Dagur - 28.06.1950, Blaðsíða 8
8
Daguk
Miðvikudaginn 28. júní 1950
Leppríki Rússa gerir innrás
í Suður-Kóreu
Öryggisráðið fyrirskipar, að vopnaviðskiptum
skuli hætt
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna var kallar saman á fund síðastl.
sunnudag til þess að ræða innrás Norður-Kóreumanna inn í Suður-
Kóreu og gcrði ráðið þá samþykkt, að Norður-Kórea hefði með
innrás sinni í Suður-Kóreu rofið friðinn og stofnað heiinsfriðinum í
hættu. — Ákvað Öryggisráðið með 9 atkvæðum gegn engu, — en
fulltrúi Júgóslavíu sat hjá og fulltrúi Rússa mætti ekki á fundi, —
að leggja fyrir stjóm Norður-Kóreu að kalla allt herlið sitt aftur
norður fyrir 38 breiddargráðu. Samþykkt Öryggisráðsins er sam-
kvæmt 39. gr. 7. kafla sáttmála S. Þ., þar sem gert er ráð fyrir að
Öryggisráðið geti ákveðið, hvort friður hafi verið rofinn, þótt um
formlega stríðsyfirlýsingu hafi ekki verið að ræða.
Samvinnumenn ákveða að koma
á fóf bygginga lánsstofnunum
Áherzla lögð á að forðast skuldasöfnun á
aðalfundi Sambands ísl. samvinnufélaga
í næstu greinum eru svo ákvæði
um refsiaðgerðir, sem Óryggis-
ráðið getur samþykkt á hendur
hverjum þeim aðila, sem stofnar
heimsfriði í hættu. í gær mun
Öryggisráðið aftur hafa komið
saman og væntanlega rætt þá
hvaða ráðstafanir skuli gera, ef
deiluaðilar í Kóreu hafi ekki
hætt bardögum.
Sækja til höfuðborgarinnar.
í fréttum af bardögum í Kóreu
segir, að herir Norður-Kóreu
sæki fram á þrem stöðum og sé
einn herinn kominn inn í höfuð-
borgina Seoul og hafi komizt
yfir fljót, sem sé einasta hindrun-
in á leiðinni til höfuðborgar Suð-
ur-Kóreu. Þegar herinn sótti yf-
ir fljót þetta beitti hann fyrir sig
90 skriðdrekum.
Þingið var sett í hátíðasal Mcnnta-
skólans að morgni 21. júní af for-
manni félagsins, Kristni Ármanns-
syni yfirkennara ,og var fundar-
stjóri kosinn Brynjólfur Sveinsson
og ritarar Aðalstcinn Sigurðsson og
Jón S. Guðmundsson.
Ný reglugerð um menntaskólana.
Aðal viðfangsefni fundarins var
að gera tillögur um nýja reglugerð
fyrir menntaskólana í samræmi við
fræslulögin nýju. Hefur þeim Þór-
arni Björnssyni skólameistara og
Pálma Hannessyni rektor verið falið
að semja nýja reglugerð fyrir haust-
ið. Var þetta efni mikið rætt á
fundunum og sérstök nefnd skipuð-
til þess að athuga það og ræða við
kennara í ýmsum greinum og reyna
að ná samkomulagi um skiptingu
stunda milli kennslugreinanna.
Nefndin vann ósleitilega að þessu
Brottflutningur.
Sendiherra Bandaríkjanna í
Seoul hefur skýrt frá því að
herjuin Suður-Kóreumanna hafi
tekizt að stöðva sókn herja Norð-
ur-Kóreumanna og séu nú all-
harðir bardagar á þrem stöðum
í Suður-Kóreu. Hafinn er brott-
flutningur bandarískra kvenna
og barna frá Suður-Kóreu.
Hergögn til Suður-Kóreu.
Bandaríkjastjórn hefur fyrir-
skipað MacArthur, hernáms-
stjóra sínum í Tokyo, að hraða
vopnasendingum til Suður-Kór-
eu og mun þegar hafinn flutning-
ur á vopnum þangað með flug-
vélum, en Suður-Kóreumenn
segja vopnin berazt of seint, enda
voru þeir óviðbúnir innrásinni,
en kommúnistar hafa skipulagt
hana vel.
og náðist að lokum fullt samkomu-
lag um þetta á fundinum og ein-
róma samþykkt áætlun um stunda-
skiptingu. Samkvæmt hinni nýju
áætlun fjölgar islenzkustundum
verulega, og er sú aukning ætluð
bókmenntalestri og hókmcnntasögu.
Einnig var nokkuð rætt um,
hvern einkunnastiga skyldi nota,
og var samþykkt að nota Orsted-
stiga í óbreyttu cða brcyttu formi,
en jafnframt kosin nefnd til þess
að athuga jiað mál bctur í sumar.
