Dagur - 28.06.1950, Síða 1
XXXIII. árg.
Akureyii, miðvikudaginn 28. júní 1950
30. tbl.
Finnska söngkonan Rautavara
heídur hljómleika hér næstkom
andi þriðjudag
Hljómsveitarstjórinn Jussi Jalas aðstoðar
með píanóundirleik
Fulltrúar samvinnusambandanna á Norðurlöndum
dvöldu hér um helgina
Þótti rnikið tií koma starfsemi sam-
vimmmanna á Akureyri og Eyjafirði
Á sunnudaginn kom hingað fölmeimur hópur góðra erlendra
gesta í boði Sambands ísl. samvinnufélaga og Kaupfélags Ey-
firðinga. Voru þetta fulltrúar samvinnusambandanna á Norður-
löndum, sem sátu aðalfund Nordisk Andelforbund í Reykjavík
í s. 1. viku. í þessum hópi voru allir aðalframkvæmdastjórar norrænu
samvinnusambandanna og margir aðrir af leiðtogum samvinnu-
hreyfingarinnar á Norðurlöndum.
Að undanförnu hafa ágætir
finnskir gestir gist Reykjavík á
vegum Tónlistarfélagsins þar. —
Eru það söngkonan fræga Aul-
ikki Rautavara og finnski hljóm-
sveitarstjórinn Jussi Jalas, tengda
sonur Sibeliusar, kunnur og
ágætur tónlistarmaður. Rauta-
vara er kunnasta söngkona
Finna og hefur hún haldið hljóm-
leika víða um lönd og hlotið góða
dóma. Þessir finnsku listamenn
hafa haldið hljómleika í Reykja-
vík og hlotið mikið lof gagnrýn-
enda í höfuðstaðnum og áheyr-
enda fyrir.
Tónlistarfélagið hér hefur jafn-
an lagt áherzlu á að fá hingað
kunna listamenn, sem gista höf-
uðstaðinn, og hefur því orðið vel
ágengt í því efni. Bæjarmönnum
munu þykja það góð tíðindi, að
þessir listamenn eru væntanlegir
hingað og munu halda hljómleika
í Nýja-Bíó þriðjudaginn 4. júlí
næstk. fyrir styrktarmeðlimi
Tónlistarfélagsins og gesti þess.
Verða þetta einu hljómleikarnir,
sem þau halda hér.
Tónlistarfélagið biður þess get-
ið, að tekið sé á móti nýjum
styrktarfélögum og geta menn
snúið sér til Jóns Halls Sigur-
björnssonar eða Jóhanns Ó. Har-
aldssonar og látið skrá sig. Nýjir
meðlimir greiða hálft gjald til
áramóta.
Ferðafélagið skoðar
Hóla og Drangey um
næstu helgi
Ferðafélag Akureyrar fer
skemmtiferð til Skagafjarðar
um næstu helgi. Farið verður
frá Akureyri, laugardaginn kl.
14. Ekið verður að Hólum í
Hjaltadal og þaðan að Hofsós og
gist þar. Á sunnudaginn verður
farið út í Drangey, ef veður leyf-
ir. En verði ekki farið í Drangey,
verður ■ gengið á Þórðarhöfða,
svo ekið um Sauðárkrók heim um
kvöldið. Farmiðar seldir á
fimmtudag, 29.
Föstudaginn 7. júlí verður
skemmtiferð til suðurlands. Far-
ið verður um Reykjavík til Þing-
valla, austur í Þjórsárdal, svo að
Skálholti, Laugavatni, Geysi,
Gullfoss og norður um Kjöl. Far-
miðar seldir á þriðjudaginn, 4.
og miðvikudaginn 5. júlí.
herra kemur til Ákur-
eyrar á morgun
Ðanski sendiherrann á fs-
Iandi, frú Bodil Begtrup, er
væntanleg til bæjarins á
inorgun og mun dvelja hér
fram yfir helgi. Ráðgert er,
að kvenfélög bæjarins haidi
henni samsæti hér. Sendi-
herran er, sem kunnugt er,
kunnur leiðtogi í málefnum
kvenna, bæði heima í Dan-
mörk og á alþjóða vettvangi.
Héraðsmót UMSE
um næstk. helgi
að Hrafnagili
Héraðsmót Ungmennasambands
Eyjafjarðar verður haldið að
Hrafnagili næstk. laugardag og
sunnudag. Fer þar fram íþrótta-
keppni, söngur, Karlakórinn
Heimir í Skagafirði, ræðuhöld o.
fl. Dansað verður í samkomu-
skálanum bæði kvöldin.
Starfsemi UMSE færist nú í
vöxt. Hefur Sambandið fastan
starfsmann til íþróttakennslu,
þrátt fyrir niðurskurð á opinber-
um styx-kjum til íþróttastarfsemi.
Haraldur Sigurðsson íþróttakenn
ari annast leiðbeiningar fyrir
Sambandið.
Ungmennafélagar búast við
fjölmenni að Hi-afnagili um helg-
ina.
Einar Kristjánsson
óperusöngvari
syngur í kvöld
Einar Kristjánsson óperu-
söngvari efnir tii hljómleika
i Nýja-Bíó á Akureyri í
kvöld kl. 9. Píanóundirleik
annast frk. Guðrún Kristins-
dóttir. Óperusöngvarinn dvel
ur hér á landi um þcssar
mundir í sumarleyfi frá kon-
unglegu óperunni í Kaup-
mannahöfn og eru þetta
fyrstu opinberu hljómleikar
hans hér á landi á þessu ári.
