Dagur - 05.12.1951, Blaðsíða 12
12
Dagur
Miðvikudaginn 5. desember 1951
Fréttabréf vesta^n um haf:
Undirbúningor iorsetakosninganna
að ári setnr svip á stjórnmála-
baráttuna
Erfitt fyrir íslenzka námsmenn vestra
vegna dýrtíðar
15 íiiijónir króna úr mófvirðis
sjóða þegar mé fii Sogs-
og Laxárvirkjananna
Endurgreiðsla lánsins notuð til frekari
framkvæmda
Tómas Árnason lögfræðingur,
sem er lesendum blaðsins að
góðu kunnur síðan hann ritaði
stjórnmálagreinar hér í blaðið —
dvelur um þessar mundir við
framhaldsnám við hinn heims-
fræga Harvard-háskóla í Came-
bridge, Mass., Bandaríkjunum.
Hlaut Tómas einn af námsstyrkj-
um þeim, ,er Bandaríkjastjórn
veitti íslenzkutn námsmönn-
urn nú nýlega. — 1 bréfi til
blaðsins nú á dögunum drepur
Tórnas m. a. á stjórnmálin þar'
vestra og kjör námsmanna. Segir
svo í bréfi hans:
F orsetakosningarnar.
„Þegar eru flokkarnir farnir að
undirbúa forsetakosningarnar
næsta haust. Ber nú í fyrstunni
mest á senator Robert A. Taft frá
Ohioríki. Hann hefur þegar lýst
því yfir, að hann gefi kost á sér,
ef Republikanar tilnefna hann
sem sinn frambjóðanda. En Taft
hefur verði mjög eindreginn and-
stæðingur Trumans forseta. Ný-
lega hefur hann ritað bók um ut-
anríkisstefnu Bandarikjanna. Þar
ræðir hann um það, að Samein-
uðu þjóðirnar séu áhrifalitlar í
Kóreu, þar sem staðið er í stað
frá því í byrjun stríðsins. Hann
var ákveðinn stuðningsmaður
MacArthurs í að hefja allsherj-
arárás á kínverska kommúnista,
en telur það tækifæri nú liðið og
ekki um annað að velja, en halda
áfram Kóreustríðinu og vonast
þar eftir friði. Þar sé nú ekkert
val. Hann álítur varnir Evrópu og
Asíu jafn þýðingarmiklar og
ekkert geti hindrað Rússa í að
hernema Evrópu. Er fylgjandi
hernaðaihjálp til Breta og
Frakka og e. t. v. ítala, en ekki
til afskekktra þjóða, eins og t. d.
Noregs. Hann greiddi á sínum
tíma atkvæði gegn NATO (Norð-
ur-Atlanshafsbandal.), en hefur
nú breytt um afstöðu. Hann tel-
ur, að nægileg hernaðaraðstoð
frá USA til að stöðva kommún-
ista, sé of mikil fórn fjárhagslega.
Innan flokksins ber einnig mikið
á þeim, sem viljaEisenhower fyr-
ir frambjóðanda. Hann er mjög
vinsæll í Bandaríkjunum, ekki
aðeins sem snjall hershöfðingi,
heldur og sem stjórnmálamaður.
Margir álíta, að hann myndi ná
kosningu, ef hann byði sig fram.
Hins vegar er svo Truman forseti
og hans flokkur, Demokratar. —
Truman er álitinn mjög snjall
stjórnmálamaður, en a. m .k. all-
margir álíta hann betri fyrir
flokkinn en þjóðina. Þó ber þess
að gæta, að minna ber á fylgis-
mönnum hans en hinum, þar sem
þeir eru ánægðir með sinn for-
seta. En eitt er víst, að enginn
vogar sér að halda því fram, að
Truman hafi ekki möguleika með
að ná kosningu. Hins vegar er
alls óvíst að hann bjóði sig fram.
Um það hefur ekkert heyrzt. —
Hins vegar hefur það kvisast, að
hann myndi ekki bjóða sig fram
á móti Eisenhower, en fremur
á móti Taft.. Almennt er álitið, að
stefna USA í utanríkismálum
myndi ekki breytast mikið, ef
Eisenhower yrði kosinn forseti.
Hins vegar er valt að treysta
Taft.
Dýrtíðin vestra.
Dýrtíð er mikil hér vestra. Eg
borga t. d. 550 kr. á mánuði fyrir
miðlungi gott herbergi. Fæði í
háskólamötuneytinu • kostar um
kr. 1000.00 mánuði. Góð föt kr.
1000.00—1200.00. Góðir skór kr.
