Dagur - 28.09.1949, Qupperneq 1
12 SÍÐUR
Forustugrcinin:
Hvers vegna rofnaði
stjórnarsamstarfið?
AGUR
Fimmta síðan:
Kommúnisminn, mann-
kynssagan og kennisetn
ingarnar.
XXXII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 28. september 1949.
39. tbl.
GlϜlcgt Atlantshafsfar
'Snemma í þessurn mánuði skeði merkisatburður í sögu fluglistarinn-
ar. Stærsta farbegaflugvél heimsins, Brabazon I, hóf sig íil flugs af
brezkum flugvelli. Ilefir síðan verið á æfingaflugi og reynzt vel. —
Flugvél þessi er smíðuð af brezkum verltsmiðjum fyrir forgöngu
brezka ríkisins og hófst undirbúningur þegar á stríðsárunum. Hún á
að geta flutt 100 farbega yfir Atlantshafið og er búizt við að hún hefji
áætlunarferðir frá London til New York nú í haust.
Framkvæmdum við nýju drátta
brautina miðar vel áfram
Dýpkunarskipið „Grettir“ hefur unnið að
dýpkimarframkvæmdum hér undanfarið
Dýpkunarskipið Grettir hefir
verið hér á höfninni undanfama
daga og unnið að dýpkun við
nyrðri Torfunefsbryggjuna og
ennfremur hefir skipið dýpkað
innsiglinguna við nýju drattar-
brautina á Oddeyrartanga.
Búið er að grafa sundur eiðið,
sem var í milli dráttarbrautar-
lægisins og sjávar og dýpka renn-
una sunnan við hlífðargarðinn. —
Að undanförnu hefir verið unnið
að því að koma fyrir brautartein-
unum. Vélar dráttarbrautarinnar
eru hins vegar ókomnar. Þessum
framkvæmdum er samt svo langt
komið, að búast má við því að
dráttarbrautin nýja geti tekið til
starfa að einhverju leyti á þessu
ári.
Menn sjá það nú, er þeir athuga
aðstöðu þá, sem verið er að koma
upp þarna norður á Oddeyrinni,
að dráttarbrautin verður ágæt-
lega sett þar. Nægilegt athafna-
rúm er þar og aðstaða mannvirk-
isins yfirleitt hin ákjósanlegasta.
Framsóknar-whist
á laugardagskvöldið
Framsóknarkvennagél. Sókn
hefii' skemmtikvöld að Hótel
KEA á laugardagskvöldið kemur.
Verður spiluð Framsóknar-whist,
Tómas Árnason lögfræðingur
flytur stutt erindi og síðan verð-
ur dansað. Er þess vænzt að fé-
lagskonur og gestir þeii’ra fjöl-
menni á þetta skemmtikvöld.
Blaðinu er ekki kunnugt um,
hvort dýpkunarframkvæmdir
Grettis utan við nyrðri bryggjuna
eni þáttur í hinni nýju áætlun
um bryggju við Strandgötu, sem
samþykkt var á aukabæjarstjórn-
arfundi fyrir skemmstu. En að
öðru leyti verður ekki vart við að
undirbúningur þess mannvirkis
sé hafinn. Hins vegar er nú unnið
að því að styrkja syðri Torfunefs-
Landhelgisbrot Ríissa
vekja mikla athygli
erlendis
Er’end blöð, sem hingað eru
að berast þessa dagana, sýna.
að landhelgisbrot rússnesku
síidveiðiskipanna hér við land
á dögunum hafa vakið mikla
athyg’i á Norðúrlöndum og í
Bretlandi. Það, sem sérstak-
lega þykir athyglisvert er, að
Rússar, sem sjálfir krefjast
viðurkenningar á 12 mílna
latidhelgi við sírendur sínar og
verja þessi landhelgi með
vopnum, virða ekkP3-mí!na
landhelgi smáþjóðar.
