Dagur - 22.08.1951, Síða 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 22. ágúst 1951
ÍÞRÓTTIR
OG ÚTILIF
V 1 ||f|
Sigurvegarar í 100 m. hlaupi. 1 miðið sigurvegarinn, Alexander,
t. h. Jafet, t. v. Ólafur Örn. — Sjá frásögn hér á síðunni.
r, *r, *r, *r, *r, *r, *r, *r.
Þeir voru allir „sjálf-
sagðir“ í forstjóra-
störfin!
Hér í blaðinu var fyrir nokkru
rætt um það, hvað valda mundi
því fyrirbæri hér á landi ,að allir
þingmenn eins stjórnmála-
flokksins, yæru nú komnii á föst
laun hjá ríki og ríkisstofnunum,
allir sem forstjórar og þess
konar- tignarmenn. Skattskráin í
Reykjavík og væringar svokall-
aðra „verkalýðsblaða“ höfðu leitt
í ljós að þessir „jafnaðarmenn“
sátu að sæmil. afkomumögul.
við hæg embættisstöi-f. Þessar
hugleiðingar hafa komið heldur
óþægilega við eitt ríkissjóðs-
bjartað enn, sem slær ýmist í
iórstjórastól almannatrygging-
anna hér eða ritstjórnarstól Al-
þýðumannsins. Er því lýst yfir í
síðasta eintaki Alþýðumannsins,
að það sé ekkert nema vondra
manna rógur að nefna pólitíska
aðstöðu í sambandi við það,
hversu jafnaðarmannaforingjun-
um hefur orðið hæg leiðin til for-
stjórastai-fs hjá ríkinu. Skýring-
una hefur ritstj. á'reiðum hönd-
um: Alþýðuflokksforstjórarnir
voru allir svo „mikilhæfir menn“
að þeir þóttu alveg „sjálfsagðir“
í embættin. Skilur þarna greini-
lega milli feigs og ófeigs, því að í
Framsóknarflokknum er margt
manna, segir ritstjórinn, sem
„engum hefur dottið í hug að
kveðja til opinberra starfa.“
Þarna hafa menn þá skýringuna
á því, hvernig stendur á öllum
forstjórunum! Væntanlega ætlast
ritstj. til ,að þessi „mannkosta“-
skýring hans nái ekki aðeins út
yfir forstjórana í Reykjavík,
heldur líka til litla spámannsins í
tryggingahægindinu hér nyrðra.
Sjötugur:
Jón Kristjánsson
Sjötugur varð sl. mánudag Jón
Kristjánsson fyrr bóndi í Brag-
holti í Arnarnesshreppi, en nú
búsettur á Hjalteyri.
Jón er fæddur í Glæsibæ við
Eyjafjörð 20. ágúst 1881 og voru
foreldrar hans hjónin Guðrún
Oddsdóttir frá Dagverðareyri og
Kristján Jónsson, sem þar
bjuggu lengi.
Jón útskrifaðist úr Möðru-
vallaskóla vorið 1901, en hóf bú-
skap í Bragholti árið 1913 með
konu sinni, Geirlaugu Kon-
ráðsdóttur.
Barnakennari var hann um
allmörg ár.
En kunnastur er Jón fyrir af-
skipti sín af söngmálum sveitar
sinnar. Hann varð organisti
Möðruvallaklausturskirkju árið
1904 og hefur gegn t því starfi, að
undanteknum fáum árum, alla
tíð síðan.
Jón tók þátt í Noregsför karla-
kórsins Heklu frá Akureyri árið
1905.
DANS
Slysavamndeild Arnarness-
hrepps lieldur dansleik að
Keistará næstk. laugardags-
kvöld.
Drengjamót íslands.
f næst síðasta bláði var getið
úrslita úr Drengjamóti íslands,
sem frám fór hér á Akureyri 4.
og .5. ágúst. Akureyringar hlutu
tvo drengjameistara að .þéssú
sinni, þá Hreiðar Jónsson í 3000
m. hlaupi og Tryggva Georgsson
í spjótkasti. Reykvíkingar unnu
flest meistarastigin, svo sem
vænta mátti, og var ÍR hlut-
skarpast einstakra félaga með 6
meistara. Drengír úr íþrótta-
félögunum utan Reykjavíkur
komu þó á óvart með ágætri
frammistöðu sinni í köstunum
og komu höfuðstaðardrengir þar
vart til greina.
