Dagur - 23.05.1951, Blaðsíða 7

Dagur - 23.05.1951, Blaðsíða 7
Miðvikudaginn 23. maí 1951 D A G U R 7 Suðusúkkulaði nýkomið. Kaupíélag Eyfirðinga Njlenduvórudeild og útibú. Vatnsglös Kaupfél. Eyfirðinga Járn- og glervörudeild. TESTELL 12 manna. Kaupfélag Eyfirðinga Járn- og glervörudeildin Garðhrífur Stungugafflar með gamla verðinu. Kaupfélag Eyfirðinga. Járn- og glervörudeild. Reiðhjóladekk og slöngur Kaupfélag Eyfirðinga Járn- og glervörudcild. MÓÐIR, KONA, MEYJA. (Framh. af 4. síðu) Það, sem niður vissi, þegar tertu- botninn var bakaður, er nú látið snúa upp og ofan á botninn er stráð lagi af púðursykri. Sykurinn á að liggja í jöfnu lagi yfir allan botninn. Þá er appelsínusafa hellt varlega (svo að sykurinn ójafnist ekki) yfir, en við það að blotna af appelsinusafanum, verður kakan sérstaklega ljúffeng. Að lokum ev fínt söxuðum appelsínuberki stráð yfir kökuna. Góður tertubotn. 150 g hveiti, 150 g sykur, 150 g smjörlíki, 3 egg, hálf tesk. gerduít. Smjör og sykur hrært vel. Þá eggjarauðurnár, hveiti og ger. Stíf- þeyttum hvítunum blandað saman við að lokum. Úr þessu fást 2 — 3 botnar. — Frá bókamarkað- inum (Framh. af 5. siðu) andi sigurmáttur hans. Fagur og áhrifamikill í látleysi sínu er sálm- urinn: „Vér trúum, þó að logi lágt vort litla trúarskar". Hreimmikill og hn'fandi er einnig þakkarsálm- urinn í tilefni af stofnun íslenzka lýðveldisins.“ (Sjá „Syng guði dýrð“ nr. 32).-------„Margt er annarra prýðisgóðra og trúar- heitra sálma í safninu, frumortra og þýddra. En mér sýnist fara vel á því, að ljúka þessari stuttorðu umsögn, sem rituð er með jólin í huga, á eftirfarandi jólasálmi, sem lýsir fagurlega lífsskoðun höfund- arins, heitri trú hans og hugsjóna- ást, og er einnig sérstaklega tíma- bær, eins og nú er umhorfs í heiminum: „Kom blessuð, þú nótt, sem boðar trið“.“ (Syng guði dýrð nr. 5). Karlmanns- armbandsúr lundið- skammt frá húsi rnínu á Litla-Árskógssandi. Valves Kárason. Chevrolet-vörubíll tveggja tonna, model 1934, ný- uppgerður, með mótor ’42, á- samt varahlutum til sölu. Upp- lýsingar í Ránargötu 9, eftir kl. 7 síðdegis. Fjármark mitt er: Sneiðrifað fr. hægra og miðhlutað vinstra. Jakob Marteinsson, Skriðulandi, Aðaldal. Takið eftir! Tökum að okkur Iirein- gerningar. — Upplýsingar í Hríseyjargötu 21, norður- enda, frá kl. 6—8 e. h. SUNDLAUGIN á Laugalandi í Hörgárdai verður opin fyrir almenn- ing næstk. föstudag kl. 4—10, laugardag og sunnu- dag kl. 2—10 e. h. Opin á sama tíma næstu viku. — Aðgangseyrir kr. 3.00 fyrir fullorðna og kr. 1.00 fyrir börn. — Sundlaugin er lok- uð á öðrum tímum. Vil kaupa mótorhjól Afgr. vísar á. Atvinna Reglusamur, ábyggilegur, duglegur maður, vanur bú- störfum, óskast um óákveð- inn tíma. Upplýsingar í Skjaldarvík. Stefán Jónsson. Sænsk gummistígvél Asbyrgi h.f. Þvottapottur, kolakyntur, í sæmilegu lagi, óskast keyptur. Stefán Jónsson, Skjaldarvík. Stúlku, helzt vana heimilisstörfum, vantar mig nú þegar. Gunnhildur Ryel. Húsið Rauðamýri 11 er til sölu. Húsið er komið undir þak og einangrað. Tilboðum sé skilað fyrir 2. júní til undirrit- aðs, sem veitir allar nánari upp- lýsingar. Jón Ingimundarson, Kaupvangsstræti 