Dagur - 25.10.1950, Qupperneq 5
Miðvikudaginn 25. október 1950
D A G U R
5
Fimmtug:
Hjónin á Finnasföðum
Um aldamótin síðustu fór sterk
og heit vakningaralda um þetta
land. Hugsjóna menn þjóðarinn-
ar létu ljós sitt skína í ræðum og
l'iti yfir framtíðardrauma um al-
hliða framkvæmdir til batnandi
hags og betri lífsafkomu. Skáldin
sungu kröftuglega þessar fram-
tíðarhugsjónir inn í sál þjóðar-
innar, og sáu furðulegar sýnir.
Þau eggjuðu til dáða og framtaks.
Einar Benediktsson segir: „Það
þarf dáðrakka menn ekki blund-
andi þý, það þarf vakandi önd,
það þarf vinnandi hönd til að
velta í rústir og byggja á ný.“
Hannes Hafstein sýndi þjóðinni í
hillingum nýtt land, þar sem
„brauð veitir sonum móðurmold-
ún frjóa, menninngin vex í lund-
um nýrra skógá.“ Og þjóðin fyllt-
ist fögnuði yfir björtum framtíð-
■ ardraumunum.
Undir risi þesasrar hátypptu
vakningar og fagnaðaröldu fæð-
ast aldamótaárið 1900 Finna-
staðahjónin Hólmfríður Pálsdótt-
ir og Ketill Guðjónsson, hún 1.
október og hann 11. sama mán-
aðar.
Er líkast því sem hið andlega
andrúmsloft, sem lék um sálir
þeirra þegar við fæðingu, hafi
orkað á þau sem dulinn aflgjafi
til framtaks og dáða síðarmeir.
Að minnsta kosti er auðsær
skyldleikinn milli aldamóta-
draumanna og athafna þeirra
F innastaðahjóna.
Bæði eru þau hjón fædd af fá-
tæku foreldri, en þau áttu sterka
ættarstofna bak við sig. Þegar á
unga aldri hneigðist hugur Ketils
til landbúnaðar. Um tvítugt
brauzt hann því til búnaðarnáms
að Hvanneyri, og brautskrá'ðist
þaðan árið 1921, með loflegum
vitnisburði. Hólmfríður var að
nokkru alin upp hjá þeim Grund-
arhjónum, Guðrúnu og Magnúsi
kaupmanni, sem var föðurbróðir
hennar. Sá hún þar fyrir sér
rausn og myndarskap heimilis-
ins, sem orðið hefur henni nokk-
urt veganesti síðan. Þar að auki
viðaði hún að sér öllu því, er
hún mátti til huga og handar og
hagnýtt gæti reynst góðri hús-
móður.
Með þetta veganesti eitt stofnuðu
þau svo hjúskap sinn vorið 1923,
og hófu búskap á Finnastöðum
sama vor, með svo að segja tvær
hendur tómar, en talsverða skuld
fyrir bústofn og hús á jörðinni,
sem ekki voru þó til frambúðar.
Jörðin var fremur kostai'ýr. Tún
ið mest þýft og gaf af sér sem
svaraði 5—6 kýrfóðrum. Uthey-
skapur var rýr og reytingssamur.
Hér var því nóg vei'kefni fyrir
höndum.
„Reistu í verki viljans merki,
vilji er allt sem þarf,“ hafði Einar
Benediktsson sungið inn í óvitkar
sálir þeirra um aldamótin. Þó
fjármagnið skorti til fram-
kvæmda, var viljinn sterkur og
ákveðinn fyrir hendi, og nú
skyldi reisa merki hans í verki.
Árið eftir hefur svo Ketill sitt
mikla og merkilega ræktunar
starf, sem gert hefur hann að for-
vígismanni og fyrirmynd í þeim
efnum.
Næstu árin rekur svo hver
stórræktunarframkvæmdin aðra.
Túnið stækkaði óðum og búpen-
ingur fjölgaði. Skuldabagginn
þyngdist vitanlega einnig. En að
bogna undir honum kom ekki til
mála. Og áfram var ótrautt hald-
ið. „Viljinn er allt sem þarf,“
hafði E. Ben. kveðið yfir vöggu
þeirra Finnastaðahjónanna.
Svo komu byggingarnar. Fyrst
fjósið og síðan íbúðarhúsin. Þá
heygeymslan, og síðast áhaldahús
og vélahús, meðal annars fyrir
Diesel-mótor til ljósa, suðu
heyþurrkunar o. fl. íbúðarhúsið
er allstórt og vandað. Fjósið, með
áburðargeymslúm er fyrir 36
nautgripi, og' heyhlaðan fyrk- um
1500 hesta heys. Leigukotið, sem
búskapurinn var byrjaður á fyrir
rúmum aldarfjórðungi, er nú
orðið að höfuðbóli með 1200 hesta
túni og reisulegum byggingum
en ennþá, því miður, í leiguábúð
Við allar þessar miklu fram-
kvæmdir hefur húsfreyjan
Finnastöðum staðið dyggilega við
hlið manns síns með ráðdeild og
dugnaði, broshýr og starfsglöð, og
ekki latt til stórræðanna.
