Dagur - 04.10.1950, Page 1
Gjalddagi blaðsins er 1. júlí
Dagur kostar aðeins kr. 10.00
til áramóta.
XXXIII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 4. október 1950
43. tbl.
Erfitt að hlusta á Ríkisútvarpið
vegna truflana frá sænskri stöð
740 börn í Barnaskól-
komnar til Þýzkalands
Hlustunarskilyrði munu enn fara
versnandi - hvað iíður byggingu
endurvarpsstöðvarinnar?
Með styttri sólargangi og þverr-
andi dagsbirtu fara hlustunar-
skilyrði útvarpshlustenda hér um
slóðir, sem vilja hlýða ó Ríkis-
útvarpið, sífellt versnandi. Er
þegar svo komið, að sænska út-
varpsstöðin Lulea, sem útvarpar
á sömu bylgjulengd og Reykja-
vík, truflar útvarpssendingar frá
Reykjavík svo stórkostlega, að
illgerlegt er t. d. að njóta hljóm-
listar frá Reykjavík.
Heyrist dagskrá sænsku stöðv-
arinnar í gegnum dagskrá ríkis-
útvarpsins svo að vel má greina
orðaskil og fylgjast með því, sem
Svíar útvarpa. Þannig mátti t. d.
vel fylgjast með leikriti frá Luleá
í fréttatíma íslenzka ríkisútvarps-
ins nú fyrir nokkrum dögum.
Er daginn styttir enn meir,
mun þetta ástand fara stór versn-
andi, segja kunnáttumenn hér, og
sænska stöðin heyrast mun betur.
Er þegar sýnt, að dagskrá
Reykjavíkurútvarpsins verður
ekki að hálfu gagni fyrir hlust-
endur hér í skammdeginu, þegar
mest er hlustað á útvarp að öðru
jöfnu.
Endurvarpsstöðin er lækningin.
Á Alþjóðaútvarpsráðstefnunni
í Kaupmannahöfn í fyrra, var
sænsku stöðinni úthlutað sömu
bylgjulengd og Reykjavík og
neitaði ísland að skrifa undir al-
þj óðasamninginn af þeim sökum.
Af viðtölum, sem Dagur hefur átt
við útvarpsstjóra, og fyrr er
greint frá hér í blaðinu, er ljóst,
að forráðamenn útvarpsins hér
gerðu sér ljóst, að sænska stöð-
in mundi valda miklum erfið-
leikum hér. Mundi því máli ekki
bjargað nema girða landið með
endurvarpsstöðvum og var á-
kveðið að reisa endurvarpsstöð
hér á Akureyri, strax og mögu-
leikar væru fyrir hendi. Útvarps-
stjóri komst síðan að mjög hag-
Karfaveiðin heldur
áfram
Karfaveiðar togaranna hér halda
áfram og eru ágæjtar sem íyrr. Síð-
ustu landanir í Krossanesi eru: Sl.
sunnudagsjcvöld kom Kaldbakur
með 360 lestir, og sama dag Jör-
undur með 251 lest. Svalbakur var
hér um kyrrt í nokkra daga vegna
ketilhreinsunar, en fór á veiðar um
helgina. Sighifjarðartogarinn Elliði
hefir nú byrjað karíaveiðar og
leggur upp hjá ríkisverksmiðjunum
á Siglufirði. Hefir skipið landað
einu mfarmi.
kvæmum kjörum hjá Marconi-
félaginu í London um smíði og
greiðsluskilmála fyrir slíka stöð,
en leyfi íslenzkra stjórnarvalda
munu enn ekki fengin til þess að
ganga frá þessum samningum og
er gjaldeyrisástandinu kennt um.
Reynslan af hinni nýju bylgju-
úthlutun alþjóðaráðstefnunnar er
nú fengin og er augljóst, að hlust-
unarskilyrði um Norðurland, sér-
staklega í Eyjafirði, eru svo siæm,
að ekki er viðunandi, og er því
nauðsyn að koma endurvarps-
stöðinni upp hið bráðasta ef út-
varpshlustendur hér eiga á ann-
að borð að geta notfært sér dag-
skrá ríkisútvarpsins á vetrum.
Ofan á erlendar truflanir bæt-
ist það svo, að tóngæði Reykja-
víkurstöðvarinnar eru harla mis-
jöfn og oftast bágborin. Virðist
þörf bráðra endurbóta á því á-
standi.
