Dagur - 05.12.1951, Blaðsíða 1
12 SÍÐUR
Auglýsendur! Munið, að aug-
lýsingar verða að vera komn-
ar til afgreiðslunnar eða í
prentsmiðjuna fyrir kl. 2 á
þriðjudögum.
Afgreiðslan biður kaupendur
að innleysa greiðlega póst-
kröfur þær fyrir andvirði
blaðsins, sem enn liggja ó-
greiddar á pósthúsum.
XXXIV. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 5. desember 1951
48. tbl.
Þessir börðust í Kóreti
50 hermenn frá Kóreuvígstöðvunum heimsóttu nýlega aðalstöðvar
Sarnein. þjóðanna í Ncw York. Hermennirnir eru af 19 þjóðernum.
Upplýsingasföð fyrir drykkfellda
menn og aðsfandendur setf
upp hér í hænusn
Góð reynsla af starfsemi slikrar stöðvar í Rvík
s Nonna (Jóns Sveinssonar) við Áðal
sfræti 54 verður minjasafn
Höfðingleg gjöf til Zontaklúbbs Akureyrar -
Iicitið á bæjarbúa að styðja merkt málefni
Nýlega hafa orðið eigendas-kipti að bakhúsinu við Aðalstræti 54
hér í bæ, en það er bernskuheimili Nonna (Jóns Sveinssonar) hins
fræga mannvinar og slcálds, og eitt af elztu húsum bæjarins. Hjónin
frú Sigríður Davíðsdóttir og Zóphonías Árnason yfirtollvörður, af-
hentu Zontaklúbb Akureýrar húsið að gjöf, en klúbburinn hyggst
koina þar upp minjpsafni um einn frægasta son Akureyrar. Hefur
klúbburinn starfandi „Nonna-nefnd“ til þess að annast þetta mál. —
Blaðið hefur snúið sér til formanns nefndarinnar, frú Onnu S.
Snorradóttur, og fengið hjá henni eftirfarandi upplýsingar um starf
og tilgang Zontaklúbbanna og hið væntanlega Nonna-safn:
Á fundi með blaðamönnum hér
í fyrradag skýrðu fulltrúar Um-
dæmisstúku Norðurlands og
áfengisvarnanefndar bæjarins frá
því, að þessar stofnanir hefðu
ákveðið að opna hér upplýsinga-
og hjálparstöð fyrir drykkju-
menn og aðstandendur þeirra. —
Hefst þessi starfsemi í Skjald-
borg næstk. föstudag og verður
stöðin opin kl. 5—7 á hverjuni
föstudegi framvegis.
Þeir Eiríkur Sigurðsson yfir-
kennari og Þorst. M. Jónsson
skólastjóri gerðu grein fyrir til-
ganginum með þessari nýjung
hér og nauðsyn þess að hefjast
handa til umbóta í áfengismálum.
Reynslan af starfsemi slíkrar
stöðvar í Reykjavík bendir til
þess að margt megi gera ' til
hjálpar í ýmsum tilfellum, ef fólk
hefur vitneskju um slíka hjálp-
arstarfsemi. Með alla vitneskju í
þessum efnum verður farið sem
trúnaðarmál og verður læknir
með í ráðum um alla hjálparráð-
stafanii'. Aðeins það, að fá menn
til viðtals getur oft haft gagnleg
óhrif til að styrkja þá í baráttu
gegn áfengisnautn, auk þess
verður reynt að aðstoða eftir
mætti, t. d. með útvegun sjúkra-
húss- eða hælisvistar, aðstoða við
atvinnuleit o. s. frv. Loks að gefa
aðstandendum aðstöðu til að leita
ráða og styrks í heimilisvandræð-
um er stafa af áfengisneyzlu. —-1
stjórn stöðvarinnar hér eru:
Hannes J. Magnússon skólastjóri,
Olafur Daníelsson klæðskeram.,
frá Umdæmisstúkunni, frá áfeng-
isvarnanefnd: Guðm. Karl Pét-
ui'sson yfirlæknir. Verður einn
eða fleiri þessara manna til við-
tals í Skjaldborg á hverjum
föstudegi kl. 5—7 e. h.
Fundur urjj_ áfengismál.