Síldarsöltunin er orðin
um 90 þúsund tunnur
Um helgina var söltun á Norð-
urlandssíld á vertíðinni orðin um
90 þúsund tunnur og hafði hækk-
að mjög mikið í sl. viku, enda var
efli ágætur flesta dagana, en að-
eins fá skip á miðunum. Lítið
hefir bætzt við bræðslusíldina. —
Chopin-tónleikar Árna
Kristjánssonar í kvöld
Árni Kristjánsson píanóleikari
heldur Chopin-tónleika hér í
kvöld, á vegum Tónlistarfélags
Akureyrar. Hljómleikarnir eru
haldnir í tilefni af 100 ára dánar-
afmæli tónskáldsins. Hljómleik-
arnir verða í Nýja-Bíó kl. 9 í
kvöld ,en ekki í Samkomuhúsi
bæjarins ,eins og áður var aug-
lýst.
Björn Olafsson fiðluleikari hafði
hljómleika hérá mánudagskvöld-
ið, á vegum Tónlistarfélagsins. —
Árni Kristjánsson lék undir á
hryggjuna og sýnist því verki píanó. Leik Björns Ólafssonar var
miða allvel áfram. ágætlega fagnað af áheyrendum.
SársaukaSausar tannaðgerðir
framkvæmdar af dönskum fann-
Aðferðin nýlega sýnd á tannlæknaskólanum
í Kaupmannahöfn
Danskur tannlæknir hefir upp-
götvað aðferð til nær því sárs-
aukalausra tannaðgerða, án
deyfilyf, að því er nýleg dönsk
blöð hcrma. Segja þau að fram-
kvæma megi allar meiriháttar
tannaðgerðir sársaukalaust fyrir
sjúklinginn og sé þetta mikil
framför frá því, sem áður hefir
þckkst.
Uppfinning þessi cr sögð frá-
frámunalega einföld. Sjúklingurinn
situr í kekningastólnuni og hugsar
um það ei.tt að „slappa af“; gæta
Jtess að enginn vöðvi sé strengdur
er tanuborinn er að starfi, jafn-
framt á hann að gæta þess að draga
andann reglulega og djúpt.
Samkvæmt frásögn Berlingske
Aftenavis nú nýlega, hefir þessi að-
ferð verið reynd ýtarlega í Dan-
mörku að undanfiirnu. ni. a. á
börntim, sem fram til þessa liafa
haft mikinn ótta af tannaðg'erðum.
Þá hefur aðferðin nú nýlega verið
sýnd í tannlæknaháskólatium í
Kaupmannahöfn.
Blaðið segir, að af fjölmörgum
tilraunum, sem gerðar hafi verið,
ltafi aðeins tvær mistekizt, önnur á
lækni, sem fyrirfram hafði skýrt frá
j því, að liann hefði enga trú á þessu.
Bílsfjóraíél. Akureyrar mótmælir
nýrrl reglugerð um kennslurétt-
inds bifreiðarstióra
Skorar á meðlimi sína að taka ekki jiátt í fyrir-
hiiguðu námskeiði til kennsluréttinda
Nýleg reglugerð um réttindi
bifreiðasíjóra til þess að taka að
sér kennslu í akstri, heíir sætt
gagnrýni og andmælum bifreiða-
stjórastéttarinnar. Breyting sú,
sem fólgin er í reglugerð þessari
er á bá lund, að kennarar í akstri
þurfa nú að fá löggildingu, en áð-
ur höfðu allir meiraprófsbifreiða-
stjórar, sem náð höfðu 25 ára
aldri, rétt til þess að annast
kennslu. Bílstjórafélag Akureyr-
ar samþykkti nýlega eftirfarandi
tillögur út af þessu máli:
„Fundur í Bílstjórafélagi Ak-
ureyrar, haldinn 26. sept. 1949,
lýsir sig eindregið mótfallinn
ákvæðum 8. gr. í reglugerð þeirri
um kennslu og próf bifreiðastjóra,
sem gefin var út 13. des. 1948.
