema litlu tána á ein-
um fæti til þess að velta knettin-
um inn! En — eins og stundum
vill verða — hann fór fram hjá!
Þá heyrðist nú hljóð úr horni hjá
áhorfendum! Við hálfleik stóð
0 : 0 mörk. „Þeír geta ekkert,
okkar menn,“ sagði einhver við
mig, „enginn þeirra, nema þá
Sverrir, ætti að sjást á velli.“
„Öfgar og vitleysa," var svarið,
„nú fá þeir goluna með sér og þá
skaltu n úsjá!“ — Þegar 5 mín.
voru af síðari hálfleit náði
Tryggvi knetti á vítateigshorni og
skaut, fast og prýðilega á ská í
mark, svo að ekki varð bjargað.
Tveim mín. seinna kom annað
markið — eftir stuttan samleik —
Hermann, Tryggvi og Haukur —
minstur vexti allra í keppninni —
gaf gott skot. Og þriðja markið
var skorað skömmu síðar, einnig
fallegt mark og skotið kom frá
Kristjáni. — K. S.-menn „döl-
uðu“ nokkuð, en gerðu þó harðar
árásir öðru hvoru. En vörnin:
Hermann, Sverrir og Þór, mátti
heita mjög góð.
Lauk svo þeim leik með sigri
í. B. A. 3 : 0 marki.
Reykvíkingar horfðu á —
kampakátir: „Burstum þá á
morgun með 15 : 0 og 10 : 0!“
Klukkan 10 á mánudagsmorgni
næsti leikur! Ætli þeir séu nú all-
ir vaknaðir? Það er K. S. og í. B.
R„ sem mæta til leiks og svo ein-
staka bæjarbúi utan við völlinn.
Nú fáið þið að sjá! Reykvíkingar
eru valdir úr 4 Reykjavíkurfélög-
unum — eru 5 meistaraflokks-
menn, 2—3 landsliðsmenn og allt
valið lið móti einu fámennu fé-
lagi, sem æfir sig helzt við síldar-
tunnur. En þær eru flestar tómar
i sumar og því þægilegri viðfangs!
Ritstjóri: JÓNAS JÓNSSON.
En hver veit — það geta orðið 9 :0
— eða 4:2? — Sveinn Kristjáns-
son kemur nú öllu á hreyfingu
með dómaraflautunni.
í. B. R. sýnir okkur prýðilegan
samleik og hröð upphlaup, en K.
S. virðist hafa sótt í sig veðrið og
verst vel, kemst og til að sýna
markverði þeirra sunnanmanna
svona nærri því í „tvo heimana“.
í 9 mín. er sótt og varist, en þá
kemur skot frá Ríkarði meistara,
svo að nærri sprengir K. S.-net-
ið! Annað markið — slysalegt —
kemur skömmu seinna, en svo er
hlé. Það fer að nálgast hálfleik.
„Haldi K. S. þessu og fái svo gol-
una með sér, ja — þá. — En bíðið
þið, — það er svo lítið eftir, —
hraðinn vex, sóknin harðnar,
skotum og sköllum fjölgar —
hálfleikur 5:0! — í síðari hálf-
leik er oft nokkuð jafnt. K. S. á
marga efnilega menn, — en vant-
ar þjálfara eins og fleiri. Mark-
maðurinn sýndist óviss oft og tíð-
um, enda ekki nein lömb við að
eiga eða sápukúlur, sem þeir
senda honum: Ríkarður, Lárus,
Gunnar o. fl.! Niðurstaðan varð
7 : 0 mörk fyrir f. B. R. Þar með
var K. S. úr sögunni í þetta sinn.
Síðasti leikur mótsins: í. B. A.
og í. B. R„ hófst svo kl. 6 sama
dag. Norðangola var sterkari en
áður, en veður þurrt og gott, —
en vellinum hrósuðu fáir, lausum
og steinóttum. Fólkið varð fleira
og fleira. Edvard kom með
myndavélina „smellti á“ báða
hópana, fyrst á „þá stóru“ og svo
hina. — „Bara að Einar og Bubbi,
Aggi, Gappi og Haddi Kalli, væru
nú komnir!“ andvörpuðu stúlk-
urnar af Eyrinni. En þeir eru all-
ir á þönum eftir gullfiskinum, —
sem sjaldan sést!
