Dagur - 29.03.1950, Síða 2
2
D AGUR
Miðvikudaginn 29. marz 1950.
— Aðstaða íslenzkra
fiskveiða
Núverandi sfjórnarsamsiarf
Samstarf allra lýðræðisflokkanna' er æskilegt
Erfið aðkoma.
Engin ríkisstjórn, hvorki fyrr
né síðar, hefur tekið við völdum
við örðugri kringumstæður en
stjórn sú, sem nú er nýmynduð.
Afkomumöguleikar þjóðarinnar
eru að vísu á ýmsan hátt betri en
áður, en erfiðleikarnir á sviði
efnahagsmálanna eru svo geig-
vænlegir, vegna alrangrar fjár-
málastefnu seinasta áratugs, að
þeir virðast lítt leysanlegir. Hins
vegar dylst engum, að áfram-
haldandi aðgerðarleysi þýðir
efnahagslega uppgjöf og gjald-
eyrisgjaldþrot, nema þá þjóðin
kjósi í framtíðinni steinaldar-
menningu í landinu.
Samstarf Iýðræðisafla.
„Þegar býður þjóðarsómi, þá á
Brelandi eina sál“, kvað skáldið.
Þessa hendingu þyrfti að veia
hægt að heimfæra upp á ísland
og íslendinga. Þegar Bretar
áttu í vök að verjast í stríðinu
um 1940, sameinuðust sundur-
leit pólitísk sjónarmið. Þeir
mynduðu samsteypustjórn undir
forystu Churchills, sem vann
dyggilega og samhent að því að
bægja voðanum frá dyrum.
Brezka þjóðin barðist fyrir til-
veru sinni- og • raunar tilveru
frjálsra þjóða. Á sama hátt má nú
segja, að íslendingar þurfi nú að
berjast fyrir tilveru sinni sem
þjóð. Aðgerðarleysi, flokkadrátt-
ur og sundurlyndi geysa um land
ið á svipaðan hátt og á Sturl-
ungaöld. Ognaröld þeirrar aldar
leiddi til þess, að íslendingar urðu
háðir öðrum þjóðum,' máttu hlíta
forsjá erlendra valdhafa. Nú
myndi þetta gerast á annan hátt.
Ef ekkert yrði að gert leiddi fjár-
málastefnan til skuldasöfnunar
erlendis. Þá virðist gatan nokkuð
greið til glötunar stjórnarfarslegs
sjálfstæðis. Á sú þjóð, sem ekki
getur séð sér farborða, rétt til að
vera sjálfstæð þjóð? Eigi vanda-
málin að leysast farsællega, þarf
sarnhug og samstarf, sem flestra
flokka og einstaklinga. Það þarf
að samfylkja öllum góðum og
þjóðhollum kröftum, ef sigur á
að nást á sama hátt og hjá þjóð-
um, sem berjast fyrir frelsi sínu á
stríðstímum. Þeir íslendingar,
sem eru lýðræðismenn þyrftu að
sameinast allir. Ástandið í efna-
hagsmálunum er því miður svo
hjá okkur eftir góðærin, að sum-
, ar hinna stríðandi þjóða standa
okkur framar.
Óskild öfl sameinast.
Það mjög svo alvarlega viðhorf,
sem skapast hefur, hefur leitt til
þess, að þeir stjórnmálaflokkar,
sem iengstum hafa barizt um for-
ystu íslenzkra stjórnmála og eru
óskyldastir um margt, Framsókn
arflokkurinn og Sjálfstæðisflokk-
urinn, hafa nú gert með sér
vopnahlé og tekið höndum sam-
an um að reyna að bjarga því sem
bjargað verður. Þeir hafa gengið
til samstarfs á grundvelli neyðar-
réttar, að þegar þjóðin er í hættu,
þá verða flokkshagsmunir að
víkja fyrir meiri hagsmunum,
hagsmunum þjóðarinnar allrar.