Þá var skýrt frá því, að áfeng-
isvarnanefnd hyggist bráðlega
efna til fundar með forvígis-
mönnum félaga og fyrirtækja í
bænum til þess að ræða þar
möguleika á samstilltum átökum
til þess að draga úr notkun
áfengis í bænum. Innan skamms
hefjast hér sýningar á hinni
kunnu kvikmynd Café Paradis og
fjallar hún um áfengisvandamál-
ið. — Stúkurnar hafa ákveðið, að
ágóði af sýningum myndarinnar
(Framhald á 12. síðu).
Hvað er Zonta?
„Um rúmlega tveggja ára
skeið hefur verið starfandi hér i
bænum félagsskapur kvenna, er
nefnist Zontaklúbbur Akureyrar.
Klúbbur þessi er deild úr al-
þjóðasamtökum, en Zonta-reglan
er rösklega þrjátíu ára gömul.
Það var skömmu eftir fyrri
heimsstyrjöld, að nokkrar konur
í Bandai'íkjunum, er unnið höfðu
ýmis stöi'f í þágu ríkisins styrj-
aldarárin, komu saman í boi'ginni
Buffalo til þess að stofna með sér
Húsfyllir á hljómleik-
um Kantötukórsins
Kantötukór Akureyrar hafði
hljómleika í Nýja-Bíó sl. sunnu-
dag á vegum Tónlistarfélags Ak-
ureyrar. Á söngski'á voru kaflar
úr söngskrá Norðurlandafarar-
innar sl. sumar og stjórnuðu
Björgvin Guðmundsson og Áskell
Jónsson söngum. Hljómleikarnir
voru haldnir til að heiðra Björg-
vin Guðmundsson í tilefni af sex-
tugsafmæli tónskáldsins. Söngn-
um var ágætlega tekið og bárust
söngstjóranum blóm. Einsöngv-
arar voru Helga Jónsdóttir, Her-
mann Stefánsson, Jóhann Kon-
ráðsson og Sverrir Pálsson. Und-
irleik annaðist frú Lena Otter-
stedt.
Flugvélinni
bjargað af öræf-
unum
Flugvélinni, sem nauðlendi á ör-
æfunum hér suður af Eyjafirði
um miðjan mánuð, hefur nú verið
bjargað og er komin á Melgerð-
isflugvöll og er fremur lítið
skemmd. Það var Viktor Aðal-
steinsson flugm., sem stóð fyrir
björguninni, en með honum fóru
allmargir menn héðan úr bæ og
úr Eyjafirði. Höfðu þeir jarðýtu
og sleða og tókst að komast um
Vatnahjallaveg sem næst að vél-
inni og drag'a hana til byggða.
félagsskap. Þetta var upphaf
Zohtareglunnar, en hún breiddist
brátt út um öll Bandaríkin, og
síðan hafa vei'ið stofnaðir Zonta-
klúbbar í 10 löndum Evrópu. —
Zontafélagsskapurinn starfar á
svipuðum grundvelli og Rotary-
félagsskapur karla. Markmið fé-
lagsskaparins er að stuðla að
kynningu meðal kvenna í hinum
ýmsu starfsgreinum og störfum
þjóðfélagsins. Því er það, að að-
eins ein kona úr hverri starfs-
grein getur orðið meðlimur, eins
og tíðkast í Rotaryklúbbunum. —
Auk kynningar kvenna á meðal,
er markmið félagsins að auka
vináttu og skilning meðal félags-
kvenna og vinna að því, að bæta
aðstöðu kvenna bæði lagalega,
stjórnmálalega, viðskiptalega. og
starfslega. Annar þáttur í starfi
þessa Télagsskapar er að hvetja
til þjónustu við einstaklinginn og
þjóðfélagið í heild með hvers
konar hjálpar- og líknarstarfi. Þá
er og friðarhugsjónin ofarlega ó
dagskrá hjá Zonta-félögunum, og
í þeim tilgangi er unnið að gagn-
kvæmri kynningu þjóða á milli.
Nafnið merkir trúr og traustur.
Nafnið ,,Zonta“ er tekið úr
Sioux-Indíánamáli og merkir
trúr og traustur. Þaðan eru og
tekin táknmerkin og þýðir hvert
merki sem hér segir:
Z mei'kir: Ijósgeisli ,sólskin og
leiftur til að beina félagskonum
að settu marki.
