Dagur - 16.02.1949, Page 8
s
Miðvikudaginn 16. febrúar 1949
DAGUR
Krapastíflurnar í Laxá:
Það er hægt að tryggja rennsli
Laxár, án þess að stofna
íghættu A
- segja tveir þingcyskir bændur
Rannsóknarefni fyrir verkfræðinga
Fyrir nokkrum dögum var gestkomandi hér í bænum Þorgeir
bóndi Jakobsson á Brúum við Laxá. Þorgeit er gagnkunnugur
rennsli Laxár, hefir haft rafstöð við ána, til eigin afnota síðan 1934
og bekkir áhrif veðurfarsins á vatnsmagnið.
Dagur ræddi við Þorgeir um
krapastíflurnar í Laxá í vetur og
um athuganir þær, er kunnugir
menn hafa gert við upptök árinn-
ar. Þorgeir kvað krapastíflur í
ánni ekki nýtt fyrirbrigði. Hefði
jafnan sezt krap í upptök árinnar
í norðvestanátt og mundi svo enn
verða, nema það yrði fyrirbyggt
með einhverjum ráðum.
Þorgeir sagði ,að hann hefði
rætt við Stefán bónda á Geira-
stöðum um mál þetta og mögu-
leika á úrbótum, en Stefán er
manna kunnugastui' aðstæðum
öllum við upptök Laxár, hefir um
langan aldur búið í nágrenni
þeirra og haft þar rafstöð síðan
1930. Báðir voru þeir þeirrar
skoðunar, að aðgerðii' þær, sem
Rafveitan lét framkvæma eystra
fyrii' nokkrum árum, væru til lít-
ils gagns, sem bót á hinum venju-
legu krapastíflum, þótt vei'a
mætti að eitthvert gagn gæti orð-
ið að þeim í einstökum tilfellum.
Um aðrar leiðir ræddu þeir þetta:
Hækkun vatnsins töldu báðir frá-
leita, enda kynni það að reynast
erfitt verk fyrir utan það gífur-
lega tjón, sem slíkt mundi valda
Mývatnssveit. Onnur leið væri
líklegri og mun álitlegri: Svo
.hagar til eystra, að norður frá
Haganesi liggur hraunliryggur,
sem heldur að Mývatni að vestan,
er hann nokkuð breiður, 500—
1000 metrar. Vestur undir hraun-
hryggnum koma fram lindar, sem
renna áfram í Laxá og vaxa þær
er vatnið hækkar. Austan þessa
hryggs leggur vatnið strax á
haustin, er það djúpt þar, 4—5
metrar, og jafnan kyrrt vatn og
allmikil uppistaða undir ísnum.
Ef grafið væri gegnum hrygginn
mætti veita miklu vatnsmagni að
upptökum Laxár, er þörf væi'i á
því. Lokur yrði að hafa í rennu
þessari. Væru þær aðeins hafðar
opnar, er útrennsli Laxár væri í
hættu frá krapastíflum. Mývatn
er grunnt á nokkru svæði við
upptök árinnar, eða um 1 metri.
Þegar norðvestan hvassviðri er,
er sem stormurinn varni því, að
vatnið fái nauðsynlega framrás
og síðan sezt krap og snjór í þessa
uppistöðu á stóru svæði, og hefir
reynzt erfitt að ryðja þeim stífl-
um í brott. Ef hægt væri að
auka vatnsmagnið, með fyrr-
greindum hætti er þannig stend-
ur á, töldu þessir menn mjög
sennilegt að forða mætti stíflun-
um. Þorgeir hafði vakið máls á
þessu fyrir nokkru við kunnáttu-
mann, sem taldi hugmyndina
mjög líklega og þess virði að
rannsaka hana ýtarlega.
Hvað segja forráðamenn
Rafveitunnar?
Blaðið telur rétt að koma þess-
ari hugmynd á framfæri nú þeg-
ar. F orráðamenn Rafveitunnar
hér hafa enn ekki svarað spurn-
ingum þeim, sem fyrir þá voru
lagðar hér í blaðinu upp úr nýj-
árinu, né heldur gert almenningi
nokkra viðhlýtandi grein fyrir
ástandi og horfum í rafmagns-
málum bæjarins. Almenningur í
bænum mun því fagna hverri
þeirri hugmynd, sem líkleg er til
nokkurra úrbóta og vænta þess,
að kunnáttumenn, sem því nafni
mega kallast, athugi úrbótatil-
lögurnar. Athuganir þessara
gagnkunnugu manna virðast
þannig vaxnar, að þeim beri að
gefa gaum.
