Dagur - 15.12.1951, Page 5
Laugardaginn 15. deseniber 1951
D A G U R
5
Mannkynið þarl aftur aS leggja eyra viS rausf spámannanna
Séra Benjamín Kristjánsson ræðir kenningar
hinnar nýju bókar Lecomte du Noiiy:
STEFNUMARK MANNKYNS
i.
Vísindamenn þykjast nú geta á-
kveðið aldur jarðar vorrar með
nokkurri vissu. Telja þeir, að hún
sé um 2000 milljón ára gömul. Um
hér um bil helming jressa tímabils
er ætlað, að eigi hafi fundizt nokk-
ur örmull af lífi á jörðunni, enda
hefur hún þá vcrið harla óbyggileg.
Þá taka að myndast einfrumungar
ósýnilegir berum augum, og voru
þeir lengi vel einu lifandi íbúar
jarðar. Þá korna orrnar, krabbadýr,
sjávarplöntur og hinir fyrstu fiskar.
Eru um 300 milljónir ára síðan þau
koijju til sögunnar. Hefst nú blóma-
skeið skriðdýranna, sem varir um
150 milljónir ára. Þau aukast og
margfaldast og kemur fram hvert
skrímslið öðru ferlegra og ægilegra.
Talið er, að sum þcirra hali vegið
um 80 smálestir. Krókódílarnir eru
tiltölulcga atkvæðalitlar lcifar af
þessum fornu herrum jarðarinnar.
Á fullmektardögum skriðdýranna
er að vísu talið að fram hafi komið
eittlivert slangur af forfcðrum spen-
dýranna ,en þau voru hvarvetna
i skugganum og höfðu livergi í fullu
tré við þessar klunnalegu ófrcskjur.
Þó er talið, að.þau muni mjög hafa
eytt skriðdýrunum með því að eta
egg þcirra, og að sumu leyti voru
þau bctur búin til að mæta breytt-
um lífsskilyrðum. Tók nú veðurl'ar
að breytast og staðhættir á jörðinni
skriðdýrunum í óhag og varð þetta
til þess, að þau líða næstum undir
lok, en spendýrin erfa ríkið. Þó
líða enn um 50 milljónir ára, þang-
að til nokkur nierki sjást um það í
jarðlögum, að maðurinn konii fram.
Er það fyrst íyrir hér um bil einni
milljón ára eða svo, sem nokkur
vegsummerki sjást um mannlega til-
veru.
Maðurinn er því tiltölulega nýr
gestur á jörðu. Unt mörg hundruð
áramilljónir hefði engan getað
dreymt um, að slík vera mundi
nokkru sinni taka sér bólstað þar,
né að hún mundi verða svo virk og
áhrifamikil sem hún varð. Og ekki
var maðurinn heldur atkvæðamikill
framan af. Hann var verr búinn til
lífsbaráttunnar en mörg önnur dýr
að ílestu leyti öðru en einu: Hann
hafði örlítið betri heila. Og þó
virðist vitsmunaleg þróun hans hafa
farið liægt af stað. Enn eru til kyn-
kvíslir manna á jörðinni, þar sem
andlegi þroskinn er ákaflega lítill,
menn, sem sýnast staðnaðir á
þroskastigi, sent er ekki nema vit-
und hærra en apanna.
Þó bjó með mönnunum mögu-
leiki til æðri þroska en hjá þeim
dýrum, þar sem eðlishvatirnar eru
einráðar. Sá hæfileiki manna, að
gera sér hugmyndir um tilveru sína
og takmark og geta hugsað óhlut-
rænt, skilur þá greinilega frá öðr-
um lífverum. Að sjálfsögðu voru
þessar hugmyndir mjög reikular og
óskýrar í fyrstu. En smám saman
nær maðurinn betri tökum á þeim.
Þá hefst hin eiginlcga menning. Af
henni eru þó ckki til sögur nema
um örfáar áraþúsundir. Enn þá
nýrra fyrirbrigði eru trúarbrögð
þau, sem verulegum þroska liafa
náð, þar sem liugmyndir eins og
kærleikur, mannúð og göfuglyndi
korna fram, trú á guð sem skapara
og föður og stórkostlega andlega á-
kvörðun mannkynsins.
