Dagur - 17.05.1950, Page 5
Miðvikudagirai 17. maí 1950
D A G U R
5
Ný 09 kröftug ræktunaröld þarf að rlsa í landinu
Lokaspjall greinaflokksins um Gróandi jörð
Eftir Jón H. Þorbergsson á Laxamýri
HINN MERKILEGI maður,
Matthías ÞórSarson, fyn-verandi
fiskiræktarráðunautur, hefur
skrifað bók á dönsku, sem hann
nefnir „Havets Rigdomme og
deres Udnyttelse“. Þar segir
meSal annars: „Hinn auðugi stofn
af skarkola og öðrum flatfiskteg-
undum, sem virtust óþrjótandi
við íslandsstrendur í upphafi
þessarar aldar, eru nú uppurnar.
svo að lítt sér eftir, þorsktegund-
irnar rýrna um 3% árlega, sem
svarar því, að sú fisktegund
minnki sem næst um 30% á 10
árum, en það þýðir að eftir tæp-
lega mannsaldur mun tæplega
svara kostnaði að stunda fiski-
\
veiðar á sama hátt og nú. (Það
er kunnugt, að Matthías Þórðar-
son hefur nú nýverið, á mjög
eftirtektarverðan hátt, fjallað um
„viðhald útvegsins og fiskistofns-
ins“ bæði í blöðum hér og út-
varpi.
Þetta er að vísu alþjóðamál,
sem óséð er hvernig leyst verður,
en er eigi að síður stórmál fyrir
okkur hér í landi og mikið um-
hugsunarefni þeim, sem aðeins
trúa á sjóinn. — Eg hef heyrt
talsmann Fiskifélags íslands
segja í útvarpsræðu, að framtíð
þjóðarinnar íslenzku væri á sjón-
um. — Heldur lélegt trúboð! —
Bæði þetta og svo hin miklu
vanhöld í síldinni, ætti vissulega
að hvetja framtakssama menn til
þess að snúa sér með framtak sitt
að hinni staðbundnu, sígróandi
jörð.
Hefjast verður handa um stór-
kostletga aukningu landbúnaðar-
ins, fólkið verður að koma tíl
sjálfs sín aftur og halda sam-
bandinu við hina lífrænu jörð.
SÍÐASTA Jarðamatsbók frá
1942 mun hafa skrásettar í dálk
um sínum um ,950 eyðijarðir.
Munu á 4. hundráð jarðir hafa
farið í eyði frá 1942. En á árun-
um 1941 til 1947 veitti Nýbýla-
sjóður styrki og lán til samtals
129 nýbýla og í undirbúningi er
bygging allmargra nýbýla. Samt
er eyðing býlanna í landinu enn-
þá miklu meiri en viðbótin.
Einna mest mun vera af eyði-
jörðum í Vestur-Húnavatnssýslu
og sem falíið hafa þar í eyði á
síðustu árum. í Súður-Þingeyj-
arsýslu helzt byggð betur við en
í mörgum öðrum héruðum, og i
stað eyðibýla hafa mörg nýbýii
verið byggð. Þó eru eyðibýlin —
frá aldamótum í meiri hluta í
sumum sveitum. Til dæmis í
Fnjóskadal hafa 14 jarðir farið í
eyði síðan um aldamót, en 6 ný-
býli reist. í Grýtubakkahreppi
hefur heil kirkjusókn farið í eyði
á sama tíma — Þönglabakkasókn
í Fjörðum, — svo og margir aðr-
ar jarðir á Látraströnd. Þá eru
allar jarðir á Flateyjardal komn-
ar í eyði, utan ein jörð. En þótt
minnst sé á eyðibýli, þá er þó
ekki nema hálf sögð sagan. Á
íjölda jarða, víðs vegar um land,
er ekkert framtíðarfólk. Sums
staðar einn, en víða tveir menn
á búi eða þrír, eða gamalt fólk,
við uppgjöf. En þetta bendir til
þess að jarðir haldi áfram að fara
í eyði, nema hægt sé að fá fólk til
að flytja. vistaskiptum, úr kaup-
stöðunum og út í sveitirnar. En
það er það .sem parf að verða og
að því þarf að viniia. Það er verk
efni fyrir héraðasamtökin í
kaupstöðunum. Það er raunar
ekki nein furða, þótt sveitirnar
láti á sjá, þar sem að fra síðustu
aldamótum hefur heimilísfólki
sveitanna fækkað úr 70% — af
allri þjóðinni — ofan i ca. 28%,
HÉR ER LANGTUM of mikið
að gert, í vistaskiptum, milli
sveita og kaupstaða. Allt of
margt fólk hefur slitið sig úr
tengslum við hina lífrænu nátt-
úru sveitanna. En nú er komið að
skuldadögunum. Gagngerð breyt
ing verður að koma nú þegar, ef
þjóðin vill halda áfram að byggja
og búa í sinu eigin landi. Upp-
fylla boðorðið, sem aldrei má
brjóta: Að neyta brauðsins
sveita síns andlitis.
