Dagur - 04.08.1949, Síða 7
Fimmtudaginn 4. ágúst 1949
D A G U R
7
Bréf:
Svalbaðskirkja á Svaíbarðsströnd
UR BÆ OG BYGGÐ
INNRI HLUTI Eyjafjarðar-
strandar hinnar eystri ber sveit-
arheitið Svalbarðsströud. Sveit-
armörkin að norðan og sunnan
hafa ekki alltaf verið hin sömu.
Nú sem stendur mun Ströndin
talin ná frá Knarrarhóli inn að
Varðgjá, en sterkar líkur eru
fyrir því, að fyrrum hafi hún
verið talin ná lengra út með
firðinum. Nafn dregur sveitin
sennilega af stórbýlinu Svalbarði,
sem er vafalaust það býlið í þeirri
sveit, er oftast getur um í sögu
þjóðarinnar, fyrr og síðar. Sval-
barð var þó ekki landnámsjörð,
heldui' segir svo í Landnámu:
,,Skagi Skoftason hét maðr ágætr
á Mæri. Hann varð ósáttir við
Eystein glumru ok fór af því til
Islands. Hann nam að ráði Helga
Eyjafjarðarströnd ina eystri út
frá Varðgjá ok bjó í Sigluvík.
Hans sonr var Þorbjörn, faðir
Héðins ins milda, er Svalbarð lét
gera sextán Vetrum fyrir kristni.
(íslendingasagnaútg. 1 bls. 164).
Samkvæmt þessu eru þá liðin
965 ár síðan byggð hófst á Sval-
barðr, en hvenær kirkja var þar
fyrst reist, er þeim er þetta skrif-
ar, ókunnugt. Elzta heimildin um
kirkju á Svalbarði, mun vera
vísitazíugjörð Auðuns biskups á
Hólum frá árinu 1320. Er þar sagt,
að kiikjan eigi 5 kúgildi og 5
hundruð í vöru. Svalbarðskirkju
er vitanlega cftar getið í biskups-
vísitazíum, þótt ekki verði það
rakið hér. Vitanlega er mjög
ósennilegt, að kirkja hafi ekki
verið reist á Svalbarði fyrr en á
14. öld, þó að vígslubréf eða að,r-
ar óyggjandi heimildir um aldur
hennar séu nú glataðar. Sval-
baroskirkja hefir jafnan verið
bændaeign, þangað tii nú fyrir
tveim árum að hún var afhent
söfnuðinum. — Hún var helguð
Jóhannesi postula.
Svo virðist, sem Svalbarðs-
kirkja hafi verið furðufésæl, oft
og einatt. Samkvæmt máldaga
Péturs biskups um 1400 er hún
talin eiga 14 kúgildi og 36 hundr-
uð í „vöru og virtu fé“, auk fjög-
urra hrossa. Seinna virðist lausu
fé hennar hafa verið breytt í fast-
eignir að einhverju leyti. Vitað er
að hún átti um langt skeið Tungu
og Meyjarhól og þar að auki ein-
hvern hluta af sjálfu höfuðból-
ínu, Svalbarði. Um skeið mun
hún einnig hafa átt Breiðaból.
ÝMS ÍTÖK og hlunnindi eign-
aðist Svalbarðskirkja, svo sem V2
trjáreka frá Hraná að Tvílækjum
og 1/8 í öllum hvölum, tvítugum
og meira. Skóg átti hún í Jóns-
höfða í Skógalandi í Fnjóskadal.
Hve lengi hún naut ágóða af ítök-
um sínum, er órannsakað mál, og
eins hitt, hvernig hún missti
þeirra. Þó er þess að geta um
skógarítakið í Jónshöfða, að
skógurinn er þar löngu eyddur
og landið blásið upp. Eigi er held-
ur þeim, er þetta ritar fullkunn-
ugt um, hvernig jarðeignir kirkj-
unnai' gengu undan henni. Vitað
er þó um, að ein jörðin var seld
og andvirðinu varið til greiðslu
byggingarskuldar. Fljótt á litið
virðist kirkjunni ekki hafa hald-
ist vel á fjármunum sínum fyrr
og síðar. Til þess geta margar or-
sakir legið, svo sem tíðar endur-
byggingar og óhöpp o. s. frv. Til
eru heimildir, er sýna, að fé
kirkjunnar hafi verið lánað út.
