Dagur - 13.02.1952, Page 7
Miðvikudaginn 13. febrúar 1952
D A G U R
7
Heimsókn á heimili Roosevelfs forseta á bökkum Hudsonfljófsins
Eftir TÓMAS ÁRNASON* lögfræðing
Franklin D. Roosevelt.'
Á 17. öld námu ýmsir land bá&-
um megin Hudsonfljótsins
sem innflytjendur frá Hollandi,
Englandi, Svíþjóð og Frakklandi,
Þýzkalandi o.g víðar. Þeir byggðu
einn frjósamasta og fegursta
hluta Bandaríkjanna, Hudson-
dalinn. Þeir og afkomendur
þeirra, ásamt nýjum innflytj-
endum ,skópu sögu hans. Þessi
ríkisins ,en við ósa þess er hin
risastór New Yorkborg. Frá dög-
um frumbyggjanna hafa fleytur
svo farið um fljótið og flutt varning
til landsins og frá því. New York-
ríki greinist nið.ur í um 60 fylki.
Eitt þeirra, Dutchensfylki (Hol-
landsfylki), nær yfir hlutá Hud-
sondalsins og er ca. 150 km. frá
New Yorkborg. Þar er Hyde
Park. Árið 1826 var byggð b^'gg-
ing á hæðardragi nokkru, þaðan
Hyde Park, bernskuheimili Roosevelts forseta. — Nú eign ríkisins.
var meginstefna síðari kynslóða. sem sér yfir Hudsondalinn, um
Þessir voru forfeður Franklin D. það bil mílu vegar, eða tæplega
Roosevblts Bandaríkjaforseta. — það, frá fljótinu. Þessa eign
Á dögum frelsisstríðs Bandaríkj- keypti James Roosevelt árið 1867
anna komu Rooseveltarnir þegar
við sögu. Roosevelt forseti var
því afkomandi gamallar og gró-
innar ættar. Hann fæddist á
heimili Rooseveltanna í Hyde
Park 30. janúar 1882. Hann var
einbirni og ólst upp á bökkum
Hudsonfljótsins í mjög fögru um-
hverfi. Þegar hann hafði aldur til
vai- hann sehdur til elztu og
þekktustu menntastofnunar
Bandaríkjanna, Harvardháskól-
ans, og þar-hlaut hann menntun
sína. Hann las lögfræði við laga-
skólann og lauk þaðan prófi. Á
árunum 1911—1913 var hann full
trúi héraðs síns á þingi New
Yorkríkis. Á þeim árum og síðar
rak F. D. R. lögfræðiskrifstofu í
New Yorkborg. 1928—30 var
hann kosinn landstjóri New
Yorkríkis og síðan forseti Banda-
ríkjanna 1932. Hann var endur-
kosinn og gegndi forsetastörfum,
unz hann lézt skyndilega 12. apríl
1945. Tvisvar í sögu Bandaríkj-
anna hafa ástsælir þjóðskörungar
og leiðtogar verið numdir brott,
þegar sízt skyldi. Abraham Lin-
coln og F. D. R. í bæði skipin átti
þjóðin í ófriði. Þá ríkti þjóðar-
sorg um gjörvöll Bandaríkin. —-
Það var þögn á veitinga- og
skemmtistöðum. Fólk hvíslaðist
á. Á strætum og torgum mátti sjá
grátandi fólk. — Roosevelt for-
seti átti óvenju vinsældum að
fagna um gjörvallt landið. Ilann
var fyrstur leiðandi stjórnmála-
leiðtoga landsins, sem í alvöru lét
í ljós þá skoðun, að raunverulegt
frelsi einstaklingsins gæti ekki
átt sér stað án fjáfhagslegt siólf-
stæðis. Sá var boðskapur hans til
þjóðþingsins 11. jan. 1944. En F.
D. R. átti einnig hatursmenn, sem
einskis svifust við að rægja hann
gagnvart þjóðinni. En þessi ein-
stæði gáfumaður, sem ekki gat
tapað forsetakosningum, verður
ávallt hulinn tignar- og frægðar-
hjúp í vitund bandarísku þjóðar-
innar.
Hyde Park.