200.00, lítri af mjólk tæpar kr.
4.00. Skólagjöld yfir veturinn hér
í Harval'd kr. 10.000.00. Fyrir
efnalitla, íslenzka námsmenn er
útilokað að stunda nám hér, án
námssyrks."
Á stjórnarfundi Bændafélags
Þingeyinga, sem haldinn var að
Aðalbóli hinn 20. nóv. sl., voru
samþykktar eftirfarandi álykt-
anir:
Fjárskipti og girðingar.
Vegna þeirra áfalla, sem kunn
eru orðin, í sambandi við sauð-
fjársjúkdómana og fjárskiptin,
skorar Bændafélag Þingeyinga á
Sauðfjársjúkdómanefnd að beita
sér fyrir því, að vörzlu sé við-
haldið við allar hinar lögfestu
varðlínur, unz fjárskiptum er að
fullu lokið alls staðar í landinu
og sýnt er, að þau hafa náð til-
ætluðum árangri.
Kjötverzlun.
Bændafélag Þingeyinga lýsir
ánægju sinni yfir kjötsölunni til
Bandaríkjanna og þakkar SÍS
þar glæsilega forystu og telur
sjálfsagt að leyfðuy verði út-
flutningur á nægilegu magni
dilkakjöts, til þess að halda þess-
um markaði opnum.
Ennfremur lítur fundurinn svo
á, að það útflutningshæfa dilka-
kjöt, sem hægt er' að selja er-
lendis ,en eftir verður til sölu í
; Danir bættu tveimur 1
i núllum við Húseby! |
í Það þóttu heldur tíðindi í jj
j íþróttaheiminum, þegar frétt- i
j ist um síðustu afrek Gunnars j
1 Huseby. Danir birtu nú mynd i
i af Evrópumeistaranum, þótt j
j þeim hefði láðst sú rausn er =
i hann vann titil sinn um árið. j
j í „Politiken“ gat að líta, auk j
E myndarinnar, digra tveggja i
i dálka fyrirsögn, svohljóðandi: j
\ „Europamester arresteret for =
i Vold og Tyveri“. í frásögninni j
j var afrek Gunnars talið, auk j
j þess að slá mann í rot, að ræna i
i hann 46000 krónum (í stað j
j 460) og þótti slíkt göturán \
i met, jafnvel í Danmörk. Eins j
j og að líkum lætur fylgir það j
: frásögn þessari, að þar með sé i
i lokið íþróttaferli Huseby fyrir j
j Islands hönd.
Tregur afli - dauft
atvinnulíf í Húsavík
Fréttaritari blaðsins í Húsavík
símaði í gær, að töluverðan snjó
hefði sett niður í fyrradag og í
gær og voru veðurhorfur versn-
andi. Var talið að bílferðir um
héraðið mundu stöðvazt. — Um
helgina var enn jörð uppi víða í
sýslunni, en misjöfn mjög, mun
hana nú hafa tekið af. Afli hefur
verið mjög rýr í Húsavík að und-
anförnu og er dauft yfir öllu at-
vinnulífi.
landinu, eigi að seljast ekki lægra
verði, en fyrir það fengist á er-
lendum markaði.
Vegamál.
Bændafélag Þingeyinga skorar
á þingmann kjördæmisins, að
vinna að því, að byggður verði
upphlaðinn vegur, frá Fnjóskár-
brú í Dalsmynni, að Fnjóskárbrú
hjá Skógum, þar sem með því er
tryggður, svo sem hægt er, vetr-
arvegur milli Akureyrar og
Húsavíkui'.
Söluskattur.
Bændafélag Þingeyinga krefst
þess, að lög um söluskatt séu af-
numin og lítur svo á, að frum-
varp það, sem fram er komið á
Alþingi, um að helmingur sölu-
skattsins renni til bæja- og sveit-
arfélaga, verði einungis til þess
að tefja fyrir afnámi söluskatts-
laganna.
Hins vegar vill fundurinn
benda á, sem nauðsynlega nið-
urfærslu móti afnámi söluskatts-
ins, stórfellda breytingu til lækk-
unar á skólalöggjöf og trygging-
um.
Samkvæmt ósk ríkisstjórnar-
innar hefur efnahagssamvinnu-
stjórnin fallist á, að veittar verði
úr mótvirðissjóði 60 millj. króna
til Sogs- og Laxárvirkjananna og
20 millj. króna til áburðarverk-
smiðjunnar.
