Dagur - 22.08.1951, Blaðsíða 6
6
DAGUR
i
Þorp í álögum
Saga eftir Julia Truitt Yenni
[k_ 3. DAGUR.
(Framahld).
„Jú, vegna þess aS sölumenn
eru ókunnugir og fólk hér um
slóðir verzlar helzt ekki við aðra
en þá, sem það þekkir."
„Það er virðingarvert," sagði
Hampton.
Bíllinn sveigði inri á Aðalstræti
og mjólkurbrúsarnir hossuðust á
pallinum, svo að skröltið í þeim
heyrðist langar leiðir. Georg lét
talið niður falla. Enginn skyldi
geta ásakað hann, að hann væri
að ósekju að forvitnast um hagi
óviðkomandi manna. Ef þessi ná-
ungi vildi gæta tungu sinriar,
skyldi hann sjá að Georg Hauer
gæti það líka.
„Saddlers,“ sagði gesturinn.
„Er það nafn á veitiriga- og gisti-
húsi?“
„Gæti verið,“ svaraði Georg.
„En þó veit eg ekki, hvort hægt
er að kalla það því nafni. Er ekki
mikið að sjá þar. Var þó einu
sinni góðúr staðúr, á þeim tíma,
sem eitthvað var.um að vera hér,
þegar árnar vorú notaðar til
flutnings á fólki og vörum. Nú
er það frekar venjuleg matsala.
En það heitir samt „Veitinga- og
gistihúsið Saddlers.“
„Saddlers gisti- og veitinga-
hús,“ muldraði Hampton í barm
sér um leið og hann hallaði sér
makindalega aftur á bak í vagn-
sætinu. Georg ákvað að gera enn
eina tilraun til þess að svala for-
vitni sinni, enda þótt skynsemi
hans hvíslaði því að honum, að
hún mundi vissulega fara út um
þúfur. „Þú ert auðvitað að sviþ-
ast um eftir gististáð?“ sagði
hann í spúrnartón. „Sú var tíðin
að hér var margt úm ferðamanri-
inri, og flestir gisfu þá hjá Saddl-
ers.“
„Þakka þér fyrir upplýsingarn-
ar. Líklegast tek eg mér gisti-
herbergi þar.“
Jæja, þá vissi maður það, en
lítið hafði Georg samt haft upp
úr krafsinu. Hann stöðvaði bíl-
inn fyrir framan Saddlers veit-
ingahúsið. Farþeginn steig út úr
bílrium, greip töskuna sína, lyfti
hattinum í þakklætis- og kveðju-
skyni. „Þakka þér fyrir, Hauer,
þú hefur verið ómetanleg hjálp,“
sagði hann um leið og hann
skundaði inn í húsið.
Það hnussaði eitthvað í Georg,
um leið og hann setti bílinn í gír
og hélt áfram ferðinni. Snotur
náungi að tarna, hugsaði hann,
og slunginn að taka eftir því að
nafnið hans var málað á bílinn.
Og hann hafði ekki reynt að
troða upp á hann áúrurn fyrir
flutninginn, þá kurteisi var hægt
að skrifa kredítmegin hjá hon-
um. En hver var hann, og hvað
vildi hann hér að Ármóti? Fá-
fræðin urri þetta efni kom Georg
í hálf illt skan um leið og bfllinn
hossaðist eftir ósléttri götunni
inn í þorpið.
—a—
Barclay Hampton hafði fengið
sér sæti við borð fram við dyr í
veitingasalnum hjá Saddlers. Þar
inni var margt manna, flestir
mjólkurbílstjórar í hvítum sam-
festingum með nafni mjólkur-
stöðvarinnar ísaumuðu með
ráuðu á bakið. Þeir höfðu hátt og
borðuðu hressilega. Loftið þarna
inni var fremur þungt og Hamp-
ton var óviss um að það boðaði
riókkúð gott.
Harin horfði í kfingum sig í von
um að fá afgreiðslu og loks kom
útlimastór kona auga á hann og
kom að borðinu til hans.
„Gfeeti eg ferigið morjgúriverð?"
spurði hann.
Hún horfði ranrisakaridí á
hann. „Eigið þér við mofgunverð
eða bara kaffi og ristaðar brauð-
sneiðar?“ spurði hún.
„Hvað er í morgunverð?“
„f dag ef það steikt lifur með
eggjurii, og éþlákáka með
rjóma.“
„Við skulum hafa það morg-
unverð,“ sagði Hampton og var
fastmæltur.
Þegar konan var farin, hallaði
hann sér aftur á bak í stólnum og
leit í kringum sig í stofunni. —
Heldur var skuggsýnt þar inni,
enda var veggfóðrið dökkleitt og
þykkt' og farið að láta á sjá,
ýmsir fornlegir muriir voru á ar-
in hillunni og hjá henni, allt
sjónarsviðið minnti fremuf á
öldina sem leið en riútímann.
Hampton fann til, þess með
ánægju, að hugboð hans hafði
verið rétt. Hver kílómetri, sem
lestin lagði að baki á leiðinni frá,
Albany að Ármóti, hafði Verið
ferðalag inn í fortíðina. Allt
minnti hér á gámla, góða daga,
hrukkótt hressilegt andlit Ge-
orgs Hauer, fornleg hellulögð
stræti, og þetta veitingahús, sem
mundi hafa lifað sitt blómaskeið
fyrir áfatúgum.
