Dagur - 04.10.1950, Blaðsíða 8
8
TTXl
Daguk
Miðvikudaginn 4. október 1950
Gagnfræðaskóli Akureyrar var
settur s. I. mánudag að viðstöddu
fjölmenni
Handavinnukennsla verður stóraukin
í skólanum
Hátíðlegt var og eftirvæntingar-
svip mátti sjá á mörgu andliti, er
unga fólkið, ásamt kennurum sín-
um og aðstandendum, streymdi
laust fyrir kl. 2 síðdegis á mánu-
daginn inn í hin björtu og vistlegu
liúsakynni gagnfræðaskólans hér til
þess að hefja þar vetrarstarfið með
því að hlýða á hina skörulegu setn-
ingarræðu skólastjórans, Þorsteins
M. Jónssonar, og taka þátt í sam-
eiginlegum söng undir stjórn söng-
kennara skólans, Áskels Jónssonar.
Skólastjórinn hóf ræðu sina með
því að gera grein fyrir aðsókn að
skólanum, sem fer sívaxandi, svo
að væntanlega stunda 280—290
nemendur þar nám í vetur í fjór-
um sérdeildum (bekkjum), áætlun-
um um tilhögun kennslunnar,
skiptingu nemenda i bóknáms- og
verknámsdeildir og öðrum þeim
atriðum, er til greina korna, þegar
stór og fjölþættur skóli hefur vetr-
arstarfið. Sökum þess, að fræðslu-
ráð hér ákvað í sumar að auka
mjiig verknámið í skólanum, hafa
tveir nýir handavinnukennarar vet ■
ið ráðnir að skólanum, frk. Krist-
hjiirg Kristjánsdóttir og Guðmund-
ur Gitnnarsson, byggingameistari.
há ræddi skólastjórinn nokkttð
um framkvæmd nýjtt fræðslulag-
anna, anda þeirra og tilgang, en
ávarpaði að lokum hinn unga, fjöl-
nicnna nemendahóp mcð velviild-
unt hvatningarorðum.
Tuttugu ár eru nú liðin, síðan
Gagnfræðaskóli Akureyrar tók hér
fyrst til starfa, og hefir skólinn
jafnan, síðan fyrstu byrjunarörðug-
leikunum var úr vegi rutt, starfað
hér við vaxandi vinsældir og hróð-
ur, enda nýtur bæði skólastjórinn
sem og kennaralið skólans fyllsta
trausts allra þeirra, sem nokkuð
þékkja til' starfs og stefnu þessa
ágæta skóla, sem þeir hafa að sjálf-
siigðu átt drýgstan þátt í að skapa
og móta, eftir það, að löggjafinn
hafði veitt honum starfsskilyrði og
markað stefnu hans af sinni hálfu.
Dæluskip og los-
unarprammar hér
í höf ninni í vetur
Óskar Halldórsson, útgerðar-
maður, hefúr sótt um rúm í
skipakvínni fyrir tvo losunar-
pramma og dæluskipið „Ár-
mann“ í vetur. Jafnframt hefur
Óskar gert höfninni tilboð um að
leigja henni uppmoksturstæki
sín, þ. e. skófluskip, tvo losunar-
pratnma og dæluskipið Ármann,
með fúllri áhöfn, olíu og trygg-
ingagjöldum fyrir kr. 2750.00 á
dag. Leigutilboðið er bundið því
skilyrði, að Óskar Halldórsson
fái vetrargeymslu fyrir skipin
hér. Tækin þarf höfnin ekki að
leigja nema aðeins þá daga, sem
þau eru notuð. Hafnarnefnd hef-
ur samþykkt að gera tilraun með
tækin við að dýpka út frá drátt-
ai'brautinni og í kvínni við
Höpf nersbrygg j u.
Fornbókadeild vor
verður opnuð á ný laugardaginn 7. okt. n. k. — Verða
þar til sölu ýmsar eldri bækur, sem nú eru uppseldar
í bókaverzlunum, llestar á lágu verði.,Ennfremur bæk-
ur úr einkasafni, nýkeyptu.
Sérstakt tækifæri til að fá sér skemmtilestur, mjög
ódýran.
Bókaverzlunin EDDA h.f.
SÍMI 1334.