Hagsmunamál stéttarinnar voru
einnig til umræðu, og var stjórn
félagsins falið að vera á verði um
þau.
Erindi. — Stjómarkosning.
Á fundinum voru flutt tvö erindi.
Brynleifur Tobiasson sagði frá ferð
á fund menntaskólakcnnara í Nor-
egi sumarið 19-17, en hann sat Jiar
Jussi Jalas
Finnski hljómsveitarstjórinn Jussi
Jalas leikur undir á píanó fyrir
finnsku söngkonuna Rautavara,
sem syngur hér ó þriðjudags-
kvöldið. Jalas, setn er tengdason-
ur Sibeliusar, er kunnur lista-
tnaður og afburða snjall' pianó-
leikari.
r
Aætluð útsvars-
upphæð liækkuð
um 500 þ ús. kr.
Á bæjarstjórnarfundi í gær var
til umræðu samþykkt bæjarráðsj
frá 26. þ. m., um að hækka áætl-
aða útsvarpsupphæð um 500 þús.
kr. vegna togarakaupanna, sem
bærinn hefur gerzt aðili að með
loforði um hlutafjárframlag til
Utgerðarfélagsins, og vegna auk-
ins reksturskostnaðs bæjarins. —
Meiri hluti bæjarráðs hafði sam-
þykkt ályktun þessa og var hún
endanlega samþykkt á bæjar-
stjórnarfundi í gær. Má því búast
við að útsvarsstiginn hér hækki
eitthvað frá því, sem ráðgert hafði
verið, en það var að hafa hann
eins og í fyrra.
landsfund Norsk lektorlag sem full-
trúi Eélags menntaskólakennara.
Kristinn Ármansson flutti erindi
um alþjóðajiing FIPESO (Aljijóða-
sambands framhaldsskólakennara)
í Stokkhólmi 1949, j>ar sen\ hann
kom fram fyrir félagsins hönd.
Einnig skýrði hann frá heimsókn-
uni sínum í enska skóla og skóla-
íyrirkomulagi í Englandi og Sví-
þjóð.
Ivosin var nú stjórn fyrir félagið,
og skipa hana jiessir menn: Hall-
dór Halldórsson, formaður, Aðal-
steinn Sigurðsson ritari, Þórarinn
Björnsspn gjaldkeri, Kristinn Ár-
mannsson varaformaður, Jón S.
Guðmundsson vararitari og Stela-
nía Guðnadóttir varagjaldkeri.
Endurskoðendur voru endurkosnir
Sveinn Þórðárson og Þóroddur
Oddsson.
Skilnaðarhóf.
Að loknum fundinum, að kvöldi
23. júní, buðu menntaskólakennar-
arnir hér sunnankennurunum til
borðhalds í Menntaskólanum. Þór-
arinn Bjiirnsson skólameistari stýrði
hófinu. Voru þar margar ræður
fluttar, frú Margrét Eiríksdóttir
lék cinleik á píanó, og Hermann
Stefánsson söng einsöng. Dansað
var og skemmtu mcnn sér hið bezta.
Áðalfundur Sambands ísl. saui-
vinnufélaga var haldinn í Reyltja
vík dagana 19.—21. júní sl. Sóttu
fundinn 95 fulltrúar frá 51 sam-
bandsfélagi, ault stjórnar, for-
stjóra, framkvæmdastjóra deilda
og ýmissa gesta.
Við setningu fundarins voru
mættir fulltrúar allra samvinnusam-
bandanna á Norðurlöndum, sem
hingað komu til aðalfundar Nor-
disk Andelsforbund og var jreim vel
fagnað hér. Voru jreir sérstaklega
boðnir velkomnir á aðalfundinum
af Vilhjálmi Þór forstjóra, en Albin
Johansson, leiðtogi sænskra sam-
vinnumanna, Jrakkaði af hálfu er-
lendu gestanna. Fundarstjóri á
aðalfundinum var Jörundur Bryn-
jólfsson alþm., varafundarst jóri Þór-
arinn Kr. Eldjárn og ritarar, kaup-
félagsstjórarnir Gunnar Grímsson
og Hjörtur Hjartar.
Sigurður Kristinsson, formaður
stjórnarinnar flutti skýrslu stjéirnar-
innar um framkvæmdir Sambands-
ins, en Vilhjálmur Þ<>r forstjóri
skýrslu um rekstur Jress og hag á
s. 1. ári, og loks framkvæmdastjórar
ýmissa deilda skýrslur um starf-
semi deilda sinna á árinu.
Aukin vöruvelta í krónutali.
Samkvæmt skýrslunum varð
heildarvöruvelta SÍS 197,8 millj.
króna á árinu, en var 195 millj. árið
1948. Heildarumsetningin skiptist
þannig milli aðkeyptra vara, inn-
lendra afurða og eigin framleiðslu:
Aðkeyptar vörur 19.9 ntillj. kr.
