Dagur - 25.10.1950, Side 8
8
Bagijk
Miðvikudaginn 25. október 1950
Franskir gestir telja gufu- og leir-
böð mikið aðdráttarafl fyrir
erlenda ferðamenn
Franskt forlag vinmir að útgáfu skandinav-
ískrar ferðaleiðsögubókar
Heyþurrkunartæki, sem er einfalt
iirreyri ; _
Smíðað samkvæmt fyrirsögn Olafs ]. Hvanndal
prentmyndagerðarmeistara
Tveir franskir gestir gistu Ak-
ureyri um sl. helgi og lituðust
um í bæ og nágrenni. Voru það
M. Louis Nagel og M. G. R. Mar-
tineau frá útgáfufyrirtækinu Les
Editons Nagel í París, en þetta
fyrirtæki hefur nú í smíðum
leiðsögubók um Norðurlöndin
fimm, og mun Island þar liljóta
125 bls. af 600 bls. bók. Verða í
kaflanum um ísland lýsingar á
landi og þjóð, sögu og menningu
og aðstöðu erlcndra ferðamanna,
sem hafa í hyggju að koma til
íslands.
Þetta og sitthvað fleira sögðu
hinir frönsku géstir, er Dagur
átti tal við þá að Hótel KEA á
laugardagskvöldið. Þeir höfðu
komið með flugvél á laugai'dags-
morguninn og notað laugai'dag-
inn til þess að sjá umhverfið hér,
höfðu m. a. ekið austur á Vaðla-
heiði, skoðað Krossanessverk-
smiðjuna, bæinn sjálfan og heim-
sótt Þórarinn Björnsson skóla-
meistara í Menntaskólanum. -—
Ferðaskrifstofan hér leiðbeindi
þeim og aðstoðaði.
Frakkarnir gerðu sér grein fyr-
ir því, að þeir hefðu ekki valið
heppilegasta tímann til þess að
heimsækja þennan hluta lands-
ins, en allt um það voru þeir
ánægðir með komuna hingað.
Úrkomur hö.fðu verið miklar,
það sáu þeir hvarvetna, og raun-
ar rigndi eitthvað á þá á laugar-
daginn, en úrkomur eru ekkert
sérfyrirbi’igði á íslandi á þessu
sumri. Tíðin í Frakklandi hafði
hreint ekki verið skemmtilegri,
sögðu þeir, sífelldar rigningar og
rysjutíð. Þannig hefði tíðin víst
verið um norðanverða Evrópu í
allt sumar og væri enn.
Gerðu þeir ráð fyrir, að útkoina
leiðsögubókar þeirra mundi örva
ferðamannastraum til íslands?
Því ekki það? Frakkar vita
lítið um ísland. Frá París til
Vichy eru 6—7 stunda ferð með
járnbraut og þangað sækir fjöldi
fólks á degi hverjum til þess að
njóta heilsulindanna þar. Þær
eiga að vera sérlega góðar við
gigtveiki. En leiðin frá París til
íslands er ekki nema 7 klst. ferð
í lofti. Og hér eru dásamlegar
heilsulindir, gufu- og leirböð,
sem margan gigtveikan manninn
hafa læknað, að því er þeim hafði
verið sagt. Og þeir ætluðu að líta
nánar á þessar heilsulindir í suð-
ui'leiðinni. Forseti íslands hafði
bent þeim á staði á Reykjanesi,
er þeir ræddu við hann að Bessa-
stöðum, og margir fleiri staðir
væru til. Líklega áttuðu íslend-
ingar sig ekki á því, hverjir
möguleikar væru fólgnir í þessu.
Til væri margt fólk í Frakklandi,
sem hefði áhuga fyrir þessu. En
vitaskuld þui'fti þá að koma upp
aðstöðu fyrir þetta fólk á bað-
stöðunum. Það skorti hér alveg.
Frakkamir undruðust mjög að á
heimsfrægum stöðum eins og
Geysi í Haukadal, skyldi tæpast
vera hægt að tala um nokkra að-
stöðu fyrir ferðafólk. — í sam-
bandi við ferðabókina taka þeir
fram, að hún nái ekki aðeins til
Frakka, því að hún verður gefin
út jafnframt á þýzku og ensku.
Les Editions Nagel er þekktasta
leiðsögubókaútgáfa í Evrópu,
segja þeir, og bækur forlagsins
fjalla um ferðalög til flestra eða
allra Evrópulanda, og að auki
um ferðir til margra landa í öðr-
um heimsálfum. Þeir efast ekki
um, að þáttur íslands í skandi-
navisku bókinni, muni vekja at-
hygli feiðamanna á þessu lítt
kunna en „interassant" landi og
það muni bera ávöxt í framtíð-
inni.
Hvað höfðu gestirnir að segja
um ferðina til Norðurlandsins?
Þeir vóru ánægðir. Þetta var
það lengsta norður á bóginn, sem
þeir höfðu komið um dagana og
bjuggust ekki við að bæta það
met á næstunni. Þeim fannst vin-
gjarnlegt umhverfi hér og fólkið
aðlaðandi — annars alveg
undarlegt, hvað mikið er af
dökkhærðu og dökkeygu fólki
hér um slóðir — hér voru meira
að segja margar franskar typur.
