Dagur - 25.10.1950, Blaðsíða 6
6
D A G U R
Miðvikudaginn 25. október 1950
Vi'ðburdarrikur dagur
Saga eftir Helen Howe.
13. DAGUR.
• (Framhald).
Hún hafði oft séð hann ganga
inn og út um dyrnar til skrif-
stofunnar, þar sem reiknings-
haldið fór fram, og hún hafði
undrast það með sjálfri sér, að
svo stór og föngulegur maður
skyldi vera að fást við auglýsing-
ar fyrir ilmvatnsframleiðslu. Þau
höfðu ekki talast við fyrr en
kvöld eitt, er Faith var að bíða
eftir lyftunni. Hann brosti til
hennar og sagði, rétt eins og
hann væri að spjalla við gamlan
kunningja: „Þú lítur svei mér út
eins og þú þurfir að létta þér
upp.“
„Er það?“ sagði hún og brosti.
„Þú mátt ekki misskilja mig.
en viltu ekki koma í svolítið hóf,
sem eg ætla að halda annað
kvöld? Flest fólk hér úr verzl-
uninní ætlar að koma. Hann rétti’
henni miða með heimilisfangi
áirtuðu. Annars er líklega kom-
inn tími til að eg kynni mig:
Freddy Coodridge.11
„Já, eg veit það.“
„Jæja.“ Hún tók eftir eina lýt-
inu, sem var á Freddy. Hann var
ofurlítið tileygður á öðru aug-
anu.. „Þar ert þú mér fremri,"
hélt hann áfram, „því að eg veit
ekki hvað þú heitir."
„Eg heiti Faith Howland."
„Það er gott nafn, og hátíðlegt,
eins og hæfir þér, því að mér
sýnist þú vera alvarlega hugs-
andi stúlka. Eg hefði gizkað á að
þú hétir Alice, en Faith er alveg
eins gott nafn.“
Þau stigu samsíða út úr lyft-
unni. „Eg gleymdi einu,“ sagði
hann. „Þetta kvöldboð verður
þannig, að ætlast er til þess að
allir komi með eitthvert kvikindi
með sér. Þú átt líklega ekki tam-
inn ljónsunga eða hlébarða?"
Hann sá að hún varð í senn
undrandi og áhyggjufull, og fór
að hlæja. „Taktu það ekki of al-
varlega. Ef þú finnur ekkert
hæfilegt dýr, þá komdu bara án
þess.“
Hann kinkaði kolli til hennar
um leið og hann gekk út á gang-
stéttina.
Áður en Faith hélt heim þetta
kvöld, kom hún við í verzlun,
sem seldi fugla, kjölturakka og
fleiri dýr, og keypti þar tvær litl-
ar skjaldbökur. Um kvöldið
dundaði hún við að mála skelina
á bakinu á þeim í öllum regnbog-
ans litum.
Kvöldið eftir mætti hún í boð-
inu með skjaldbökurnar sínar og
kynnti þær sem alvarlegu Alice
og hlæjandi Allegra. Freddy var
himinlifandi, en annars var lítill
tími til þess að skoða skjaldbök-
urnar, því að íbúðin var eins og
maður gat ímyndað sér örkina
hans Nóa. Og hávaðinn var gegnd
arlaus. Það var gelt, mjálm, urr
og tíst í öllum homum. Ljóns-
hvolpur urraði illilega í búri úti
í horni, en alligator svamlaði í
baðkarinu. Innan um þetta allt
svömluðu gestirnir, og voru allir
í ágætu skapi, drukku bjór, borð-
uðu pylsur. Allir virtust þekkja
alla. Loftið var þrungið vináttu
e r
og goðum félagsanda.
Þegar leið á kvöldið settust all-
ir í hring á gólfinu og sungu við
raust ýmis góð og gömul kvæði.
Ef Faith hefði haft nokkurn
kunnugleika á vissum hluta
auðstéttarinnar á austurströnd
Bandaríkjanna, mundi henni e. t.
v. hafa flogið í hug, að Freddy
væri ekki eins sérstakur og hann
leit út fyrir, heldur aðeins auð-
mannssonur, spilltur af meðlæti
og fjármunum. Ýmsir virtust a.
m. k. hafa þá skoðun á honum, og
Faíth hafði heyrt henni fleygt.