I gær átti að hefjast hér á Ak-
ureyri fundur fulltrúa fjórðungs-
samtakanna og er stjórnarskrár-
málið til umræðu. Munu fulltrú-
arnir reyna að samræma tillögur
sínar í því máli og vinna síðan að
framgangi þeirra sameiginlega.
Áður hafa Austfirðingar og Norð-
lendingar komizt að samkomulagi
um sínar tillögur. Gáfu þeir þær út
í bæklingsformi í fyrra, og fór sá
bæklingur víða um land, en auk
þess birtu blöðin meginefni tillagn-
anna, m. a. var ýtarlega frá þeim
greint hér í blaðinu í fyrra.
Fjögur fjórðungssambönd
stofnuð.
Fjórðungssamböndin eru nú
fjögur talsins. Austfirðingar og
Norðlendingar eru upphafsmenn
þessarar hreyfingar, en nú hafa
Vestfirðingar og Sunnlendingar
bætzt í hópinn. Hefur orðið æ
greinilegra að ljórðungarnir utan
Reykjavíkur og Hafnarljarðar eiga
mörg santeiginleg hagsmunamál, og
er nauðsynlegt að þeir hafi sam-
stöðu um hin þýðingarmestu mál,
eins og stjórnarskrármálið.
Norðlendingar áttu frumkvæðið
að fimdinum.
Á fjórðungsþingi Norðlendinga,
sem haldið var hér í sumar, var
ákveðið að boða til fulltrúafundar
þess, sem hér er nú haldinn. Þenn-
an fund sækja tveir fuíltrúar frá
anum í vetur
Barnaskóli Akureyrar var settur
í gær. Hannes J. Magnússon skóla-
stjóri ávarpaði nemendur, kennara
og gesti og skýrði frá tilhögun skóla-
starfsins í vetur. í skólanum verða
740 börn á þessu skólaári, og er það
um 30 börnum fleira en í fyrra.
Nýr kennari bætist við vegna þess-
arar fjölgunar. Er það frk. Elín
Bjarnadóttir. Þá kemur Theodór
Daníelsson í stað Sigurðar Jóhanns-
sonar, sem er hættur starfi hjá skól-
anum. Öll viðbótarbygging skólans
er nú kornin í notkun. Er jtar með
fengin mun betri aðstaða til ljós-
baða en fyrr. Komast fleiri börn
að en áður. og stofan starfar allt
skólaárið. Tannlækningar fara fram
í skólanum í vetur, 4 klst. á dag, og
annast tannlæknar bæjarins jrað
starf til skiptis. í vetur er enginn 7.
bekkur í skólanum, með ])ví að
nýju Træðslulögin eru komin hér
til framkvæmda, og nemendur, sem
annars mundu vera í 7. bekk, fara
nú í gagnfræðaskóla.
Börnin munu fá lýsisgjafir í skól-
anum í vetur, eins og undanfarin
ár. Verðfir lögð sérstök áherzla á
jrað, svo og ljósböð barna vegna
sólarjeysisins í surnar. — Allmargt
gesta var við skólasetningarathöfn-
ina í gær.
hverjti fjórðungssambandi. — Frá
Norðlendingunr aljringismennirnir
Karl Kristjánsson og Jónas G.
Rafnar, frá Sunnlendingum sýslu-
mennirnir Páll Hallgrímsson og
Björn Björnsson, frá Vestfirðingum
Jónas Magnússon, sparisjóðsstjóri á
Patreksfirði, og Sturla Jónsson,
hreppstjóri á Suðureyri, og frá
Austfirðingum Erlendur Björnsson,
bæjarstjóri, og Lúðvík Ingvarsson,
sýslumaður.
Austfirðingamir kornust ekki
landleiðina.
Upphaflega átti fundurinn að
hefjast um sl. hélgi, en Austl'irðing-
arnir, sem ætluðu að koma land-
leiðina, urðu að snúa við á Möðru-
dalsfjöllúm vegna snjóa á j>jóðveg-
intim. Voru jreir væntanlegir til
bæjarins flugleiðis í gær.
Dagur mun væntanlega geta .skýrt
nánar frá fundinum í næstu viku.
Menntaskólinn verður
settur á morgun
Menntaskólinn á Akurcyri verð-
ur settur á morgun nteð hátíðlegri
athöfn í hátíðasal skólans. Helst
hún kl. 1.30 e. h. í vetur munu
verða um 320 nemendur í skólan-
um að jrví er skólameistari tjáði
blaðinu í gær. Eru það lítið ejtt
færri nemendur en í fyrra.