ÓNEITANLEGA verður þaS
að vera hugsjón okkar allra, sem
berum þjóðrækniskennd í brjósti.
að þjóðin eflist bæði menningar-
lega séð og fjárhagslega. En það
getur hún bara ekki nema hún
stundi miklu meiri landbúnað.
Hef eg leitast við að færa rök að
því hér að framan. Skal nú að
lokum gera litla grein þeim át-
riðum, sem næst liggja fyrir að
framkvæma til eflingar þessu
þýðingarmikla máli:
l. Sveitafólkið þarf að efla sjálfs-
virðingu sína, einmitt vegna
þess að það stundar hollasta
og nauðsynlegasta atvinnuveg
landsins og þann er áreiðan-
lega til blessunar horfir, og
ekki annars, fyrir framtíð
þjóðarinnar. Á það má líka
líta, að hinar mörgu þarfir og
margbreytu störf, sem land-
búnaðurinn útht'imtir, gcuúr
það að verkum, að það er etcki
heigluro hent eða tossum nein-
um að stunda landbúnað, svo
að vel sé. Enda er það vitað, að
ekkert fólk í landinu lýkur
eins mörgum vinnustundum,
daglega og árlega, eins og
bændur og búalið. Allur fé-
lagsskapur í sveitum landsins á
að taka miklu betur höndum
saman um þetta merkilega
mál til þess að efla fylgi þess og
stöðva fráhvarfið. Fólk um all-
ar sveitir og héruð landsins á
að halda, árlega, almennan
bændadag. Hátíðisdag með sam
komum til heiðurs bændum og
og búaliði og hinni gróandi
jörð og til heiðurs hinni nýju
öld jarðyrkjunnar, sem við eig-
um að hefja, og til heiðurs
sveltamenningunnl og Ianainu
okkar, islandi.
2. Allir skólar í sveitum landsins
og allir barnaskólar í landinu,
eiga að kenna ágrip undirstöðu
atriða jarðyrkjunnar. Upplýsa
um gróðurmátt moldarinnar
og innræta lærlingum trú og
hollustu við hina gróandi jörð.
3. Efla verður nýbýlarækt svo
sem frekast má verða, í fram-
haldi af byrjun þeirri, scm orð-
in er, og veita rafmugningu
um sveitirnar.
4. Búnaðarfélag íslands og bún-
aðarsamböndin eiga að efla
mjög námskeið um allar
byggðir landsins til fræðslu og
eflingar landbúnaðinum. Sá fe-
lagsskapur, einkum Bunaöar-
félag íslands, viða sem mesru
að sér i íslenzka landbúnaðai-
kvikmynd og sýna hana oft og
mörgum sinnum út um allai
byggðir landsins.