Bókabúðir bæjarins höfðu vakið
sérstaka athygli þeirra, þær voru
í senn ótrúlega margar og ótrú-
lega vel búnar. Það mundi ekki
ofsögum sagt af því, að íslending-
ar væru bókamenn miklir. Jafn
furðulegt þótti þeim, að í svo
litlum bæ skyldu vera gefin út
fjögur vikublöð, og ekki minnk-
aði undrun þeirra, er þeir heyrðu
að auk þeirra væru þó nokkui'
tímarit og mikil bókaútgáfa. Eins
og eðlilegt er urn Parísarbúa
höfðu þeir veitt klæðaburði fólks
sérstaka athygli. Þeim fannst
fólkið vel klætt. Hvar fáið þið
efnin? Og hvað kosta fötin? Eftir
dálitla útreikninga, þar sem
krónum er breytt í franka í
skyndingu, sjá þeir, að föt úr
Gefjunar-gabardine eru alls ekki
dýr á þeirra mælikvarða, en ann-
ars finnst þeim yfirleitt dýrt hér
á íslandi og telja að það kunni að
hindra aðsókn ferðamanna.
Og að síðustu nefna þeir heim-
sókn í Menntaskólann og viðrseð-
urnar við Þórarin Björnsson,
sem einn skemmtilegasta þátt
dvalarinnar hér.
Framsóknarvist
á laugardagskvöldið
Félag ungra Farmsóknarmanna
hefur Framsóknarvist og dans að
Hótel KEA næstk. laugai'dags-
kvöld kl. 9. Aðgöngumiðar verða
seldir á skrifstofu flokksins, sími
1443, á laugardaginn kl. 5—-7. -—
Húsfyllir hefur verið á þeim
tveimur skemmtikvöldum, sem.
Framsóknarfélögin hafa haldið á
þessum vetri.
Heyverkun
í skurðgryf ju
Einar Petersen bóndi á Kleif á
Árskógsströnd hefur í sumar
verkað nokkuð af heyi í skurð-
gryfju.
Skurðurinn var gerður með
jarðýtu og er 3 m. breiður til
jafnaðar, með fláandi hliðum.
Dýpt 2,5 m. Heyið var látið
blautt í skurðinn og fergt með
þungu dráttartæki. Að síðustu
var látinn þakpappi á heyið og
moldarlag þar ofan á.
Hey þetta er að sjálfsögðu
verkað sem sæthey. Er útlit fyr-
ir að það’ hafi verkast vel.
Skurðgryfjurnar hafa marga
augljósa galla, en stofnkostnaður
er hverfandi. Sú spurning hlýtur
að vakna, hvórt þessi heyverkun-
araðferð eigi ekki rétt á sér a. m.
k. sem bráðabirgðaúrlausn.
Ljúka verkfræðiprófi
í Svíþjóð
í þessum mánuði luku tveir
Akureyringar háskólaprófi í
verkfræði við verkfræðiháskól-
ann í Gautaborg. Ásgeir Valdi-
marsson hreppstjóra Pálssonar
frá Möðruvöllum lauk prófi í
byggingaverkfr., en Knútur Ott-
erstedt, Otterstedt rafveitu-
stjóra, lauk prófi í rafmagns-
verkfræði. Báðir hafa þessir ungu
menn stundað nám í fjögur ár.
Ekið á liest?
Á mánudaginn fannst illa
meiddur hestur skammt frá
þjóðveginum við þinghús Glæsi-
bæjarhrepps. Er líklegt talið að
bíll hafi ekið á hestinn, en bíl-
stjórinn ekki hirt urn að segja frá
því pg láta lóga hestinum.
Ferðabókin kemur út í vor,
segja þeir. Bjarni Guðmundsson
blaðafulltrúi og Þorleifur Þórð-
arson forstjóri skrifa meginmúlið
um fslands, en auk þess munum
við leggja til nokkuð, og þar
styðjast við þá reynslu, sem við
höfum fengið með komu okkar
hingað. Og í þeirri umgetningu,
verður Norðurlandi alls ekki
gleymt. Þeir vita þegar, að Norð-
urlandsferð tilheyrir í áætlun
ferðamannsins. Sem sagt: Norð-
urlandsferðin var stutt, eins og
raunar íslandsferðin öll, en
skemmtileg endurminning samt.
Væntanlega stuðlar ferðabókin
að því, að fleiri suðrænir gestir
eignist þá endurminningu.
Ólafur J. Hvanndal, prent-
myndasmíðameistari, boðaði
blaðamenn og útvarpsfréttaritara
á Akureyri á fund sinn síðast-
liðinn miðvikudag og sýndi
þeim heyþurrkunarhjall, sem
hann hefur útbúið með það fyrir
augum, að þurrka í hey á ó-
þurrkasumrum. Einnig má
þurrka mó og skán, að vorinu og
jarðávexti, þegar þess þarf með.