1. Upphlutsbelti tapaðist á hvítasunnudag. Finn- andi er beðinn að skila þvi í Geislagötu 1. — Fundarlaun. Egg til útungunar brúnir ítalskir, til sölu. Pylsu- gerð KEA tekur á móti pönt- unum. Gustav Behrind, Sjávarbakka. Barnavagn Nýlegur enskur Silvercross- barnavagn á háum hjólum til sölu. — A. v. á. Ráðskona óskast á lítið heimili. A. v. á. Peningaveski með símakvittunum o. fl., tapað- ist í sl. viku, sennilega í mið- bænum. Finnandi geri góðfús- lega aðvart á afgreiðslu Dags. íbúð 1—2 herbergi og eldhús óskast til leigu nú þegar. — A. v. á. Ú r fannst við samkomuhúsið á Breiðumýri fyrripartinn í vetur. — Afgr. vísar á. Trillubátur 31/2 tonn, með Droth-Dieselvél, til sölu. — Upplýsingar á neta- verkstæði Kaldbaks. Tilboð óskast í kú að öðrum eða þriðja kálfi, tvær kvígur, 11 og 12 mánaða, tvo kvígukálfa, eins og tveggja vikna. Gripirnir allir af góðu kyni. Frestur til 1. júní næstk. — Réttur áskilinn að velja og hafna. Tryggvi Sigmundsson, Ytra-Hóli. Húseigendur! Tökum að okkur að bika og mála húsþök. — Sími 1372. SAVOYKÁL \ er bezta og hollasta kálið. Hefur verið ræktað á Ak- ureyri með góðum árangri. Guðmundur í Brúnalaug selur 6 plöntur í moldar- pottum á 10 krónur. Ekki tekið á móti pöntununl f síma. m BÆ OG BYGGÐ I.O.O.F. Rbsl. 2 — C9523£i4 — Messað í Glerárþorpi næstk. sunnudag kl. 2 e. h. — F. J. R. K. A. hvetur félaga sína eindregið til þátt töku í Samnorrænu sundkeppninni. Tak- markið er: að hver einasti félagi taki þátt í henni. Stiórnin. Fíladelfía. Samkomur verða í Lundargötu 12 sunnudaga og fimmtudaga kl. 8.30 e. h. Söngúr og hljóðfærasláttur. Allir vel- komnir. Bæjaryfirvöldin eru farin að láta aka sjó á göturnar, segir bíleigandi blaðinu, og vill hann koma harðorðum mótmælum á framfæri. Blaðið vill taka undir það, að óhæfa er að aka sjó á götumar. Með því móti er verið í leynd að skemma ökutækin og valda bifreiða- eigendum tjóni. Vonandi kem- ur slíkt ekki fyrir oftar. Frá bazarnefnd „Berklavarn- ar“ og „Sjálfsvarnar“. Alls söfn- uðust 400 munir. Agóðinn, kr. 5.582.00 rennur í „Hlífarsjóð“ (styrktarsjóð fátækra berkla- sjúklinga). Nefndin þakkar öll- um sem stuðluðu að þessum góða árangri. Stjórn ÍBA heitir á alla með- limi íþróttafélaganna í bænum, að taka þátt í Samnorrænu sundkeppninni, byrja sem fyrst að æfa og þreyta sundraunina þegar þeir finna sig færa til þess. Sextugur varð sl. mánudag Jón Antonsson kaupmáður hér í bæ. Unglingsstúlku, 12—13 ára, vantar mig sem fyrst. Hekla Asgrimsdóttir, Þórunnarstræti 104. Peningaveski tapaðist síðastl. sunnudag á leið- inni frá Hafnarstræti 100 að Nýja Bíó. Finnandi vinsamlega skili því gegn góðum fundar- launum á afgreiðslu Dags. Til sölu: Rafmagns-hrærivél, rafmagns- þvottapottur, saumavél, fótstig- in, hlekkjaherfi, utanborðsmót- or, rafmagnskaffikanna, stór, og margt fleira. SÖLUSKÁLINN, Sími 1427. seljum við næstu daga. SÖLUSKÁLINN, Simi 1427. Herbergi Frekar lítið kjallaraherbergi óskast. Afgr. vísar á. Ford-vörubíll (1938), í góðu lagi, til sölu. Upplýsingar á Bifreiðast. Stefnir. Sími 1218. I.O.O.F. 13352581/2. Kirkjan. Messað í Akureyrar- kirkju nk. sunnudag, kl. 2 e. h. — Sr. P. S. prédikar. Fermingarmessur í Möðruvalla- prestakalli: Sunnud. 