Dagur - 28.06.1950, Side 6
6
D AGUR
Miðvikudaginn 28. júní 1950
ÍÞRÓTTIR
Ágæt frammistaða Akureyringa í
Reykjavík.
Frjálsar íþróttir hafa ekki náð
eins miklum vinsældum hér á
Akureyri eins og víða annars stað
ar á landinu. Hér verður ekki
leitazt við að skýra það, enda e.
t. v. margra orsaka að leita. —
Væntanlega verður breyting á
þessu, þegar nýja íþróttasvæðið
verður fullgert. En það verður
sjálfsagt löng bið á því, ef miðað
er við núverandi gang verksins.
Nú virðist vera að færast meii-a
líf í frjálsar íþróttir hér. Allmarg-
ir kornungir piltar og stúlkur
iðka þær af kappi. Eg er ekki
spámaður, en læt þó þá skoðun í
Ijósi, að sá áhugi leiði til vænlegs
árangurs, áður en yfir lýkur.
í Reykjavík er háð árlegt
íþróttamót í frjálsum íþróttum
17. júní. Að þessu sinni voru þrír
Akureyringar þátttakendur. í
1500 m. hlaupi varð Óðinn Árna-
son úr K. A. fjórði að marki, á
ágætum tíma, 4 mín. 19,0 sek.,
sem er nýtt Akureyrarmet, Óð-
inn varð annar í 800 m. hlaupinu
á 2 mín. 05,0 sek., sem er einnig
nýtt Akureyrarmet. Óðinn er
bezti millivegalengdahlaupari á
Akureyri og líklega utan Reykja-
víkur. Hann er ennþá í drengja-
flokki. Má hiklaust vænta þess, að
hann verði afrekshlaupari.
í 800 m. hlaupinu varð 16 ára
piltur héðan sá fjórði í röðinni á
ágætum tíma, 2 mín. 07,4 sek. Á
Drengjamóti Ármanns sigraði
þessi sami piltur með yfirburðum
á 4 mín. 24,0 sek. — Nafn þessa
kornunga íþróttamanns er Einar
Gunnlaugsson, og er hann í
íþróttafélaginu Þór. Það þarf
ekki að skrifa mikið um Einár
eða framtíð hans sem íþrótta-
manns. Það verða sjálfsagt nógir
um það.
Þriðji Akureyringurinn, sem
keppti á 17. júní mótinu var Har-
aldur Jóhannsson úr K. A. Hann
varð annar í þrxstökkinu með
13.15 m. og annar í langstökki,
6,58 m. Hvoru tveggja afrekin eru
ágæt og lofa sérlega góðu síðar.
Frammistaða þessara ungu
manna sýnir, að nú þegar eigum
við marga menn, sem standa
reykvískum íþróttamönnum á
sporði í frjálsum íþróttum.
Hestur hefur tapast
frá Akureyri. Dökkrauður
á lit. Tvífextur og mjög
styggur. Mark: Heilt hægra
eyra og biti framan og fjöð-
ur aftan vinstra. — Hefur
sennilega farið út með
Eyjafirði að vestan, eða
frarn Hörgárdal. — Vin-
samlegast látið vita, ef
liestsins verður vart.
Jón Jónsson,
Hjalteyrargötu l,
Akureyri.
Herbergi til leigu
í Hafnarstræti 47, — Sími
795.
Haukur Pétursson.
TILKYNNING
Innflutnings- og gjaldeyrisdeild Fjárhagsráðs hef-
ur ákveðið, að <511 verðlagsákvæði á barnaleikföng-
um, bæði að því, er snertir framleiðslu og verzlun,
skuli úr gildi fallin.
Reykjavík, 22. júní, 1950,
Verðlagsstjórinn,
Auglýsing um lax- og silungsveiði
Að gefnu tilefni skal hérmeð vakin athygli á því, að
á hinum lögákveðna veiðitíma samkvæmt lcigum um
lax- og silungsveiði er lax og göngusilungur friðaður
fyrir allri veiði annarri en stangarveiði, frá föstudags-
kvöldi kl. 9 til mánudagsmorguns kl. 9. Ádrátt má auk
þess aldrei Iiafa frá kl. 9 síðdegis til kl. 9 árdegis, og
aldrei nema þrjá daga í viku hverri, frá mánudegi til
miðvikudags. Ádráttarveiði í ósum og í leirum er al-
gjörlega bönnuð. Brot gegn ákvæðum þessum varða
sektum. Veiðitæki, sem notuð eru ólöglega, og ólöglegt
veiðifang verður gert upptækt.