Þegar býður þjóðar sómi þá á ís-
land að eiga eina sál.
Samstarf þriggja lýðisflokkanna
æskilegast.
Hagsmunum þjóðarinnar hefði
verið betur borgið, ef Alþýðu-
flokkurinn hefði einnig tekið þátt
í stjórnarsamvinnunni. En hann
hefur því miður skorist úr leik
Ber hann í því efni fyrir sig tylli-
ástæður. Flokkurinn óttast enn-
þá og hefur alltaf óttast komm-
únista. Heldur hann því uppi
kauphækkunarkapphlaupi við
kommúnista. En hann ætti að at-
huga, að Alþýðuflokkarnir ann-
ars staðar hafa einmitt unnið séi
álit með því að elta ekki yfir-
borðsstefnu kommúnista í kaup-
gjaldsmálum. Meðan að Alþýðu-
flokkurinn þorir ekki að taka
ákveðnar stefnur, vegna hræðslu
við kommúnista mun honum
ekki vel farnast. Um Sameining-
arflokk alþýðu, Sósíalistaflokk-
inn, er það áð segja, að hann hef-
ur.skorist. úr leik, vegna undir-
lægjuháttar og algerrar þjónkun-
ar við Moskvuvaldið. Hefur hann
í því efni samrekkt með vinum
sínum, se.m almennt eru taldir
pólitískt óalandi og óferjandi á
Vesturlöndum.
Ábyrgðartilfinning
Framsókiiarflokksins.
Framsóknarflokkprinn hefur
ekki valið það hlutyerk að sker-
ast úrr leik, þótt hann einn allra
flokka bcri, hreinan skjöld, hvað
við kemur fjármálastefnii sein-
ustu ára. Hann hikar ekki við að
eiga samstarf við aðalandstöðu-
flokk sinn, vegna þess að hann
álítur stefnt í rétta átt með sam-
þykkt löggjafarinnar um gengis-
skráningu o. fl. Hann vill þjóð-
hollar umbætur í landinu, en
ekki skuldasöfnun ríkissjóðs
bæði innanlands og utan. Vera
má, að fjármálastefnan hafi þegar
leitt til óstöðvandi upplausnar á
sviði efnahagsmálanna. Að ekki
sé unnt að ná fótfestu eins og nú
er komið. Þrátt fyrir það hlýtur
það að vera skylda ábyrgra
st j órnmálaflokka að reyna að
bjarga því, sem bjargað verður.
Þess vegna hefur nú Fram-
sóknarflokkurinn freistað þessa
stjórnarsamstarfs. — Hann vill
framhaldandi framfarir í land-
inu, byggðar á traustum og var-
anlegum efnahagsgrundvelli. Því
væntir flokkurinn liðveizlu allra
góðra manna til þess að knýja
fram þá lausn málanna, sem er
heilbrigðust og réttlátust fyrir al-
þjóð.
Karlmaður,
vanur landbúnaðarstörfum,
getur fengið atvinnu Irá 1.
maí n. k. í nágrenni Akur-
eyrar.
Skrifstofa blaðsins vísar á.
(Framhald af 1. síðu).
stormum. Ekki hefur því verið
um að ræða miklar landanir, en
samt sem áður hafa sölumenn
stundum átt fullt í fangi að losna
við fisk á markaðnum.“
Verðlagseftirlit afnumið.