Ef til vill væri ekki óhugsandi, að
vanskil hafi orðið á endurgreiðsl-
unni, eins og gerist og gengur. —
Sömuleiðis komust kirkjuhaldar-
ar stundum í skuld við kirkjuna
og eru þau skuldaskipti líklega
órannsakanleg. Mætti hugsa sér,
að á þeim skiptum kynni kirkjan
að hafa glatað einhverju af eign-
um sínum. Hitt bar einnig við, að
kirkjan komst í skuld við kirkju-
haldara. Svo var það t. d. árið
1846, er Jón Gunnlaugsson á
Sörlastöðum byggði kirkju þá, er
enn stendur, þótt hrörleg sé nú
orðin, enda orðin rösklega 100
ára gömul. Sú skuld, er þá mynd-
aðist, var greidd á fáurn árum. —
Árið 1862 átti kirkjan 197 rbd. 37
sk. í sjóði. Á 12 árum hefir skuld-
in greiðst og þessi sjóður mynd-
ast, þótt ekki sé hann stór. Samt
hlýtur kirkjunni að hafa orðið
vel til fjár á þessum árum. Væri
vel að henni yrði aldrei fjár vant
til framkvæ'mda. Er þess eigi að
dyljast, að nú þarf hún á miklu fé
að halda, þar sem endurbygging
kirkjuhússins er óumflýjanleg hið
bráðasta. í því skyni hefir nokk-
urt fé safnast, en betur má, ef
duga skal.
Furðu fátt virðist góðra gripa í
Svalbarðskirkju frá gömlum dög-
um. Olíklegt virðist þó, að svo
ágætir höfðingjar, sem þeir Sval-
berðingarnir voru, hafi eigi
haldið kirkju sína vel. En hvað
er þá orðið af þeim fornu, góðu
gripum, ef þeir hafa nokkrir ver-
safnarar verið hér að verki, —
ið? Spyr sá, er ekki veit. Á Þjóð-
menjasafninu finnst fátt fró Sval-
barðskirkju. Hafa einhverjir
eða máske „tíman stönn“? *
SVALBARÐ hefir aldrei verið
prestssetur, svo að kunnugt sé
þeim, er þetta skrifar. Hefir Sval-
barðskirkju ýmist verið þjónað
frá Glæsibæ eða Laufási. Nú er
Svalbarði þjónað frá Laufási og
mun messuskylda vera þar 3. eða
4. hvern helgan dag. Svalbarðs-
ströndungar hafa jafnan þótt
kirkjuræknir og kirkjukærir
menn. Hefir samband prests og
safnaðar oftast gott verið og
stundum ástúðlegt. En nú er svo
komið, að kirkja þeirra er lítt
messuhæf. Þykir ógerningur að
messa þar á vetrum sakir kulda.
En nú ráðgerir söfnuðurinn nýja
kirkjubyggingu. Hefir nokkru fé
þegar vei'ið safnað í því skyni. Nú
eru ekki hin fornu ítök lengur til
að treysta á. Þau eru öll fallin og
fyrnd. Kirkjan á Svalbarði á þó
væntanlega ein ítök enn, þó að
önnur hafi brugðist. Þau ítök eru
í hjörtum yðar, lesendur góðir!
Nú reynir á rausn yðar.
Gamall Svalberðingur.
— Kæliskipið
(Framhald af 1. síðu).
vegar svo önnum hlaðin, að þau
geta ekki fullnægt flutningaþörf
Sambandsfélaganna.
Þörf Sambandsfélaganna fyrir
kæliskipi er því mjög brýn. Þetta
skip, sem S. í. S. hefir samið um
smíði á, myndi leysa þá þörf mjög
ákjósðnlega. Farmrými skipsins
er mikið miðað við stærð þess, og
skipið svo grunnskreitt, að það
kemst inn á langflestar smærri
hafnir landsins. En skipið yrði
ekki einungis notað til þess að
flytja frystar vörur frá Sam-
bandsfélögunum, heldur einnig
til þess að flytja vörur beint frá
útlöndum inn í smærri hafnirnar,
og myndi að því mikið hagræði
og sparnaður.
Sambandið hefir þegar sótt um
nauðsynleg leyfi til þess að
kaupa kæliskip þetta, og treysta
forráðamenn Sambandsins því, að
þau leyfi verði veitt. Óhætt er að
fullyrða, að þjóðinni allri, —
ekki einungis þeim tugþúsundum
manna, sem innan vébanda sam-
vinnuhreyfingarinnar standa, —
myndi vera það mikill fengur, að
þessi vandaði farkostur bættist
við skipastól hennar.
