Dagur - 18.04.1951, Síða 5
Miðvikudaginn 18. apríl 1951
DAGUR
5
ÍÞRÓTTIR
OG ÚTILÍF
Ritstjóri: TÓMAS ÁRNASON..
Frá ársþingi
r
Iþróttabandalags
Akureyrar
Ársþing íþróttabandalags Ak-
ureyrar hófst í íþróttahúsinu 28.
febr. sl. — Formaður ÍBA, Ár-
mann Dalmannsson, flutti skýrslu
stjórnarinnar og fluttar voru
skýrslur sérráða ÍBA. Þá voru
lagðar fram nokkrar tillögur og
ýmis mál reifuð, sem síðan var
vísað til nefnda, er starfa áttu
milli þingdaga.
Miðvikuadginn 14. marz sl. var
svo framhaldsfundur haldinn á
sama stað, og lauk þinginu um
miðnætti með sameiginlegri
kaffidrykkju fulltrúanna að Hótel
KEA.
Meðal annars var samþykkt á
þinginu fjárhagsáætlun og móta-
skrá fyrir næsta starfsár, svo og
eftirfarandi tillögur:
„Ársþing ÍBA 1951 skorar á
bæjarstjórn Akureyrar að hraða
sem mest byggingu innisundlaug-
arinnar, svo að hægt verði að
taka hana í notkun, er skólarnir
byrja næsta haust.
Jafnframt skorar þingið á bæj-
arstjórnina að hlutast til um, að
sundlaug bæjarins verði opin al-
menningi til afnota eftir hádegi á
sunnudögum yfir sumarmánuð-
ina.“
„Ársþing ÍBA 1951 lýsir yfir
stuðningi sínum við ályktun
framkvæmdastjórnar ÍSÍ frá 15.
janúar sl. í áfengismálunum."
„Arsþing ÍBA 1951 beinir þeirri
ósk til framkvæmdastjórnar ÍSÍ,
að næsta íþróttaþing ÍSÍ verði háð
á Akureyri, sbr. tilmæli fram
borin á síðasta þingi ÍSÍ.“
„Fundurinn beinir þeirri ósk
til væntanlegrar stjórnar ÍBA, að
hún athugi möguleika á því að
koma á gagnkvæmum heimsókn-
um íþróttafólks frá Akureyri og
vinabæjum Akureyrar á Norður-
löndum, t. d. Álasundi í Noregi.“
Skíðaþingið 1951
Einar Kristjánsson
endurkosinn formaður
í sambandi við Skíðamót íslands
1951 var haldið skíðaþing á ísa-
firði dagana 25. og 26. marz. Á
þinginu voru rædd ýmis mál, sem
nú eru efst á baugi í skíðaíþrótt-
inni, svo sem þjálfun og val kepp-
enda á Vetrar-OIympíuleikana,
Skíðamót íslands og tilhögun
þess o. fl.
Stjórnin lagði fram ársskýrslu
yfir síðastliðið starfsár. Einnig
voru reikningar lagðir fram og j
samþykktir. Ur stjórn átti að
ganga Einar Kristjánsson, Akur-
eyri, og var hann endurkjörinn
formaður Skíðasambands íslands.
Aðrir, sem úr stjórninni áttu að
ganga voru Gísli B. Kristjánsson
og Ólafur B. Guðmundsson, báðir
úr Reykjavík. Ólafur B. Guð-
mundsson baðst undan endur-
kosningu og var í hans stað kos-
inn Einar B. Pálsson, Reykjavík.
Gísli B. Kristjánsson var endur-
kosinn. Fyrir í stjórninni voru
Gunnar Árnason og dr. Sveinn
Þórðarson, báðir Akureyri.
Á starfsárinu hefir SKÍ m. a.
stuðlað að komu tveggja áhuga-
þjálfara í skíðaíþrótt til landsins,
J. Tenmans, Osló, sem kennt hef-
ur skíðagöngu í vetur með mjög
góðum árangri, og H. Hanssons
Áre, Svíþjóð, sem nýkominn er
til landsins og kennir svig og
brun í Reykjavík. En vegna
skammrar viðstöðu mun hann
varla kenna annars staðar á land-
inu. Koma þjálfara þessara er
liður í undirbúningi undir Vetr-
ar-Olympíuleikana 1952, en
þangað hefur Skíðasambandið
hug á að 12—14 íslenzkir skíða-
menn geti farið.
r
Iþrótta-lantísmót og
millirikjakeppni
„Ársþing ÍBA 1951 skorar á
stjórn sjúkrahússins á Akureyri
og bæjarstjórn Akureyrar, að
gera það sem í þeirra valdi stend-
ur til þess að Guðmundur Karl
Pétursson, yfirlæknir, hverfi
ekki frá starfi sínu hér á Akur-
eyri.“
í Bandalaginu eru nú 5 félög
með rúmlega 1600 meðlimum.
Stjórn ÍBA skipa:
Ármann Dalmannsson, form.
Jóhann Þorkelsson, varaform.
Kári Sigurjónsson, ritari.
Halldór Helgason, gjaldkeri.