Það er óhætt að fullyrða, að risa-
eðlurnar létu sig aldrei dreyma um
neitt því líkt og ekki lieldur spen-
dýrin, sem unt röskar 50 milljónir
ára lifðu og tímguðust á jörðinni
áður cn maðurinn kom fram. Þessar
hugmyndir þekktust líka naumast
eða voru að miunsta kosti afar
sjaldgæfar í höfðum nánustu for-
leðra vorra. En þær tóku smám
saman að mótast í hugsun fágætlega
jroskaðra einstaklinga og fengu
reyndar fyrst verulega fullkomna
mynd fyrir tæplega 2000 árum síð-
an í lífi og kenningum Jesú Krists.
Hann lagði lyrst megináherzluna á,
að maðurinn væri guðsbarn og ætti
að verða fullkominn, eins og hinn
liimneski íaðir væri fullkominn.
Hann birti mannkyninu nýtt lög-
mál, sm dýraríkið aldrei hafði liug-
mynd um, lögmál, sem var and-
stæða hinnar eðlisgrónu sjálfselsku
dýrsins: lögmál liins fórnandi kær-
leika. Slíkt lögmál á að gilda fyrir
þessa sérstöku grein þróunarinnar:
tegundina maður.
Gyðingaþjóðin, ættbálkur hans,
halði liaít grun um liina niiklu og
cinstæðu ákvörðuu mannkynsms.
Hendingin um það kcniur fram í
I. Mósebók, þar sem sagt er, að guð
hafi skapað manninn í sinni niynd
og skipað hann drottnara yfir öðr-
nm dýrum merkurinnar. En Jesús
skildi málið til fulls og lil'ði eftir
hugsjóninni. Þetta er það, scm ger-
ir liann svo einstæðan, drottin alls
mannkyns. Hin mikla arfleifð trú-
arbragðanna er i þessu fólgin, að
þau liafa.komið auga á mannsæm-
andi hugsjónir, eygt ný takmörk,
sem bcina viðlcitninni og lífinu, ef
vel tekst, inn á brautir, sem liggja
órafjarri öllu því, sem dýralífið gat
nokkru sinni komizt eða liefur von
um að komast. Þegar komið er yfir
í ríki andans, er í raun og veru
komið iiin í annaii og æðra Iieim,
þar sem önnur lögmál gilda en í
heimi efnisins og möguleikarnir cru
svo að segja takmarkalausir. Það
sýnir sig líka, að el'tir að menn fóru
að starfa með andlcgum liúgmynd-
um, hefur þröuninni íleygt fram
með þeim geysihraða á nokkur
hundruð árum, að miklu meira hef-
ur áunnizt en á jafnmörgum ára-
milljónum áður. Þetta er vert að
hafa í huga, þegar dæmt er um
menningu vora, svo að liún sé ekki
máluð óþarflega dökkum litum.
Með því að nota andlega hæfileika
sína, hefur mannkynið áunnið sér
undravert frelsi. Hæfileikar manns-
ins og vitsmunir til að drottna yfir
jörðinni liafa reynzt furðulegir, og
í sívaxandi mæli liefur liann lært að
taka náttúruöflin í þjónustu sína.
Vesæll og veikbyggður Iieíur liann
hafizt á skömmum tíma til meiri
valda og álirifa á jörðu en nokkur
vera áður fyrr. Með hugsæi'sgáfu
sinni hefur hann komið auga á dýr-
mætar menningarhugsjónir, sem ná
langt út yfir liið jarðneska starfs-
svið. Hann liefur komið auga á hið
hæsta takmark allrar menningar:
Þróun andans sjálfs, alefling sálar-
göfginnar og mannkostanna.
Með tegundinni maður verða
þannig stórkostleg greinarskil í
allri sögu lífsins á jörðinni. Ný líf-
vera hefst til valda, sem liefur hæfi-
leika til að drýgja stærri örlög og
ætlað er æðra hlutskipti, en öllum
þeim, sem lifað liafa þar áður.
Þetta þurfa menn að skilja til
fulls!
II.
Allt þetta útskýrir Lecomte du
Noiiy í hinni merkilegu bók, sem
nú liggur fyrir i snilldarlcgri þýð-
ingu séra Jakobs Kristinssonar. Og
á bók sem þessari var mikil þörf.