MÓÐIR, KONA, MEYJA
(Framhald af 4. síðu).
eflaust líka orðið of mikið af
hinu. í þessu, eins og svo fjöl-
mörgu öðru, er því hinn gullni
meðalvegur hið ákjósanlegasta,
og allt ætti þetta að fara eftir
ástæðum heimilisins og því,
hvernig stai'fi mannsins er annars
háttað, og skilningur hjóna á
milli, á þreki og þreytu hvors
annars, starfi og striti og sameig-
inlegri ábyrgð á velferð heimilis-
ins, ætti að leiða þetta mál til
farsæUa lykta. En það þarf mik-
inn skilning og réttarkennd
beggja aðila til þess að jafnvægi
fáist og heimilið verði þeim báð-
um og börnunum það, sem því er
ætlað að vera.
Hvernig ætli íslenzkir eigin-
menn standi sig á þessum vett-
vangi? Því miður eru engar
skýrslur til um það ennþá, en ef-
laust verða skýrslur líkar þeim,
sem hér er getið að framan, ein-
hvern tíma birtar á oiikar landi,
þá verður fróðlegt að sjá saman-
burðinn.
Puella.
Gjafir til Upsakirkju.
(Niðurlag).
kr. 10.00. — Karítas Kristinsdótt-
ir, Árhóli, kr. 25.00. — Kristín
Kristinsdóttir, Árhóli, kr. 25.00.—
Njáll Skarphéðinsson, Árhóli, kr.
10.00. — Marinó Sigurðsson, Mói,
kr. 25.00. — Gunnlaugur Guðjóns-
son, Sæbóli, kr. 50.00. — Júlíus
Halldórsson, Odda, kr. 20.00. —
Verkalýðsfélag Dalvíkur (ágóði 1.
maí) kr. 688.00. — Áheit fró Guð-
rúnu Friðfinnsdóttur kr. 50.00. —
Áheit frá N. N. kr. 60.00. — Áheit
frá N. N. kr. 100.00. — Áheit frá
konu í Reykjavík kr. 20.00. —
Áheit frá N. N. kr. 25.00. — Alls
kr. 8018.00. — Áður safnað í sjóð-
inn kr. 32.131.14.
Söfnunarnefndin.
□ Rún.: 59498107 — Kjörf.
Kirkjan. Messað sunnudaginn
7. ágúst: Akureyri kl. 2: Kín-
verski pretsurinn Liu Dao-Seng
prédikar. Ól. Ólafsson kristniboði
túlkar.
Norscka skáldkonan kunna
Margit Ravn er gestkomandi hér
í bænum um þessar mundir á
vegum forlags Þorst. M. Jónssoh-
ar.
Séra Pétur Sigurgcirsson og Jón
Þorsteinsson kennari fóru í gær í
prédikunarferð austur í Suður-
Múlasýslu og koma ekki aftur
fyrr en seint í ágúst. Konur þeirra
eru með í förinni.
Giftingar. 14. júlí sl. voru gefin
saman í hjónaband Jón Júl. Þor-
steinsson, kennari, og Margrét
Elíasdóttii'. Heimili þeirra er að
Gilsbakkavegi 15. — 16.' júlí sl.
voru gefin saman í hjónaband
Edwald Mikson, íþróttaþjálfari,
og Sigríður Bjarnadóttir.
Finnska kvöldið verður endur-
tekið í Akureyrarkirkju í kvöld
kl. 8.30, vegna fjölda áskorana.
Til meðlima Fegrunarfélagsins.
Þar sem félagið hefir látið jafna
með jarðýtu svæði það, sem fé-
lagið tók að sér að gera í stand,
vill svæðisnefndin skora á með-
limi félagsins að koma upp á
svæðið á föstudagskvöld kl. 8
(annað kvöld) og hjálpa til.yið
;að koma þvj í viðunandi horf.t —
Hefið með ykkur garðhrífu og
stunguspaða. — Svæðisnefndin.
Sænskir filmtökuinenn, á veg-
um SÍS, voru hér í bænum í sl.
viku, og tóku kvikmyndir a’f fyr-
irtækjum SÍS og KEA hér o. fl.
Fóru m. a. á síldarmiðin hér fyrir
Norðurlandi á m/s. Snæfelli og
náðu kvikmynd af sæmilegu
kasti.
í fyrradag landaði Snæfell 511
málum síldar í Krossanesi og
Pólstjarnan 23 7málum.
Drukknun. Hinn 20. f. m. varð
það slys hér fyrir Norðurlandi, að
Þórhallur Sigtryggsson, Aðalstr.