En samt varð ekki gengið fram
hjá þeirri staðreynd, að hann var
kominn af einhverri virðulegustu
fjölskyldu Nýja Englands, sóma-
fólki, og mikill fjöldi manna var
stoltur af því að þekkja Freddy
Goodridge. Eitthvað gott hlaut að
búa inni fyrir, eitthvað meira og
betra en þetta kvöld gaf annars
tilefni til að ætla.
Goodridgefjölskyldan mátti
kallast eiga bæinn Goodridge í
Massaschuetts. Samt var Freddy
ekki þannig gerður, að hann
miklaðist af auði ættmenna sinna
og möguleikum sjálfs síns. Miklu
heldur var eins og hann vildi
segja:
Það búa svo miklir peningar og
svo mikil skólaganga að baki
mér, ekki í mér sjálfum, heldur
forfeðrum mínum, að eg hlýt að
geta leyft mér að gera allt sem
mér dettur í hug. —
Faðir hans hafði lagt fram
stórfé til þess að safna sjaldgæf-
um dýrátegundum fyrir náttúru-
gripasöfn landsins, og Freddy
hafði farið með slíkum leiðöngr-
um til Afríku, bæði til þess að
hjálpa til við söfnunina og eins til
þess að gera vatnslitamyndir af
því, sem þar var að sjá, einkan-
lega af dýrum í þeirra rétta um-
hverfi. Þetta hafði verið ævin-
týraríkur tími og Freddy hafði
gaman af að segja frá þessum
ferðum, en þó án þess að miklast
á nokkurn hátt af sinni þáttöku,
síður en svo.
Þessar frásögur hans, og ýmis-
leg tannað, sem hún heyrði, gerði
Faith mögulegt að raða saman
ýmsum hlutum á þann hátt, að
fá heilsteypta yfirlitsmynd af ævi
hans, sem að vísu var ekki löng
enn. Þegar hún sá heildina, gat
hún ekki annað en dáðst að óeig-
ingirni hans og karlmennsku, en
vitaskuld ekki síður að því, að
hann var óvenjulega glæsilegur
og föngulegur maður. Og svo var
hann auk þess glaðlyndur og góð-
lyndur.
Eftir þetta sérkennilega kvöld,
skiptust þau Freddy og Faith á
nokkrum orðum nær því á
hverjum degi, oftast í sömu
lyftunni. En eitt kvöldið spurði
hann: „Hvernig er það með þig,
borðar þú nokkurn tíma kvöld-
verð?“
„Já, eg geri það ævinlega."
„Hvernig heldurðu að væri að
borða með mér í þetta sinn?“
„Það mundi sjálfsagt verða
mjög ánægjulegt."
„Það, sem eg ætla að segja, er,
að eg er aleinn og yfirgefinn í
kvöld, og eg hafði hugsað mér að
heimsækja armenska kunningja,
sem eg á hér í borgðinni, og mér
þætti skemmtilegt af þú vildir
slást í för-með mér.“
Faith óttaðist að hann sæi að
hún roðnaði af hamingju og til-
hlökkun, og flýtti sér að segja:
„Viltu vera svo góður að bíða
meðan eg hringi heim til vin-
stúlku minnar, sem eg bý með,
svo að hún búizt ekki við mér
heim?“ (Framhald).
- Góðrnn gestum fagnað
(Framhald af 2. síðu).
góðir íslendingar og miklir
manndómsmenn.
Einn ræðumaðurinn í samsæt-
inu (K. K.) lagði út af því meðal
annars, að íslenzkt þjóðerni og
eðliskostir þess hefðu gengið
undir próf í lífsbaráttunni meðal
þjóðafjöldans í Vesturheimi, og
sú góða niðurstaða, sem Vestur-
íslendingar hafa náð á þessum
prófum, — þau met, sem þeir
hafa þar sett, — væri það, er gæfi
okkur, íslendingum á íslandi, nú
bcztar vonir um, að við — sem
sjálfstæð þjóð — þolum nábýlið,
er rás viðburðanna hefur skyndi-
lega skákað okkur í við umheim-
inn og þar með stórar þjóðir og
voldugaf.