Einar Kristjánsson syngur
lög eftir Schubert, Melartin,
Grieg, Donizetti og Puccini,
og að auki nokkur lög eftir
íslenzk tónskáld. — Tónleik-
arnir verða ekki endurtekn-
ir. Fer söngvarinn héðan úr
bænum á fimintudaginn. Er
þetta því eina tækifæri Ak-
ureyringa til þess að lilýða á
þennan ágæta söngvara að
þessu sinni.
í förinni voru þessir samvinnu-
leiðtogar: Frá Svíþjóð: Albin Jo-
hansson foi-stj. KF í Stokkhólmi
og frú, aðrir fulltrúar sænska
samvinnusambandsins voru: V.
Petersen fi'amkv.stj. og frú Gust-
av Andei-sen fi-kv.stj. og frú Niels
Lovén frkv.stj. og frú H. Edsdam
frkv.stj. og Hjalmar Degei-stedt
frkv.stj. Frá Danmöi-k: Fredrik
Nielsen foi-stj. FDB og Nordisk
Andelsfoi-bund, C. Poulsen
frkv.stj. og frú, og Ebbe Groes,
framkvæmdastjóri. Frá Noregi:
Sverre Nielsen, foi-stjóri NKL í
Osló og- fi-ú, R. Sömmengsen
framkv.stj. og frú. Fi-á Finnlandi:
Julius Alanen foi-stj. og frú,
Jalmai-i Lakso forstjóri, P. Viel-
ing foi-stjóri, fyri-v. ráðherra, og
frú, E. Alajoki foi-stjóri og frú og
L. Hietanen forstjóri og dóttir.
Með í föi-inni að sunnan voru og
Vilhjálmur Þór forstjóri og frú,
Óli Vilhjálmsson framkvæmdastj.
SÍS í Kaupmannahöfn og nokkrir
af stai-fsmönnum SÍS í Reykja-
vík.
Dvölin á Akureyri.
Fori-áðamenn KEA tóku á
móti gestunum. Gistu þeir á
Hótel KEA. Á sunnudagsmorg-
uninn var gengið til kii-kju og
kirkjan skoðuð. Þar lék Jakob
Tryggvason einleik á oi-gelið og
Einar Kristjánsson óperusöngvari
söng. Síðar um daginn skoðuðu
fulltrúarnir fyrirtæki SÍS og KEA
hér á staðnum, en síðdegis var
ekið fram í Eyjafjörð og þaðan í
1 Vaglaskóg. Hafði KEA þar kvöld-
verðarboð fyrir gestina. Jakob
Frímannsson framkvæmdastjóri
stjói-naði hófinu og bauð gestina
velkomna. Karlakórinn Geysir
söng, ennfremui- Einar Kristjáns-
son ópei-usöngvaiú.
Hrifnir af samvinnustarfinu
á Akureyri.
Meðal x-æðumanna úr hópi er-
lendu gestanna voru Albin Jo-
hansson, Svíþjóð, Frederik Niel-
sen, Danmöi-k, Ebbe Groes, Dan-
möi-k, Vieling, fyrrv. ráðherra,
Finnland, Gustaf Andei-sen, Sví-
þjóð, Sverre Nielsen, Noregi og
R. Sömmengsen, Noregi. Luku
þeir allir lofsoi'ði á starf sam-
vinnuhreyfingarinnar hér um
slóðir og töldu Akureyri í
fi-emstu röð samvinnubæja á
Norðurlöndum. Yfii-leitt voru
hinir erlendu gestir mjög ánægðir
með íslandsförina og ekki sízt
með ferð sína hingað norðui’,
enda þótt veður væri óhagstætt
og ekki yrði af þeim sökum úr
ferð til Mývatns, sem ráðgerð
hafði verið.
Gestimir héldu suður með bif-
reiðum og flugvélum í gær.
Orlofsferð um næstu
helgi
Ferðaski-ifstofan efnir til or-
lofsfei-ðar um næstu helgi. Verð-
ur farið frá Akui-eyri um Húsa-
vík til Lindarbrekku og gist þar
á laugardagsnóttina, en síðan ek-
ið í Ásbyrgi, að Dettifossi, um
Grímsstaði og Mývatnssveit til
Akureyrar.
Kóreustríðið:
Bandaríkjamenn
veita Suður-
Kóreumönnum
hernaðarhjálp
í gær tilkynnti Truman Banda-
ríkjaforseti að bandaríska flot-
anum og flughernum hefði ver-
ið fyrirskipað að veita Suður-
Kóreumönnum virka hjálp
gegn innrás kommúnista og
ennfremur að 11. bandarísku
flotadcildinni hefði verið fyrir-
skipað að gæta eyjarinnar For-
mosu, sem er aðsetur Kuo-
mingtang-stjómarinnar kín-
versku. Óttast menn mjög
að árásarstríð kommúnista á
Kóreu kunni að hafa alvarleg
tíðindi í för með sér, með því
að það er rússneskt leppríki,
sem er árásarstríðinu stendur.
liákon Bjarnason skógræktar-
stjóri var hér á ferð í gær. Kvað
liann vaxandi áhuga í mörgum
héruðum fyrir skógrækt og taldi
vígslu Heiðmerkur í Reykjavík
mjög merkan áfanga í skógrækt-
armálum landsmanna.