Dagur - 23.05.1951, Blaðsíða 8

Dagur - 23.05.1951, Blaðsíða 8
12 Bagur Miðvikudaginn 23. maí 1951 Líklegt að margir votheystumar verði byggðir í héraðinu í sumar Aðalfundur Samvinnubyggingafélags Eyjafjarðar var haldinn síðastliðinn miðvikudag Liklegt er, að allmargir vot- heysturnarverði byggðir i hér- aðinu i sumar og lil pess not- uð Prometo-mót Samvinnu- byggi ngarf élags Eyjafjarðar, er svo vel hafa reynzt að und- anförnu. Sótt hefur verið um fjárfesting- arleyfi til að byggja 18 turna, flesta hálfháa, en ekki er búið að afgreiða nein leyfi frá Fjérhags- ráði enn sem komið er. Alls mundi hasgt að byggja 30 turna á sumri, ef vel gengi. Blaðið fékk þessar upplýsingar hjá Valdemar Pálssyni, er verið hefur formaður Samvinnubygg- ingafélags Eyjafjarðar síðan 1937 og haft á hendi forustu um fram- kvæmdir félagsins á þessu tíma- bili, en þær hafa verið miklar og merkilegar. Aðalfundur félagsins var haldinn sl. miðvikudag, og þá baðst Valdemar Pálsson undan endurkosningu, og var kjörinn í hans stað. Árni Jónsson, tilrauna- stjóri. Blaðið fékk eftirfarandi upplýsingar um störf félagsins og aðalfundarins hjá fráfarandi for- manni, Vald. Pálssyni: STARFSEMI SL. ÁRA Hinn 16. þ. m. var aðalfundur Samvinnubyggingafél. Eyjafjarðar haldinn í Rotarysal Hótel KEA á Akureyri. Á fundinum voru mætt- ir, auk stjórnar og endurskoðenda, fulltrúar úr nær öllum hreppum sýslunnar. Fundarstjóri var kosinn Jón Siggeirsson, bóndi, Hólum. Ritari fundarins var Helgi Simonarson, bóndi, Þverá. Formaður félagsins skýrði frá starfsemi þess á liðnu ári og lagði fram reikninga fyrir árið 1950, er voru samþykktir í einu hljóði. Samkv. eignareikningi átti félag- ið í árslok kr. 96456.00 skuldlausa eign. Þar af eru vélar, sem árlega eru afskrifaðar, kr. 75.600.00. I skýrslu formanns gat hann þeirra breytinga, sem orðið 'nafa á árinu með byggingareftirliíið á fé- lagssvæðinu, Kvað hann sýslu- nefnd Eyjafjarðarsýslu hafa feng- ið staðfestingu á byggingarsam- þykkt fyrir sýsluna, samkv. lögum nr. 108, frá 31. des. 1945, og hefur hún þegar ráðið Snorra Guð- mundsson byggingameistara sem byggingafulltrúa sýslunnar fyrir yfirstandandi ár. En sem kunnugt er, hefur Snorri haft á hendi eftir- lit og umsjón með byggingum bænda mörg undanfarin ár og leyst þau störf af hendi með ágætum. Mun starfssvið hans að mestu eða öllu verða óbreytt framvegis. B YGGINGA R í S VEIT UM Formaður taldi, að byggt hafi verið mikið i sveitunum á síðast- liðnu ári eða iíkt og undanfarin ár, en bjóst við að draga mundi úr þeirri starfsemi á þessu sumri vegna hækkandi verðs á efni og vinnu. Á árinu voru byggðir 4 votheys- turnar, 12.5 m háir og 5 af lægri gerð, sem hægt er að fylla án sax- blásara. Hafa því verið byggðir alls í votheysturnamótum félagsins 10 háir turnar og 5 hálfturnar á sl. tveimur árum. Hrærivélar og R-steinsvélar fé- lagsins voru notaðar allmik'ð á ár- inu, og var meiri eítiispurn eftir þeim en hægt var að fullnægja. ■ Ut af skýrslu formanns urðu all- miklar umræður á víð og dreif. Komu meðal annars fram fyrir- spurnir um, hvort rétt væri, að leiga fyrir votheysturnamótin