Kartöflur og gulrófur
hafa lækkað í verði. — Kostar nú:
KARTÖFLUR: Úrvalsfl. kr. 100.00 pokinn
1. flokkur kr. 85.00 pokinn
2. flokkur kr. 75.00 pokinn
GULRÓFUR: Kr. 70.00 pokinn.
H e i m s e n t..
Kjötbúð KEA
Sími 1714
Fyrsta Framsókn-
arwhistin n. k.
laugardagskvöld
Á laugardaginn kemur verð-
ur fyrsta Framsóknarwhistin á
vegum Framsóknarfélaganna á
þessum vetri. Fer hún fram á
Hótel KEA og hefst kl. 9 e. h.
Er í ráði, að félögin efni oft
til slílcra skemmtana í vetur.
Fyrirkomulag verður svipað
og áður. Fyrst verður ávarp,
siðan spiluð Framsóknarwhist.
Þá sýnir Edvard Sigurgeirsson
kvikmynd, sem tekin var í
fyrra vetur af seinustu whist-
mni. Er myndin að efni til lýs-
ing á einni slíkri whist. Hefst
hún á setningu skemmtunar-
innar, svo sést spilafólkið, síð-
an verðlaunaafhending og þá
dansinn. Koma fjölmargir Ak-
ureyringar fram á tjaldinu.
Þegar búið er að spila verða
verðlaun afhent. Síðan dans
við undirleik góðrar hljóm-
sveitar.
Þar sem vænta má mikilla
þrengsla, verða aðgöngumiðar
seldir á skrifstofu Framsókn-
arflokksins, Hafnarstræti 93, 4.
hæð á laugardag kl. 4—7 e. h.
Er félagsmönnum Framsókn-
arfélaganna bent á að tryggja
sér aðgöngumiða í tíma.
KARFAMJOL TIL HOLLANDS.
Eimskipafélagsskipið Lagarfoss
hefir að undanförnu lilaðið fiski-
og karlamjöl frá Krossanesi til Hol-
lands, og fór skipið héðan í gær.
Alls tók skipið 450 lestir af karfa-
mjöli og 67 Iestir af fiskimjöli.
Nokkuð af mjöli liggur hér enn,
en mun allt vera selt, og fer vænt-
anlega á markað bráðlega.
■ • ■ 11111111 ■ i ■ ■ 11 ■ t ■ ■ i ■ 111 ■ 1111 •
Glerlím
Pappírslím
Gummilím
Vöruhúsið h.f.
iiiimiiiiiini
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiminiiii Z
Niðursuðu-
vörur,
margs konar.
Vöruhúsið h.f.
Landvamamálin
(Framhald af 1. síðu).
hann ekki stjórna öllum herafla
Atlantshafsbandalagsins, heldur
aðeins þeim hluta hans, sem hon-
um verður sérlega fajið. að
stjórna.
Fullkomnar hervarnir 1952.
Upphaflega var stefnt að því að
koma upp fullkomnu varnarkerfi
í Evrópu, sem tilbúið yrði árið
1954. Nú hefur þessi áætlun verið
endurskoðuð og er miðuð við áð
koma þessu kerfi upp árið 1952.
Þannig segist fréttaritara Sun-
day Times í New York frá þeim
ákvörðunum, sem teknar voru á
ráðherrafundinum í New York.
Mjög auknar umræður um
landvamarmál á Norðurlöndum.
c
Norðurlandablöðin frá sl. helgi
bera það með sér, að umræður
um landvarnamál fara mjög í
vöxt á Norðurlöndum. Ofbeldis-
árás kommúnista í Kóreu hefur
haft þær afleiðingar, að Norður-
landaþjóðirnar hafa lokið upp
augum fyrir þeim sannleika, að
kommúnisminn lætur nú ekki
við það eitt sitja að grafa undan
lýðræðisþjóðunum innan frá,
heldur er þess albúinn að grípa
til morðtóla og ofbeldis. Danska
ríkisþingið kemur saman nú í
vikunni og eru landvarnamálin
aðalmál þingsins. Eru ráðgerðir
stórfelldir skattar til þess að
mæta auknum útgjöldum til
landvarna. í Noregi fara fram
miklar umræður um landvarna-
frumvörp stjórnarinnar. Eru þar
ráðgerðar róttækar aðgerðir til
þess að stemma stigu við skemmd
arverkum fimmtu herdeildarinn-
ar innan frá, og til þess að verja
landið, ef á það verður ráðist.