Hvanndal skýrði ítarlega, hvern-
ig þurrkhjallurirjn skyldi notað-
ur. Bygging hjallsins er mjög
einföld, og öll gerð hans þannig,
að auðvelt er að setja hann upp
og taka hann niður á skammri
stundu. Grind hjallsins eru tvær
hliðar tengdar saman með 4
langböndum, sem falla í gróp.
Önnur hlið hjallsins er nokkru
hærri, og er þar komið fyrir
! renniskýlu, sem draga má upp og
niðui', og myndar hallandi þak,
er skýlir því, sem þurrka skal,
fyrir regni. Þegar þurrviðri er,
er skýlan dregin upp. Grindur
eru í hjallinum, sem auðvelt er
að taka út og renna inn á þver-
listum, og á þær er heyið látið.
Ein aukagrind fylgir, og þegar
snúa þarf heyinu, er einhver
grindin dregin út, og aukagrind-
FORELDRAR!
Barnaverndamefnd Akureyrar
leyfir sér að vekja alvarlega at-
hygli yðar og annarra forráða-
manna barna og unglinga, hér í
bænum, á eftirfarandi:
1. gr. — í umdæmi Barna-
verndarnefndar Akureyrar er
bannað að selja börnum og ungl-
ingum innan 16 ára aldurs tóbak,
hverju nefni sem nefnist, gefa
þeim það, eða stuðla að því, að
þau neyti þess, eða hafi það um
hönd.
2. gr. — Bönnuð er sala á
spýtubrjóstsykri (sleikjum) og
brjóstsykursstöngum, svo og öðr-
um þeim sælgætisvörum, sem að
áliti héraðslæknis og barna-
verndarnefndar geta talizt hættu
legar börnum og unglingum.
3. gr. — Engar leiksýningar eða
opinberar skemmtanir, sem
börnum óg unglingum innan 16
ára aldurs er ætlaður aðgangur
að, má halda, nema barnavend-
arnefnd hafi verið gefinn kostur
á að kynnast efni þeirra, og
ákveður hún þá, að því athuguðu,
hvort börnum og unglingum
skuli leyfður aðgangur að þeim.
4. gr. — Börnum og unglingum
innan 16 ára aldurs er bannaður
aðgangur að almennum knatt-
borðsstofum, dansstöðum og öl-
drykkjustofum. Þeim er og bann-
inni hvolft yfir heyið, en síðan er
grindunum snúið við, og verður
þá sú hliðin, er niður vissi, ofan
á, og er. henni síðan rennt inn
ttur, og verður þannig fyrri
grindin laus til að snúa heyinu á
hinum grindunum líka. Nóg er
að hafa eina aukagrind til snún-
ings heyi, þó að um marga hjalla
væri að ræða á einum stað. —
Hvanndal gerir ráð fyrir að hjall-
arnir verði af mismunandi stærð-
um. Hjallur sá, sem smíðaður
hefur verið, er þriggja m. lang-
ur og einn og hálfur m. á breidd,
en þessum hlutföllum má breyta
eftir vild. Eins og óður er sagt, er
auðvelt að taka hjallana sundur,
og raða efninu svo, að lítið fari
fyrir því. Hægt er að koma 10—
12 hjöllum á einn flutningabíl, ef
þyríti að flytja þá á milli staða.
Tengja mætti saman þrjá hjalla,
og spara með því tvær hliðar.
— Þessi þurrhjallagerð, sem
Hvanndal hefur fundið upp, virð-
ist hafa margt til síns ágætis, eins
og allt sem er einfalt og vanda-
laust að fara með. Ef að farið er
vel með hjallana, þeim geymdir í
húsi yfir þann tíma, sem þeir eru
ekki notaðir, geta þeir enzt í
tugi ára.
aður aðgangur að almennum
kaffistofum eftir kl. 6 s.d. nema
með aðstandendum. Eigendum
og umsjónarmönnum þessara
stofnana ber að sjá um, að börn
og unglingar fái þar ekki að-
gang og hafizt þar ekki við.
Börnum, yngri en 12 ára, er
bannað að vera á almannaíæri
eftir kl. 8 að kvöldi á tímabilinu
frá 15. september til 1. apríl og
eftir kl. 10 s.d. frá 1. apríl til 15.
september nema , fylgd með að-
standendum.
Börn, 12—14 ára, mega ekki
vera á almannafæri eftir kl. 10 að
kvöldi á tímabilinu frá 15. sept.
til 1. apríl, og ekki eftir kl. 11 s.d.
á tímabilinu frá 1. apríl til 15.
september nema í fylgd með að-
standendum sínum.
Foreldrum eða húsbændum
barnanna ber, að viðlögðum
sektum, að sjá um að ákvæðum
þessum sé framfylgt.
5. gr. — Börn og unglingar inn-
an 14 ára aldurs mega ekki selja
blöð eða bækur, nema að fengnu
leyfi barnaveindarnefndar.
6. gr. — Brot gegn reglugerð
þessari varða sektum sem brot
gegn barnaverndarlögunum. Skal
farið með mál, þeirra vegna, eins
og fyrir segir um slík mál í
barnavemdarlögunum.
Reglogerð um baroavernd á Akureyri