væri um og yfir kr. 5000.00 á sex metra háa turna, og hvort eigi væri hægt að lækka leiguna, svo hægt væri fyrir sem flesta bændur að fá þessar vel gerðu heygeymslur. KOSTNAÐUR VIÐ BYGGINGAR Formaður taldi hæpið. að hægt væri að taka minna en nú væri gert fyrir mótin, og með tilliti til verðgildis krónunnar nú, mætti leigan teljast lág, en hún væri og hefði verið kr. 260.00 pr. hæðar- meter í byggingum þessum. Las hann upp svohljóðandi sundurlio- aðan reikning yfir byggingu 6 m turns, er steyptur var sl. haust: Vinna 3 manna, 141 klt. á kr. 16.00 .......... 2256.00 Leiga á mótorum og Die- selvél, 6x260.00 .... 1560.00 Fyrir bíl undir Dieselvél 400.00 Klifurjárn, 18 m. 15.00 . 270.00 Benzín, smurning og hrá- olía ................. 445.80 Frágangur á mótum (sam eiginiegur kostn.) .... 209.70 Leiga á tæmimótum og ferð Sverris Árnasonar v. undirbúnings ...... 128.00 Umsjón og slysatrygging 266.50 Alls kr. 5536.00 KOSNINGAR Úr stjórn átti að ganga formað- ur félagsins, Valdemar Pálsson, og baðst hann undan endurkosningu. Kosningu hlaut Árni Jónsson til- raunastjóri, Gróðrarstöðinni, til þriggja ára. Endurskoðandi var kosinn Helgi Daníelsson, Björk, til tveggja ára. Á fundinum kom fram fullkom- inn skilningur á þeirri nauðsyn, að allt sé gert til þess, að sveitabýlin og peningshúsin verði smekklega, haganlega og skipulega gerð, svo að þau verði í samræmi við fegurð héraðsins og geti veitt fólkinu meiri þægindi og ánægju við sveitabúskapinn en feður okk- ar og mæður áttu vð að búa. í BRÉFUM, sem blaðið Fisliing News í London birtir frá lesendum kemur fram andúð á því, að tekið er á móti fiski úr þýzkum togur- um í brezkum fiskveiðahöfn- um. í bréfi frá aðalritara sambands togarayfirmanna í Grimsby, er minnt á fanga- búðir nazista og á méðferð þá, er brezkir sjómenn fengu á stríðsárunum og afþakkað, að þýzkur fiskur sé borinn á borð fyrir brezka sjómenn eða fjölskyldur þeirra. „ . . . i fru Borgs iscene- sættelse“ Politiken segir frá heimsókn Reumertshjónanna til Islands sl. sunnudag og frá gestaleik frú Onnu á Þjóðleikhúsinu. Segir þar m. a.: „Den indhildt syge, der opföres i fru Borgs iscenesættelse. . . . “ Þarna segja, víst JDanir hrein- skilnislega það, sem leiklistargagn- rýnendur Reykjavíkurblaðanna hafa verið að tæpa á! Er Bretum þungur í skauti Myndin er af Mohammed Mus- sadegh, forsætisráSherra Iran, en hann beitti sér fyrir þjóðnýtingu olíuíindanna o£ upptöku á eign- um brezk-íranska olíuféla^sins og vill ekki semja við Breta um gerö- ardóm. En Bretar telja einhliða uppsöijn samningsins við Írans- stjórn óéilda. Mussadegh er 71 árs. Hann óttast nú mjög æsingar þjóð ernissinna og heíur búið um sig í þinghúsinu við sterkan hervörð, þvi að þjóðernissinnar eru sagöir sitja um líf hans. Brezkur kommúnista- leiötogi fær sjónina á nýjan leik Brezkur kommúnistaforingi, C. H. Darke hefur sagt sig úr flokkn- um, segir Sunday Express í Lond- on sl. sunnudag. I greinaflokki í blaðinu skýrir hann frá því, hvern- ig flokkurinn framkvæmir fyrir- skipanirnar frá Moskvá, og hvern- ig flokksforustan snýst eins og vindhani á burst