Þessum fjárhæðum verður að-
allega varið til greiðslu á vinnu-
launum og öðrum innlendum
kostnaði við þessar stórfram-
kvæmdir. Ennfremur verður
þeim að nokkru leyti varið til
kaupa á Marshalldollurum, sem
íslandi hafa verið veittir af
Nýlega er komin út á vegum
Norðra ein af þeim bókum, sem
mesta athygli hafa vakið meðal
hugsandi fólks á síðari árum. —
Þetta er rit Du Noly „Human
Destiny", er komst fyrst út í Nevv
York 1947 og var síðan margsinn-
is endurprentuð.
Séra Jakob Kristinsson, fyrrv.
fræðslumálastjóri hefur unnið
það erfiða verk að þýða bókina á
íslenzku, en bókaútgáfan Norðri
gefur hana út.
Fyrir þá, sem vilja auðgazt
andlega.
Efni bókarinnar er rétt lýst í
hinu íslenzka nafni hennar. Hún
fjallar um heimshugmyndir
mannsins og takmarkið með lífi
hans og starfi. Hún hlaut við-
urkenningu þorra vísindamanna
fyrir skarpskyggna hugsun og
eru í þeirra hópi menn á borð við
*
Hervarnarmál.
Bændafélag Þingeyinga flytur
ríkisstjórn og Alþingi þakkir fyr-
ir þá fyrirhyggju, er sýnd var
með því að láta ekki undir höfuð
leggjast að gera hervarnarsamn-
ing við Bandaríkin, til verndunar
landi okkar og þjóð.
Skattfrelsi sparifjár.
Bændafélag Þingéyinga lýsir
ánægju sinni yfir fram komnu
frumvarpi Karls Kristjánssonar
um skattfrelsi sparifjár og skor-
ar á Alþingi að samþykkja frum-
varpið, sem myndarlegt spor í
rétta átt, þótt þörf sé frekari
trygginga á geymslu sparifjár.
Bandaríkjunum, vegna greiðslu
á vélum, efni og þjónustu fyrir
þessar framkvæmdir.
Áður er búið að verja 15 millj.
króna úr mótvirðissjóði til
virkjananna. Er því samtals búið
að taka 95 millj. króna úr mót-
virðissjóði, 75 millj. króna vegna
virkjananna og 20 millj. vegna
áburðarverksmiðjunnar. Fé þetta
veitir ríkisstjórnin framkvæmd-
unum að láni. Afborganir og
vextir af þessum lánum munu
renna í sérstakan sjóð, sem síðar
verður varið til frekari fram-
kvæmda.
eðlisfræðinginn heimsfræga Ro-
bert A. Millikan. í formála fyrir
bókinni segir hinn merki þýðandi
hennar m. a. á þessa leið: „Því
hefur verið spáð um þessa bók,
að alþýða manna hér á landi
muni ekki lesa hana. Eg tel þetta
illspá, sem ekki megi rætast.
Bókin var einmitt ísienzkuð í von
um, að hún yrði alþjóð til nokk-
urrar vegsögu og sálarheilla, og
eg trúi enn að hún verði það. Eg
held, að lestur hennar verði
mönnum hollari og nauðsynlegri
en lestur nokkurrar annarrar
bókar, sem borizt hefur hingað
frá útlöndum hin síðari ár. . . . “
Þeir, sem þekkja Jakob Krist-
insson, vita, að hér er af heilind-
um mælt og alvöru.
Það má telja til tiðinda að slíkt
rit skuli þýtt og útgefið á íslandi
og vonandi reynist séra Jakob
sannspár, að hugsandi fólk hér á
landi mun lesa þessa bók og til-
einka sér efni hennar, enda þótt
menn tileinki sér það ekki með
fljótlgum yfirlestri.
— Upplýsingarstöð . . .
(Framhald af 1. síðu).
gangi til nýja sjúkrahússins hér
og gefa þær þannig gott fordæmi
fyrir annan félagsskap í bæ og
sýslu.
í áfengisvarnanefnd bæjarins
eru þessir menn: Þorst. M. Jóns-
son, form., Hannes J. Magnússon,
Eirikur Sigurðsson, Stefán Ág.
Kristjánsson, Guðm. Karl Pét-
ursson, Þorst. Þorsteinsson og
Rósberg G. Snædal.
Ályktanir Bændafélags Þingey-
inga um ýmiss þjóðmál
Hervarnarmál - Kjötverzlun - Vegamál o. fl.
„Stefnumark mannkyns"" heims-
frægt rit í íslenzkri þýðingu
Séra Jakob Kristinsson hefur íslenzkað hið
gagnmerka rit du Noúy, „Human Destiny“