27. maí, kl. 2 á Möðruvöllum, sunnud. 3. júní kl. 1 að Bægisá, og sunnud. 10. júní kl. 1 á Bakka. Samkoma verður á Sjónarhæð á sunnudaginn kl. 5 e. h. Allir vel- komnir. Fimmtugur verður á morgun Ás- geir Árnason, 1. vélstjóri á Hvassa- felli, Spítalavegi 9 hér í bæ. Fimmtugur verður á morgun Stefán Árnason, verkam., Norður- götu 3. Hjúskapur. Nýlega voru gefin saman í Reykjavík af biskupinum, hr. Sigurgeir Sigurðssyni, frk. Guð- rún Ólafsdóttir, símamær hér í bæ, og Sigurður Skagfield óperusöngv- ari, Reykjavík. Hjúskapur. 19. þ. m. voru gefin saman í hjónaband ungfrú Margrét Oddsdóttir og Jón Eymundur Asp- ar, loftskeytamaður. Heimili þeirra er að Þórunnarstr. 118, Akureyri. Trúloíun sína hafa nýlega opin- berað ungfrú Laufey Pálmadóttir, verzlunarmær, og Valgarð Jónsson vélstjóri, bæði til heimiils á Akur- eyri. Lúðrasveit Akureyrar leikur á ráðhústorgi nk. föstudagskvöld, kl. 8.30, ef veður leyfir. Fimm ára iröken fann útsprung- inn fífil í garði hér í gævmofgun, og er þá ekki um að deila, að sum- arið er komið! Biireiðaskcðun stendur yfir hér í bænum. I dag eiga að mæta bif- reiðarnar nr. A-451—A-525, og á morgun nr. A-526—A-600. Nokk- ur vanhöld eru á því, að menn mæti með bifreiðar sínar. Bifreiða- eftirlitið áminnir bifreiðaeigendur að mæta á réttum tíma. Fuglatjörnin. Enn halda börnin áfram að gefa fuglunum í fugla- tjörninni brauðmola. Þyrfti að hætta því, vegna þess að endurnar éta ekki brauðið héðan af, en rott- unum fjölgar sífellt við pollinn meðan brauðgjöfunum er haldið á- fram. Fyrir mistök hefur dregizt í hélfan mánuð að birta kveðju Björgvins Guðmundssonar til vina sinna, sem birt er annars staðar i blaðinu í dag. Er beðið velvirð- ingar á þessum drætti. Stangaveiðifél. Straumar. Fé- lagsfundur í Rotarysal Hótel KEA í kvöld kl. 8.30. Ýmis áríðandi mál á dagskrá. Fjölmennið. Tilhögun við sýnikennslu Heim- ilisiðnaðarfélagsins i Brekkug. 3 þrjá síðustu daga maímánaðar :— Þriðjud. 29. maí, kl. 3—6: Tóvinna (Rannveig H. Líndal). S. d. kl 8— 11: Skinnavinna (Iðunn og Þóra Sigfúsdætur). Miðvikud. 30. mai, kl. 3—6: Mottur (H. B. o. fl.). S. d. kl. 8—11: Litun (Sigr. Jóhanns- dóttir o. fl.). Fimmtud. 31. mai, kl. 3—6: Prjón og hekl (Ásrún Jörg- ensdóttir). S. d. kl. 8—11: Fornísl. saumur og nútímahannyrðir (frk. Ragnh. O. Björnsson). Þátttaka er ókeypis fyrir Heimilisiðnaðarfé- laga. Aðrir greiða lítilsháttar gjald. Vinningar í happdrætti templara 15. þ. m.: nr. 7660 kr. 10.000.00, nr. 29259 trillubátur, nr. 19769 ís- skápur, nr. 4670 ritvél, nr. 25063 myndavél, nr. 624 ritsafn Jóns Trausta, nr. 28826 þvottavél, nr. 20153 eldavél, nr. 3079 ritvél, nr. 3658 Islendingasögur, nr. 10675 skíði, nr. 19675 kvenreiðhjól, nr. 5711 ljósmyndavél, nr. 14655 karl- mannsreiðhjól, nr. 7718 hraðsuðu- pottur, nr. 13400 ljósakróna, nr. 11402 bókaskápur, nr. 517 hrað- suðupottur, nr. 4659 saumavél, nr. 1948 saumavél, nr. 25221 vegg- lampasett, nr. 26408 hrærivél, nr. 19554 hraðsuðupottur, nr. 6137 26230, 7915, 19872 og 18365 kr. 500.00 — Birt án ábyrgðar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.