O merkir: að bindast smtökum
um félagslund og þjónustu.
N merkir: samheldni.
T merkir: skýli öryggis og
verndar til handa félögum.
A merkir: réttlátur, heiðvirður,
trúr og áreiðanlegur.
Zontaklúbburinn fær Nonna-
húsið að gjöf.
Zontaklúbburinn hér hefur lít-
ið komið við sögu í félagsmálum
í bænum, enda er bæði um ungt
og óvenju fámennt félag að ræða.
Á sl. ári ákvað klúbburinn að
vinna að því, að safna minjum
um hinn merka rithöfund séra
Jón Sveinsson, eða Nonna, eins
og hann er oftast nefndur. Var í
þessu skyni stofnaður sjóður,
Nonnasjóður, og kosin stjórn
hans til að hafa framkvæmdir í
málinu. Sjóður þessi er lítill að
vöxtum enn, enda samanstendur
hann einungis af samskotum
félagskvenna og ágóða af happ-
drætti á fundum þeirra.
Húsið, sem Nonni ólzt upp í,
stendur enn hér inni í bænum
við Aðalstræti 54, að baki húsi
Davíðs heitins Sigurðssonar
smiðs. Hinn 8. nóv. sl. tilkynnti
Zóphonías Árnason yfirtollvörð-
ur stjórn Nonna-sjóðs, að þau
hjónin, frú Sigríður Davíðsdóttir
og hann, hafi ákveðið að gefa
Zontaklúbb Akureyrar Nonna-
húsið, en klúbburinn hafði áður
leitað fyrir sér um kaup á húsinu.
Hafa þau hjónin með þessu sýnt
mikinn höfingsskap og vinarhug,
ekki aðeins hinu fámenna félagi
Zonta-kvenna, heldur bænum
(Framhald á 10. síðu).
„Græna lyftan“ - gam-
anleikur - frumsýning
annað kvöld
Annað kvöld hefur Leikfélag
Akureyrar frumsýningu á enska
gamanleiknum „Græna lyftan“
(kunnur af kvikmynd með sama
nafni og sýningum í Rvík). Leik-
stjóri er frk. Ragnhildur Stein-
grímsdóttir og er þetta fyrsti
leikurinn, sem hún uppfærir
fyrir L. A. og í fyrsta sinn, sem
hún kemur fram á leiksviði hér
nyrðra að loknu leiklistarnámi í
Danmörk. „Græna lyftan“ er
smellinn gamanleikur í 3. þáttum.
Aðalhlutverk leika: Ragnhildur
Steingrímsdóttir, Guðm. Gunn-
arsson, Brynhildur Steingríms-
dóttir, Hjálmai' Júlíusson. Alls
eru 8 persónur í leiknum. Ekki
verður unnt að hafa nema fáar
sýningar á leiknum að sinni. —
Lokið er sýningum á „Gift eða
ógift“ eftir Priestley. Var leikur-
inn sýndur 9 sinnum. Gunnar R.
Hansen leikstjóri byrjar æfingar
hér á nýjum sjónleik í janúar
næstk. á vegum L. A.
| Gæsir á suðurflugi [
] fórust í Jjúsundatali j
! í Hollandi \
i Frá því var skýrt í Norður- |
\ landablöðum um miðjan fyrra i
j mánuð, að gæsir, á leið sinni 1
= til Suðurlanda frá Norður- \
1 slóðum (Grænland, ísland o. i
i s. frv.) hefðu i'arizt í þús- í
\ undatali við Zuyder-see í =
i Hoílandi. — Gæsahópamir I
i hvíldu á eyrunum meðfram =
I innsjó þessum, en Hollend- i
! ingar höfðu þá nýlokið við !
i stóra herför gegn rottuplágu \
\ þar og höfðu eitrað alls staðar i
i meðfram sjónum. Þúsundir!
! {æsa báru þarna beinin, skv. i
i oi„ íafregnum þessum, og er \
\ hætt við að þarna hafi verið i
! nöggvið skarð í gæsastofninn, i
i sem hingað sækir á hverju ári j
i og eru það ill tíðindi. i