Akureyrarsíldin gefst
ágætlega til beitu
Fregnir frá verstöðvunum sunn-
anlands herma, að sjómenn telji
síldina, sem veiðst hefir hér á
Pollinum, ágæta beitu. Hefir afl-
ast vel á hana og mun betur en á
gamla síld. Sömu sögu er að segja
fró verstöðvunum austanlands.
Stjórnar
ko min únistahe rj um
Votheystumar verða reistir á að
minnsta kosti 22 jörðum
iröi i
Reynslan af votheysturninum í Gunnars-
holti er ágæt
Myndin er af Chu Teh, hershöfð-
ingja, sem stjórnar sókn komm-
únistaherjanna í Kína. Komm-
únistar hafa nú sótt súður á bóg-
inn, allt til Yangtze-fljóts. Talið
er að friðarráðstefna sé um það
bil að hefjast í Kína, en allar
fregnir um það eru óljósar og
næsta ósamhljóða.
„Kaldfaakiir“
fékk ágætan afla
á 13 dögum
S. 1. þriðjudag sigldi „Kald-
bakur“ til Englands með 4100 kit
fiskjar, sem skipið hafði fengið í
13 daga útivist þrátt fyrir hina
mjög óhagstæðu tíð, sem þá var
hér við land. Skipstjóri í þessari
veiðiför var Þorsteinn Auðuns
son, sem er ráðinn skipstjóri á
,,Svalbak“. Þorsteinn sigldi skip
inu einnig til Englands að þessu
sinni. „Kaldbakur" seldi aflann í
sl. mánud. fyrir 13.087 sterlings-
pund.
Frumvarp um
gagnfræðadeild
Meuutaskólans
hér
Nokkrir þingmenn flytja frum-
varp á Alþingi um það, að gagn-
fræðadeild Menntaskólans hér fái
að starfa áfram, en nú starfar
deildin með undanþágu, sem
kunnugt er. Er frumvarpið var til
1. umræðu í Nd., mælti Sigurður
E. Hlíðar fyrir því, en Gylfi Þ.
Gíslason o. fl. andmæltu því. a—
Menntamálaráðherra, Eysteinn
Jónsson, gerði og athugasemdir
við frumvarpið.
Sex lömunarsjúldingar
liéðan farnir til Kaup-
mannahafnar
I morgun fór Snorri Sigfússon
námsstjóri flugleiðis til Kaup-
mannahafnar ,til dvalar á hress-
ingarstofnun vegna lömunar. Eru
þeir þá orðnir 6 lömunarveikis
sjúklingarnir, sem búið er að
flytja héðan til Kaupmannahafn-
ar. Fimm þeirra dvelja á Kom
mune Hospitalet og mun líðan
þeirra allra góð og um framför
að ræða hjá öllum, þótt hægt fari
Hjúskapur. 5. febrúar sl. voru
gefin saman í hjónaband í Akur-
eyrarkirkju: Eiríkur Eyfjörð
Jónsson, loftskeytam., og Ásdís
Auður Ingólfsdóttir. — Heimili
þeirra er í Þórunnarstræti 118.
6! febrúar sl. voru gefin saman í
hjónaband: Óskar Ósvaldsson
prentari, og Aðalheiður Valdi
mai’sdóttir. Heimili þeirra er í
Norðurgötu 13. — Séra Pétur
Sigurgeirsson gaf brúðhjónin
saman.
Eins og áður hefir verið greint
frá hér í blaðinu, ákváðu Kaup-
félag Eyfirðinga og Samvinnu-
byggingafélag Eyjafjarðar á sl.
hausti, að hefjast handa um að
útvega hingað Prómetó-voíheys-
turnamót frá Svíþjóð. Samvinnu-
byggingafélagið auglýsti þá eftir
umsóknum bænda um turnbygg-
ingar og jafnframt var sótt um
gjaldeyris- og innfluíningsleyfi
fyrir mótunum.
Leyfi þetta mun nú fengið og
munu mótin vera væntanleg til
landsins í marz—apríl í vor,
ásamt nokkrum mótum til Suð-
urlandsins.