Fulltrúar fjórðungssambandanna
ræða stjórnarskrármálið á fundi
Fundurinn haldinn að frumkvæði Norðlendinga
næsla sumar
Mesta hættutímabilið fyrir lýðræðisþjóðirnar
verður sumarið 1951 - Utanríkisráðherrarnir á
Atlantshafsbandalagsfundinum í New York
sammála um þetta
Auknar umræður um landvarnamál á Norður-
löndum - værð á íslandi
Fyrra mánudag lauk fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbanda-
lagsins í New York, þar sem rætt var um sameiginleg hagsmunamái
bandalagsþjóðanna. Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra sat
þennan fund fyrir hönd íslands og flutti hann þjóðinni stuttorða
skýrslu um hann í útvarpi begar eftir heimkomuna.
í skýrslu sinni lagði ráðherr-
ann áherzlu á þau breyttu við-
horf, sem skapast hefðu með inn-
rás kommúnista í Kóreu og þann
aukna hraða, sem síðan er orðinn
í öllum viðbúnaði lýðræðisþjóð-
anna til þess að mæta árás of-
beldishreyfingar kommúnista. —
Erlend blöð, sem hingað hafa
borizt, ræða fund ráðherranna
ýtarlega og er þar að finna ýmsar
upplýsingar, sem ekki hafa kom-
ið fram hér. Verður hér á eftir
stuðst við frásögn fréttaritara
brezka blaðsins Sunday Times í
New York, en blaðið flutti grein
hans sl. sunnudag, 1. október.
Fréttaritarinn segir svo:
20 herfylki í Þýzkalandi.
Fyrir mitt næsta sumar verða
20 herfylki frá Atlantshafsþjóð-
unum staðsett í Þýzkalandi, og er
hér reiknað með lágmarki. Þessi
ákvörðun var athyglisverðasti
árangurinn af fundi utanríkis-
ráðherra Atlantshafsbandalags-
ins, sem lauk í New York síðastl.
mánudag.
Utanríkisráðherrarnir end-
urskoðuðu fyrri afstöðu sína
til ástandsins í alþjóðamálun-
um. Þeir komust að þeirri nið-
urstöðu, að næsta sumar verði
sérstakt hættutímabil og af
þeim sökum verði að hafa all-
fullkomið varnarkerfi tilbúið í
Vestur-Evrópu.
Bretar auka herstyrk smn.
Skýrt er frá, samkvæmt áreið-
anlegum heimildum, að Bretar
hafi lofað að senda eitt herfylki í
vor, til viðbótar við það, sem
þegar var ákveðið að senda. —
Frakkar munu bæta fimm her-
fylkjum við þann her, sem þegar
er fyrir hendi, og Bandaríkin
munu, eftir því sem ástandið í
Kóreu leyfir, reyna að flytja sex
herfylki til Þýzkalands fyrir
næsta sumar. Þá munu Belgir,
Hollendingar og sennilega Kan-
ada, einnig leggja nokkuð af
mörkum.
Bonnstjórnin samþykk
ráðagerðinni.
Þessi ákvörðun, að auka her-
styrk lýðræðisþjóðanna í Þýzka-
landi, er tekin með fullu sam-
þykki Bonn-stjórnarinnar, sem
hefur hvatt Atlantshafsveldin til
þess að taka þetta skref, enda
þótt móttaka þessa herliðs og
hýsing í Þýzkalandi muni hafa
mikla erfiðleika í för með sér, í
þessari áætlun er ekki gert ráð
fyrir að nota þýzkt herlið. M.
Schuman hvarf svo aftur til Par-
ísar að hann hafði ekki gefið
neitt vilyrði fyrir samþykkt
frönsku stjórnarinnar til þess að
nota þýzkan her. En reiknað er
með því að samkomulag hafi
náðst áður en landvarnarráð-
herrar Atlantshafsbandalagsins
koma saman til fundar í október.
Einn yfirhershöfðingi
Evrópuhersins.
Ráðgert er að einn maður
stjórni hinum sameiginlega her,
en ekki hefur hann verið til-
nefndur. Á friðartímum mun
(Framhald á 8. síðu).
Rússneska flakið
selt á uppboði
Sýslumaður Þingeyinga aug-
lýsir í blaðinu í dag uppboð á
flaki rússneska skipsins Júpíter,
sem strandaði í Þorgeirsfirði 18.
ágúst sl. Flakið liggur á fjörun-
um í Þorgeirsfirði. Uppboðið fer
fram í skrifstofu embættisins í
Húsavík.