Því að þau furðulegu straumlivörf
gerðust í liugsanalífi býsna margra
vísindamanna á öldinni sem leið,
að liorfið var frá þeirri liugmynd,
að maðurinn ætti sér nokkra æðri
ákvörðun en skynlausar skepnur.
Efnishyggjan leitaðist við að berja
>að inn í menn, að þeir væru ekk-
ert annað en skepnur og þeim líkir
í flestum hlutum öðrum en að þeir
hefðu aðeins örlítið meira vit. Þetta
var gert í nafni vísindanna. Og þar
sem vísindin voru goð tímans, var
á þetta trúað af þorra þeirra, sem
menntaðir vildu teljast, og af al-
lýðu manna, sem einnig bar traust
til æðstu presta náttúruvísindanna.
En með því hrundi um leið trúin á
guð og það andlega og siðlega tak-
mark, sem sú trú lialði boðað
mönnunum. Hugmyndin um al-
máttugan og alvitran skapara him-
ins og jarðar var talin barnaleg í-
myndun, og þar með þótti það sýnt,
að fífið heíði hvorki tilgang né tak-
mark og væri í rauninni ein langa-
vitleysa. Um leið hrundi allur
grundvöllur siðfræðinnar i rúst.
Hvers vegna ættu menn að miða
breytni sína við liugsjón, sem vís-
indamenn töldu blekking og upp-
spuna kirkju og presta?
Þannig liugsuðu menn, og afleið-
ingin blasir við augum: Tvær
lieimsstyrjaldir eru talandi vitni
uin siðferðilegt gjaldjirot efnis-
hyggjunnar.
Vísindin eru tvíeggjað vopn. Með
hinum tæknilegu framförum verða
menn að vísu óháðari náttúruöflun-
um og geta skapað sér mörg Jiæg-
indi. En Jiá er hætt við að menn.
fari að líta á Jiessi þægindi sem
takmark og afmannist. Tæknin
verður líka ægilegt vopn í liöndum
ójiroskaðs mannkyiis. Það eru að-
eins tiltölulega fáir einstaklingar,
sein rutt hafa brautina að Jiessu
leyti, og tiltölulega fáir, sem Jirosk-
aðir eru í sannarlegri göfug-
mennsku. Og þeir menn eru ekki
gjarnan fyrirferðarmestir í valda-
stólum. Ollum er liins vegar fengið
vopn tækninnar í hendur og Jiá
getur farið eins og Jiegar óvita er
tenginn flugbeittur linífur, og jafn-
vel miklar líkur að svo fari. Hættan
er sú, að mannkynið tortími sér, og
Jiað Jiví fremur sem trú Jiess þverr
á guðlegar hugsjónir.
Hér er Jiví komið út á háskalega
braut, sem lítil von er til að mann-
kynið bjargist af, nema Jiað lineigi
aftur eyru sín að raust spámann-
anna, sem höfðu miklu dýpri siða-
greind en efnishyggjumenn nútím-
ans. Þeir skynjuðu á liugsæilegan
liátt sannindi, sem venjulegri rök-
vísri skynsemi reyndist torvelt að
finna af ytri staðreyndum vegna
Jiess meðal annars, að þekking vor
er í molum, þrátt fyrir öll vor vís-
indi. Spámennirnir eru frumburðir
nýs mannkyns, yfirþroskaðir ein-
staklingar, sem koma fram löngu
áður en Jiróunin hefur almennt
komizt í námunda við þá. En Jieir
eru samt sem áður ætlaðir til að
verða leiðtogar, logandi vitar, sem
lýsa veginn fram að fjarlægu marki.
Og funi kveikist af funa. Eitthvað
af Jieim ljóma, sem skín af Jiessum
forgönguinönnum, endurspeglast í
sálum annarra, sem bera kyndlana
áfram til komandi kynslóða, Jió að
ljósið stundum daprist og verði
jafnvel villiljós.
Þannig var um kristindóminn.
