Dagur - 02.04.1952, Qupperneq 8
8
DAGUR
Miðvikudaginn 2. apríl 1952
Sigurjón jónsson á Krossi
í DAG, 29. marz, fer fram að
Ljósavatni, jarðarför Sigurjóns
Jónssonar bónda á Krossi í
Lj ósavatnshreppi.
Sá er þetta ritar, átti ekki kost
á því, að vera þar viðstaddur og
fylgja þar gömlum sveitunga og
vini til hinztu hvíldar.
En í dag, reikar hugurinn á
fornar slóðir, og til hans með
þakklæti og bjartár minningar
fi'á liðnum árum.
Sigurjón er fæddur og uppalinn
á Arndísarstöðum í Bárðardal,
sonur hjónanna Jóns Árnasonar
og Herdísar Ingjaldsdóttur, er þar
bjuggu alla sína búskapartíð,
sóma- og rausnarbúi. Eignuðust
þau 10 börn, 5 syni og 5 dætur.
Öll hafa þau dvalið í Þingeyjar-
sýslu til æfiloka, og eru því hér-
aðskunn, að greind, mannkostum
og dugnaði, hafa búið þar- búum
sínum og verið hinir beztu bú-
þegnar. Má þar til nefna Sören,
víðkunnan mann fyrir afburða
gáfur, mælsku og rökfimi í íæð-
um.
Giftur var Sigurjón Helgu 111-
ugadóttur frá Heiðarseli á Fljóts-
héiði, mikilli dugnaðar- og at-
orkukonu. Eignuðust þau 7 börn,
er öll komust til manndóms og
þroska. Byrjuðu þgu búskap sinn
á parti Arndísarstaða, við lítil
efni, en fluttu þaðan eftir tvö ár
að Krossi, og bjuggu þar síðan,
þar til hann missti konu sína fyr-
ir nokkrum árum. Eftir það
dvaldi hann hjá börnum sínum
þar.
Jafnan lifði hann við góða þeilsu,
en þrotlaust, líkamlegt erfiði, því
að framan af árum var fyrir stór-
um barnahóp að sjá, éii efnin lít-
il. Unni hann sér lítillar hvíldar,
eins þó á efri árin væri komið, og
þrekið farið að bila, gekk að hey-
verkum fram að áttræðisaldri,
unz kraftarnir þrutu að lokum.
Lá hann þá rúmfastur, hátt á
annað ár, þai' til hann andaðist 21.
þ. m. 84 ár'a að aldri.
★
Nú fer þeim að fækka. traustu,
rótföstu stofnunum í bændastétt
Ljósavatnshrepps, er stóðu föst-
um fótum fyrir aldamótin síðustu,
og fram á fyrri hluta þessarar
aldar. — Burtu hafa þeir horfið
einn og einn, en segja má, að allir
hafi þeir skilið eftir sig „eitthvert
spor við tímans sjá“. En nýir
stofnar hafa skotið rótum og vax-
ið, sem tekið hafa við hlutverki
hinna föllnu. — Maður kemur í
manns stað.
Allir eiga þeir föllnu sína sögu,
hver fyrir sig, en sameiginlega
þó, að einu leyti: Baráttuna fyrir
lífinu sjálfu. Baráttuna fyrir
þeim verðmætum, er fullnægði
á sem flestan hátt, þörfum og
kröfum þeirra sjálfra, og þeirra,
sem þeim bar skylda til að sjá
borgið, til þess að lifa mannsæm-
andi lífi.
Allir hafa þeir verið kvaddir
með söknuði og eftirsjá samferða-
manna þeirra, er eftir hafa staðið
hverju sinni. Og nú er verið að
kveðja einn þennan baráttumann
í dag, mann, sem að því er eg
veit, stóð í meiri erfiðleikum
framan af árum, til efnalegrar af-
komu, en margir aðrir.
Það er að vísu gömul saga, að
ætíð hefur það gengið svo, og
mun ganga svo, að misjafnlega
hefur mönnunum gengið öflun
þeirra verðmæta, sem þarfirnar
til lífsins hafa kallað á hverju
sinni. Og ætíð hafa menn borið
misjafnlega stóran hlut frá borði
við öflun þeirra. Og raddir hafa
jafnvel heyrzt um það, að þeir,
sem skarðari hlut hEtfa hlotið, hafi
ekki verið nógu miklir kappar á
stríðsvellinum.
