Dagur - 16.03.1949, Blaðsíða 6

Dagur - 16.03.1949, Blaðsíða 6
6 D A G U R Miðvikudaginn 16. marz 1949 DAGUR Ritstjóri: Haukur Snorrason. Atgreiðsla auglýsingar, innheimta: Marínó H. Pátursson Skrifstofa í Hafnarstræti 87 — Sími 16G lllaðic kemur út á hverjum miðvikudegi Áreanaurinn kostar kr. 25.00 Gjalddagi er 1. júlí PRENTVERK OBi>. BJÓRNSSONAR H.F. Vantríiin á dómgreind jjjóðarinnar ÆÐSTARÁÐ RÍKISÚTVARPSINS hefir enn einu sinni fundið bvöt hjá sér til þess að víta út- varpsfyrirlesara fyrir fráhvörf frá hinni reikulu hlutleysislínu. Hefir það sent höfuðstaðarblöðun- um — og vitaskuld aðeins þeim — vandlætingar- pistil í tilefni af ummælum útvarpsfýfirlesara nokkurs, sem leyfði sér að geta að nokkru Atl- antshafsbandalags þess, sem nú er mest um rætt og mest um deilt á þessum hjara heims. Hér skal eng- inn dómur á það lagður, hvort öll þau ummæli væru réttmæt eða ekki, en hins vegar á það be'nt, að þessi varðstaða Æðstaráðsins til öryggis og uppfræðslu óbreyttra hlustenda, er nýtt fyrir- brigði. Á meðan fréttaflutningur ríkisútvarpsins var mengaður ósviknum kommúnistiskum áróðri, mánuð eftir mánuð — og raunar allt ffam á þenn- an dag — virtist hið virðulega ráð láta sig litlu skipta andlegt heilsufar hlustendanna, enda þótt því væri rækilega bent á misfellurnar í .mörgum blöðum landsins. En þegar á góma ber mál; sem er helzta umræðuefni manna í öllum frjálsum lönd- um, og nauðsynlegt er að almenningur kynnist frá öllum hliðum, þá eru hinir andlegu heilsufræð- ingar upp til handa og fóta með fréttabönn, um- ræðubönn og vandlætingarpistla. Þess er naumast að vænta, að viðbrögð útvarpsráðsins og yfirlýs- ingar þess verði tekin alvarlega af þroskuðu fólki í landinu, enda mála sannast, að útvarpsráðs- mennirnir eru ekki umboðsmenn þess, né heldur útvarpshlustenda almennt, heldur sitja þeir þar fyrir fulltingi pólitísku flokkanna, sem nú eru búnir að svipta almenning í landinu réttinum til þess að hafa áhrif á stjórn útvarpsins og viðhorf þess, en hafa í staðinn — með litlum undantekn- I ingum — skipað í stjórnina þæga þjóna flokks- stjórnanna, menn, sem engum útvarpshlustanda hefði nokkru sinni komið til hugar að fela stjórn þessa menningartækis. Tilskipanir frá hendi slíkra manna um það, hvað þegnar þjóðfélagsins mega heyra og hvað þeir mega ekki heyra, eru vegnar og léttvægar fundnar, meðan lýðræði og frelsi er kallað ríkja í landi hér. VANDLÆTINGARPISTLAR útvarpsráðs gefa vissulega tilefni til þess að upp sé rifjað, hvernig útvarpið sjálft hefir gætt þess að flytja sem gleggstar og beztar fréttir af mikilvægum málum, svo sem fyrirætlununum um Atlantshafsbandalag. Útvarpsráð taldi andlega heilsu borgaranna ekki nægilega sterka til þess að þola það, að meðmæl- endur og andmælendur íslenzkrar þátttöku leiddu hesta sína saman í alþjóðar-áheyrn. Það taldi sig þess umkomið að setja í bann fréttir af fundum og samþykktum þeirra manna, sem telja þátttöku íslands í bandalaginu háskalega. Það birtir vandlætingarpistla í blöðum til þeirra út- varpsfyrirlesara, sem