Skrifstofu Eyjafjarðarsýslu og Akureyrar,
27. júní 1950.
Héraðsmót UMSE
verður haldið að Hrafnagili 1. og 2. júlí n. k. og
hefst kl. 1 e. h. á laugardag. Þá fara fram undan-
arásir í frjálsum íþróttum.
Dansinn hefst kl. 10.
Sunnudaginn 2. júlí hefst mótið kl. 1.30 e. h.
Fjölbreytt skemmtiskrá. M. a. syngur karlakór-
inn Heimir frá Skagafirði undir stjórn Jóns Björns-
sonar. — Úi'slit í frjálsum íþróttum o. fl.
DANS - VEIT I N GAR
(Nánar auglýst síðar..)
Ungmennasamband Eyjafjarðar.
Góður trillubátur,
með 3ja ha. Solovél, er til
sölu nú þegar.
Upplýsingar í Ásgarði 2,
Glerárþorpi.
Herbergi
Tilkynning
frá Sjúkrasamlagi Akureyrar
Iðgjöld samlagsmanna hækka úr kr. 15.00 í
18.00 á mánuði, frá og með 1. júlí n. k.
Sjúkrasamlagið.
AÐALFUNDUR
Flugfélags Islands h.f.
verður haldinn í Kaupþingssalnum í Reykjavík
föstudaginn 14. júlí 1950, kl. 2 e.-h.
DAGSKRÁ:
Venjuleg aðaljundarstörf.
Afhending atkvæða- og aðgöngumiða að fundinum
fer frarn í skrifstofu vorri í Lækjargötu 4, miðviku-
daginn 12. og fimmtudaginn 13. júlí, kl. 2—4 e. h.
S t j ó r n i n .
Pönnuköku-
hveifi
Stúlka
Verð kr. 1.60 pakkinn
(gamalt verð).
til leigu í nýju húsi. Hent-
ugt fyrir 1—2 stúlkur.
Upplýsingar í síma 1509,
itl kl. 6 e. h.
Nýlenduvörudeild
"" ■1 ...
Fljót soðið
Haframjöl
irá Hollandi.
Verð kr. 2.90 pakkinn.
Nýlenduvörudeild
Fjármark
óskar eftir atvinnu yfir júlí-
mánuð, helzt í sveit.
Afgreiðslan vísar á.
Stúlka
óskar eftir ráðskonustarfi
eða annari atvinnu.
Upplýsingar í
Bakkaseli.
Bifreið
Tilboð óskast í 4 manna
Junior Ford-bifreið. Vel
meðfarin. — Tilboðum sé
skilað fyrir næstk. mánaða-
mót til
StefÚ7is Vilmundarsonar,
Hríseyjargötu 2,
Akureyri.
Perlufesti
fannst í maí.
Afgr. vísar á.
Símanúmer okkar er:
1180
Bókaverzlun
Björns Árnasonar,
Gránufélagsgötu 4,
Akureyri.
Auglýsing
Steingrár hestur, skaflajárn-
aður, er í óskilum á Hánefs-
stöðum í Svarfaðardal.
Mark: Biti aftan liægra,
sýlt vinstra.
Fágandi vitji hestsins hið
allra fyrsta og greiði áfallinn
kostnað.
Hánefsstöðum, 23/6 1950.
Friðrik Sigurðsson.
KÝR
Góð, mjólkandi kýr óskast
strax,
Afgr. vísar á.
Ungur maður
óskar eftir atvinnu. Vanur
sveitavinnu.
Afgr. vísar á.
11 ára drengur
óskar eftir atvinnu. Vanur
sveitavinnu.
Afgr. vísar á.
Undirritaður hefur fengið
til eignar fjármark Stein-
grfms Jóhannessonar frá
Yztuvík: blaðstýft aftan
hægra, tvíbitað aftan
vinstra.
Jón Scemundsson,
Fagrabæ.
BÁTUR
Árabátur til sölu.
Afgr. vísar á.
Stúlka óskar eftir
litlu herbergi
til leigu.
Afgr. vísar á.
íbúð til sölu
2 herbergi og eldhús.
'v Afgr. vísar á.
Jafnstraums-rafmótor,
1/2 ha., fyrir 220 volta
spennu, er til sölu.
Guðm. Guðmundsson,
Knararbergi.
Kolaeldavél
og ÞVOTTAPOTTUR
óskast. Upplýsingar í
Búnaðarbankanum.