Þó getur svo verið, að sumir
þeirra hafi háð harðari. baráttu
fyrir sínum rýra hlut, en hinir,
sem stærri eða stóran hlut báru
frá borði í efnalegum sigrum. Svo
undarlega er þessum svokölluðu
veraldarvérðmætum skipt milli
mannaiina. ■ -
Nú mætti máske hugsa, að eg
teldi Sigurjpn á Krossi hafa borið
lítinn hlut frá sínu lífsstarfi og
s.tríði. En fjárri fer slíkú. Að vísu
var það svo, að framan af árum
var hluturinn smár, og tvísýnn
sigurinn, þar sem 7 barna hópur
var næstum í ómegð. En með
óþreytandi elj u, ráðdeild og
dugnaði' fór hann vaxandi, er ár-
in liðu, unz svo var komið, að
með tilstyrk konu og barna, varð
hann eigandi ábýlisjarðar sinpar,
húeaði hana að nýju og gjörði á
henni jarðabætur.
En allir, sem til heimilis hjón-
anna á Krossi þekktu vissu, að
Sigurjón stóð ekki einn að verki.
í verkahring húsfreyjunnar stóð
kona hans ætíð ótrauð, og lét
aldrei undan síga hváð hörð, sem
baráttan var. Þegar þetta er
skoðað, verður ekki Sagt, að hér
hafi til einskis verið barizt, börn-
in upp kornin ,og heimilið orðið
sjálfstætt að Ö11.U leyti. Og mig,
serri þekkti til heimilis þeirra
Krosshjóna, frá því fyrsta þau
hófu búskap sinn þar, undrar
næstum að sá sigur skyldi nást,
serri sýnilegúr er nú.
Eitt er það með öðru, sem eg
hygg að hjálpað hafi Sigurjóni til
oö aá - .sjgrypr.,,. Honum
voru í vöggugjöf gefnir þeir
gullriú "gnþrrT goð"og óúfribréýt-
anleg lund, bjartsýni og trú á það
að sjgur ynpist í hvprju gtríði að
lokum. Þessam dýrfiiætú eigna
gætO hann vandíega, svo að erf-
iðleikar og önnur utanaðkomandi
áhrif eyðilegði þær ekki. Enda
vissí koria háns, hvers virði þær
eignir voru þeim báðum, því að
einhverju sinni hafði hún látið
svo ummælt, að fyrir löngu væri
hún prðin viti sín,u fjær, í ,fátækt-
in.ni, nema fýrir lundina hans
Sigur'jóns. Þárna var viðurkenn-
ing á þessum dýrmætu kostum
hans og hún réttmæt. Þessif eig-
inleikaí hans áunnu honum,
ásamt prúðmennsku og ljúf-
marirílégfi framkómu, vinsælda
allra, er höfðu af honum nokkur
kynni. Og þegar svo varj að heim
ili þejrra hjóna „stóð við þjóð-
braut þvera“ var eðlilegt, að oft'
væri gestkvæmt á heimili þeirra,
þegar líka svo mátti segja, að
faðmur gestrisninnar stæði hverj
um opinn, sem að garði bar, og,
aldrei á móti gjaldi tekið, þó boð-
ið væri.
Á fyrri árum mun þó ekki ætíð
hafa verið af miklum forða að
taka, til framreiðslú gestum og
gangandi, en sízt .var sparað það,
sem fyrir hendi var, en væri eirí-
hvers vant, bætti alúð og hlýja
heimilisins það upp.
Húsbóndanum var það nautn,
að sitja hjá gestum sínum og ræða
við þá. Höfðu þeir venjulega fré
ýmsu að segja, eins og gengur og
gjörist um ferðamenn. Slíkt var
honum. kærkomið, því að mað-
urinn var' að eðlisfari fróðleiks-
gjarn, og vildi fylgjast með öllu,
sem gjörðist í lands- og syeita-
málum.