Þetta er sannleikur og hann
gleðilegur; íslendingar vestan
hafs hafa gert íslenzka kynstofn
inum mikinn sóma og sýnt og
sannað á alþjóðavettvangi, að
hann er sterkur og kostaríkur.
Þökk sé dr. Sveini E. Björns-
syni og frú Maríu Grímsdóttur
Laxdal fyrir heimsókn þeirra.
Þökk sé Vestur-íslendingum
fyrir þjóðrækni, dáðir og dreng
skap. Samsætisgestur.
Bréf:
Afkoma skipshafnar
„Svalbáks“
Herra ritstjóri.
Morgunblaðið 19. þ. m. birti
viðtal við herra útgerðarmann
Guðmund Jörundsson um afla
bj'ö5ð,«tekjur háseta o. fl. á Ak-
ureyrartogurunum á sl. sumri.
Þar sem Morgunblaðið er mjög
lesið hér á Akureyri, en frásögn-
in um aflabrögð og afkomu skips
hafnarinnar á togaranum „Sval
bak“ er sögð allt önnur en raun
verulega er, vil eg biðja yður um
að birta í blaði yðar eftirfarandi
leiðréttingu. — I Morgunblaðinu
stendur, að hásetahlutur á B/v.
„Svalbak11 hafi orðið til 15. okt
sl. kr. 20.540.00 og orlofsfé kr.
820.00, eða samtals kr. 21.360.00,
þ. e. mánaðarlaun háesta að með-
altali kr. 3560.00.
Það rétta er, að á þessu tíma
bili var hásetahlutur á B/v.
„Svalbak“ kr. 22.983.19 og orlofs-
fé kr. 919.30, eða samtals kf.
23.902.49. Meðaltekjur því kr.
3950.00 á mánuði. Við þetta bæt-
ist hlutur skipverja úr lýsi sem
brætt er um borð.
Pr. pr. Útgerðarfél. Akureyr. h.f.
Guðm. Guðmundsson.
Árásio á Hótei KEA ...
(Framhald af 2. síðu).
Hefur sá háttur gilt um skeið á
jessum málum, að eiristaklingum
hefur liðist að halda eftir veit-
ingaskattinum og halda honum
fyrir ríkinu og er óséð enn að öll
sú innheimta verði nokkru sinni
framkvæmd.
Þá hefði og verið hægur vandi
fyrir ísl., að fletta því upp í
skattskrám liðinna ára, hvern
skatt og útsvar ríki og bær hafa
hlotið frá hótelrekstri einstakl-
inga. Sannleikurinn er, að þessi
rekstur hefur sáralitla skatta
borið, bæði hér og annars staðar
og veiður ekki séð að skattayfir-
völdin hafi talið hann færan um
að greiða neitt teljandi til hinna
sameiginlegu þarfa, sem ísl. talar
um. Ef ísl. vill véfengja þetta,
væri gott að blaðið birti um leið
nöfn þeirra „máttarstólpa“, sem
greitt hafa hinar álitlegu fúlgur
til ríkis og bæjar. Geri hann.það
ekki, er ljóst, að ummæli blaðsins
um þessi efni eru fleipur eitt.
í þessari íslendingsgrein er
sannleikanum gjörsamlega snú-
ið við. Það er vissulega
engan veginn óttinn við skatt-
heimtuna eða aðstöðu kaupfé-
lagsins á þeim vettvangi — sem
er lakari en einstaklinganna eins
og fyrr er sýnt — sem veldur því
að einstaklingar ýmist gugna á
greiðasölu nema hásumarmán-
uðina eða loka alveg greiðasölu-
stöðum, eins og aðstandendur ís-
lendings, heldur sú staðreynd, að
veitingasala á íslandi er ekki
arðvænleg eins.og málum er nú
háttað, enda þótt hún sé eigi að
síður nauðsyn fyrir þjóðfélagið
og hvern bæ, sem vill menning-
ar bær kallast. Sú stofnun, sem
gegnir því hlutverki að selja veit-
ingar og gistingu allt árið, þótt
við margvíslega erfiðleika sé að
etja, vinnur því þarft menningar-
starf, sem verðskuldar lof en ekki
last.