Og skraútblómið í þessúm
ramma var FaithGoodbind.Hann
vonaði að hún mundi ekki valda
honum vonbrigðum, en jafnvel
þó svo færi, hugsaði hann um
leið og hann réðist á rjúkandi
réttina, sem bornir voru fram
fyrir hann, mundi honum ekki
skotaskuld að laga hana til og
setja hana í réttar skorður. —
Hampton ljómaði af innri
ánægju. Það var nú orðið langt
síðan hann hafði gert stórkost-
lega bókmenntalega „uppgötv-
un“, ekki síðan hann fann War-
wick-systurnar fyrir mörgum
árum, en það þóttu tíðindi á
sinni tíð og voru enn í minni
margra.
Hampton sneri sér að beiria-
beru konunni, sem bar fram mat-
inn, og sagði:
Miðvikudaginn 22. ágúst 1951
Nýtt dilkakjöt komið
á markaðinn
frá Bragholti
í gær hófst sala á nýju dilka-
kjöti hér á Akureyri og í öðrum
kaupstöðum. Samkvæmt auglýs-
ingu framleiðsluráðs landbúnað-
arins er verð á hinu nýja kjöti
kr. 25.60 pr. kg. Búast má við því
að verðið lækki eitthvað áður en
langt um líður. Venja er að verð-
breyting verði einu sinni til
tvisvar fram að aðalsláturtíð, um
15. sept.
Sigtryggur Júlíusson
gólfmeistari Akureyrar
Nýlega er lokið meistarakeppni
Golfklúbbs Akureyrar og varð
Sigtryggur Júlíússon Akureyrar-
meistari með 328 höggum, annar
varð Jón Egilsson með 338 högg-
um og þriðji Hafliði Guðmurids-
son með 344 höggúm. — í 1.
flokki várð Jóhann Egilsson
meistari með 382 höggum, annar
varð Arnþór Þorsteinssen með
385 höggum. Sigufvegari í æf-
ingakeppni varð Páll Árdal, ann-
ar varð Jóhann Þorkelsson. —
Keppni um olíubikarinn lauk
þárinig, að Jakob Gísíason sigr-
aði, annar varð Hermann Ingi-
márssori.
Bíll
Fjögra rnanna bíll til sölu.
Afgr. vísar á.
Góð íbúð
óskast leigð í haust eða fyrri
hluta vetrar.
Afgr. vísar á.
Garðyrkju-
verkfæri:
Plöntuskeiðar
Plöntugafflar
Holujárn
Garðhrífur (litlar)
Spaðar (litlir)
Garðklórur
Róuupptakarar
Kartöíluskóflur.
Kaupfélag Eyfirðinga
Járn- og glervörudeild.
Vírkörfur
á kr. 28.90.
Kaupfélag Eyfirðinga
Járn- og glervörudeild.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðar-
för JÓNS SIGURGÉIRSSONAR. Sérstaklega þökkum við
Stefáni Jónssyni, Skjaldarvík, og starfsfólki fyrir ágæta
hjúkrun í langvarandi veikindum hins látna.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Maðurinn minn og faðir okkar,
SNÆBJÖRN MAGNÚSSON, vélsmiður,
andaðist að heimili sínu, Eiðsvallagötu 13, Akureyri, laugar-
daginn 18. þ. m. — Jarðað verður laugardaginn 25. þ. m. og
hefst með bæn frá hcimili hins látna kl. 13.30.
Svanborg Jónasdóttir. Stefán Snæbjörrisson.
Ottó Snæbjörnsson. Magnús Snæbjörnssoun.
Jarðarför eiginkonú minnar,
SIGURLÍNU SIGMUNDSDÓTTUR,
Ytra-Hóli, er ákveðin laugardaginn 25. þ. m. að Kaupangi ,
klukkan 2 eftir hádegL
Sigfús Hallgrímsson.
Öllum þeim, sem sendu mér heillaóskir, fœrðu mér
gjafir eða glöddu mig með nærveru sinni, er ég hoþp- j;
aði yfir hálfrar aldar afmœlið, fceri ég mínar innileg- j J
ustu þakkir og óska þeim allrar blessunar i bráð og J J
lengd.
STEFÁN VILMUNDARSON.
^*******^**^******************************'
Innilegustu þakkir fœri ég öllum þeim, sem glöddu
mig á 60 árá afmceli minu, 15. ágúst síðastliðinn, með
heimsóknum, gjöfum og skeytum.
Guð blessi ykkur öll.
ÁSGEIR KRISTJÁNSSON.
Tilkynning
Végna sívaxandi erfðileika við innheimtu, og hækk-
andi verðlags, sjá undirritaðar kolaverzlanír sér ekki
annað fært, en taka íyrir útlán á kolum.
Þeir viðskiptainettn, sem panta kol í sínla, eru vin-
samlega beðnir um að hafa greiðslu handbæra, þegar ]•
komið er ineð kolin.
Akureyri, 20. ágúst 1951.
Kaupfélag Eyfirðinga. |
Ragnar Ólafsson h.f.
Gólfábreiður
Tökuni að osS að átvega gólfábreiður. Marg'ar
stærðir. Sýnishorn fyrirlíggjandi.
Pantanir þurfa að vera komnar íyrir næstkom-
andi mánaðamót.
Vefnaðarvörudeilcl.
V innuf atnaður
Buxur, bláar, brúnar og hvítar.
Jakkar, bláir og brúnir.
Sloppar, brúnir og livítir.
Vinnuvettlingar.
V efnaðarvörudeild.