Sjálfsagt væru þeir margir, lífs
og liðnir, sem minnast mættu þess
er þeir á vetrum kpmu þreyttir,
hraktir og kaldir að Krossi og
fengu þar húsáskjól og gistingu,
fundu að þeir og hestar þeirra
voru velkomnir. Og víst mun
margur hafa snúið þaðan með
þakklátum hug til gestgjafanna
þar.
Eg var svo lánsamur, að vera
nágranni Sigurjóns, til beggja
handa við hann, um 22 ára skeið,
og hafði því náin kynni af honum.
Og þó eg hafi ekki annað en gott
eitt af öðrum nágrönnum mínum
að segja, finnst mér hann þp bera
hæst, að jafnlyndi og nágranna-
kostum. Það brást sjaldan ef eg
leitaði til hans með eitthvað, að
sú bón var veitt. Og það bezta
var-, að hún var ekki veitt af náð.
Ef um synjun var að gjöra, var
ástæðan sú, að möguleikar til
hjálpar voru ekki til. Fyrir kom
það, að þau hjónin og böm þeirra
gjörðu mér og okkur óumbeðinn
greiða, þegar þau hugðu okkur
koma það vel.
Vel má þó vera, að eg, sem ná-
granni hans, hafi ekki æfinlega
gætt varúðar gagnvart honum,
því að ekki þarf stundum mikið
til sundurþykkju milli nábúa. En
þes svarð eg aldrei var af hans
hendi, þótt eitthvað kynni honum
að hafa þótt miður fara hjá mér,
sem nágranna hans. Svo trúlega
var yfir þeim málurn vakað af
hans hendi. En vandgjört er jafn-
an við slíka menn. Það var því
ekki að undra, þótt slíkum manni,
sem hann var, gæti þótt miðm', ef
honum var synjað um bón. Enda
hygg eg að fáir hafi viljað verða
til þess, og ás.tæður höfðu til úr-
lausnar, og vissu hvað greiðvik-
inn og bóngóður hann var. En það
þekkti eg til hans, væri hann
sannfærður um að sér væri órétt-
ur gjör, varð honum þungt í huga
og gat þá orðið alllangminnugur
á það.
En jafn varfærnum og gætnum
manni þess, að gjöra ekki öðrum
Órétt, má finna afsökun, þó sólin
gengi til viðar, áður en hann hafði
sætt sig við mótgerðina.
Einn ættjarðar- og þjóðarvin-
ur þessa lands hefur borið fram
þá ósk til íslenzku þjóðarinnar, að
hún eigi menn að missa, meiri og
betri en aðrar þjóðir.
Líklega verður það talin frek
og eigingjörn ósk til handa sveit-
inni haps, sem eg vil þó sérstak-
lega bera fram í sambandi við
minningu um Sigurjón, að hún
eigi jafnan menn að missa meiri
og betri en aðrar sveitir þessa
lands.
Það, sem mér finnst sárstaklega
hafa einkennt lífsstefnu Sigurjóns
á Krossi, er það, sem skáldið
Bjönstjerne Björnson segir: Ekki
að teljast þeim mestu með, en
maður í reynd að vera.
Með þá lífsstefnu fyrir augum,
hyg geg hann hafa lifað — og dá-
ið. Og þess vegna er mér minn-
ingin um hann björt og vermandi.
Því kemui' mér í hug erindi Jón-
asar Hallgrímssonar:
Sem þá á vori spnna hlý,
sólgeislum lauka nærir,
og fífilkolli innan í
óvöknuð blöðin hrærir,
svo vermir fögur minning manns,
margt eitt smáblóm um sveitir
lands,
frjóvgar og blessun færir.
%
Einar Árnason.
Ingigerður
Zóphoníasdóttir
Síðastliðinn Jaugardag var á
Akui'eyri til moldar borin Ingi-
gerður Zóphoníasdóttir, háöldruð,
fædd 1867, fyrrum húsfreyja á
Skáldalæk í Svarfaðardal. Húm
var gift Árna Friðrikssyni, sem
lézt hér fyi'ir 6 árum. Frú Ingi-
gei'ður var skörungskona, ágæt
móðir og mikil dugnaðarhús-
freyja á sinni tíð. Þat/hjónin,
Ingigerður og Árni, eignuðust 7
börn, og eru 5 þeirra á lífi, 1
kona, Soffía, og þeir Hjörleifur,
Stefán, Zóphonías og Ti'austi, all-
ir búsettir á Akureyri.