gerast svo forhertir að vekja máls á þessari framkomu í sjálfum útvarpssaln- um. Halda þeir góðu herrar að þeir séu með þessu að þjóna málstað lýðræðis, skoðanafrelsis og mál frelsis? Hafa þeir svo furðulega litla trú á dóm greind íslenzku þjóðarinnar, að þeir haldi að henni sé ekki óhætt að heyra hlutina nefnda rétt- um nöfnum eða hún megi ekki heyra fréttir af því, sem hverju sinni gerist í þjóðfélaginu, hvað svo sem það er? HÉR f BLAÐINU hefir því verið haldið fram, að íslenzku þjóðinni muni farnast bezt með því að hafa samvinnu um öryggismál sín við vestrænu lýræðisríkin. En það er augljóst ipál, að til þess að slík samvinna verði þjóðinni að sem mestu gagni, þarf almenningur að skilja nauðsyn hennar og réttmæti, öðl- ast fræðslu um eðli hennar og þýðingu. Slík fræðsla þarf að fara fram fyrir opnum tjöldum, á al- þjóðarvettvangi, með umræðum, fréttum og frásögnum. Góður málstaður þarf ekki þröngsýn flokkssjónarmið sér til framdrátt- ar og ekki heldur tilskipanir póli- tísks valds um það, hvað fólkinu sé hollt að heyra og hvað ekki. Slík frelsisskerðing í lýðræðis- þjóðfélagi hlýtur að verða á kostnað hins góða málefnis og með slíku framferði er vakinn grunur um að einhverju þurfi að leyna, einhverjar framkvæmdir þoli ekki dagsljósið. Þaðverðurtil þess að auka tortryggni og úlfúð þegar mest nauðsyn er á traustri þekkingu og skilningi og sam- heldni. Tilskipanir pólitískra valda- manna um það, hvað fólkið megi heyra og hvað ekki, er óþolandi í lýðræðisríki og þær eru til óþurftar öllu sönnu frelsi og sannri upplýsingu. FOKDREIFAR Tillitið við svefnró borgaranna í þann mund, sem íslenzku ráð herrarnir voru að búa sig til Ameríkuferðai'innar á laugardags kvöldið var, líklega farnir áleiðis til Keflavíkur var það helzt frétta í ríkisútvarpinu, að sunnlenzkur heiðursmaður hefði þá um dag- inn orðið 100 ára og birt fróðlegt viðtal við hann af því tilefni. Ekki var minnzt á Atlantshafs- bandalag eða sendiför ráðherr- anna í útvarpinu, enda lýsti út- varpið því yfir daginn eftir, í há- degisfréttum, að ríkisstjórnartil- kynning um förina hefði borist því rétt fyrir hádegið. íslending- ar munu því hafa sofið áhyggju- laust á sunnudagsnóttina og ekki almennt hafa haft neina drauma um stórtíðindi í utanríkismálum þjóðarinnar né mun þá hafa rennt grun í, að þrír ráðherrar væru ofar skýjum á hraðri leið vestur um haf í stórpólitískum erindum. Hætt er þó við því, að ekki verði allir landsmenn jafn ánægðir með þessa tillitssemi við svefn- ró borgarnanna. Það er óneitan- lega dálítið undarlegt að þurfa að fá fréttir um það, sem gerist í manns eigin landi með milli- göngu erlendra fréttastofnanna. En þannig barst samt fréttin um sendiför ráðherranna hingað fyrst og er þetta ekki í fyrsta skipti, sem íslenzkir ráðamenn láta sér annara um upplýsingar við er- lenda blaðamenn og fréttastofur enn þeirra eigin landsmenn. Það var sem sé brezka útvarpið, sem fyrst birti fréttina um vesturför ráðherranna, snemma á sunnu- dagsmorguninn Og i'áðherrarnir eru ekki fyrr komnir á banda- ríska