Hermann Stefánsson dæmdi
leikinn. í. B. A. sótti móti golu og
byrjuðu piltarnir með góðum
upphlaupum, komust svo nærri
marki sunnanmanna, að við sáum
hilla undir 1. markið. En á ýmsu
veltur. Flugvélin — með Siglu-
fjarðarpiltana sveiflaði sér rétt
yfir vellinum og umhverfis —
sjáið bara! Og þá lá knötturinn í
netinu aftan við Hermann litla —
„eins og skot“! Og það 5 mín. frá
leikbyrjun! Á 7. og 9. mín er það
sama sagan — 3:0! „Nú er það
svart, maður!“ — má nú varla á
bæta, finnst sumum. „Okkar
menn“ eru ekki eins góðir og í
gær, eð a notast ekki eins vel, en
þeir gefast nú samt ekki upp.
Samleikur þeirra er ekki sterkur,
markskot fá og fánýt í dag. Hin-
rik er ekki eins góður og í vor,
enda meiddur í gær. Þeir eru of
viðbragðsseinir — þurfa að æfa
„start“ og snögga spretti. Þór og
Sverrir duglegir að vanda og
Hermann mjög góður í markinu.
SÍDAN
Og svo standa þeir furðulega í
þeim hinum, verjast (hefðu átt
að hugsa um vörnina fyrr) öllum
árásum og skotum að leikhlé. Og
þá fá þeir gefins góð ráð og leið-
beiningar frá tugum félaga og
vina í veganesti til seinni skorp-
unnar. —- „Það er furða hvað þeir
geta,“ segir nú sá, er í gær taldi
þá einskis megnuga. Sunnan-
menn eru hættir að kalla —
svona nærri því, — og oft mega
þeir hafa sig alla við að verjast —
og tekst það líka. Hermann fékk
og tekið marga „fasta“ knetti og
varist öllu, nema einu prýðis-
skoti frá Ríkarði — upp úr horni.
Þannig fór: f. B. A. — í. B. R.
,4:0. — Já, hvers var að vænta:
5 úr III. fl. hérna megin, 5 úr
meistaraflokki að sunnan. —
Eðlilega bar þeim sigurinn og
bikarinn með, sem Ármann Dal-
mannsson afhenti að leikslokum.
Og fólkið hrópaði ferfalt húrra
fyrir þessum snjöllu leikmönn-
um (kallið bara svolítið minna
næst, sunnanmenn!) — Dómar-
arnir fengu yfirleitt gott orð og
áhorfendur fóru aldrei mjög
langt inn á völlinn!
Þannig varð þá í. B. R. íslands-
meistari í II. fl. 1948 — hlaut 4
stig, 11 : 0 mörk, í. B. A. hlaut 2
stig, 3 : 4 mörkum, K. S. hlaut 0
stig, 0 :10 mörkum.
Kl. 9 um kvöldið var smá sam-
kvæmi fyrir hlutaðeigandi að
Hótel KEA. Var þar skipst á vin-
ar- og viðurkenningarorðum,
sungið ög sopið á mjólk og kaffi.
Og kl. -7 að morgni skyldu sunn-
anmenn fljúga heim.
Baldur Jónsson skrifar um
drengjamótið.
Drengjameistaramót íslands 1948.
Sumarið 1946 fór keppandi frá
Akureyri í fyrsta sinn á Drengja-
meistaramót íslands, það var
Ófeigur Eiríksson, sem reið á
vaðið. í'fyrra var engin þátttaka
frá Akureyri, en nú í ár fóru 8
drengir héðan til keppni í þessu
móti. Fararstjóri var Haraldur
Sigurðsson stud. jur.
Á mánudagskvöldið 30. ágúst
átti keppnin að hefjast, en vegna
mikillar þátttöku varð að fara
fram undankeppni á sunnudag í
4 greinum: kúluvarpi, 100 m.
hlaupi, langstökki og kringlu-
kasti. Keppendur voru milli 20 og
30 í hverri grein.
Kl. 2 á sunnudag hófst undan-
keppnin, og vorum við komnir á
völlinn kl. 1.30 til þess að mýkja
okkur upp og búa okkur undir
keppnina. Aðrir keppendur gerðu
slíkt hið sama, og var allt á iði,
strákar í gulum, rauðum, græn-
um og bláum búningum. Enginn
okkar hafði áður tekið þátt í svo
stóru móti og var því „skrekkur“
í okkur í fyrstu, en þegar út í
keppnina var komið var allt slíkt
gleymt og keppnin leikur.
í kúluvarpi og 100 m. hlaupi
áttu Akureyringar tvo keppend-
ur, í langstökki þrjá og einn í
kringlukasti. Þegar undankeppni
lauk voru 5 komnir í aðalkeppni,
einn í kúluvarpi, einn í 100 m„ 2
í langstökki og einn í kringlu-
kasti. Til þess að komast í aðal-
keppnina í kringlukasti þurfti 38
m. kast, annars teknir 10 fyrstu
menn. Hörður Jörundsson keppti
óarna fyrir í. B. A. og náði í
fyrstu tilraun fallegu kasti, sem
var 38.01 m. og var því mikið
fagnað af áhorfendum. í kúlu-
varpinu urðum við hins vegar
óheppir og náðum lýó m. lélegri
árangri, en við höfðum búizt við
eftir árangri okkar hér heima.