New Yorkríki er á landamær-
um Ganada og Bandaríkjanna
Það er tæplega miðlungi stórt mn
sig miðað við önnur bandaríki, en
rajög þéttbýlt, telur um 135/2
millj. íbúa, enda liggur það vel
við verzlun. Hudsonfljótið renn
ur skipgengt um allmikinn hluta
og varð hún síðar fæðingarstaður
og heimili F. D. Roosevelts for-
seta. Utsýni er mjög fagurt. Það
sér niður á Hudsonsfljótið, sem
rennur spegilslétt til sjávar.
Skógivaxnir ásar mynda lágar,
aflíðandi hlíðar dalsins beggja
megin fljótsins. Langt í suðri og
norðvestri bera fjöll við himinn,
sem aðeins sjást í góðu skyggni.
Til Hyde Park.
í sumar sem leið dvaldi eg á
kynningarnámskeiði, sem haldið
var að fyrirlagi Bandaríkja-
stjórnar, í þeim tilgangi að kynna
skiptistúdentum land og þjóð,
áður en þeir færu til hinna ýmsu
hóskóla til náms. Námskeið þetta
var haldið að Bard College, sem
er menntaskóli í sveit, skammt
frá Hyde Park og sóttu það 40—
50 stúdentar frá 17 mismunandi
þjóðum.
Eftirminnilegasta kynningar-
atriðið var fólgið í því að skoða
heimili Roosevelts forseta í
Hyde Park. Fórum við þangað í
stórum áætlunai^þíl eða strætis-
vagni. Við innganginn var mergð
fólks og bifreiða, því að fjöldi
skoðar heimili forsetans daglega,
þar sem það er nú eign ríkisins.
Frú Roosevelt og börn hennar
ákváðu að afsala öllum rétti til
eignarinnar, sem var opnuð al-
menningi til sýnis 12. apríl 1946,
einu ári eftir lát Roosevelts for-
seta.
Minjasafn forsetans.
Fyrst skoðuð.um við minja-
safnið, sem er til húsa í bókasafni
F. D. R. (FDR Library). Roose-
velt forseta var vel kunnugt um,
að ýmsir munir varðandi hann
sjálfan myndu seinna hafa sögu-
legt gildi fyrir þjóðina. — Hann
langaði því til að varðveita þá í
eigu þjóðarinnar. Því bauð hann
þjóðinni allt sitt safn af hvers
konar munum, sem voru á ein-
hvern hátt riðnir við hann sem
forseta eða persónulega. Þjóð-
þingið þáði boð hans og stofnaði
minjasafn F. D. R. árið 1939. —
Byggingin var reist, að því er eg
hygg fyrir samskotafé, á landi
sem F. D. R. hafði gefið. Roose-
velt lagði sjálfur hornsteininn að
byggingunni 19. nóv. 1939, og á
þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna
1940, tók ríkisstjórnin formlega
við henni. En forsetinn byrjaði
þegar að senda ýmsa muni, göm-
ul föt, bréf, minjagripi o. fl. til
safnsins. Eftir lát hans bættust
svo við munir, sem hann notaði
til dauðadags.
Munum þessum hefur nú verið
raðað niður í flokka og deildir og
komið fyrir lýsingum á þeim. —
Þess skal getið, að safnið er sér-
staklega opið fyrir sagnfræðinga
og aðra þá, sem þurfa á sögu-
heimildum að halda.
í aðal sýningarsalnum eru
munir, sem sérstaklega varða F.
D. R. persónulega, svo sem alls
konar minjagripir, gjafir til for-
setans frá borgurum, þjóðhöfð-
ingjum og ríkjum o. fl. Málverk
af F. D. R. og konu hans prýða
veggina, ásamt fjölda mynda, þar
sem forsetinn er að inna af hönd-
um embættisvérk, sem marka
spor í sögu Bandaríkjanna og
sögu mannkynsins. Þá eru og
myndir af fjölskyldu F. D. R. við
ýmis tækifæri.
í miðjum salnum er sýnilega
mikið notað skrifborð ásamt skrif
borðsstóli, sem forsetinn notaði í
Hvíta húsinu, meðan hann gegndi
forsetastörfum. Þá eru þar meðal
gjafa frá þjóðhöfðingjum, skraut-
búið sverð frá Ibn Saud, kon-
ungi Saudi Arabíu, fagurofið
teppi frá Dalai Lama, Tíbet o.
m. fl.
Þá eru mörg handrit, yfirleitt
handskrifuð, af ýmsum skrifum
forsetans, svo sem bréfum, ræð
um o. fl. Vagga og skírnarföt
ásamt viðhafnarklæðnaði, sem
hann bar við ýmis tækifæri. Ymis
skjöl frá háskólanum, t. d. að-
göngumiðar að íþróttakappleikj
um, lögfræði, skírteini, leyfisbréf
til málaflutningsskrifstofu o. m.
fl.
