Dagur - 16.08.1950, Page 1
XXXm. árg.
Akureyri, miðvikudagin 11I6. ágúst 1950
35. tbl.
Minningarturn ións biskups Ara-
sonar og sona hans afhenfur Hóla-
kirkju síðastliðinn sunnudag
Hólar verða aftur prestssetur
Fjárskortur má ekki hamla því,
að sjúkrahúsið verði tekið fil af-
nofa á næsta ári
Forsætisráðherra mætir á fundi byggingarnefndar
sjúkrahússins og lofar aðstoð sinni við útvegun
lánsfjár, svo að byggingin verði tilbúin til afnoía
að næsta ári.
Síðastl. sunnudag íór fram
minningarhátíð Jóns biskups
Arasonar og sona hans lieima að
Hólum og var minningartuminn,
sem reistur hefur verið þar fyrir
forgöngu Skagfirðinga, vígður og
afhentur Hóladómkirkju.
Við þetta tækifæri birti Stein-
grímur Steinþórsson forsætisráð-
herra ráðuneytisboðskap um að
Hólar verði gerðir að prestssetri
aftur nú innan skamms, en nú um
nokkurt bil hefur hið forna bisk-
upssetur verið annexía.
Þúsundir manna að Ilólum.
Áætlað er að 3000—4000 manns
hafi sótt Hólahátíðina. Á laugar-
daginn var stórrigning um Skaga-
fjörð og vestanvert Norðurland,
en á sunnudagsmorgun birti og
gerði bezta veður. Hátíðin hófst
laust fyrir kl. 2 með því að gengið
var fylktu liði til kirkju, frá
gamla bænum. Fyrir skrúðgöng-
unni fór biskup landsins og
vígslubiskupar í fullum skrúða
og þar næst 30 hempuklæddir
prestar. Þá gengu ráðherrar og
sendiherra Norðmanna, sem sótti
hátíðina og síðan aðrir gestir. í
kirkju prédikaði Firðrik J. Rafn-
ar vígslubiskup en biskupinn,
Sigurgeir Sigurðsson og Bjarni
Jónsson vígslubiskup þjónuðu
fyrir altari. Kirkjukór Sauðár-
króks söng undir stjórn Eyþórs
Stefánssonar. Prófastur Guð-
brandur Björnsson las afhending-
arbréf turnsins. Er turninn gefinn
Hóladómkirkju. — Biskuparnir
vígðu turninn og sjðan var þjóð-
söngurinn sunginn. Var öll þessi
athöfn hátíðleg og vii'ðuleg.
Síðar um daginn flutti Magnús
Jónsson prófessor erindi í kirkju
um Jón biskup Arason og síðan
hófst útisamkoma. Þar töluðu
Steingrímur Steinþórsson forsæt-
isráðherra og birti hann boðskap
þann, sem fyrr getui'. Rakti ráð-
herrann sögu Hólastaðar í fróð-
legri ræðu. Sigurður Sigurðsson
sýslumaður flutti minni Skaga-
fjarðar. Þá vöru flutt ávörp og
lesin kvæði.
Að lokum blessaði biskup
mannfjöldann og þjóðsöngurinn
var leikinn. Hátíðagestum ber
saman um að hátíðin hafi verið
hátíðleg og virðuleg og allur und-
irbúningur vel af hendi leystur.
Skoðanir manna um minnis-
merkið sjálft eru skiptar, en flest-
ir telja það reisulegt og virðulegt
og setja svip á staðinn.
Innflutnmgur
Eandaríkjanna
frá Evrópulönd-
um fer vaxandi.
Skýrslur ameríska verzlnunar-
málaráðuneytisins herma, að inn-
flutningur evrópskra vara til
Bandaríkjanna fari vaxandi, en
útflutningur bandarískra vara til
Evrópu minnkandi. Hækkaði inn-
flutningurinn t. d. úr 73 millj. doll
ara í apríl í 93 millj. í maí og var
19% meiri það sem af er árinu en
í fyrra. Á sama tíma minnkaði
útflutningur Bandaríkjanna til
Evrópulanda verulega. — Aukin
kaup Bandaríkjamanna á varn-
ingi Evrópulanda er einn liður
Marshalláætl unarinnar.
Rússneskt skip
sektað hér.
Hinn 12. þ. m. kom varðskipið
Ægir hingað með rússneska síld-
veiðiskipið Gond. Rússneska
skipið var á siglingu undan
Grjótnesi, innan landhelgi, með
ólöglega umbúin veiðarfæri. —
Rússneska skipið var sektað hér
um 2500 kr. og gert að greiða
málskostnað.
Verkamenn segja upp
kjarasamningum
Verkamannafélag Akureyrar-
kaupstaðar og Verkakvennafé-
lagið Eining hér í bæ hafa sagt
upp kaup- og kjarasamningum
sínum við atvinnurekendur. Falla
samningarnir úr gildi 15.. sept.
næstk. Flest stærstu verklýðsfé-
lög landsins hafa nú sagt upp
samningum frá 15. sept.
Vinnuskólanefnd fær
land til undirbúnings
ræktunar og heimilast
fé til byrjunarfram-
kvæmda
Nefnd sú, er kosin var í vor til
að athuga og gera kostnaðaráætl-
un um væntanlegan vinnuskóla,
hefur nú skilað áliti og tillögum
sínum til bæjaryfirvaldanna. —
Samkvæmt tillögum bæjarráðs
var nefndinni á bæjarstjórnai'-
fundi í gær heimilað land til und-
irbúningsræktunar og jafnframt
heimilað að verja á þessu ári allt
að kr. 15.000.00 til að brjóta land-
ið og undirbúa það til ræktunar
með tilliti til þess, að vinnuskóla
verði komið á fót á næsta vori.