Dagur hefir átt tal við formann
Samvinnubyggingafélagsins, Val-
demar Pálsson, og spui't hann
um undirtektir bænda.
Valdemai' sagði, að þegar liefðu
borizt 22 umsóknir um turna-
byggingar víðs vegar úr héraðinu.
Til bygginganna þarí fjárfesting-
arleyfi og hafa bændur sjálfif sótt
um þau, en afgreiðsla hefir enn
ekki fengist frá Fjárhagsráði. —
Standa vonir til að leyfin fáist.
Sænskur kunnáttumaður frá
verksmiðjunni, er mótin fram-
leiðir, kemur hingað til lands með
mótunum, og kennir meðferð
þeirra. Verður hafizt handa um
kennsluna í Reykjavík strax og
mótin koma til landsins. Sam-
vinnubyggingafélagið hefir þegar
ráðið mann til þess að veita verk-
inu forstöðu og mun hann, ásamt
þeim 2—3 mönnum, er við verkið
vinna, njóta þessarar kennslu
syðra. Að henni lokinni verður
strax hafizt handa hér. Mótin
verða flutt bæ frá bæ. Áætlað er,
að bygging hvers turns taki um
vikutíma. Ef sú áætlun stenzt og
unnt reynist að hefja verkið
snemma í vor, ætti að mega Ijúka
byggingu allra þeirra turna, sem
pantaðir hafa verið, á næstkom-
andi sumri.
Tuminn í Gunnarsholti
reynist vel.
Á sl. hausti voru noltkrir vot-
heysturnar reistir hér á landi, m.
a. einn hér í Eyjafirði, á Grund.
En aðeins einn þeirra varð svo
snemma tilbúinn, að unnt væri
að nota hann til heyverkunar,
turninn í Gunnarsholti syðra. í
viðtali við Runólf Sveinsson
sandgræðslustjóra, sem birtist í
Tímanum í gær, er skýrt frá því,
að reynslan af þessum turni sé
hin ákjósanlegasta. Segir Runólf-
ur, að votheyið sé mjög vel verk-
að og hafi meira sýruinnihald en
vothey hefir, nema til komi utan-
aðkomandi sýrur. Hann gefur
kúnum 22 kg. af þessu heyi ó dag
og segir þær helzt ekki vilja ann-
að fóður, enda þrífist þær ágæt-
lega af þvi.
130 hafa tekið
í Skagafirði
Mænuveikin hefir herjað á
Skagafjörð að undanförnu og
munu um 130 manns hafa tekið
veikina, þar af 6 lamast, en lam
anirnar eru ekki taldar alvarleg-
ar. Flest eru tilfellin á Sauðár-
króki. Nú mun veikin vera mjög
í rénun, að því er segir í fréttum
að vestan.
Jón & Vigfús flnttir
í ný húsakynni
Hið góðkunna ljósmyridafirma
Jón & Vigfús hér í bæ, er nýlega
flutt í ný húsakynni, í Hafnar-
stræti 92, áður Gudmanns-verzl-
un. Hafa verið gerðar ýmsar
breytingar á húsinu að undan-
förnu til þess að koma ljós-
myndastofum og vinriústofum
fyi’ir. Breytingunum er enn ekki
að fullu lokið, en ljósmyndastof
urnar þó teknar til starfa í hinu
nýja, vistlega húsnæði.
Barnaskólinn lióf starf
í gær
Fjarvistir barna eðlilegar
Barnaskóli Akui'eyrar hóf starf
aftur í gæi', er samkomubannið
hér var upphafið. Dagur átti tal
við skólastjórann, Hannes J.
Magnússon, og sagði hann, að
fjarvistir barnanna í gær hefðu
ekki verið meiri en venja er. —
Samkvæmt skýrslu, er skólinn
hefir látið gera, hafa rösklega 100
börn tekið mænuveikina í vetur,
en flest hafa sloppið vel, aðeins
örfá lamast. Aftur á móti er
nokkurt skarð höggvið í kenn-
aralið skólans. Einn kennari
verður alveg frá verkum það sem
eftir er vetrar, annar um óákveð-
inn tíma og hinn þriðji kennir
aðeins hálfan daginn. Loks er
hjúkrunarkona skólans sjúk og
fráverkum.
TIL SÖLU
norsk lyrsta llokks göngu-
skíði. — Upplýsingar hjá
Sigurði Steindórssyni;
Skrifstofu I.oftleiða h.f.