Dagur - 30.04.1952, Blaðsíða 5

Dagur - 30.04.1952, Blaðsíða 5
Miðvikudaginn 30. apríl 1952 DAGUE 5 Söngskemmtun ingibjargar Sfeingrímsdóffur Verðlag fyrr og mi - Hugleiðingar gamaís bónda Síðastliðið föstudagskvöld hélt ungfrú Ingibjörg Steingrímsdótt- ir söngskemmtun í Nýja-Bíó, meS aðstoð dr. Victors v. Urbancic. Er þetta í fyrsta skipti, sem ung- frúin hefur látið til sín heyra hér í bænum síðan hún kom heim frá námsdvöl sinni erlendis, og mun mörgum hafa leikið forvitni á að hlýða á söng hennar, enda var aðsókn sæmileg ,en hefði þó rnátt vera betri, þar sem ein af dætr- um Akureyrar á hér í hlut. Ann- ars er meira um það vert, að allir sem konsert þennan sóttu munu hafa farið þaðan vel ánægðir og er það skjótast af konsertinum að segja, að hann fór fram með prýði. Það var fyrirfram vitað, að Inga er söngvin af Guðs náð, enda kom það víða í ljós í lagrænni og dramatískri túlkun, einkum virt- ist hún vera vel heima hjá sér í lögum þeirra Kjerulfs og Sibeli- usar. En auk náttúrugreindar hefur ungfrúin tileinkað sér nærri undra vel, glæsilegan stíl í tónmyndun og framsetningu og getur fyrir því sómt sér hvar í heimi sem er. Ungfrúin hefur blæþýðan mezzo-sópran, og nýtur sín bezt á því sviði og veikum söng yfir- leitt, sem hún flytur með ágæt- um, nægir í því sambandi að nefna Synnöves sang eftir Kjer- ulf, sem hún túlkaði snilldarlega, og fleira í svipaðri tóntegund. Hins vegar verður varla það sama sagt um hærri tónana, nema hvað stílsmáti hennar er sízt lakari á því sviði. En á hærra sviðinu, einkum á sterkum tónum, var ekki örgrannt um hlaðspretti og sviftingar (forzar la voce) og nægir í því sambandi að nefna: „Sortnar þú ský“ eftir Emil Thor- oddsen. Annars er það lag raunar ekki annað en lítilhæft hnoð og óverulegt samsafn af fjarskyldum óhljóðum, en því þá að vera að leggja sér slíkan andskota til munns? Eins og fyrr getur annaðist dr. Urbancic undirleikinn og gerði það af afburða snilld, er hann og sómi, og ætti að vera stolt sinnar stéttar. Finnst mér því meira um hann vert, sem ég kynntist hon- um betur, og eg hika ekki við að fullyrða, að síðan Jónas Helgason leið, hefur enginn þjónað ís- lenzkri tónmenningu af einlægari áhuga og dugnaði en dr. Urbanc- ic. Hann er maður, sem vert er um að tala. Þess er vert að geta, að söng Ingibjargar var mjög vel Unnið að snjóruðningi á Öxnadalsheiði og Vaðlaheiði Vegamálastjórnin lét hefjast handa á mánudaginn að ryðja snjó af Oxnadalsheiði og Vaðla- heiði og mun því verki miða vel áfram og von til að umferð um þessa fjallvegi geti brátt hafizt. tekið, enda verðskuldaði hún það fyllilega. Varð hún að syngja nokkur aukalög og yfir hana rigndi blómvöndum í sífellu. Við, bæjarbúar, fögnum þessu óska- barni okkar og árnum henni allra heilla. Akureyri, 28. apríl 1952. Björgvin Guðmundsson. Stefán Árnason Holti við Dalvík, SJÖTUGUR 27. febrúar 1952. í fjallanna mjúka faðmi fyrir löngu ertu borinn. Kannski þau eig’ ennþá ítök í sál þinni á vorin. Þá verður þú aftur ungur og unir á fornum slóðum. Við leiki, söngva óg sólskin með sveinum og björtum fljóðum. Liðu svo æskuárin við ýmislegt mátti kætast, þótt viðfleygar æskuvonir vildu ekki allar rætast. Löngum í fjallaferðum fannstu hið mesta