Auk hinna umfangsmiklu
starfa heima fyrir, hafa sveitung-
ar Ketils falið honum marghátt-
uð störf í þágu sveitarinnar. Hef-
ur hann um langt skeið verið for-
maður búnaðarfélags hreppsins
og formaður skólanefndar, auk
margra annarra nefndarstarfa. Þá
hafa honum og verið falin ýmis
störf af öðrum aðilum. Meðal
annars fól Búnaðarfél. íslands
honum að hafa forgöngu í Eyja-
fjarðarsýslu um undirbúning að
stofnun Stéttarsambands bænda,
og hefur hann verið annar af
fulltrúum sýslunnar á aðalfund-
um Stéttarsambandsins æ síðan.
Þrátt fyrir annir þeirra
Finnastaðahjóna, heima og að
heiman, hafa þau jafnan gefið sér
tíma til að sinna gleðskap og
góðvina fagnaði. Hafa þau hlý og
óskipt látið þar ljós sitt skína,
öðrum til óblandinnar ánægju.
Þá eru þau og höfðingjar heim að
sækja, og ekki smátæk á veiting-
um. Þykir hverjum þau gott að
gista. Eru fjölda manns kunnar
stórveizlur, er þau hafa haldið
við hátíðleg tækifæri, og nú síð-
ast á fimmtugsafmæli þeirra
þann 11. þ. m., er fram voru
reiddar veitingar fyrir nokkuð
annað hundrað manns.
Finnastaðahjónin hafa eignuast
sex börn. Er það fríður og gjörfi-
legur hópui'.
Hér hefur verið stiklað á stóru
um starfsferil þeirra Finnastaða-
hjóna. Starfsdagurinn er enn
ekki orðinn ýkjalangur, aðeins
rösk 25 ár En afköstin eru áreið-
anlega með fádæmum, miðað við
efni og aðstæður allar. Þau hafa
fyrir sitt leyti gert að veruleika
aldamótadraumana og hugsjón
irnar. Þau hafa hlýtt kallinu um
dáðrakka menn til að vekaírúst-
ir og byggja á ný. Þau hafa sýnt
verki gull viljans, skýrt í ljóma
aldamótahugsjónanna og hert
eldi athafnanna. Og nú við bálfr
ar aldar afmælið, er fáni fram-
taks og dáða dreginn að hún, þar
sem hann blaktir tígulega tiL fyr-
irmyndar þeim, er hafa þor og
vilja til að feta í fótspor Finna-
staðahjónanna, og yrkja sitt alda-
mótaljóð í athöfn eins fagffrlega
og þau hafa gert.
Hólmgeir Þorsteinsson.
5 hestafla Sólóvél
til sölu.
verkst.
sonar,
Akureyri.
Upplýsingar í
Árna-
59,
Magnúsar
— Strandgötu
Danskennsla
Mánaðarnámskeið í dansi
fyrir bijrh. Hel'st 1. nóv-
ember. — Upplýsingar í
síma 1344.
Brynhildur og Ragnhildur
Steingrímsdætur,
Hrafnagilsstræti 6.
Móðir mín,
MAGNEA GUÐBJÖRG RÖGNVALDSDÓTTIR,
sem lézt 19. b. m., verður jarðsungin föstudagin 27. þ. m. og
hefst athöfnin í Akureyrarkirkju kl. 1 síðdegis.
Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda.
Jónina Jónsdóttir.
BÆNDIIR!
Vér erum reiðubúnir að annast
allar aðgerðir á landbúnaðar-
vélum yðar.
Vinsamlega hringið í síma 1353
og talið við verkstjóra vom, Þor-
stein Jónsson, sem gefur allar
nánari upplýsingar.
Bifreiðaverkstæðið Þórshamar
::
Hrossasmölun
í Öngulsstaðahreppi fer fram n. k. mánudag 30. þ. m. ?
Ber öllum bændum skylda til að hafa smalað heima- ?
lönd sín og komið ókunnugum hrossum. í Þverárrétt Z
á hádegi. Hrossaeigendur áminnast um að sækja hross- |
in á 'réttina samdægurs. Þau Inoss, sem eftir verða að i
kvöldi, verður farið með sem annað óskilafé. ?
23. október 1950.
Oddviti Öngulsstaðahrepps.
*
Útgerðarmenn! - Skipstjórar!
Getum útvegað hina frægu þýzku
ELAC Fisksjá
til afgreiðslu beint til leyfishafa.
Afgreiðslutími á einu og einu tæki aðeins 8 til
10 dagar. Kaupverð fob. Hamborg, ásaint vara-
íömpum og tilheyrandi leiðslum, DM 6.672.95.
Samskonar tæki hefir þegar verið reynt í M.s.
Fannéy og gefið mjög góða raun.
Myndalistar fyrirliggjandi.
Umboðs- og heildverzlun.
Brynjólfur Sveinsson h.f.
Pósthólf 125. — Sími 1580.
Elliheimilið í Skjaldarvík
Næstkomandi sunnudag fer fram guðsþjónusta og |
vígsla á viðbótarbyggingu elliheimilisins, og hefst kl. 2.
Sætaferðir frá B.S.O. - Allir velkomnir.
AUGLÝSIÐ í DEGI