Jafnbezti kastari ínótsins var
Strandamaðurinn Sigurkarl
Magnússon, sem sigraði í kringlu
kasti og hreppti annað sæti í
kúluvarpi. Árni Þormóðsson
hlaut 3. verðl. bæði í kúluvarpi
og kringlukasti. Tryggvi sá um
spjótkastið. Hafnfirðingurinn Ol-
afur Þórarinsson náði mjög
glæsilegum árangri í sleggjukast
inu, og Kjalnesingurinn Magnús
Lárusson vann kúluna. í fyrra á
Drengjamótinu unnu Reykvík-
ingarnir 3 af köstunum, en nú
ekkert.
Af stökkvurunum bar einna
mest á Einari Frímannssyni,
Selfossi, §em hlaut 3. verðl. bæði
í stangarstökki og langstökki. En
fyrst og fremst voru það þó
Reykjavíkurdrengirnir, sem
„brillieruðu" í stökkunum og
unnu 3 af 4 eins og á síðasta
Dr.móti. Valdimar Ornólfsson
skilaði mjög góðu langstökki og
var eini meistari frá síðasta
Drengjamóti, sem varði titil sinn
(vann langstökkið í Vestmanna-
eyjum á 6.21m.). Árangur í köst-
unum og stökkunum var góður
og mun aðstaða til þeirra íþrótta-
greina vera heppileg hér á Akur-
eyri.
Nú er komið að hlaupunum, og
ber þar hæst spretthlauparann
Alexander Sigurðsson, sem vakti
mikla athygli fyrir frábæra
snerpu. Alexander hljóp tvisvar
á 10.9 sek., sem er jafnt dr.meti
H. Clausen, en meðvindur, tæp
3 vindstig, mun hindra það að
hann jafni metið að þessu sinni.
Jafet Sigurðsson varð annar
bæði í 100 og 400 m„ en Þorvald-
ur Oskarsson, ÍR, vann 400 m.
hlaupið. í lengri hlaupunum
komu Akureyringarnir mikið við
sögu og 3000 m. hlaupið var unn-
ið þriðja árið í röð af Akureyr-
ing. Einhver tvísýnasta keppni
mótsins var 1500 m. hlaupið. Þar
áttust við Hreiðar Jónsson, KA,
og Svavar Markússon,- KR. —
Hreiðar, nýbakaður methafi í
800 m„ reynir strax þá hlaupa-
aðferð (taktik), sem mörgum
hefur gefizj; vel, að notfæra sér
styrkleika sinn í styttri vega-
lengdunum til að opna sér for-
skot í fyrri hluta hlaupsins, og
tekur strax forystu hlaupsins, en
Svavai' stendur fyllilega undir
því frægðarorði, sem af honum
hefur farið, og fylgir Hreiðari
sem skugginn, og sígur fram úr
Hreiðari ca. 50—60 m. frá marki
og vann með nokkra metra mun
eftir mjög gott hlaup. I 3000 m.
rétti Hreiðar hlut sinn og sigraði
auðveldlega eftir að hafa „lúrt“
mestallt hlaupið í síðasta sæti.
íþróttaritstjóri Alþýðubl. spáir
því að Svavar verði næsta vor
langbezti (!) 1500 m. hlaupari
landsins, en ekki er ósennilegt að
Guðmundur Lárusson, Á„ feyki
þeim skýjaborgum og skreppi
niður fyrir 4 mínútur.