yndi. En oft var þrekraun að þramma í þéttingsófærð og vindi. Heldur hávaðalítið hefurðu æfiveginn gengið með góðum vinum. Glaðst og notið og þegið. Þótt margt vildi blása móti, má ekki vera deigur. Og hvernig, sem lífið lék þig, löngum varstu þó seigur. Mættir skini og skúrum með skilningi á lífsins gátum. Áttir samleið með ýmsum ungum sveinum og kátum. Eg man það frá æskuárum, að enginn var betri gestur. í fábi-eyttu fjallalífi mér fannst þú eins konar prestur. Því margt var í fari mannsins, er minnti á sumarblæinn. í vetrarins kulda og kólgu þú komst með sólskin í bæinn. Af alhug þér vil eg þakka þýða og góða kynning. Marga í hug og hjarta hlýja geymi eg minning. Stjórnmálagarpirnir stæla, og styrjaldir geisa enn. Sjá, þú ert sjötugur orðinn og sáttur við guð og menn. Kunningi. Góður barnavajín £5 til sölu. Upplýsingar í-síma 1326. Sjötugsafmæli Þormóðs Eyjólfs- souar Þormóður Eyjólfsson ræðis- maður í Siglufirði varð sjötugur 15. þ. m. og hefur hans af því til- efni verið minnzt í sunnanblöð- unum og útvarpinu, og þó aðal- lega í Siglufirði, sem eðiilegt er, því að þar hefur hann lengst og mest starfað og er þjóðkunnur fyrir forustu sína í atvinnu- og menningarmálum Siglfirðinga. — Hér verður saga hans ekki rakin, en hún er samtvinnuð atvinnu- og menningarsögu síldarbæjarins um langt árabil. Þormóður starfaði þar að málefnum bæjar- ins í bæjarstjórn, hafnarnefnd, skattanefnd, sóknarnefnd o. fl. slíkum stofnunum um langt skeið, gegndi umboðsmannsstörfum fyrir fyrirtæki eins og Eimskipa- félag íslands, Brunabótafélagið og Sjóvátryggingarfélagið. Var auk þess löngum einn af förvígis- mönnurn aukins síldariðnaðar, skrifstofustj óri síldareinkasölunn ar og síðar formaður stjórnar Síldarverksmiðja ríkisins og leið- andi kraftur. Jafnframt þessum umfangsmiklu störfum hefur hann lengi verið lífið og sálin í söng- og músíklífi bæjarins og söngstjóri Karlakórsins Vísis um langan aldur. Siglfirðingar þökk- uðu Þormóði störf hans m. a. með því að leggja ríflega fé í söng- málasjóð þann, er hann stofnaði og á að hlynna að tónmennt í Siglufirði, þeir gex-ðu og blysför mikla heim til Þormóðs og frú Guðrúnar frá Koi-nsá, konu hans, héldu þeim veglegt samsæti og sýndu þeim annan sóma. Fleii-i aðilar hafa heiðrað Þoirnóð með því að leggja fé í söngmálasjóð þann, er ber nafn hans, m. a. Eimskipafélag íslands. r - Ur bænum (Framhald af 7. síðu). fjarðará, en búið er að eyða fiski í henni að mestu leyti. Yfirvöld athuga nú hvað gera megi til þess að lögbundin friðun árósanna sé í heiðri haldin og stangveiðimenn rannsaka möguleika á fiskirækt. Allt ei-u þetta spor í rétta átt. Al- menning'sálitið þarf að styðja þessa viðleitni og fordæma hinn ólöglega veiðiskap, svo að engum haldist uppi að brjóta lögin og eyðileggja framtíðarverðmæti. Hjálmar 'Þorlákssan í Villinga- dal skrifar blaðiuu á þessa leið: EG hef ofí verið áð ráðgex'a í huganum, að segja lítillega nokk- ur o-rð um verð á landbúnaðaraf- ui'ðum, skeþnum og kaupgjaldi fyri'um, ,pg bera það saman við •aðstæður bænda iogtiáÉkánpanna nú. Eg heyri talað um ao mjólkur- vörur seljist frðmur' laklega nú, og neytendur tala um í því sam- bandi of dýrar vörur, og telja að tændur geti selt.