Kommúnistar í báðum þessum
löndum reyna að spilla viðbúnaði
þjóða sinna á allan hátt og gera
ráðstafanir stjórnarvaldanna tor-
tryggilegur. Er þetta vafalaust
eitt aðalhlutverk þein-a um þess-
ar mundir, að undirbúa þannig
eftii'mætti að ofbeldið eigi greiða
leið um löndin, ef einvaldsherr-
unum byði svo við að horfa að
steypa heiminum út í allsherjar
ófriðarbál. Umræður í Noregi
hafa aðallega snúist um ráð-
Þinggjöld - Kjötendurgreiðslur
Skattgreiðendur eru áminntir um, að inna greiðslur
þinggjalda af hendi sem fyrst.
Dráttarvextir fala á þingg
komandi.
1. nóvember næst-
Skrifstofa mín verður opin, auk venjulegs afgreiðslu-
tíma, alla föstudaga í október frá kl. 5—7 e, h. til mót-
töku þinggjalda og greiðslu kjötuppbóta.
Skrifstofu Eyjafjarðarsýslu og Akureyr-arkaupstaðar,
Akureyri, 2. október 1950.
f
'f&j
stafanir þær, sem stjórnin hyggst
gera til þess að gera skemmdar-
verkamenn óskaðlega og fyrir-
byggja, að þeir geti gert byltingu
og hrifsað til sín völdin, því að
áliti stjómarinnar mundi slíkt
vera glötun frelsisins og sjálf-
stæðisins. Hafa kommúnistar
fengið nokkra „saklausa ein-
feldninga“ til liðs við sig í áróðr-
inum gegn frumvörpum stjórn-
arinnar. Eru það helzt þeir, sem
gera gys að ótta þeim, sem gripið
hefur lýðræðisþjóðirnar við at-
burðina í Kóreu og hið grímu-
lausa ofbeldi kommúnista. —
Þessum mönnum svaraði skáldið
Arnulf Overland þannig á dög-
unum: „Sá, sem ekki er hræddur
nú, er heimskingi!“
Værðin á íslandi.
Á meðan þessu fer fram meðal
nágrannaþjóða okkar, sem allar
hafa þó þegar nokkrar hervarnir,
ríkir mikil værð hér á landi um
þessi mál. Menn ganga jafnan til
náða í þeirri sælu trú, að næsti
dagur muni verða líkur þeim
næsta á undan, og þjóðin geti
ótrufluð notið friðar og frelsis án
þess að leggja nokkuð á sig til
þess að halda þessum dýrmæt-
ustu eignum sínum. Er hér ekki á
ferð einmitt slíkt andvaraleysi og
óttaleysi, sem Överland talaði
um? Landið er óvarið með öllu
og opið hverjum þeim yfirgangs-
seggjum, sem. hafa nýtízkuleg
hertæki undir sinni umsjá. Þar
að auki eru allfjölmennar liðs-
sveitir fimmtuherdeildarmanna í
landinu, og liðsoddar þeirra tala
þannig og skrifa um þessar
mundir, að fullkomin ástæða er
9
til þess að óttast framtíðina við
óbréyttar aðstæður hér heima.
Það er orðin rík nauðsyn fyrir
þjóðina, að hugsa og ræða al-
þjóðamálin og landvarnamálin
meira og betur en verið hefur. —
Þjóðin verður að gera það upp
við sig, hvort hún vill lifa áfram í
skugga ofbeldisins, óviðbúin með
öllu, eða hvort hún aðhyllist þá
stefnu, sem nágrannaríki okkar
hafa nu tekið upp og leggja mik-
ið á sig til að framkvæma, og
gera hér þær ráðstafanir til ör-
yggis, sem tiltækilegar og skyn-
samlegar eru, eins og nú er
ástatt.
Fimm manna nefnd
athugar atvinnu-
horfur í bænum
Bæjarráð hefur samþykkt að
skipa fimm manna nefnd til að
rannsaka atvinnuhorfur í bænum
á komandi vetri og gera tillögur
til úrbóta með atvinnu og fjáröfl-
un ef með þarf. Nefndin verður
skipuð þannig, að verkamanna-
félagið, vörubílstjórafélagið og
vinnuveitendafélagið tilnefna
einn mann hvert, en bæjarráð til-
nefnir 2 og sé annar formaður
nefndarinnar.