eftir fyrirmælum þaðan. Los er nú á kommúnista- flokkum Vesturlanda, og blöskrar hinum skárri mönnum Moskva- þjónustan. „Eg er kominn til að sækja úr .. ." í enska blaðinu Sunday Express er sl. sunnudag sagt frá skrýtnum orðaskiptum, sem áttu sér stað í London á laugardaginn. Skozki stúdentinn, sem stóð fyrir því að ræna krýningarsteini Bretakon- vnga úr Westminster Abbey á jóla- dagsmorgun í vetur, birtist allt í einu á Cannon Row löj>reglustöð- inni í London. „Eg er kominn til að sækja armbandsúr, er ég týndi,“ sagði hann við lögreglumennina. „Eg týndi því í Westminster Ab- bey á jólanótt." (Lögreglan hafði fundið armbandsúr í kirkjunni eft- ir ránið.) Stúdentinum — Ian Ha- milton — var vísað inn til lög- reglustjórans. Þeir þekktust. Lög- reélustjórinn hafði yfirheyrt Ham- ilton í Giasgow i janúar, en ekkert hafði sannazt á hann þá. „Eg er kominn til að sækja úrið mitt,“ sagði Hamilton. — „Hvaða úr?“ spurði lögreélumaðurinn. „Þegar é£ spurði þig um úrið í janúar, neitaðir þú því, að það væri þitt úr.“ „Jæja, hvað sem því líður, þá er það mitt úr, sem fannst í kirkj- unni; é£ þarf endileéa að fá það aftur, ég á ekkert annað úr,“ sagði Hamilton. — En hann fékk ekki úrið. Lögreglan neitaði að afhenda það. „Þetta voru heldur óskemmti- legir endurfundir,“ sagði Hamilton. „E£ hélt, að maðurinn mundi sjá hið spaugileéa við sitúasjónina, en það gerði hann ekki. Það var nú mein'.ð." — Brezka innanríkisráðu- neytið hafði áður ákveðið að höfða tekki mál út af steinshvarfinu. — Kvaðst ekki vilja gera stúdentana að „þjóðernislegum píslarvottum“. Tillaga um að veita Glerá í Jötun- heima og þurrka Gleráreyrar fyrir athafnasvæði Brúin stóra, sem fyrirhuguð er, yrði óþörf Halldór Halldórsson, starfs- tnaður shijmlagsttcfndar rikis- ins, fyrrv. byggingarfulltrúi d Akureyri, hefur gert íillögu um að veit.a Glerd úr núvcr- andi farvegi. sinum og norður i Jötunheima, og fd þannig stórt samfellt athafnasvœði þar sem nú eru Glerdreyrar, sdm- eina Glerdrþorpið og bæinn landfræðilega, og gera brúna sem fyrirhuguð er d Glerdreyr- um, óþarfa! Halldór mun á næstunni senda þessa tillögu sína og greinargerð með henni til bæjarstjórnarinnar hér. Er hér um mál að ræða, er vafalaust mun vekja mikla athygli og umtal hér í bænum, hvort sem horfið verður að þessu ráði eða ekki. TEL UR FL U TNINGINN VERKERÆÐILEGA AUÐVELDANN Blaðið átti í gær sxmtal við Hall- dór Halldórsson um mál þetta, og kvað hann það rétt vera, að hann væri að ganga frá tillögu um þetta og greinargerð, sem send yrði bæj- arstjórninni hér. — Halldór taldi verkfræðilega auðvelt að fram- kvæma þennan flutning árinnar, og hann kvaðst þess fullviss, að þetta væri mikið hagsmunamál fyrir bæinn. En að öðru leyti visar — Kaupgjaldsmálin (Framhald af 1. síðu). ins“ hafi fært verkalýðnum veru- legar kjarabætur. — Hér er of snemma hrósað happi. Menn eiga eftir að sannreyna það, hver raun- veruleg kjarabót þessi krónufjölg- un er. Verðlag ýmissa nauðsynja og þjónustu mun nú hækka til samræmis við þessar kauphækk- anir. Hin aukna dýrtíð, sem af þessu leiðir, stuðlar ekki að at- vinnuöryggi heldur