Málmhúðun KEA smíð-
ar föstu sætin í stóra
sal samkomuhússins
Svo sem áður hefur verið skýrt
frá hér í blaðinu, hafa ráðamenn
bæjarins ákveðið að setja föst
sæti í stóra salinn í Samkomu-
húsi bæjarins. Nú hefur bæjar-
ráð og bæjarstjórn samþykkt að
taka tilboði, sem borizt hefur frá
Málmhúðun K. E. A., um að
smíða þessi sæti, þó að því til-
skildu, að bæjarráð hafi heimild
til að breyta sætafjölda og sömu-
leilðis áklæði eftir ákvörðun síð-
ar, og breytist þá verð og kostn-
aður samkvæmt því.
I sambandi við þetta var lagður
fram uppdráttur af fyrirkomulagi
á sætum í húsinu og breytingum
á leiksviði þess og svölunum í
stóra salnum. Fól bæjarráð bæj-
arstjóra að leita umsagnar arki-
tekts um væntanlegar breytingar.
Á fundi byggingarnefndar
sjúkrahússins 28. fyrra mánaðar
skýrði bæjarstjóri frá því, að
hann hefði fari ðtil Reykjavíkur
og átt tal við forstjóra Trygg-
ingastofnananna um lán til
sjúkrahússins. Taldi forstjórinn,
að stofnanirnar mundu ekki geta
lánað að svo stöddu nema kr.
300.000.00, og þó með þeim skil-
yrðum, að Akureyrarbær greiddi
það, sem hann skuldar stofnunum
fyrir yfirstandandi ár, sem mun
véra 3 til 400 þúsund kr.
Þá skýrði bæjarstjóri frá, að
heilbrigðismálaráðherra mundi
mæta á fundi nefndarinnar næst-
komandi mánudagsmorgun.
Ákvað nefndin að leggja ríka
áherzlu á það við ráðherrann, að
hann útvegaði lán hjá Almanna-
tryggingunum eða annars staðar,
allt að 1 millj. kr. til endur-
greiðslu seinni hluta þessa árs og
fyrri hluta næsta árs. Sömuleiðis
að hann kæmi því til leiðar, að
gjaldfrestur fengist á tollaf-
greiðslum og opinberum gjöldum
meðan á byggingu stæði. Þá gæfi
ríkisstjórnin og ákveðin loforð
um fjárframlög frá ríkisins hálfu,
en eins og nú standa sakir mun
Akureyrarbær langt kominn með
sínar greiðslui', og stendur því
Síldveiðin er enn stopul og eru
sjómenn nú farnir að örvænta að
veruleg síldveiði verði á þessari
vertíð.
Fjöldi skipa er enn með sára-
litla veiði og verksmiðjui'nar á
vestursvæðinu hafa litla sem
enga síld fengið, verksmiðjurnar
hér og í Siglufirði hafa lítið fyng-
ið, en aðalmagnið hefur borizt á
land á Raufarhöfn, enda megin-
veiðin á austursvæðinu.
Samkvæmt skýrslu Fiskifé-
lagsins var heildaraflamagnið um
sl. helgi 238 þús. hl. í bræðslu og
38995 tunnur í salt. Á sama tíma
í fyrra var bræðslusíldarmagnið
168 þús. hb og lítið hafði þá verið
aðallega á greiðslu upp í ríkis-
sjóðsframlag.
Á næsta fundi byggingamefnd-
ar sjúkrahússins, er haldinn var
31. f. mán., var forsætisráðherra,
Steingrímur Steinþórsson, mætt-
ur til viðtals við nefndina um
þessi mál. Var þar lögð fyrir ráð-
herrann áætlun um, hversu mikið
fé vantaði til að ljúka við sjúkra-
húsið, og ráðherranum sýnt fram
á, hversu brýn nauðsyn væri á
að koma sjúkrahúsinu upp til af-
nota á næsta ári.
Sérstaklega var farið fram á
aðstoð til að fá viðbótarlán frá
Almannatryggingum, eina til
hálfa aðra milljón. Að ríkissjóður
gæfi gjaldfrest á tollum og að
reynt væri að fá lán úr Mótviðr-
issjóði eina til tvær milljónir.
Lofaði ráðherrann sinni aðstoð
eftir því, sem hann gæti, en benti
á að rétt væri að nefndin sendi
erindi til ráðuneytisins, þar sem
þessar óskir væru fram settar
ásamt greinilegum greinargerð-
um yfir fjárhagsástæðumar.
Var formanni nefndarinnar fal-
ið, með aðstoð ráðsmanns sjúkra-
hússins, að senda slíka umsókn
ásamt greinargerð til ráðuneytis-
ins.
saltað. Aflahæstu skip sl. laugar-
dag voru: Helga, Rvík, 5825 mál
og tunnur, Fagriklettur, Hafnar-
firði, 4711, Stígandi, Ólafsf., 3503,
Haukur I., Ólafsfirði, 3270, og
Snæfell, Akureyri, 2949.
6700 mál síldar komin til
Krossaness.
Krossanessverksmiðjan hafði
tekið á móti 6669 málum í gær, en
þá vai' von á m.s. Stjarnan með
rösklega 500 mál, og ætti heildar-
magnið hjá verksmiðjunni því að
vera rösklega 7000 mál. í sl. viku
lönduðu aðeins tvö skip slatta í
Krossanesi. Nokkur af samnings-
skipum verksmiðjunnar hafa afl-
að nokkuð í salt á þessu tímabili.
Litil síidveiði - en þó mun meiri
♦
nú en á verfíðinni í fyrra