Ástæður fyrir þessum mótmæl-
um félagsins eru margar og all-
veigamiklar, og eru þessar helzt-
ar:
Þá er bifreiðastjórar hafa tekið
meira pi’óf, hafa þeir lögum sam-
kvæmt öðlazt réttindi til .kennslu
í aksti-i og meðferð bifreiða og
greitt fyrir þau verulega fjárupp-
hæð, en rétlindin fengin með
kennslu sérmenntaðra manna. Og
þar sem ekki er krafizt meiri
hæfni en áður var til minna prófs
cifreiðastjóra, getur hver sá, sem
náð hefir meira prófi, annazt þá
kennslu.
8. gr. téðrar í’eglugerðar vii'ðist
því ekki ná þeim sjálfsagða til-
gangi, er hún ætti að hafa, að
auka hæfni minna pi'ófs bifi-eiða-
stjóra, en hefir aftur á móti í för
með sér skei'ðingu á atvinnu og
persónufrelsi meira prófs bif-
reiðastjóra og því bein réttinda-
skei'ðing gag'nvai't þeim. Enda
mun það óþekkt fyrirbrigði hér á
iandi, að lög séu sett, sem ógilda
áður lögheimiluð atvinnuréttindi
heillar stéttar.
í þesu sambandi er rétt að geta
þess, að þegar lög voru sett á sín-
um tíma um meiri hæfni og aukna
menntun verzlunai-manna, iðnað-
armanna, skipstjóra og stýri-
manna, hafði það ekki í för með
sér neina réttindaskerðingu fyrir
þá, sem áður höfðu réttindi, hver
á sínu sviði.
Fundui'inn mótmælir því mjög
8. gr. áðurnefndrar reglugerðar
og skorar á hv. dómsmálaráðu-
neyti að láta hana ekki koma til
fi'amkvæmda.
Fundur í Bílstjórafélagi Akur-
eyrar, haldinn 26. sept. 1949, bein-
ir þeii'ri áskorun til meðlima
sinna og annara meiraprófsbif-
x-eiðastjói'a að taka ekki þátt í
fyrirhuguðu námskeiði um
kennslui-éttindi bifreiðastjóra.“
Báðar tillögurnar samþykktar
samhljóða.
Jakob Frímannsson
kominn heim
Jakob Frímannsson iramkv.stj.
KEA kom til bæjarins í gær eftir
nokkurra vikna dvöl í Norður-
löndum og á meginlandinu.
Sýningar á „Kappar og
vopn“ hef jast um
helgina
Frumsýning á leikritinu „Kapp-
ar og vopn“, eftir Bei'nard Shaw,
vei'ðui’ væntanlega á sunnudags-
kvöldið kemur, að þvi fori-áða-
menn Leikfélags Akureyrar hafa
tjáð blaðinu. Leikstjói'i er Einar
Pálsson leikari frá Reykjavík. —
Fastir frumsýningargestir félags-
ins þurfa að hafa tekið aðgöngu-
rniða sína, í Bókaverzl, Eddu, fyr-
ir kl. 4 e. h. á laugardag.
Danir finna upp
rafmagnstæki til
fiskveiða
Kaupmannahafnarblöðin
skýrðu frá því í si. viku að
Knud Larsen magister, í Bio-
logiske Statioxi í Khöfn, hafi
fundið upp rafmagnstæki, sem
liafi reynzt fengsælt við fisk-
veiðar. Tæki þetta er benzín-
mótor með dynamó. Dynamór-
iun lciðir straum í tvær elek-
tróður, sem settar eru í vatn-
ið. Umliverfis þær myndast
rafmagnað belti í vatninu og
verða allir fiskar, sem inn í
það koma, afllausir og fljóta
upp. Þegar þessi nýstárlega
veiðiaðferð var reynd í ár-
mynni við Sorö náðu veiði-
mennimir 113 álum, 67 urrið-
um, 4 geddum og hundruðum
smáftska. Rafmagusbeltið náði
yíir 200 metra langt svæðL —
Meðal sportveiðimanna í Dan-
mörku hafa fregnimar af
þessum veiðiskap ekki vakið
mikla hrifningu.