Axel Kvaran, spjaldskrárritari.
Þorvaldur Sr.æbjörnss., meðstj.
1951
Stjórn íþróttasambands íslands
hefur samþykkt þessi landsmót
og milliríkjakeppni sumarið 1951:
- Milliríkjakeppni: í knattspyrnu,
ísland—Svíþjóð, 29. júní til 6.
júlí, í Reykjavík.
Ólympíudagurittti 1951 verði
sunnudaginn 15. ]úlí. í Reykjavík
verða Ólympíudagarnir tveir.
Laugardaginn 14. júlí verður
sundkeppni í sjó.
Meistaramót íslands í frjálsum
íþróttum, þann 17. til 22. ágúst.
Mótið fer fram í Reykjavík. FRÍ
ráðstafar mótinu.
Drengjameistaramót íslands
frjálsum íþróttum, þann 3. til 6.
ágúst. Mótið fer fi-am á Akureyri,
og sér íþróttaráð Akureyrar um
mótið.
Golfmeistaramót íslands, þann
18. til 22. júlí. Mótið fer fram í
Reykjavík. G. S. í. ráðstafar mót-
inu.
Meistaramót íslands í hand-
knaítleik karla (utanhúss), þann
22. til 28. júní. Umf. Afturelding
í Mosfellssveit sér um mótið.
Meistaramót íslands í hand-
knattleik kvenna (utanhúss),
þann 15. til 21. júní Mótið fer
fram á ísafirði. í. B. í. sér um
mótið.
KNATTSPYRNA:
Knattspymumót íslands í
mcistaraflokki, þann 10. til 28.
júní.
Knattspyrnumót Islands í 1.
aldursflokki, þann 29. júní til 10.
júlí.
Knattspyrnumót Islands í 2.
aldursflokki, 1. til 15. ágúst:
Knattspyrnumót íslands í 3.
aldursflokki, 20. til 30. júní.
Öll knattspyrnu-landsmótin
fara fram í Reykjavík á vegum
K. R. R.
(Frá í. S. í.).
—o—
Þýjzkur skíðakennari
til Akureyrar
Ákveðið er, að þýzkur skíða-
kennari, að nafni Erben, komi til
Akureyrar á næstunni til að kenna
svig og brun. Væntanlega kemur
hann til Kaupmannahafnar í dag
og til Reykjavíkur á sunnudag.
Síðan með fyrstu ferð norður.
Það verður mjög kostnaðarsamt
að fá slíkan úrvalskennara lang-
an veg. Þarna mun og gefast ein-
stakt tækifæri til æfinga. Þjóð-
verjar eru mjög framarlega í
skíðaíþróttinni, þó sérstaklega í
svigi og bruni.
Akureyskir skíðamenn geta að-
eins sýnt þakklæti sitt á einn hátt.
Það er með því að láta þegar skrá
sig hjá Skíðadeildum íþróttafé-
laganna til þátttöku í æfingum
hjá þessum úrvals kennara. —
Því miður virðist snjórinn ætla að
dvelja enn um stund, svo að vænta
má góðrar aðstöðu við æfingarnar.
—o—
Skíðamót Akureyrar
1951
Boðganga 3x1 km. + 3x2 km.
6 keppendur í hverri sveit —
frá K. A., Þór og M. A.
1. Sveit K. A. 42,09 mín.
24 Sveit M. A. 43,54 mín.
3. Sveit Þórs 45,54 mín.
Einstaklingstíma:
1 km.: 1. Erlendur Björnsson,
K. A., 4 mín. 35 sek. — 2. Krist-
ján Ingólfsson, M. A., 4 mín. 43
sek. — 3. Guðlaugur Helgason
4 mín. 44 sek.
2 km.: 1. Bei-gur Eiríksson, K.
A., 8 mín. 57 sek. — 2. Guðm.
Guðmundsson, K. A., 9 mín. 02
sek. — 3. Jónas Jónsson, M. A.,
9 mín. 28 sek.
Færi var ágætt og allmargir
áhorfendur. Fyrstu tvo sprettina
leiddi M. A., en á þriðja sprettin-
um tók Haukur Jakobsson, K.
A. , forystuna. — Gangan fói'
fram á hring, sem var lagður frá
íþróttahúsinu vestur, suður og
síðan niður með Hrafnagilsstræti
og var 1 km. að lengd.
Göngumennirnir gengu yfirleitt
rösklega og skemmtu áhorfendur
sér hið bezta.
Sídðamót H. S. Þ.
Skíðamót H. S. Þ. fór fram í
Réykjadal 7. og 8. apríl s. 1.
Mótið hófst kl. 4 síðd. með
keppni í bruni B og C flokka.
B. -FLOKKUR:
1. Aðalst. Jónsson Efling 1.54.0
sek. -----
2. Ásgeir Torfason, Ljót. 2.06.1
sek.
C.-FLOKKUR: . ;
1. Guðlaugur Valdemars., Efl-
ing, 1.495.0 sek.
2. Þorgrímur Sigurjónsson, Völs-
ung, 1.50.1 sek.
3. Gísli Vigfússon, Völsung,
1.52.5 sek.