Veitingaskatturinn er ranglátur.
Ein meginástæða þess, hvern-
ig komið er hag veitingasölu hér
á landi er hinn heimskulegi og
rangláti veitingaskattur ríkis-
valdsins. Veitingahúsum er gert
að greiða 10% af brúttósölu, með
örfáum undantekningum, alveg
áp tillits til rekstursafkomu fyr-
irtækjanna. Framkvæmdin verð-
ur svo þannig, að skatturinn er
óinnheimtanlegur hjá sumum
fyrirtækjum, og er látinn safnast
fyrir í bókum án þess að hann sé
greiddur, en önnur fyrirtæki,
eins og Hótel KEA, eru látin
greiða 10—15 þúsund krónur á
mánuði. Ef þessari skattheimtu
væri rutt úr vegi, væri opin leið
fyrir heilbrigðari hótel- og veit-
ingárekstur. Á þetta hefur fyrr
verið bent hér í blaðinu. íslend-
ingur hefur aldrei tekið undir
það einu orði. Væri slíkt þó þarf-
ara verkefni en birting illkvitnis-
legra rógskrifa um það, sem vel
er gert.
Framhald hótelmálanna í ísl.
Með því að vænta má fram-
halds hótelmálanna í ísl., verður
hér ekki, frekar en áður er gert,
farið út í að hrekja einstakar töl-
ur, sem ísl. birti ranglega um
verð á sumum tegundum veit-
inga á hótelinu. Hefur hótelstjór-
inn gert það í greinargerð, sem
hann hefur sent ísl. Er þar með
tölum sýnt, hversu óvandaður
málflutningur blaðsins hefur
verið og verður ekki lengur um
það deilt. Hitt er svo sjálfsagt, að
leyfa ritstj. óátalið að verja ein-
hverju meiru af dýrmætu rúmi
blaðs síns til þess að ræða enn
frekar en orðið er, hvort ritstj.
Dags sé óvandaður „farísei“ eða
ekki. Ef ritstj. leggur þá á sig að
lesa gamla árganga ísl., mun og
hann sjá, að það hefur jafnan
'verið talið tilheyra embættinu að
hreyta fúkyrðum og uppnefnum
að pólitískum andstæðingum,
jafnframt því sem eilífðarsöng-
urinn um KEA er kyrjaður. Mun
enginn amast við því þótt þessi
ritstj. haldi þannig áfram að
helga lífstilgang blaðsins og
skipa því það rúm, sem það verð-
skuldar.
•miiiiiiiiiiii
iiimiiiiimiiimiiimiiiiiiiii
| Skinnjakkar f
{ Skinnhúfur i
karlm. og drcngja |
{ Skíðahúfur [
| Peysur {
karla, kvenna, barna í
\ Hettublússur
i Útiíöt |
[ Ullartreflar.
j Brauns verzlun|
\ Páll Sigurgeirsson. 1
r.Miiimiimiimiiiiiiiiiiiiiimmmiiimmiimimimmia
Herbergi
Reglusamur maður eða
kona geta fengið leigt her-
bergi á góðum stað í mið-
bænum.
Upplýsingar gefur
GUNNAR ÞÓRSSON,
Pr£ntv. Odds Björnssonar h.f.
Sími 1015.
Tapazt hefur
lítill, upptrekktur (enskur)
krakkabíll, frá húsinu
Gránufélagsgata 39. Óskast
skilað. — Silkislceða■ fundin
sama stað.
Gott lierbergi
til leigu.
Afgr. vísar á.
til sölu, 1.8 ton, með nýrri,
9 besta Albinvél. Veiðar-
færi fylgja.
Sigurður Brynjólfsson,
(
Hrísey.