í framhaldi af þessu ræðir
Stephen um áhrif þess, að verð-
lagseftirlit með fiski í Bretlandi
verði brátt afnumið og fiskverðið
verði að leita jafnvægis á frjáls-
um markaði á ný. Hann spáir
verðhruni á lélegri tegundunum
og lélegri vörunni, en segir að
gott verð muni haldast á fyrsta
lokks vörunni. Nú með sumri
muni eftirspurn eftir fiski að
mestuhvei'fa. í lok greinar sinnar
segir Stephen: „Aðstaðan er í
stuttu máli þessi: Nýju togararn-
ir kosta þrisvar sinnum meira en
togarar fyrir stríð. Allir kostnað-
arliðir, eldsneyti, veiðarfæri og
útbúnaður kostar þrisvar til
fjórum sinnum meira. Neytand-
inn hefur líka fengið kauphækk-
anir, lifistandard hans er hærri
en fyrir stríð, en er það nægilegt
til þess að gera honum mögulegt
að greiða fjórum sinnum hærra
verð fyrir fisk en hann gerði fyr-
ir stríð? Þetta er spurningin, og
henni verður svarað á einn eða
annan hátt á þessu ári. Okka'r
fiskimenn verða að horfast í augu
við hana. Fyrir íslendinga er hún
erfiðari, því að þeirra útgerðar-
kostnaður er hærri en okkar og
þeir eiga engán heimamarkað.
Aðstaða þeirra erekkiólíkaðstöðu
síldveiðimanna okkar, sem munu
komast að raun um það í sumar,
að á sama tíma og útgerðarkostn-
aður þeirra fer síður en svo
lækkandi, er Evrópumarkaðurinn
að ganga saman bæði í verðlagi
og móttökumöguleikum.
Gengisfelling og aukin
samkeppni.
í ritstjórnargrein í Fishing
News, sem birtist skömmu eftir
útkomu þessarar greinar Step-
hens, er vikið að gengisfelling-
unni hér og talið, að hún muni
mjög létta undir með íslenzkum
sjávarútvegi og muni gera hann
mun samkeppnishæfari á erlend-
um markaði og telur blaðið það
út af fyrir sig lítið fagnaðarefni
fyrir brezkan sjávarútveg.
Afvinna
Stúlka, með gagnfræða-
menntun, óskar eftir at-
vinnu, helzt við verzlun
eða skrifstofustörf, frá 14.
júní n. k.
Afgr. vísar á.
Stulka
óskast í vist nú þegar, vegna
forfalla annarrar.
higa Sólnes.
Gróandi jörð:
Jarðyrkjiimaðurirai má treysta
sigrinem
Eftir Jón H. Þorbergsson á Laxamýri
í LESBÓK MORGUNBLAÐSINS frá 6. febrúar 1949, birt-
ist smágrein eftir unga — 16 ára — stúlku í Winnipeg. Stúlk-
an heitir Betty White og er fædd af íslenzkri móður, en brezk-
um föður. (Sú er sendi Elísabet konungsdóttur í Lundúnum
nylonsokka til að vera í, þá hún gifti sig. En slíkir sokkar
fengust ekki í Brctlandi. Var Betty boðin í brúðkaup kon-
ungsdótturinnar fyrir bragðið). Hún segir meðal annars í
áminnstri grein: „Afi minn var einn af þeim tugum þúsunda
bænda, sem fluttust til Vestur-Kanada og breyttu eyðimörk-
inni í fögur gróðurlönd. Síðan hafa niðjar þeirra framleitt
kornvörur í svo stórum stíl, að Kanada má telja kornforða-
búr heimsins. Frumbyggjanna beið hér æfilangt strit og stríð
við að höggva skóg, rækta landið, leggja járnbrautir og reisa
bæi og borgir. Það var þrekvirki, en uni leið æfintýr, sem
vcitti þeim margar gleðistundir og sigur unnu þeir, eins og
nú sést á hinni stórkostlegu framleiðslu ,landsins.“
OG SIGUR UNNU ÞEIR, er hér sagt. Jarðyrkjumaðurinn
má ávallt treysta sigrinum, þegar hann brestur hvorki áliuga
eða kunnáttu við framkvæmdimar. Gróðurmoldin neitar ekki
um sinn mátt til þess að sigur vinnist. Um það eru óteijandi
dæmin. Sé jörðin ekki stunduð þá syrtir að. Sú þjóð, sem van-
rækir að yrkja sína jörð, kemst ekki hjá því, fyrr eða síðar, að
verða fyrir erfiðleikum þeim, sem ósigur hefur í för með sér.