Magnús Jónsson
Hrafnsstaðakoti, Svarfaðardal.
Sextugur 10. marz 1952.
Sextugum samferðamanni
sendi eg kveðju mína.
Þótt margt hafi borið á milli,
met eg hi-einskilni þína.
Þú sagðir mér einatt til synda,
en samt er nú allt í lagi.
Gæddur er djarfhug og dáðum
drengur af betra tagi.
Þú lítur til liðinna daga
í lágreista, hrörlega bænum.
í vorblænum sóleyjar vaggast
á vellinum skínandi grænum.
Ymislegt breytist með árum
og andbyrinn gönguna þyngir.
En þó ljómar sólin á sumrin
og sálina hressir og yngir.
Sótt var á fjörðinn til fanga
í fjárleitir gengið um nætur,
með harðfpngi heyjanna aflað
og hafðar á fjölmörgu gætui'.
Bærinn er risinn úr rústum,
og ræktuð er gr.ýtta jörðin.
Á ilmandi töðu er alin
við innivist húpeningshjörðin.
En aldrei þig fjötraði efnið.
Um andlegar pérlur þú hirtir.
íslerizki'i tungu þú unnir
og oi'ðleikni dáðir ,og virtir.
Fagnaðir æskunnar fjöri
og fræknleik á íþx'óttamótum,
í torsóttum fjallgöngufei'ðum,
á fxmdum og þorrablótum.
Þú eltir ei nýjungar allar
rxé ofxnat á foi'tíðardegi.
Þig fýsti ekki alltaf að fai'a
af fjöldanum margtroðna vegi.
Þú valdir sem bi’jóstvitið
bauð þér
og bugast ei léztu við harkíð.
En neistar frá inriri eldi
einatt þá hi-ukku — í mai-kið.
Veglyndan svanna þér valdir
og vei'ðleikum fékkstu að
kynnast.
Gæfu þið híutuð og- gengi;
gott er nú þvflíks að minnast.
Svo löngum á liðnum árum
var leiðin mín hingað í bæinn.
Því skal að endingu óska
ykkur til heilla með daginn.
Brauðgei'ð Kr. Jónssonar & Co.
(Halldór Helgason spilar)6. — B.
S. A. (Þórður Bjöi'nsson spilar).
— Hótel KEA (Helgi Indriðason
spilar. — Di'ífa h.f. (Agnar Jörg-
enss. spilar). — Efnagei'ðin Flói'a
(Jónas Hallgrxmsson spilai’). —.
Happdrætti Háskóla íslands (Ari
Þórðarson spilar). — Happdrætti
Geysis (Guðbi'andur Hlíðar spil-
ar). — Heildverzl. Valg. Stefáns-
sonar (Svavar Zóphoníasson spil-
ar). — Pétur og Valdimar (Árni
Ingimundai'son spilar). 5 Afl. h.f.
((Guðm. Eiðsson spilar). — Sjó-
váti’.fél. íslands (Hallgr. Bene-
diktsson spilar). — Útgei’ðai'fél.
Akureyringa h.f. (Sigui'bjöi'n
Bjai-nason spilar). — Bókabúð
Rikku (Jónas Stefánsson spilar).
— Olíufélagið h.f. (Jóhann Gauti
Gestsson spilar). — Hafnai'búðin
h.f. (Árni Árnason spilar). —
Þórshamar h.f. (Ragnar Skjóldal
spilar). —- Vöruhúsið h.f. (Karl
Friði'iksson spilar). — Vei'zl.
Eyjafjöi'ður h.f. (Björn Einai'sson
spilar). — Oddi h.f. (Mikael Jóns
son spilar). — Drangur (Axel Jó-
hannsson spilar). — Stefnir h.f.
(Hinx'ik Him-iksson spilar). —
Atli h.f. (Sveinn Þoi'steinsson
spilar). — Kaffibi'ennsla Akur-
eyrar (Jóhann SnoiTason spilar).
—- Saumastofa Gefjunar (Jóhann
Þorkelsson spilar). — Prentvex-k
Odds Björnssonar (Páll Helgason
spilar). — Litla Bílastöðin (Ár-
Sigfús Sigurhjartarson
Sigfús Sigurhjartarson, fyrrv.
alþingismaður, andaðist að
heimili sínu í Reykjavík hinn 16.
marz sl., fimmtugur að aidri.