Á mánudagskvöld kl. 7 hófst
aðalkeppnin. Þá fengu Akureyr-
ingar sín fyrstu verðlaun, það var
í 1500 m. hlaupi. í. B. A. átti þar
2 keppendur. Hlaupið var mjög
spennandi og skemmtilegt.. í
fyrstu leit út fyrir, að Ingi Þor-
steinsson K. R. yrði drengja-
meistari, en Eggert Sigurlásson
í. B. V. veitti honum harða
keppni og rann fram úr honum á
endasprettinum. — Áhugi
okkar Akureyringanna beindist
þó meir að 3. manni. Það var
Stefán Finnbogason í. B. A„ sem
geystist þarna áfram. Við höfð-
um engan hemil á okkur, en æpt-
um af hrifningu, þegar Stefán
kom í markið í 3. sæti. Tími hans
var 4 : 32,8 mín„ sem er nýtt Ak-
ureyrarmet. Fyrra metið var
4 : 47,7 mín. Úrslitin í langstökk-
inu fóru fram þetta sama kvöld.
Geir Jónsson náði þar 5. sæti, en
hefði eflaust komizt í úrslit, ef
hann hefði ekki verið svo óhepp-
inn að gera 2 stökk ógild af 3.
Þetta eina gilda stökk var 6.18 m.
Drengjameistari í langstökki varð
Guðmundur Árnason frá Siglu-
firði, stökk 6.41 m„ 2. varð iSg-
urður Friðfinnsson frá Hafnar-
firði, stökk 6.41 m„ 2. varð Sig-
mundur átti annað lengsta stökk
og vann á því. Sigurður Frið-
finnsson stóð sig mjög vel, þar
sem hann var nýbúinn að keppa
í hástökki og varð þar drengja-
meistari með 1.70 m„ en reyndi
ekki við 1.75 m. vegna lang-
stökksins. Guðmundur var einn-
ig nýbúinn að hlaupa 100 m. tví-
vegis og hefir það dregið af hon-
um. í kúluvarpi sigraði Vilhjálm-
ur Vilmundarson K. R. með
miklum yfirburðum, kastaði 16,02
m„ en næsti maður var með rúma
14 m. Þetta kvöld gafst okkur
kostur á að sjá 110 m. grinda-
hlaup, sem aldrei hefir verið æft
hér, því að gi'indur eru engar til.
Öllum á óvart sigraði Ingi Þor-
steinsson K. R. og var þó nýbúinn
að keppa í 1500 m. hlaupinu.
Drengjamethafinn, Sigurður
Björnsson K. R. varð annar.
(Framhald).
2 stúlkur
óska eftir herbergi. Lítils-
háttar húshjálp getur komið
til greina. — Gerið svo vel
að leggja nafn og heimili-
fang inn á afgreiðslu Dags
fyrir föstudagskvöld, merkt:
„Húsnæði“.
Til sölu
ágæt cldavél og öskudúnk-
ar,
Hallgrimur jdrusmiður.
Súkkulaði
Romm
Ananas
Vanille
Möndlu.
★
Clapp’s Barnafœða
i dósum:
Gulrætur
BlandaS grænmeti
Grænar baunir
Grænmetissúpur
Rauðrófur
Fíkju-Rúsínubúðingur
„Custard" Búðingur.
★
Bankabygg. heilt
Sagógrjón, í pökkum.
Sagómjöl, í pökkum
Pönnukökuhveiti
Hrísgrjón, með hýði
Gular baunir
Grænar baunir.
★
Bökunarduft m \’Á'Í i
i pökkum. .
★ >l i
Núralin litir: 2>1
Svartur r i ■ . **• 1
Ljósgrænn • j | ' •
Dökkgrænn ■' • !
Fjólublár ' •' S l
Dökkblár aÍ
Ljósblár >•!
Silfurgrár ' Í
Stálgrár :■ •• ;f!
Kaffibrúnn
Dökkbrúnn ' Ti
Demantsvartur. i
Kauptélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeildin.
Nokkrar stúlkur
óskast til að taka upp kart-
öflur. Unnið verður næstu
þrjár vikur, þegar veður
leyfir.
KRISTINN SIGMUNDSSON,
Arnarhóli (bæjarsími).
Skólapilt
vantar herbergi í vetur.
Afgr. vísar á..