grund en ýtarlegri fréttir af ei'indum þeirra eru í té látnar erlendum blöðum en hingað til hafa fengist frá þeim til birting- ar íslenzkum þegnum. / íslenzkt stjórnmálaeinkenni í nýju veldi. Það er fróðlegt að bera saman þessa sendiför og ferðir utanríkis ráðherra granni'íkjanna í sömu erindum vestur um haf. Oll norska þjóðin vissi það með margra daga fyrirvara, að utan- ríkisráðherra Noi'egs ætlaði vest- ur um haf til þess að afla stjórn- inni nánari vitneskju um hið fyr- irhugaða Atlantshafsbandalag. sama máli gegnir með för utan- ríkisráðherrans danska. Yfir þeim ferðum hvíldi hvorki pukur né leynd, enda engu að leyna þrosk- aðar, lýðfrjálsar þjóðir. Manni verður á að-spyrja, í sambandi við þessa för og þögnina og leyndina, sem ráðamenn virðast vilja draga yfir afskipti íslenzkra stjórnar- valda af Atlantshafsbandalaginu. Eru slík vinnubrögð réttmæt í lýðræðisþjóðfélagi? Eru þau til framdráttar góðum málstað? Flestir munu svara þessum spurningum neitandi. Slík vinnu- brögð verða til þess að skapa tor- tryggni og vekja alls konar óþarf- ar grunsemdir, blása í segl þeirra, sem vilja spilla góðri samvinnu íslands og lýðræðisríkjanna og h'yggja öryggi landsins með skyn samlegri samvinnu við þær. Þá er hætt við, að ýmsum þyki það bros legt, að ísland skuli senda þrjá ráðherra í vesturveg í erindum, sem einn ráðherra grannríkjanna gat lokið á samá tíma. Þar með hefur hið íslenzka stjórnmálaein- kenni: einn maður frá hverjum flokki alltaf og alls staðar enn fært sig upp á skaftið. Mun þó sannast mála, að nægilegt hafi verið gert í því efni í þessu þjóð- félagi áður. „Fátækt Amtsbókasafnsins“. Helgi Valtýsson skrifar blaðinu á þessa leið: ÞAÐ VAR ÞÖRF hugvekja og tímabær, sem „Nemandi“ birti í síðustu „Fokdreifum", og fær hann væntanlega svar við fyrir- spurnum sínum frá réttum aðil- um. — Er eigi að undra, þótt áhugasáma nemendur furði stór- lega hin tilfinnanlega örbirgð safnsins og skorti á nýjum og nýtilegum fræðibókum við nem- enda hæfi. — Þótt mér sé mál þetta allkunnugt, tel eg eigi til- hlýðilegt, að eg grípi hér fram fyrir hendur réttra aðila, og læt ég þá um að svara því, sem til þeirra er beint. Aftur á móti vil eg leyfa mér að leiðrétta nokkrar villur eða mis- sagnir í grein „Nemanda“ við- víkjandi bókum, er hann telur að „fyrirfinnist ekki“ í Amtsbóka- safninu. — Að vísu „kann eg ekki allt safnið utanbókar11, en mun þó fara nærri um flest það, sem þar er innan veggja. Skal eg nú drepa á höfunda þá, er hann nefnir sér- (Framhald á 9 síðu) Merk sparnaðarstarfsemi ÉG SÁ NÝLEGA í dönsku blaði greinarstúf, sem vakti athygli mína. Var þar greint frá síðustu árs- skýrslu sparisjóðs danskra skólabarna. Þátttakend- ur í þessum sparisjóði —- sem komið var á fót af fræðslumálastjórninni fyrir mörgum árum — eru um 500 skólar víðs vegar um landið. Sparifjáreig- endurnir eru um 43000 börn á skólaskyldualdri. Á árinu 1948 námu innlög barnanna kr. 1.269.853.00, eða til jafnaðar á hvert skólabarn um 30 krónur. Vextir af sparifé barnanna námu um 110.000 krón- um, en