Innlendar afurðir 63.5 millj. kr.
Eigin framleiðsla 14.4 millj. kr.
Alls keypti Sambandið vörur frá
21 landi og seldi vörur til 14 landa.
Álagning gefin eftir.
Á árinu var lagt kapp á að koma
sem mestu vörumagni til Sambands-
félaganna án umhleðslu í Reykja-
vík og varð verulegur árangur af
því starli. Eigin skíp Sambandsins
fluttu t. d. 67 þúsund lestir af vör-
um til landsins og mest allt það
magn beint til félaganna á ýmsum
stöðum. Útkoma á rekstri skipa-
deildgrinnar varð góð á árinu. Þá
var haldið áfram að gefa sambands-
félögunum eftir helming lögheimil-
aðrar álagningar á matvörum.
Iðnaður.
Iðnaður sambandsins er í all-
miklum vexti. Velta iðnfyrirtækja
óx um 1.7 millj. kréma á árinu.
Þvottastiið Gefjunar á Gleráreyrum
var fullgerð á éirinu og tók til starfa,
til mikilla hagsbóta fyrir ullarfram-
leiðendur og ullariðnaðinn í land-
inu. Þá er haldið áfram endurbygg-
ingu Gefjunar. Er svo áður fyrir
grt, að Gefjun geti, að jrví verki
loknu, unnið dúka og band úr mest
allri ullarframleiðslu landsmanna.
Ráðstöfun tekjuafgangs.
Tekjuatgángur Sambandsins, er
afskriftir Löfðu verið íærðar, varð
kr. 600.503,52. 'Samjjykkti aðalfund-
urinn að skipta tekjuafgangi þann-
ig, að í varasjóð SÍS renna kr.
377.119,89 en í stofnsjóð kaupfélag-
anna kr. 223.386.63.
Varað við skuldasöfnun.
í ræðum forráðamanna Sam-
bandsins var brýnt fyrir kaupfélög-
unum og félagsmönnum Jteirra, að
forðast skuldajöfnun og bent á
nauðsyn þess að ráðast ekki í óhóf-
lega fjárfestingu. Kom glöggt f
ljós, að samvinnumenn búast við
erfiðum tímum í verzlunarmálum
nú um sinn.
Umræður og ályktanir.
Miklar umræðtir iirðu á fundin-
um um skýrslurnar og ýmis mál.
Merkasta ályktunin fjallar um jtá
ákvörðun samvinnumanna að
stofna fasteignalánastofnun sam-
vinnumanna, með fjármagni frá
tryggingarfélögunum og Samband-
inu. Verður því máli hrundið í
framkvæmd á næstunni. Þá var
minnzt 70 árd afmælis Sigurðar
Kristinssonar, fv. forstjóra, sem er 2.
júlí n. k., og þessum ágæta sam-
vinnumanni og fyrrv. forstjóra SÍS
þökkuð gifturík störf í þágu sam-
vinnusamtakanna.
í fundarlok hélt SÍS fulltrúunum
hóf að Tjarnarcafé. Voru þar marg-
ar ræður fluttar. Þá sátu nokkrir
fulltrúanna hóf, er Sambandið hélt
að Þingvöllum til heiðurs norrænu
fulltrúunum á aðalfundi Nordisk
Andelsforbund, sem haldinn var í
Reykjavík að aðalfundi Sambands-
ins loknum.
Stjórn Sambandsins og fulltrúa-
ráð tryggingafélaganna var endur-
kjörin.
Kirkjan opin daglega
fyrir gesti
Eins og undanfarin sumur er
Akureyrarkirkja opin daglega
fyrir þá sumargesti, sem hingað
koma og vilja skoða kirkjuna. —
Að gefnu tilefni er fólk minnt á
að ganga hljóðlega um þenna
helgidóm Akureyrarsafnaðar, að
rita nöfn sín í gestabókina og
þurrka vel af sér áður en það
gengur inn í kirkjuna.
í júlímánuði mun Jakob
Tryggvason orgelleikari leika
vikulega á orgel kirkjunnar. Er
j)að á miðvikudögum milli kl. 6
og 7 e. h. Er öllum heimill að-
gangur að þessum orgelleik.
Gestakoma liefur verið mikil
j)að sem af er sumrinu, og hefui'
fjöldi innlendra og erlendra gesta
heimsótt kirkjuna.
Menntaskólakennarar ræða nýja
menntaskóla reg I ugerð
Frá þingi félags menntaskólakeniiara, sein
haldið var hér í s. 1. viku
Félag menntaskólakennara hélt þing á Akureyri dagana 21.—23.
júní. — Að kvöldi 20. júní komu hingað 19 menntaskólakennarar frá
Rcykjavík í boði starfsbræðra sinna hér. Bjuggu þeir í hinu nýja
heimavistarhúsi og borðuðu á heimilum félaga sinna á Akureyri.