Ekki skal þessu rabbi um mót-
ið svo lokið, að ekki sé minnst
nokkrum orðum á mótsstjórann,
Jón Arnþórsson, sem dreif und-
irbúning allan áfram með mesta
dugnaði, þegar allt virtist komið
í óefni, einnig Hermann Sig-
tryggsson o. fl„ sem störfuðu
mikið að undirbúningi mótsins
og við mótið sjálft. Starfsmenn
gerðu sitt bezta, þótt æfing sé
næsta lítil við framkvæmd stór-
móta. Ræsir mótsins, Kjartan
Jóhannsson, sleppti engum kepp-
anda með „þjófstart“ og verður
það ekki um alla sagt. Það, sem
helzt mætti setja út á mótið, var
skortur á löggæzlumönnum á
vellinum sjálfum, þar sem óþarf-
lega mikið var af aukamönnum
og vildarvinum starfsmanna eða
keppenda. Má sem dæmi nefna
íþróttakennara úr Reykjavík,
sem vildi notfæra sér sérstöðu
sína til hlífar, og var á skemmti-
göngu á miðri hlaupabrautinni
eftir að hlauparar höfðu tekið sér
stöðu í viðbragðsholunum í ein-
um riðli grindahlaupsins. Að lok-
um skal Jóni Benediktssyni yfir-
lögreglúþjóni þökkuð mikil að-
stoð við -íþróttamennina, er hann
gerði þeim kleift að selja aðgang
að mótinu með því að gæta þess
að fólk safnaðist ekki í Brekku-
götu eða Klapparstíg, þar sem
hægt var að sjá mótið án þess að
greiða aðgangseyri. Benedikt
Jakobsson, landsþjálfari, aðstoð-
aði einnig mikið við mótið og gaf
ýms holl ráð hvar betur mætti
fara.
Innangfélagsmót KA 11.—13.
ágúst.
Um fyrri helgi hélt KA innan-
félagsmót í frjálsíþróttum. Her-
mann Sigtryggsson setti nýtt Ak-
ureyrarmet í stangarstökki, 3,05
m. Hinn þekkti íþróttamaður úr
Reykjavík, Friðrik Guðmunds-
son, KR, var staddur í bænum er
mótið fór fram og keppti hann
með sem gestur. Kúlunni varp-
aði Friðrik 13,89 m„ en kringl-
unni 44,29 m„ hvort tveggja að
sjálfsögðu vallarmet. Þá var
einnig keppt í fyrsta skipti héi' á
Akureyri í grindahlaupi, og hljóp
Skjöldur Jónsson fyrsta riðilinn.
Notaðar voru drengjagrindur. —
Tími Skjaldar var 18,6 sek„ dr,-
met. Nokkrum mínútum síðar
bætti Hreiðar Jónsson metið í
17,7 sek. — Helztu úrslit mótsins
urðu þessi:
100 m. hlaup. Hösk. G. Karls-
son 12,2 sek.
200 m. hlaup. Hösk. G. Karls-
son 25,1 sek. — Hreiðar Jónsson
25,1 sek.
400 m. hlaup. Haukur Jakobs-
son 58,9 sek. — Þorv. Snæbjörns-
son 59,0 sek.
800 m. hlaup. Hreiðar Jónsson
2.15,0 mín. — Skjöldur Jónsson
2.17,4 mín. — Haukur Jakobsson
2.18,2 mín.
Langstökk, Garðar Ingjaldsson
5,90 m.
Kúluvarp. Guðm. Orn. Árna-
son 12,46 m.
Kringlukast. Hörður Jörunds-
son 35,85 m.
4x100 xxi. boðhlaup. Sveit ÍBA
46,7 sek. (Einar, Hauk.ur, Hreið-
ar, Baldur).
Kúluvarp kvenna. Anna Svein-
bjarnai'dóttir 8,29 m. — Guðrún
Georgsdóttir, Þór, 7,90 m. Kúlan
vai' 800 gr. of þung.
Hástökk. Einar Gunnlaugsson,
Þór, 1,60 m.
Til sölu:
6 manna bíll í góðn lagi.
Upplýsingar á
Litlu hílastöðinni.
Kvenúr
fundið hjá Dettifossi 4. ág.
síðastliðinn. Vitjist á afgr.
Dags.
BANN
Berjatínsla biinnuð í landi
Dagverðareyrar.
Gunnar Krist'jánsson.
Til sölu:
Ný rakstarvél, fyrir dráttar-
vél. — Upplýsingar gefur
Vilhj. Jóhannesson,
Litla-Hóli.
Vörubíll
Chevrolett, árgangur 1942,
í góðu standi, til sölu.
Afgr. vísar á.
B e r j a t í n u r,
margar tegundir.
Berjafötur
Kökudúnkar
af ýmsum stærðum.
Hentugir undir ber.
HAFNARBÚÐIN
og útibúið í Eiðsvallagötu 1.
Góð ritvél
óskast til kaups.
Sigurjón Jóhannsson,
Hlíð, Svarfaðardal.
Perbergi
F.inldeyp kona óskar eftir
herbergi frá 1. október n. k.
Helzt nálægt miðbænum.