þvert á móti. Allir fagna því, að afstýrt er verk- föllum og starf hefst á ný í mörg- um atvinnugreinum. —- En menn verða að gera sér ljóst, að þótt þessir samningar hafi tekizt um að fjölga krónunum í hendi laun- þeganna, er langt frá því að þjóð- félagið hafi þar með leyst efna- hagsvandamál sín. Að sumu leyti eru þau nú hættulegri og torleyst- ari en áður. Þess skyldu menn gæta, jafnframt því, sem þeir lesa frásagnir Alþýðuflokksins um „á- ltveðna forustu" og „verulegar kjarabætur“. Fyrsta handknatt- leikskeppnin n. k. sunnudag Hraðkeppni í handknattleik fer væntanlega fram nk. laugardag á nýja íþróttasvæðinu. Er það fyrsta útihandknattleikskeppnin í vor. Keppt verður í meistaraflokki karla og kvenna frá þrem félögum: Þór, K.A. og ÍMA. Eru félögin lík- lega mjög jöfn að getu, og má bú- ast við harðri keppni í báðum flokkum. Sl. ár sigraði K.A. þessa keppni, en árið þar áður IMA. Handknattleiksráð Akureyrar mun sjá um mótio að þessu sinni. hann til tillögu sinnar og greinar- gerðar, sem hann er að senda bæj- arstjórninni, og óskaði ekki að gefa nánari skýringar á tillögu sinni að svo komnu máli. Blaðið mun síðar skýra nánar frá tillögum Halldórs um þetta efni. Á annað hundrað manns syntu 200 metrana fyrsta daginn Samnorræna sundkeppnin hófst hér kl. 10 árdegis á sunnudaginn. Var sundstæðið skreytt fánum Norðurlandaþjóðanna. Formaður framkvæmdanefndar, Ármann Dal mannsson, ávarpaði þá, er mættir voru til keppni og aðra gesti, en að því búnu hófst sundraunin, og syntu fyrstir nemendur Mennta- skólans og Gagnfræðaskólans. Alls syntu á annað hundrað manns fyrsta daginn. Þátttaka hefur verið allgóð síðan. Sundkeppnin fer fram kl. 5—S.30 e. h. á virkum dögum og kl. 9—11.30 f. h. og kl. 2—6 e. h. á sunnudögum. Frá Heimilisiðnaðar- félagi Norðurlands Það er í ráði að hafa dálitla sýningu í húsakynnum félagsins í Brekkugötu 3, Akureyri, laugar- daginn 26. maí frá kl. 8—11 síð- degis, og sunnudaginn 27. maí, kl. 4—11. Ölíum er heimill aðgangur. Þarna verður sýnt það, sem ofið hefur verið á vefnaðarnámskeiði félagsins undanfarna daga, og þar að auki nokkuð af algengum heim- ilisiðnaðarmunum, það sem til næst á skömmum tíma. Húsrúm er takmarkað og lítill tími til stefnu. Félagið hyggst að efna til lítillar sýningar árlega að vorinu til i húsakynnum sínum. Þá gerir Heimilisiðnaðarfélagið ráð fyrir að efna til sýnikennslu í nokkrum greinum heimilisiðnaðar þrjá síðustu daga maí (29., 30. og / 31. maí) á sama stað. Það verða tveir flokkar á dag, kl. 3—6 og kl. 8—11 e. h. (6 flokkar í allt): Leiðsögn i tóvinnu, litun, prjóni og hekli, hannyrðum, mottugerð og leðurvinnu (þrjár stundir í hverri grein). — Upplýsingar gefur for- maður félagsins, Halldóra Bjarna- dóttir, sími 1488. V aðlaheiðarskaf linn 12 metrar I gærmorgun snemma luku vegagerðarmenn við að ryðja braut gegnum stóra skaflinn vest- an í Vaðlaheiði, og reyndist efri brún hans þá 12 metra há! Mikið vatnsrennsli er á háheiðinni, og er búizt við að vegurinn verði fljótt ófær, ef þungavöruflutningi verður haldið áfram um hann.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.