Aldrei hefur komið fram á jörð-
inni meiri trú á dásamleg örlög
nianna og geysilegt lilutverk: ,,Þér
elskaðir, nú erum vér guðs börn
og enn er ekki orðið bert, hvað vér
niunum verða. Vér vitum, að Jiegar
hann birtist, Jiá munum vér verða
honum lík, Jiví að vér munum sjá
hann eins og hann er." Þessi var
sannfæring Jóhannesar, og Jiað er
enginn efi á því, að hann héfir
skilið meistara sinn rétt. Röddin,
sem hljómaði í sál Jesú við skírn-
'ina: Þú ert sonur minn elskulegur,
sem eg hefi veljióknun á, lieyrist
jarna í gegn. Mennirnir eru ekki
skapaðir til Jirældóms við eðlislivat-
ir sínar. Guð líefur Jiá sonu sína
gert en ekki Jiræla. Þeir eiga að
vera frjálsir samverkamenn lians.
Þetta cr tónninn, scm hljómar gegn
um allt Nýja testamentið. frá fyrstu
blaðsíðu til hinnar síðustu, Jietta er
mesti boðskapurinn, sem fluttur
hefur verið á jiirðu, stærsta fágnað-
arerindið, æðsta menningarhug-
sjónin, dýrmætasta trúin, sem nokk-
ur maður getur öðlazt. Mcð Jicssari
kenning liefur menning jarðar vorr-
ar risið liæst. Hún er arfleifð, sem
ckki brýtur í bága við neitt, sem
sannast er vitað í allri þekkingu og
vísindum. Hún gefur fagra og dýr-
lega lausn á lífsgátunni. Hún örvar
siðakrafta mannsins, blæs honum
hugrekki og gleði í brjóst og knýr
hann áfram á braut sannrar menn-
ingar.
III.
Um allt Jietta og margt fleira
ræðir hinn ágæti franski vísinda-
maður í bókinni Stefiiumark mann-
kyns svo að unun er að lesa. A
slíkri bók, sem tcngir saman heim-
speki, trú og visindi, var mií'il Jiörf.
Þetta hefur svo gersamlega slitnað
úr tengslum á síðiisfú árátúgltm, að
til stórtjóns-er öllu heilbrigðu hugs-
analift. Kristin trtifræði, séfn öll
hangir í hugmyndakerfum miðald-
anna, er orðin svo Iaiígf á eítir tím-
'ahtfm' ':Ið "várla nokkur maður les
liann ótilneyddur, enda hefur hún
orðið ijsKilj.úileg,- Iféstum, íegna
þcss aðiliún kemur'hVen^^ gftjörð-
ina oglirærist í kred5um,‘sem áttu
sér allt annan heimsfræðilegan bak-
grunn. Þess Vegíia liættir 'mðiinum
til að líta á liana sem heilaspuna.
Þrátt fyrir það geta meghlsánnind-
in verið hin sömu, enda Jiótt sjón-
armiðið færist til.
Það er höfuðnauðsyn hvers tíma,
að trúarbrögðin séu skýrðfjiannig,
að mönnum megi verða lji'ist, að
engin raunveruleg Jiekking brjóti í
bág við Jiau, heldur séu Jiau nauð-
synlegur liður og eins konar kóróna
á alíri andlegri framsókn íiumn-
kýnsins. Þetta gerir höfundur bók-
arinnar af mikilli snilld og brúar
þannig gjána milli vísinda og trúar
að seint mun fyrnast.
Heimsfrægur eðlisfræðingur og
Nóbelsverðlaunamaður, Robert A.
Millikan, hefur komizt svo að orði,
að Jiessi Iiók sé rituð af svo djúp-
tækurn skilningi og glöggri innsýn,
að ekki sé hægt að vænta Jiess, að
önnur eins bók komi út nema einu
sinni eða tvisvar á öld. Þessi vitnis-
liurður er þýðingarmikill af Jiví, að
hann er kominn frá manni, sem
sýnt hefur frábæran skarpleika í
vísindalegri hugsun. En höfundur-
inn að Stefnumarki mannkyns not-
ar einmitt vísindalegar hugsunar-
aðferðir og kemst Jiannig að mjög
líkum niðurstöðum i megirtatriðum
og trúarbrögðin hafa halclið fram
um liinzta eðli og ákvörðún lífsins.
Væru verulcgar veilur í liugsun
hans, mundu mcnn eins og Milli-
kan vera allra manna líklcgastir til
að gagnrýna Jiær, þar sem einmitt
hér er komið inn á mörg erliðustu
vandamál vísindanna og Jiau kruf-
in til mergjar.
Lacomte du Noúy er frægur fyrir
uppgötvanir sínar í læknisfræði og
var samstarfsmaður Curie og fleiri
forystumanna á svjði’ efifisvísinda.