Hann var nýkominn til lands-
ins úr heilsudvöl í Sovét-Rúss-
landi og kom andlát hans á
óvænt. Sigfús var Svai'fdælingur,
fi'á Urðum í Svarfaðardal, son-
ur Sigui'hjaitar Jóhannessonar
bónda þar og Fi'iði'iku Sigurðar-.
dóttur konu hans. Hann varð
stúdent 1924 og cand. theol. 1928,
en vígðist ekki. Gei'ðist kennari
við gagnfi-æðaskóla í Reykiavík
sama ár og hóf litlu síðar þátttöku
í stjói'nmálxxm og blaðamennsku.
Varð ritstjóri Þjóðviljans 1938,
formaður útvarpsráðs um tíma, í
tryggingarráði, bæjarfulltrúi í
Reykjavík, alþingismaður fyrir
Reykjavík um nokkurt árabil.
Hann var og einn af forustumönn
um Kaupfélags Reykjavíkur og
nági-ennis og foi-maður þess nú
mörg hin síðai'i ár. Sigfús Sigur-
hjartarson var einn kunnasti og
slyngasti bai'áttumaður Sósíal-
istaflokksins, ágætlega máli far-
inn og ritfær vel. Hann var og
einn af forustumönnum bindind-
ishreyfingai'innar í landinu og
lagði þar fram mikið starf. Sam-
herjar hans hafa mikið skrifað
um manninn sjálfan og störf lxans
nú að lionum látnurn og bera þær
greinar þess órækt vitni, að hann
naut trausts og vinsælda í ríkum
mæli í þeim hóp. Stjórnmála-
andstæðingar, er af honum höfðu
náin kynni, hafa einnig minnzt
hans með vii'ðirígu. Hann var
borinn til gi'afai' í Reykjavík
laugai-daginn 2-2. maiz.
Pundarar
12 og 25 kg
Járn- og glervörudeild
Til sölu:
Tvær vandaðar íerðakistur,
barnakojur, stoluskápur og
borð. Allt með tækifæris-
verði.
mann Helgason spilar). — Sigli'.
og Eyjólfm- gullsmiðir (Ottó
Jónsson spilar). — Hekla (Bald-
vin Ólafsson spilar). — Sápuvex-k
smiðjan Sjöfn (Jón Ólafsson spil-
ar). — Flugfélag fslands (Friðjón
Kai'lsson spilar). Magnús Ái-na-
son (Fi'iði'ik Hjaltalín spilar). —
Útgerðarfél. Guðm. Jör, (Baldur
Ániason spilar). — Raforka h.f.
(Ágúst Berg spilar). — Vöru-
bílastöðin (Alfi-eð Pálsson spilar).
— Möl og sandurh.f. (Adam Ing-
ólfsson spilar). — Amaro h.f.
(Karl Adólfsson spilar). —
Ragnar Ólafsson h.f. (Gestur Ól-
afsson spilar). — Vefnaðarvörur
deild KEA (Friðfinnur Gíslason
spilar). — Vélsm. Steindórs h.f.
(Hei'bert Tryggvason spilar). —
Nýja Kjötbúðin (Þórir Leifsson
spilar). — Nýja-Bíó h.f. (Stefán
Guðjohnsen spilar). — Mála-
flutningsskirfst. Bj. H. og Jóus
Þorsteinssonár (Jón Þorsteinsson
spilar). — Rakarastofa Sigtr. og
Jóns (Sigti’yggur og Jón spila). —
Rakax-astofa Valda og Bigga
(Valdi og Biggi spila). — Jóhann-
es Kiistjánsson h.f. (Jóhannes
Ki'istjánsson spilar). — Dráttar-
braut Akureyrar (Kristján
Ti'yggvason spilar). — Bygginga-
vöruverzlun Akureyrar (Helgi
Pálsson spilar). — Efnagei'ð Ak-
ureyrar h.f. (Sveinbjörn Lárus _
son spilar).
SÖLJJSKÁLINN.
Firmakeppni Bridgefélags Ák. 1952