Dagur - 13.02.1952, Qupperneq 1
Ferguson dráttarvél — 25 þús.
kr. virði, er meðal vinninga í
blaðahappdrætti Framsóknar-
manna. Dregið 1. marz.
Kaupsýslu- og iðnaðarmenn!
Fleiri Akureyringar og Ey-
firðingar lesa auglýsingar
í Degi en í nokkru öðru
blaði.
XXXV. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 13. febrúar 1952
7. tbl.
Ðrotíningin og n,a8nr hennar RaÍOrkUITlál \\mMm SlffirSla 11^115113^
elnið í næsfu Iramlíð
Háspemiulína til Dalvíkur ráðgerð -
Ólafsfjarðarhöfn verður væntanlega
fullgerð á yfirstaiidaníli ári
Rætt við BERNHARÐ STEFÁNSSON, alþm.,
um störf Alþingis og hagsmunamál liéraðsins
Georg VI. Bretakonungur andaðist í Sandringhamhöll aðfaranótt
sl. miðvikudag, 56 ára að aldir. Kom þá til ríkis Elísabct prinsessa,
dóttir hans, er tekið hefur sér nafnið Elísabet II. Þau hjónin Elísabet
og Philip maður hennar voru nýlögð af stað í opinbera heimsókn til
Kenya, Ceylon og Átsralíu og dvöldu um þessar mundir íKenya.Þau
sneru þegar heim. Myndin er af hinum ungu og glæsilegu hjónum.
3 milljónir króna í byggingarsjóði
dvalarheimilis aldraðra sjómanna
Töfrasýningar Truxa þattur í fjársöfnun
til byggingar dvalarlieimilis í Rvík
80 þús. kr. vinningar
í happdrættinu
Um mánaðamót næstkom-
andi verður dregið í blaða-
happdrætti Framsóknarflokks-
ins um vinninga, sem eru 80
þúsund króna virði. Þar á með-
al eru þessir vinningar: Ferð
til Miðjarðarhafslanda fyrir 2,
Ferguson dráttarvél, ferð til
Kaupmannahafnar með Gull-
fossi, fyrir 2, og til Skotlands
með sama skipi, fyrir 2, 12
ágætar hrærivélar, 4 Ilugin
saumavélar, þvottavél, ísskáp-
ur, vikudvöl á Laugarvatni,
Rafhaeldavél o .m. fl.
Sala miðanna hefur gengið
greiðlega um land allt. Sölunni
í bæ og héraði fer nú að ljúka
og er takmarkið að allir mið-
arnir verði seklir fyrir 25. þ. m.
Er hér mcð skorað á alla þa, er
miða hafa til sölu, að setja sér
þetta takmark. í Eyjafjarðar-
cýslu má fá miða hjá eftirtöld-
um mönnum: Stefáni Valgeirs-
syni, Auðbrekku, Kára Þor-
steinssyni, Þverá, Jóhanni
Valdimarssyni, Möðruvöllum,
Jóhannesi Óla, Árskógi, Finni
Kristjánssyni, Ártúni, Kristni
Sigmundssyni, Arnarhóli, Bif-rii
Gestssyni, Björgum, Ingimar
Brynjólfssyni, Ásláksstöðum,
Jóni Jónssyni, Böggvisstöðum,
Filippusi Þorvaldssyni, Hrísey,
Marinó Þorsteinssyni, Engihlíð,
Gunnari Kristjánssyni, Dag-
verðareyri, Óttar Björnssyni,
Laugalandi, og auk þess hjá
Þórði Jónssyni, Þóroddsstað,
Ólafsfirði og Birni Stcfánssyni
kennara Ólafsfjarðarkaupstað.
Hér á Akureyri fást miðar m. a.
á skrifstofu Dags, hjá Pétri og
Valdimar á Ráðhústorgi, Skó-
búð KEA, á rakarastofu Jóns &
Sigtryggs, Skipag., hjá gjald-
kerum á skrifstofu KEA og á
fleiri stöðum. Látið ekki liapp
úr hendi sleppa. Frestið ekki að
kaupa niiða.