4. Jakob Þorsteinsson, Magni,
1.57.8 sek.
Lengd brautar var 2500 metrar,
fall um 300 m. — Til keppni voru
skráðir 3 í B.-fl„ 24 í C.-fl..
Sveitakeppni í svigi hófst kl.
6 á sunnudag. — Lengd brautar
350 m„ hæð. 100 m„ 32 hlið.
1. Þorgrimur Sigurjónsson, Völs-
ung, 81.1 sek.
2. Gísli Vigfússon, Völsung, 82.7
sek.
3. Aðalsteinn Jónsson, Efling,
83.2 sek. í
1. Sveit Völsungs, 3.55.4 sek.
2. Sveit Eflingar, 4.13.8 sek.
Sunnudag 8. apríl hófst mótið
kl. 10.30 með keppni í svigi, C-fl.
Lengd brautar 400 m„ fall 120 m„
36 hlið.
1. Þorgr. Sigurjónss., Völsung,
95.2 sek.
2. Aðalsteinn Karlsson, Völs-
ung, 97.1 sek.
3. Hreiðar Jósefsson, Völsung,
95.0 sek.
Til leiks voru skráðir 22 menn.
Kl. 2 sama dag hófst stökk-
keppni í B- og C-flokkum.
C-FLOKKUR:
1. Aðalst. Jónsson, Efling, 206.7
stig.
2. Gísli Vigfúss., Völsung, 206.6
stig.
3. Þorgr. Sigurjónsson, Völsung,
186.7 stig.
Þess skal getið, sem
gert er
Á síðastliðnu hausti afhentu
aau systkin, Jón Helgason stór-
kaupmaður í Kaupmannahöfn,
Hallfríður Helgadóttir sauma-
kona á Akureyri og Baldur
Helgason trésmíðameistari á Ak-
ureyri, Kvenfélaginu „Hlín“ í
Grýtubakkahreppi, sjóð að upp-
hæð kr. 10.000.00 til minningar
um foreldra sína, Sigurfljóð Ein-
arsdóttur Ijósmóður og Helga
Helgason. En þau hjón bjuggu á
Grund í Grýtubakkahreppi á ár-
unum frá 1880 til 1909. Sigur-
fljóð stundaði ljósmóðurstörf í
Grýtubakkahreppi á árunum
1875—1924. Sjóðurinn ber nafnið:
Minningarsjóður Sigurfljóðar
Einarsdóttur ljósmóður og Helga
Helgasonar.
í skipulagsskránni segir svo:
Tilgangur sjóðsins er:
a) Að styrkja efnilegar stúlkur
til að nema ljósmóðurfræði í
Deim tilgangi að gegna þeirri
starfsemi í Grýtubakkahreppi.
b) Að veita styrk til hæfra
kvenna, er vilja annast hjúkrun
sjúkra og aðra líknarstarfsemi í
}águ áðurnefnds sveitarfélags.
c) Að veita styrk fátækum
ekkjum og mæðrum í sveitinni,
er misst hafa eiginmann eða fyr-
irvinnu heimilis síns eða orðið
fyrir heilsuleysi á sér eða sínum.
Sjóðurinn veitir viðtöku minn-
ingargjöfum, áheitúm og öðrum
slíkum gjöfum, sem einstaklingar
eða eða félög, fyrr eða síðar, vilja
leggja frám, og verður allt það fé,
er sjóðurinn þannig kann að’
áskotnast, lagt við höfuðstólinn,
sem stofnfé.
Styrk úr sjóðnum má fyrst
veita á 103. afmælisdegi Sigur-
fljóðar heitinnar, hinn 10. júní
1952, og síðar árlega á hverjum
afmælisdegi hennar, eftir því
sem umsóknir liggja fyrir.
Ekki má veita styrk úr sjóðn-
um nema sem svarar 3/4 árs-
vaxta hans. 1/4 leggist við höfuð-
stólinn, unz sjóðurinn er orðinn
kr. 50.000.00. Getur þá stjórn
sjóðsins ákveðið, hvort nokkur
hluti vaxtanna leggist við höf-
uðstólinn eða eigi.
Þau systkin hafa með sjóð-
stofnun þessari reist foreldrum
sínum veglegan og varanlegan
minnisvarða og jafnframt hafa
þau sýnt sveitarfélaginu, sem þau
hjón unnu æfistarf sitt í, sérstaka
ræktarsemi.
B-FLOKKUR:
1. Guðlaugur Valdimarss. Efl-
ing, 201.7 stig.
2. Sigurður Marteinss., Gaman
og alvara, 201.7 stig.
3. Kristján Jónsson, Völsung,
195.9 stig.
Skráðir þátttakendur voru 11 í
báðum flokkum.
Guðmundur Guðmundsson lagði
allar brautir og var yfirdómari
mótsins. U. M. F. Efling sá um
undirbúning mótsins í samráði við
formann Héraðssambandsins. —
Þátttakendur í mótinu voru skráð-
ir 38 frá átta félögum, og er það
lang fjölmennasta skíðamót sem
hér hefur farið fram.