Þarna er einnig hollenzk fjöl-
skyldubiblía, sem var notuð, þeg
ar F. D. R. vann eið að stöðu sinni
sem ríkisstjóri New Yoi-kríkis og
síðar sem forseti Bandaríkjanna.
Eins og kunnugt er hafði F. D.
R. ávallt mikinn áhuga á flota
Bandaríkjanna og sjóher. Hann
átti mikið og fagurt safn eftir
líkana af öllum gerðum herskipa
flotans, ekki aðeins nýtízku her
skipa, heldur og frá grárri forn
eskju til vorra daga. Þetta fagra
safn er nú til sýnis í einum sal
aðalsafnsins. Uppáhaldslíkan for-
setans af hinni frægu freigátu
„Constitution". Afhenti hann það
til safnsins skömmu áður en hann
lézt.
Forsetaherbergið er nú alveg
eins og F. D. R. skildi við það.
Hann bjó það húsmunum sjálfur
og notaði fyrir skrifstofu, þegar
hann dvaldi að Hyde Park. Þar er
persneskt gólfteppi, sem forset-
anum var gefið um það leyti, sem
Teheranráðstefnan alkunna
haldin.
Yfirleitt ber einkaskrifstofa
þessi fyrst og fremst vott um
smekkvísi og hagsýni fremur en
íburð og allsnægtir. — Auk þessa
geymir safnið um 40 þús. eintök
af bókum, rituðum greinum og
öðrum skrifum forsetans.
stór mararasteinn, sem stendur á heim og ætlaði að borða kvöld-
marmarahellu, sem lögð hefur
verið yfir gröfiná. F. D. Roosevelt
óskaði; „að hans ástkæra eigin-
kona yrði einnig grafin þar“ ogað
á mihnisvarðann mót suðri yrði
áletrúnin:
Fi-anklin Deláno RoóseVélt 19. .
Anna Eleanqr Roosevelt 19. .
Hcimilið.
■ Skammt frá grafreitnum er
fyrrverandi heimili Roosevelts
forseta. Er það stór og falleg bygg
ing, sem sómir sér vel og gnæfir
yfir umhverfið. Húsið og innbú
er varðveitt í sama ástandi og
meðan það var heimili þávérandi
Bandaríkjaforseta. Þegar þess er
gætt, að Rooseveltfjölskyldan var
auðug, er það eftirtektarvert, að
heildarsvipur heimilisins ber
fremur vott um menningar- og
myndarbiag en auð og allsnægtir.
Átti eg kost á að skoða. ríkis-
heimili einmitt þarna í nágrenn-
inu, er mér virtust fremur vera til
vegna sjálfra sín og alls skrauts-
ins, en þess fólks, sem þar býr.
Þegar konungur og drottning
Englands og aðrír geslir dvöldu
að Hydp Park, voru þau á þægi-
legu, amerísku heimili, sem ber
með sér menningar- og myndar-
brag stórra jarðeigna, eins og þær
gerast í sveitum Bandaríkjanna.
Á neðri hæðinni er m. a. stór
dagstofa, bókasafn og móttöku-
herbergi. í stofunni við arininn er
gamall stóll, sem forsetinn var
vanur að sitja í. Þá erU og mál-
verk af honum og ein stór stand-
mynd. Á efri hæðinni er her-
bergið, þar sem hann fæddist og
þar sem hann lék sér sem dreng
ur. Þar eru og svefnherbergi
þeirra hjónanna. Eru þar t. d.
mat með þessum sundurleita stú-
dentahóp á flötinni fyrir framan
húsið. Frúin er eins og kunnugt
er gáfuð kona og athafnasöm. Að
vísu gaf hún sig ekki mikið að
opinberum málum, meðan maður
hennar var á lífi. En hún var hús-
móðir í Hvíta húsinu lengur en
nokkúr kona önnur og átti auk
þess mörg börn. Hún var manni
sínum mikill styrkur í stjórn-
málabaráttunni. Kom mjög víða
fram við ýmis tækifæri um þvert
landið og endilangt. Var algengt
að heyia í skemmtiþáttum þeirra
tíma: „Þegar eg kom fyrir horn-
ið, hverjum haldið þið að eg hafi
mætt?“ „Auðvitað frú Roose-
velt!“
Eftir lát manns síns hóf frú
Roosevelt mikil afskipti af opin-
berum málum, sérstaklega varð-
andi alþjóðasamstarf. Varð hún
fulltrúi Bandaríkjanna á þingi
Sameinuðu þjóðanna. Átti hún
sinn þátt í.samningu mannrétt-
indaskrár Sameinuðu þjóðanna.