Hann er Jiví livorki utangátta í eðl-
isíræði, efnafræði, stærðfræði, heim-
speki eða neinni annarri fræði-
grein, sem máli skiptir í Jiessum
efnum. Hann sýnir fram á Jiað með
óyggjandi rökum, hve fjarri fcr Jiví,
að cfnisvísindin gcti á nokkurn hátt
skýrt uppruna lífsins. ^íe.ð líkinda-
reikningi sýnir hann fram íji Iivílík
fjarstæða Jiað er, að jiróunin verði
skýrð með tilviljun einni, eins og
helzt hefur verið uppi á baugi og
bendir á, að miklu skynsamlegra sé
að álykta, að Jiað sé vitandi máttur,
er stefnt hefur henni að því rnarki,
sem lnin heíur náð og öðru órafjar-
lægu. Bókin er Jirungin af siðlegri
alvöru og leiítrandi af viturlegum
hugsunum. — Meginviðfangsefni
manns frant að Jiessu, segir hann,
helur verið Jiað, að ná stjórn á
heiminum. í framtíðinni verður
hann að læra að stjórna sjálfum
sér. Hin sanna menning er fólgin
í eflingu Jieirra eðlisjiátta, sem vér
höfum fram yfir dýrin. Mannkynið
er við uppliaf þeirrar ummyndun-
ar, sem stefnir í meiri hæðir en
nokkurn dreymir um, ef vér miss-
um ekki trú á markinu og gefumst
ckki upp.
Eg vil eindregið ráða sem flestum
til að lesa þessa bók og lesa hana
oft. Hún geíur ótæmandi umhugs-
unarefni, er þrungin af skemmti-
legri lræðslu, og hugsun höfunarins
er livarvetna í fararbroddi Jieirra
hugmynda, sem lýst geta lrani á
veginn.
Séra Jakob Kristinsson hefur ís-
lcnzkað bókina með miklum ágæt-
um, og hefur það þó verið sannar-
lcgt þrekvirki, því að víða er hún
skriluð á talsvert örðugu íræðimáli,
sem íslenzk tunga cr lítt tamin að.
En með frábærri alúð hefur Jiýð-
andinn fært hana yfir í þann bún-
ing, sem henni skartar vel, á vora
tungu, án Jiess að nokkuð tapist né
nokkrum sé ofætlun að skilja, sem
lcs mcð athygli.
Þessi bók er án efa ein hin allra
merkilegasta bók um andleg mál,
scm rituð hefur verið á seinni lím-
um og standa allir hugsandi menn
i mikilli þakkarskuld við þýðand-
ann og útgefándann að hafa gefið
íslcnzkri Jijóð Jietta frábæra rit.
Benjamin Kristjánsson.
Á leið í vínbúðina
Njáll: Hvert er för þinni
heitið?
Kaupa-Héðinn: í vínbúðina.
Sækja vil eg þangað vínflöskur
fyrir borgara bæjarms. Snjór
og hríðar hindra nú umferð
bílanna, en áður voru þeir
mörgum lijálparhclla við að út-
vega ölföng á nótt og degi.
Njáll: IHt verk er það, er þú
hefur valið. Veiztu eigi að í
vínbúðina fer fé frá nauðsynj-
um hcimilanna?
Kaupa-Héðinn: Það læt eg
mig engu skipta. Aðrir bera
ábyrgð á því.
Njáll: Illa fer saman jóla-
gleði og drykkjuskapur. Fylgja
honum oft róstur og rudda-
skapur frá dýrinu í manninum.
Kaupa-Héðinn: Ekki er það
ávallt svo. Sumir neyta víns í
hófi, svo að ekki sakar.
Njáll: En þeir gefa börnum
sínum og unglingum hættulegt
fordæmi. Þeir kenna þeim, að
vín skuli ávallt hafa á hátíð-
legum stundum. Eigi er það á
þeirra færi að vita, hve margir
kunna að fara með það í hófi.
Nei, ef vitið er spurt ráða, segir
það okkur að vín ætti alls ekki
að nota til nautnar. En sízt af
öllu í afmælis- eða fermingar-
veizlum eða öðrum hátíðlegum
stxmdum heimilanna. Ták-
markið er: Vínlaus jól!