Dagur - 16.03.1949, Blaðsíða 1

Dagur - 16.03.1949, Blaðsíða 1
12 SÍÐUR Forustugreinm: Vantrú ráðamanna á dóm- greind þjóðarinnar. Sjöunda síða: Viðtal við Robert Larsen, sem fann upp flotvörpuna. XXXII. árg. Akureyri, miðvikudaginn 16. marz 1949 11. tbl. Ljósmynd: Hreiðar Valtýsson. Síðustu dagana hefir lítil sem engin veiði verið hjá bátum þeim, sem hófu vetrarsíidveiðar hér á Akureyrarpolli um miðjan janúar sl. Þó fékk m.b. Gylfi frá Rauðuvík um 600 tunnur seint í sl. viku, og m.b. Garðar á 3. hundrað tunnur. Voru bá allir aðrir bátar hættir veiðum. Um mánaðamótin síðustu stóð veiðin sem hæst. Stunduðu þá 6 bát- ar veiðarnar og þá var nokkurt síldarmagn lagt upp í Krossanes- verksmiðjuna og síldarverksmiðjuna á Hjalteyri, en me’stur hluti afians hefir þó verið frystur til beitu. Myndin hér að ofan er af m.b. Gylfa frá Rauðuvík, sem er aflahæstur á þessum veiðum. Var mynd- in tekin um sl. mánaðamót, er skipið var á leið til löndunar í Krossan. Vetrarsílclveiðin á Ahureyrarpolli Fundur í Fisksölusamðagi Eyíirð- inga lieim lilar stjórninni að hefja ísfiskúff lufnlng ef færf þykir Útvegsmemi verða að tilkynna þátttöku fyrir 20. þessa Á aðalfundi Fisksölusamlags Eyfirðinga, sem haldinn var hér fyrir skemmstu og frá var greint í síðasta blaði, var stjóm sam- lagsins falið að athuga möguleika áframhaldandi starfsemi samlags- ins. Á fundi í samlaginu sl. fimmtu- dag, var framtíðarstarfsemi sam- lagsins til umræðu, og var eftir- farandi tillaga samþykkt þar ein- róma: Fundur í Fisksölusamlagi Ev- firðinga, haldinn á Akureyri 10. marz 1949, samþykkir að heimila stjórn samlagsins að hefja sem fyrst ísfiskútflutning með leigu- skipum, ef nægileg þátttaka fæst og Fiskábyrgðarnefnd veitir sam- laginu viðunandi stuðning að dómi samlagsstjórnar, enda hafi útgerðarmenn tilkynnt þátttöku sína til stjórnar samlagsins fyrir 20. þ. m. Stjórn samlagsins hefir nú snúið sér til útgerðarmanna á samlagssvæðinu og spurzt fyrir um þátttöku þeirra í þessari út- flutningsstarfsemi. Mun mega vænta fullnaðarákvörðunar í málinu fljótlega eftir 20. marz. mánaðar Freðfiskbirgðir héðan fluttar út Leiguskip Eimskipafélags fs- lands, Horsa, hefir undanfarna daga lestað fi'osinn fisk frá frysti- húsunum í Ólafsfirði, Dalvík, Hrísey og Akureyri. Er fiskur. þessi af framleiðslu ársins 1948 og er mest öll fiskframleiðsla þess árs þar með farin héðan. Hins vegar liggur hér nokkuð af freð- físki ársins 1947, sem enn hefir ekki tekizt að losna við. Framsóknarmenn ræða bæjarniál og landsmál Síðastl. föstudagskvöld var al- niennur umræðufundur í Fram- sóknarfélagi Akureyrar. Rætt var um fjárhagsáætlun bæjarins, og hafði Marteinn Sigurðsson bæj- arfulltrúi framsögu, og um stjórnmálaviðhorfið, og hafði dr. Kristinn Guðmundsson framsögu. Fjörugar umræður urðu um þessi mál. Fundurinn var vel sóttur. Þunglega liorfir um lánsútvegun fil Laxámrkjunar Áðalfuedor F ramsóSíoarf élags- íns’á máeudagimi Aðalfundur Framsóknarfélags Akureyrar verður haldinn í Gildaskála Hótel KEA næstk. mánudagskvöld kl. 8.30, sbr. aug- lýsingu hér í blaðinu í dag. Fé- lagsmenn eru áminntir um að sækja fundinn. 10 milljónir króna fáanlegar í Danmörk, en með óaðgengilegum kjö rum Reykjavíkurbær fær sennilega hag- stætt !án til Sogsvirkjonarinnar af Marshall-fé Bæjarstjórinn, Steinn Steinsen, er nýlega kominn heim úr íör til Danmerkur á vegum rafveitustjórnarinnar. Mun erindi hans einkum hafa verið að athuga um lánsfjármöguleika til hinnar nýju Laxár- virkjunar ha'jarins, sem nú er í undirbúningi. Fjögra marnia nefnd ætlað að athuga rekstur bæjarins Á þæjarráðsfundi 10. þ. m. var samþykkt tillaga er þeir fluttu Jón G. Sólnes og Svavar Guð- mundsson, um að kjósa fjögra manna nefnd til þess að atbuga rekstur bæjarins. Bæjarráð sam- þykkti einnig að kjósa nefndina úr hópi þæjarfulltrúa. Bænum boðin 900 hest- afla dieselvél Á fundi rafveitunefndar hinn 28. f. m. var lagt fram tilboð frá Gísla Halldórssyni í Reykjavík, þar sem hann býður bænum dies- el-rafal-samstæðu, 6300 volta fyrir 25300 dollara í New York. Rafallinn er nýr, diesel-vélin er General Motors Model, 900 hest- öfl, 600 kw. Rafveitustjórnin ákvað að leita umsagnar raf- orkumálastjóra