Fyrst flutti frúin stutta ræðu
um alþjóðamál og áleit að það
væri mjög áríðandi fyrir þjóðir
heimsins, að kynnast hvor ann-
arri. Lagði hún áherzlu á, að ein-
lægur friðarvilji og trú á málstað
friðarins væri mikilvægasta atr-
iðið og án þess væri trauðla að
vænta jákvæðs árangurs af sam-
starfi þjóðanna. Einhver spurði,
hvort hún héldi, að takast mætti
að leysa heimsvandamálin á frið-
samlegan hátt í samráði við Sov-
étríkin. Húp áleit það, en kvað
að sú leynd og óvissa um athafnir
og líf rússnesku þjóðarinnar
skapaði tortryggni. Þá væri og
hegðun rússnesku fulltrúanna á
þingi Sameinuðu þjóðanná einnig
tortryggileg. Sagði hún, að fyrst
I heimsókn hjá frú Roosevelt. Greinarhöf., T. Arnas., cr annar frá v.
Gröf. F. D. Roosevelts.
Grafreitur F. D. R. er miðja
vegu milli minjasafnsins og heim
ilisins. Þar voru jarðneskar le.yfar
þessa merkismanns jarðsettar. Er
þetta kyrrlátur staður, sem áður
var blómagarður, umlukinn háu,
vel hirtu limgerði. Grafreiturinn
sjálfur og minnisvarðinn er
óbrotinn og alveg eins og Roose-
velt lagði fyrir í lifanda lífi. Gröf-
in sjálf er í miðjum, sléttum
grasbala. Sem minnisvarði er all-
hangandi föt af F. D. R., skór og
ýmislegt fleira. Þá eru einnig all-
mörg gestaherbergi. Er komið
fyrir skrá yfir merka gesti, þjóð-
höfðingja og stjórnmálamenn,
sem þar hafa gist. í einu herberg-
inu er fremur stutt og breitt rúm
og stór öskubakki. Þar svaf
Churchill, þegar hann var gestur
að Hyde Park.
Það var raunar kynleg tilfinn-
ing, sem greip mig, þegar hugsað
var til þess, að þarna fæddist einn
mest umræddi og ástsælasti for-
seti Bandaríkjanna. Þetta var
heimili þess manns, sem öðrum
fremur mótaði stefnu Bandaríkj-
anna inn á þá braut að gegna for-
ystuhlutverki frjálsra þjóða í
baráttunni gegn kúgun og ein-
ræði.
Heimsókn til frú Roosevelt.
Eftir að hafa skoðað heimili
Roosevelts, fyrrverandi forseta
Bandaríkjanna, var ekíð til sum-
árheimilis frú Roosevelts. Hafði
hún boðið öllum hópnum þangað
þegar hún var fulltrúi á þinginu,
hefði hún boðið einum af fulltrú-
um Sovétríkjanna til hádegis-
verðar. En hann afsakaði sig sí-
fellt og kvaðst ekki hafa tíma. —
Þegar hún síðar, fróðari um starfs
reglur þeirra, bauð öðrum full-
trúa með honum, var ekkert til
fyrirstöðu. — Frú Roosevelt er
óvenju hávaxin kona. En þótt
hún sé nær sjötugu, er hún mjög
ung í anda og síbrosandi. Sér-
staklega hefur hún gáfuleg og
ungleg augu. Hún er óbrotin í
fasi og klæðnaði. Dvaldi hún.
meðal okkar og spjallaði nokkurn
tíma. Svaraði spurningum varð-
andi einkalíf sitt og allt mögulegt,
alltaf jafn alúðleg. Hún hefur haft
sama einkaritarann í 26 ár og
segir ,að kona þessi viti nærri því
eins vel, ef ekki betur, hvernig
hún sjálf á eða vill svara bréfum.
Frú Roosevelt virðist hafa þann
eiginleika, að sá sem talar við
hana, virðist sem hann hafi þekkt
hana.
(Framhald á 11. síðu).