Af því að öflug jarðyrkja er sigurviss, af því að án jarðyrkju
og landbúnaðar er ekki hægt að lifa. Þrátt fyrir björg og
nauðsyn sjávaraflans er hann þó ekki talinn að vera nema 2%
af fæðuföngum alls mannkyns á jörðunni. Og við GRÓANDI
JÖRÐ er menning þjóðanna fyrst og frémst- teng'd'.
JAFNVEL ÞÓTT við getum, hér í okkar landi, bent á unna
sigra, einkum á síðari árum, vegna framtaks í jarðyrkju, þá er
bara framtakið allt of lítið ogþar af leiðandi allt of fýrirferð-
arlítill sigur, sem að lokum og jafnvel nú þegar virðist vera
að hverfa fyrir óþægindum ósigurs, sem að sjálfsögðu hlýtur
að leiða af of Iitlu ræktunarstarfi. En íslenzka þjóðin hefur að
undanförnu skipað sér allt of lítið um ræktunarstarfið og ger-
ir hað enn í dag.
Verkin sína merkin: Þjóðina vantar, í stórum stíl, íslenzkan
sveitamat til daglegra þarfa, þann, sem hæglega má framléiða
hér í okkar landi, þar sem um milljón hektarar lands, með
moldarríkan jarðveg, eru enn óhreyfðir til nýyrkju. Og að því
stefnir, að fólkið, sem þarf og á að stunda jörðina, verði að
úrkynjuðum fátækrahverfa-lýð, í stórborginni Reykjavík,
fyrst og fremst, eða hrúgist saman við fánýt störf í of stórum
kaupstöðum landsins. — Jafnvel þótt benda megi á ýmsar
ástæður fyrir því, að fólkið hefur horfið svo mjög burt úr
sveitunum síðustu 50 árin — fyrir 50 árum áttu 70% af þjóð-
inni heimilisfang í sveitum landsins, en nú ca. 28% — og jafn-
vel þótt mörgum kunni að finnast þær ástæður eðlilegar má
þó fullyrða, að breytingin hefði aldrei orðið svona skaðlega
mikil, ef hugsjónin um ræktun og menningu þjóðarinnar, fyrst
og fremst í sambandi við Gróandi Jörð, hefði lifað nógsam-
lega í hugum fólksins, líkt og hjá bændafóikinu á Jaðrinuin í
Noregi og sléttunuin í Kanada. Aðalorsökin fyrir fráhvarfinu
er vanræksla þcirrar hugsjónar, sem skýlaust á að sitja í
fyrirúmi allra annarra hugsjóna, sem lúta að því að tryggja
þjóðinni framtíð í iandinu sem sjálfstæðri menningarþjóð. —
Hugsjónin um aukna fegurð og batnandi hag við ræktun og
meiri ræktun. Ef sú hugsjón hefði lifað góðu lífi hjá fólkinu,
þá væri hér öðruvísi umhorfs og framtak margra verið með
öðrum hætti og framtaksleysi margra orðið að framtaki. —
Fólkið er í sannleika til þess skapað, fyrst og fremst, að þjóna
göfugum hugsjónum — hagnýta gjöfina að ofan. — Vanræki
fólkið þessa þjónustu, fyllist Iíf þess af margs konar örðugleik-
um og illri líðan.
HMMMMIIIMMMHillMMMIMMMMMMMtMMMMMMMMMMIMMMIMMMMIMMMMtMlltMMMMMIMMMMMMiMMMMIMMMIMiÍ
I Húsnæði óskast |
1—2 herbergi og eldhús óskast frá 1. maí i
\ til 31. október. i
Upplýsingar á Ferðaskrifstofunni. i
*MtMIIIMIIIIIIIIIMtlMMMMMMIMIIIIMMMMiillMtMllllllllllllillMMMIIItilll|IIMIIMIIIIIIMiiMIMIIIMIIIIIII|iriililM'lllllll*
$xj>^><í.