5. Héraðasamtökin í Reykjavík
og í öðrum kaupstöðum eiga að
taka sér það fyrir hendur — til
þess að verða til emhvers
gagns, að vinna að og koma á
fólksflutningi af mölinni og út
í sveitimar. Þáð er miklu nær
en að flytja inn erlent fólk og
nóg verður atvinnuleysi í þétt-
býlinu, þegar allir stríðspen-
ingar eru fjaraðir út og allir
aukastyrkir horfnir.
6. Miklu meira þarf að ræða og
rita um landbúnaðinn, bæði í
ríkisútvarpinu og á annan hátt.
Letðandi menn landbúnaðar-
ins, þurfa að láta miklu meira
til sín heyra bæði á námskeið-
um og annars staðar, þar sem
þeir ná til fólksins. Þeir þurfa
líka að sýna sem oftast verk
legt framtak. Ríkisútvarpið
þarf að fjalla miklu meira um
landbúnaðinn, þó að það væri
á kostnað frétta urri síld og
íþróttir. Það á að flytja miklu
meira af fréttum um landbún-
aðarmál, ræktun, uppskeru-
horfur og sveitanna málefni.
En á öllum þessum breiða
grundvelli eiga einkunnarorðin
að vera hin sömu: Helmingur
þjóðarinnar verður að stunda
landbúnað, landbúnaðurinn
verður að framleiða nægilegt
til innlendra þarfa og mikið
vörumagn á erlendan markað.
Ný, kröftug ræktunaröld
verður að rísa í landinu, sem
gefur hugsjónunum byr undir
báða vængi. Hugsjónunum um
að magna hinn íslenzka gróður
fegra og fjölga sveitabýlunum
efla sveitamenninguna. Efla
trúna á landið og hina gróandi
jörð.
Fundist liefur
Kvenarmbandsúr
vitjist í Gránufélagsgötu 6
Bifreiðakennsla
Georg Jánsson, Sími 233
Þinavallaför á hesfum í sumar
Þann 8. júlí n.k. verður á Þingvöllum lands-
sýning á reiðhrossum. Þann 9. júlí landskapp-
reiðar á skeiði og stökki. Einnig dregið í happ-
drætti um 5 góðhesta.
Þann 8. júlí n. k. veröur á Þing-
öllum Iandssýnmg á reiölirossum.
Þann 9. júlí lanaskappreiðar á
skeiði og stökki. Einnig dregið í
liappdrætti um 5 góðhesta.
Landssambánd Hestamannafé-
laga liefir ákveðið að balda lands-
mót á Þingvöllum dagana 8. og 9.
júlí 1950. Verða verkefni mótsins t
■iðalatriðum þessi:
1. Sýning á stóðhestum, sem eru
tamdir til reiðar.
2. Sýning á tveggja og þriggja
vetra stóðhestum, bandvönunt, sem
taldir eru álitleg reiðhestaefni.
3. Sýning á hryssum, sem eru
tamdar til reiðar.
4. Sýning á reiðhestum, er tald-
ir eru úrvalsgæðingar. .
5. Kappreiðar fyrir skeiðhesta og
stökkhesta.
Öll liross, sem taka eiga þátt i
sýningunni á Þingvöllum, skulu
skrásett á strstök eyðublöð. Skulu
hestamannafélögin sjá um skrásetn-
ingu, hvert á sínu svæði. Verðúr
skrásetningu að vera lokið fyrir 1.
júní 1950.
Peningaverðlaun verða veitt fyrir
tamda stóðhesta og tarndar reið-
luyssur, er dæmdar verða eftir stiga-
töflú reglugerðar Búnaðarfélags ís-
lands.
Gæðingakeppni verður þannig,
að tveir úrvalsgæðingar frá liverju
hestamannafélagi innan sambands,
fá að keppa um heiðursverðlaun,
sem veitt verða fimm beztu gæðing-
unum.
Kapþreiðar verða:
A. Fyrir skeiðhesta á 250 m. Lág-
markshraði til fyrstu verðlauna 24
sek. 1. verðlaun 3000 kr. 2. verð-
laun 2000 kr. 3. verðlaun 1000 kr.
4. verðlaun 600 kr. 5. verðlaun 400
kr.