um tilboð þetta og fá frá honum kostnaðaráætlun um uppsetningu og rekstur slíkr- ar stöðvar. Tvær nýjar barna- bækur frá Norðra Nýlega eru komnar á markað- inn tvær nýjar barnabækur á for- lagi Norðra. Önnur er drengja- bók, framhald af hinum vinsælu og atburðaríku Bennasögum, og heitir „Benni og félagar hans“. Hin er telpusaga, framhald af sögunum um Beverly Gray, og heitir „Beverly Gray í New York“. Bóðar bækurnar eru prentaðar í Prentverki Odds Björnssonar hér og er frágangur allur vandaður. Atlantshafssáttmálinn verður birtur bráðlega Fregnir frá Washington herma, að sáttmálinn um Atlantshafs- bandalag muni. verða birtui' aust- an hafs og vestan næstkomandi föstudag. Bæjarstjóri skýrði rafveitu- nefnd frá för sinni á fundi hennar um sl. mánaðamót og samkvæmt frásögn hans þar, horfir heldur þunglega með lánsfjáröflun til mannvirkisins. Líkur munu til að hægt sé að fá 10 milljón króna lán í Danmörku, en aðeins til 10 ára og auk þess er lánið bundið þeim skilyrðum, að efni og vélar til virkjunarinnai' sé keypt í Dan- mörku og verkið framkvæmt af dönskum firmum, þ. e. Höjgaard, Schultz og Rasmussen. Um vexti af láninu er ekki getið í fundar- gerð rafveitunefndar, sem var til umræðu á bæjarstjórnarfundi í gær ,en þeir munu þó vera óhag- stæðir. Um aðra möguleika til lánsfjárútvegunar í Danmörku virðist ekki vera að ræða að sinni samkvæmt frásögn bæjarstjórans. Þessir lánsmöguleikar eru nú til athugunar í atvinnumálaráðu- neytinu og hefir ráðuneytið frest- að að taka afstöðu að svo komnu máli, en hefir málið til athugun- ar í sambandi við aðrar lántökur. Fær Reykjavík lán af Marshall-fé? Samkvæmt fregnum, er blaðið hefir frá góðum heimildum, eru taldar nokkrar líkur til þess að Reykjavíkurbæ takist að leysa lánsfjárþörf sína í sambandi við hina nýju Sogsvirkjun með hag- stæðu láni af Marshall-fé því, sem íslandi er ætlað. Eins og kunnugt er af fyrri fregnum um fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar um framkvæmdir fyrir Marshall- fé, er svo til ætlast að nokkru af því verði varið til rafvirkjunar í landinu. Sýnist eðlilegt að aðrar stórvirkjanir en Sogsvirkjunin verði þess að njótandi. Er þess eindi-egið að vænta, að athugaðir verði til hlýtar möguleikar á fjár- öflun til Laxárvirkjunarinnar eftir þessari leið. Fé það, sem ís- lendingar fengu að lóni í Banda- ríkjunum samkv. Marshall-áætl- uninni á sl. ári fór að verulegu leyti til framkvæmda í Reykjavík. Óeðlilegt má kalla að áframhald verði á þeirri stefnu, en eðlilegt, að þýðingarmiklar framkvæmd- ir annarra landshluta njóti fulls jafnræðis. Er þess að vænta, að leitað verði eftir fé til Laxár- virkjunarinnar af forráðamönn- um bæjarins og íikisvaldið taki þeim tilmælum með skilningi og greiði fyru- málinu eftir föngum. Diesel-togarar íslendiiiga vekja athygli í Bret- landi í nýjasta tbl. „Fishing News“, sem hingað hefir borizt, er ýtar- leg grein um diesel-togara ís- lendinga, sem nú eru fullbúnir eða senn fullbúnir, þ. e. „Hall- veigu Fróðadóttur", eign Reykja- víkurbæjar, og „Jörund", eign Guðmundar Jörundssonar út- gerðarmanns hér í bæ. Er greinin skrifuð af sérfræðingi blaðsins um togara og togaraútbúnað. — Segir hann bæði þessi skip hin at- hefja undirbúning að uppdrátt- verið smíðuð í brezkum skipa- smíðastöðvum, enda veki þau mikla athygli sérfræðinga og út- gerðarmanna. Ýmislegt um fyrir- komulag þeirra og gerð sé nýjung í togarasmíðum. Rætt um elliheimili hér Elliheimili það, sem fyrirhugað er að koma hér upp, var til um- ræðu á bæjarráðsfundi 24. f. m. Mætti þar nefnd frá Kvenfélag- inu Framtíðinni, er hefir með höndum undirbúning málsins. — Lagði nefndin fram uppkast að skipulagsskrá fyrir elliheimilið. Er þar meða lannars gert ráð fyr- ir því, að Akureyrarbær leggi fram til stofnunar elliheimilisins byggingar sjúkrahússins „Gud- mans Minde“, sérstaklega þó nýja hluta þessara bygginga. Óskaði nefndin álits bæjarráðs um það, hvort gera mætti ráð fyrir að bærinn legði fram þessar bygg- ingar, sem óafturkræft framlag bæjarsjóðs, svo að hægt væri að hefjpa undirbúning að uppdrátt- um o. fl. Bæjarráð frestaði að taka ákvörðun um málið.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.