Danski sjónhverfingamaðurinn
Truxa hefur gist bæinn að und-
anförnu og sýnt listir sínar í
Samkomuhúsinu við mikla að-
sókn. Hefur fólki þótt þetta ný-
stárleg skcmmtun.
Truxa sýnir ýmsar algengar
sjónhverfingar og svo að auki
hugsanaflutning í milli hans og
hinnar sænsku konu hans og er
það bezti liður dagskrárinnar og
allmerkilegur.
3 milljónir í sjóði.
í för með Truxa hingað var
Böðvar Steinþórsson framkv.stj.
Sjómannadagsráðs í Reykjavík
og Hafnarfirði. Hann skýrði blað-
inu svo frá, að í byggingasjóða
dvalarheimilis aldraðra sjómanna
sé nú um 3 millj. króna, gjafir og
ágóði af skemmtunum, sem
jjessum, er haldnar hafa verið til
ágóða fyrir heimilið. Heimilið á
að rísa á Laugaráshæðinni í
Reykjavík og verður ætlað fyrir
um 100 vistmenn. Ætlunin er að
hefja byggingaframkvæmdir í ár,
ef leyfi fást, en annars skortir
mikið fé enn til þess að kosta
bygginguna.
Gjafir úr strjálbýlinu.
Böðvar sagði, að heimilið væri
að sjálfsögðu sniðið eftir þörfum
sjómanna í Reykjavík og Hafn-
arfirði, en tekið væri við gjöfum
utan af landi, sem tryggja ætti
dvalarmöguleika sjómanna það-
an. T. d. hafa Húsvíkingar sent
myndarlega gjöf til þess að
tryggja sér ítök í herbergi á
heimilinu. Böðvar taldi ekki
nokkurn vafa á því, að mikil og
bryn þörf væri fyrir slíkt heimili
í þjóðfélaginu, enda hefði málið
notið velvildar alþjóðar. Enda
yrði nú lagt kapp á að hrinda því
í framkvæmd.
Þorsteinn M. Jónsson
kjörinn forseti
bæjarstjórnar
Á síðasta bæjarstjórnarfundi
fór fram kjör forseta og í nefndir.
Þorst. M. Jónsson skólastjóri var
endurkjörinn forseti bæjar-
stjórnar, 1. varaforseti er Sverrir
Ragnars og 2. varaforseti Stein-
dór Steindórsson. í bæjarráð
voru kjörnir: Jakob Frímanns-
son, Steindór Steindórsson, Jón
G. Sólnes, Guðm. Jörundsson og
Tryggvi Helgason. Varamenn
eru: Dr. Kristinn Guðmundsson,
Bragi Sigurjónsson, Helgi Páls-
son, Sverrir Ragnars, Elísabet
Eiríksdóttir. Nefndif voru end-
urkjörnar. með litlum .breyting-
xmi.
Þetta þing er stytzta þing nú
um mörg ár, sagði Bernharð
Stefánsson 1. þm. Eyfirðinga, for-
seti efrideildar, er blaðið átti
samtal við hann um störf þingsins
og hagsmunamál héraðsins.
En þótt þing þetta stæði alls
ekki nema 116 daga, má telja að
það hafi afkastað miklu og kom-
ið meiru í verk, en ýmis þau þing,
er lengur hafa staðið. Orsakir
þess, að þingstörfin ganga greið-
legar nú í seinni tíð, en um langt
skeið áður, eru tvær, sagði
Bernharð. í fyrsta lagi situr að
völdum ríkisstjórn, sem ekki er
völt í sessi og styðst við öflugan
þingmeirihluta. í öðru lagi — og
þó ekki síður — er ástæðan sú, að
alveg er skipt um f jármálafórustu
frá því, sem áður var. Síðan þessi
ríkisstjórn tók við völdum og Ey-
steinn Jónsson varð fjármálaráð-
herra, hefur fjárlagafrumvarp
verið þingskjal nr. I. og lagt fram
strax fyrsta þingdaginn. Hér eru
stór og heillavænleg umskipti á
orðin. — í tíð fjármálaráðherra
Sjálfstæðisflokksins leið stundum
mánuður af þingtímanum áð-
ur en þingmenn sáu fjárlaga-
frumvarpið.