Auk þcssara verðlauna verða
veitt flokksverðlaun í hverjum
flokki, 300 kr. fyrir fyrsta hest og
100 kr. fyrir þann næsta.
Landssamband liestamannafélaga
heíir stol'nað til happdrættis. Eru
vinningarnir fimm: hvcr þeirra
góðhestur með nýjurn reiðtygjum.
Dregið verður 9. júlí. Heppnir þátt-
takendur í þeim leik geta svo stigið
a bak sínum eigin gæðing, og riöið
um Þingvöll og áleiðis lieim, þó að
þeir hafi farið hestlausir að heiman.
í tilefni af móti þessu á Þingvöll-
um hefir Hestamannafélagið Léttir
á Akureyri ákveðið Þingvallaför á
hestum. Einnig hefir Eerðafélag
Akureyrar tekið á sína áætlun Þing-
vallaför á bílum. Er gert ráð fyrir
að félögin liafi að einhverju leyfti
samvinnu um þessar ferðir.
Líklegt er að þátttaka Eyfirðinga
í mótinu geti orðið sæmileg. í Eyja-
firði liafa lengi verið falleg hross,
eigi síður en í öðrum sveitum. Hef-
ir oft farið saman fegurð og fjöl-
hæfni reiðhrossa. Mun svo vera
enn, að í héraðinu séu margar fall-
egar liryssur og nokkrir Ijómandi
fallegir gæðingar, sem vert væri að
sýna á slíku landsmóti. Þá er líka
víst, að stökkhestar eru liér nokkrir
allgóðir.
Hestamannafélagið Léttir stofnar
til kappreiða á skeiðvelli félagsins
21. maí n. k. Er þá tækifæri til að
velja liesta til þátttöku í kappreið-
unum á Þingvöllum. Þá er einnig
tækifæri fyrir þá, scm eiga góðhryss-
ur, að koma mcð þær á kappreið-
arnar og prófa þær þar ásamt öðr-
um til að senda á landssýninguna.
Beztu gæðingarnir vérða líka að
vcra til sýnis á kappreiðum Léttis,
því að þar eða litlu síðar verða
valdir tveir liestar liéðan til að taka
þátt í góðhestakeppninni á Þing-
völlum.
Það er sérstaklega óskað eftir, að
formenn liestamannafélaganna geri
nákvæma skýrslu um það, live
margir menn komi ríðandi á Þing-
völl úr sínu byggðarlagi, og live
marga liesta þeir hafi meðferðis. Er
því nauðsynlegt að allir, sem ætla
sér með liesta á rnótið, gefi sig fram
fyrir lok þessa mánaðar við Jóliann-
es Jónasson, Eyrarlandsveg 20, eða
Árna Magnússon, Glerárgötu 9, Ak-
ureyri. Gefa þeir allar nauðsynleg-
ar upplýsingar uin landsmótið og
fyrirhugaðar ferðir frá Akureyri
þangað.
Þ. Þ.
Maðurinn minn,
SIGFÚS ÓLAFSSON, frá Melgerði í Saurbæjarhreppi,
andaðist á sjúkrahúsinu Akureyri laugardaginn 13. þ. m. —
Jarðarförin er ákveðin þriðjudaginn 23. þ. m. að Möðruvöllum
í Eyjaíirði kl. 1 e. h.
Vigfúsína Jónsdóttir og börn.
Maðurinn minn og faðir okkar,
SIGFÚS JÓNSSON, Kotá,
verður jarðsunginn laugardaginn 20. maí kl. 2 e. h. — Jarð-
arförin fer frarn frá Akureyrarkirkju. — Blóm og kranzar
efbeðið.
Brynhildur Þorláksdóttir og börn.
Orðsending
Gjalddagi Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar er i
| nú 1. júní. Þeir, sem síður vilja láta innheimta ársgjaldið t
^ félagsins fyrir mánaðamótin.
Gjaldkerinn.
♦♦♦♦♦♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^♦^