20 hér í bæ, féll út af síldveiði-
skipi og drukknaði.
Dánardægur. Nýlega lézt hér á
sjúkrahúsinu, Sigurður Sigur-
geirsson, fyrrum bóndi á Syðra-
Hóli í Kaupangssveit, tæplega
sjötugur að aldri. Sigurður var
héraðskunnur bóndi og dugnað-
armaður og vel látinn af öllum.
Hestamannafélagið Léttir efnir
til ferðalags um næstu helgi. Lagt
verður af stað kl. 2 á laugardag
frá skeiðvelli félagsins. Farið
verður út Svalbarðsströnd og
fra mFnjóskadal. Þeir, sem vilja
taka þátt í förinni gefi sig fram
við Júl. Pétursson á skrifstofa
Sjóvátryggingafélagsins, Sími 60.
Iþróttablaðið Sport hefir nú
breytt um form. Er það í minnk-
uðu broti, 1) bls. að stærð. Kom
það fyrst út í hinu mnýja bún-
ingi 26. júlí sl„ og er hann mun
aðgengilegri fyrir þá, sem halda
vilja blaðinu saman. Blaðið er
prýtt mörgum myndum einstakra
íþróttamanna og íþróttahópa.
Áheit á Strandarldrkju: Frá
ónefndum kr. 120,00. Mótt. á af-
gr. blaðsins.
Áhcit á Akureyrarkirkju. Kr.
50.00 frá N. N. — Kr. 100.00 frá
N. N. — Kr. 100.00 frá ónefndri.
— Kr. 20.00 frá N. N. — Þakkir.
Á. R.
'Frá starfinu í kristniboðshús-
inu Zíon. Samkomur næstk.
sunnudag, mánudag og þriðjudag
kl. 8.30 e. h. Kínverski presturinn
Liu Dao-Seng, Olafur Olafsson
kristniboði og konur þéirra tala.
Allir velkomnir.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína ungfrú Guð-
rún Sigurðardóttir frá Vogi á
Mýrum og Stefán Eggertsson,
prestur að Staðarhrauni.
— Jörundur
(Framhald af 1. síðu).
hann hefði reynt togvindu og
annan útbúnað þá um daginn og
allt virzt í ágætu lagi. Frekari
fréttir af þessari fyrstu veiðiför
skipsins voru ekki fyrir hendi í
gær.
Glæsileg viðbót við
fiskiskipaflota Akureyringa.
Það vakti athygli þeirra, er
skoðuðu^skipið hér, hversu allur
frágangur á mannaíbúðum, hús-
gögnum o. s. frv., virtist vandað-
ur og traustur. Hafði þar sýni-
lega mjög verið vandað til allrar
vinnu. Vistarverur skjpverjp ej'u
allar með nýtízkubrag og vistleg-
ar mjög. Erlend fiskveiðablöð, t.
d. hið kunna Fishing News í
Aberdeen hafa ritað mikið um
Jörund og hinn nýtízkulega út-
búnað hans. Sérfræðingur blaðs-
ins lét svo ummælt í vetur, að
skipið væri um margt hið athygl-
isverðasta fiskiskip, sem farið
hefði á flot frá brezkri skipa-
smíðastöð og hvatti brezka út-
gerðarmenn til þess að kynna sér.
ýmsan útbúnað „Jörundar“.
Með komu „Jörundar“ bætist
fiskiskipaflota bæjarmanna
glæsileg viðbót. Skipið er skrásett
héi', — ber einkennisstafina EA
335. — Akureyringar allir
munu kunna Guðmundi Jörunds-
syni þakkir fyrir framtak hans og
dugnað Qg árna honum og hinu
fríða skipi hans allra heilla.
- Fokdreifar
(Framhald af 4. síðu).
að ekki má u mof treysta á síld-
veiðarnar og leggja verður meira
kapp á að notfæra sér önnur auð-
æfi við strendur landsins yfir
sumartímann en nú hefir verið
gert. Gleðilegur vottur um ný-
breytni eru Grænlandsleiðangrar
íslendinga nú í sumar. Sam-
kvæmt fregnunum af þeim, vii'ð-
ast þeir ætla að gefast vel og
reynast veiðisælir. Þar afla ís-
lenzæir sjómenn nú gjaldeyris í
þjóðarbúið, og lítur út fyrir að
það framtak ætli að reynast
happasælt.
r
Utvarpstæki til sölu.
A. v. á.