Fyrsta heila árið.
Síðastl. ár var fyrsta heila árið,
sem Eysteinn Jónsson stýi'ði fjár-
málum ríkisins í þessari stjórn;
niðurstaða reikninganna er um
50 millj. króna tekjuafgangur
ríkisins. Þessum árangri er náð
án þess að nokkrir skattar hafi
beinlínis verið hækkaðir, þótt
sumir tekjustofnar gefi ríkissjóði
hærri upphæðir en áður, þótt lítt
sé umfram það, sem peningagildi
hefur rýrnað. Eg fullyrði, að hina
hagstæðu útkomu á ríkisbúskapn
um megi skrifa á reikning betri
fjármálastjórnar og ef stefnan
hefði verið óbreytt frá fyrri tíð,
mundi því fé, sem Alþingi ráð-
stafaði nú til nauðsynlegra fram-
kvæmda, þegar hafa verið eytt
með öðrum hætti og hefði ekki
komið til ráðstöfunar eins og
nú varð. — Hin bætta fjár-
málastjórn er því beinlínis und-
irstaða þessara framkvæmda. —
Varið er nú af tekjuafganginum
til ræktunarsjóðs og bygginga í
sveitum 15 millj. króna, til íbúða-
bygginga í kauptúnum og kaup-
stöðum 12 milljónir (í þrennu
lagi), til hins nýja Iðnaðarbanka
3 millj., 5 milli. vangoldið ríkis-
framlag til hafnargerða, 2 millj.
til skóla og 1 millj. til veðdeildar
Búnaðarbankans. — Samtals er
þctta 38 milljónir til hinna brýn-
ustu nauðsynjamála. Ennfremur
verður varið 4 millj. króna af
þessum tekjuafgangi ríkissjóðs til
atvinnuaukningar í kaupstöðum
og er þess ekki síður brýn þörf.
Fjánnálin má hverju sinni kalla
mikilvægasta viðfangsefni þings-
ins. Auk þeirra fjallaði þetta þing
um stórmál, þar sem var her-
varnarsamningurinn. við Banda-
ríkin, mál, sem nú virðizt orðinn
meiri friður um en áður og er
það vel.
Málefni héraðs og hæjar.
Af málefnum héraðs og bæjar,
er til kasta þessa þings kom, vil
eg fyrst nefna smíði fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri. Eng-
inn andmælir því, að hér sé stórt
hagsmuna- og áhugamál bæjar
og héraðs, og raunar þjóðarinnar
allrar eins og ástatt er í spítala-
málunum yfirleitt. Samt miðar
hægt áfi-am. Fjárveiting fékkst
ekki nema 500 þús. kr. nú, þrátt
fyrir viðleitni norðlenzkra þing-
manna. Hefur Alþingi yfirleitt
verið sparara á fé til þessara mála
en ýmissa annarra. Oleyst er og
það atriði, hvort hluttaka ríkis-
ins í byggingakostnaði spítala
skuli ná til tækja og búnaðar eins
og hússkrokksins sjálfs, sem eðli-
legt virðist, en ekki fékkst þó úr
þessu skorið á þessu þingi, heldur
var deilunni um það sk»tið til
ríkisstjórnarinnar. En þessu máli
verður að sjálfsögðu haldið vak-
andi, enda verður það að fá við-
unandi lausn.
Raforkuniálin.
Annars tel eg, sagði Bemharð,
að stærsta úrlausnarefni héraðs-
ins á næstunni, sé að tryggja
lagningu háspennulínu sem víð-
ast til þess að koma rafmagninu
frá Laxárvirkjuninni nýju út um
héraðiðr En Laxárvirkjun naut
stuðnings þessa þings og er þar
að sjálfsögðu stórfellt hagsmuna-
(Framhald á 11. síðu).