alls stendui' nú inni hjá sparisjóðnum um 4 milljónir króna. Á 25 ára starfstímabili skóla- sparisjóðsins, hafa börnin lagt þar inn um 22 millj. króna og vextir, greiddir á tímabilinu, nema kr. l. 785.000.00. Eru þetta allálitlegar upphæðir og sanna enn einu sinni gamla máltækið, að margt smátt gerir eitt stórt. oOo ÞESSI DANSKA skýrsla er athyglisverð fyrir margra hluta sakir. Hún sýnir, að af hálfu fræðslu- málastjórnarinnar og skólanna, er markvisst unnið að því að vekja virðingu barnanna fyrir gildi pen- inga og venja þau snemma á ráðdeild og sparsemi. Það er vafalaust, að dönsk skólabörn hafa að jafn- aði miklu minni peninga undir höndum en íslenzk börn, sérstaklega nú á seinni árum. Enda oft furðu- legt og sorglegt að sjá, hversu börn hér hafg mikla peninga í milli handa og fara gálaust með þá. Mér er ekki kunnugt um að til sé hér á landi sparisjóðs- starfsemi sem hægt er að jafna við danska skólá- sparisjóðinn. Sumir barnaskólar hafa að yísu „aura sjóða“, t. d. mun skólinn hér fyrir alllöngu hafa tek- ið þessa starfsemi upp, en ekki verða foreldrar mik- ið varir við hana og líklega er ekki mikið að því gert að prédika sparsemi fyrir börnunum, hvorki - af skólum né heimilum, né kenna þeim sannleikann sem felst í orðtakinu: Græddur er geymdur eyrir. Lausungin í fjármálum þjóðarinnar grefur um sig langt út í raðir barnanna og slíkt getur haft hin ó- heillavænlegustu áhrif síðar rneir. oOo NÝLEGA er orðin mikil verðhækkun hér í landi á alls konar sælgæti, gosdrykkjum og bíómiðum og öðru slíku, sem börn sækjast gjarnan eftir. Er nú svo komið að það gengur brjálæði næst að láta börn hafa fé til sælgætiskaupa, svo dýrt sem það er orð- ið og lélegt. Þörf er á samvinnu heimila og skóla til þess að útrýma sem mest hinni óhollu sælgætis- og gosdrykkjatízku. Þessi þörf er brýn vegna allra að- ila, heimilanna, barnanna og þjóðfélagsins sjálfs. Það virðist tímabært að athuga; hvort ekki væri hægt að hefja hér skipulega sparnaðarstarfsemi í skólum landsins, kenna börnunum að safna aurum sínum í bók og spara þá til þarflegra hluta, en láta af hinu heimskulega og óholla sælgætisáti og gos- drykkjaþambi. Gaman væri að heyra álit kennara- stéttarinnar á gildi slíkrar starfsemi. A. ÓLÍK VIÐHORF. Það vakti óskipta athygli íslenzkra kvenna, þegar tilkynnt var að danska ríkisstjórnin hefði skipað konu sendiherra sinn hér á íslandi. Frú Bodil Bleg- trup sendiherra er hin mikilhæfasta kona og hefir gengt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir þjóð sína, m. a. innan Sameinuðu þjóðanna. Nú tilkynnti ís- lenzka útvarpið á dögunum, að frú Blegtrup væri farin áleiðis til Beirut í Líbanon til þess að sitja þar fund nefndar Sameinuðu þjóðanna. Er frúin fulltrúi Dana í nefndinni. Trúnaðarstörf þau, sem falin eru þessari ágætu, dönsku konu, sýna, að viðhorf ráða- manna í Danmörku og á íslandi til þátttöku kvenna í opinberum málum, eru næsta ólík. Hér ber það naumast við að konum séu falin opinber trúnaðar- störf.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.