þær minna vei'ði. Eru t. d. framarlega í þsim flokki gamlir bændur, sem fluttir eru úr sveitinni, og þóttust þá ekki fá of mikið fyrir vöru sína. En nú er engu líkara en þeim og fleirum finnist að tilkostnaður við framleiðsluna standi í stað, og verðið því hækkað að óþörfu. — Nú langar mig til að sýna hér hve hlutföllin éru stórlega röskuð milli ltaupgjalds óg afui'ðaverðs. Tek eg fyrir um 20 ára bil, eða frá því urn 1890—1910. Á því tíma- bili var um litla breytingu að ræða. í Skagafirði þekkti eg kaupgjald og verðlag á þessu tímabili, og mun það hafa verið svipað víða annars staðar. Mesta ái’skaup vinnumanns var þá 120 kr. Þá var 1 ærverð 12 kr. Hefði hann því getað fengið 10 ær í árs- kaup. Verð á hrossum var breyti- legt. IV2 kú, í rnesta lagi, var þá hægt að fá fyrir ársvinnu. Al- gengast hefði þá vefið að borga ársvinnu með 1—1V> hrossi. Þá cr að minnast á afurðaverð- ið. Mjólkurpottur eða lítri var þá seldur á 10 aura. Árskaupið hefði þá borgast með 1200 ltr. Srrxjörið, þessi vara, sem nú þykir illkaup- andi, var 60 aura pundið eða 120 kg. Var því hægt að borga árs- kaup með 100 kg. Hvað væri hægt að fá möi'g kg. nú í ái'skaup? Það væri vert að athuga. Mér er grunur á að þau yi'ðu allmiklu fleiri, þó smjörið þyki dýrt. Verð á skyri var 12 kr. tunnan (120 ltr.), en geta skal þess, að það var ekki síað, heldur var mysunni ausið úr, svo að með sama þétt- leika á því þá og nú mætti áætla verð hennar 15 kr. Þetta er til samanburSar við skyrverð nú, og hve mikið þyrfti af því í árskaup. Þá er nú verðlag á mjólkuraf- urðum komið hér, og eg veit ekki betur, en að þær séu stórfallnar í verði nú á móti vinnunni. Eftir er að minnast á kjötið. — Verð á því á áður umræddu tíma- bili var frá 28—32 aura kg., og vil eg því miða við 30 au. kg. Hefði því þurft 400 kg. til að borga 120 kr. ái-skaup. Það ber og að geta þess, að þá var að minnsta kosti hálft magnið af kjötinu ærkjöt, og væri það keypt nú til helminga, þykir mér sennilegt að jafnaðar- verð til neytenda yrði ekki yfir 12 kr. kg. Myndi þá ekki ársmaður nú verða hálfóánægður með 4.800.00—5.000.00 kr.? Þegar þessir framangreindu liðir eru athugaðir, þá vii'ðist þao liggja ljóst fyrir að bóndinn þai'f miklu meii'a magn nú til greiðslu á árs- vinnu en áður, og þá um leið er það líka Ijóst, að vinnan hefur hækkað miklum mun meira en afurðaverðið.' — Fjái'hag'safkoma verkafólks og neytenda nú ætti því að geta borið sig vegna vei'ð- lags á landbúnaðarafurðum. Það eru ýmsar aðrar leiðir, sem stigið hafa í verði allmiklu meir en vör- ur bóndans. Nefni eg þar fyrst ríkisútgj., og er þar máske ástæða til að kvarta. Mig minnir að árið 1904 eða þegar þingið áfgi'eiddi fjái'lög til lagningar í’itsímans, voru útgjöld landsjóðs 800 þús. kr. (Eg bið afsökunar, ef þetta er rangt, þetta er aðeins eftir minni). Þótti það sú voða upphæð, að andstæðingar símans töldu efa- laust að landið færi á hausinn. Þax-na er nú víst um allmikla hækkun að ræða, eins og með öll opinber gjöld. Þá nefni eg hér 2 vörutegund- ir, og er þar fyi-st vínið. Eg hygg að 1 flaska nú af áfengu víni, kosti eins mikið og tunna áður (140 ltr.) og af sumum tegundum meira. Hitt er tóbakið. Eg er nú varla eins fróður um verðlag á því, en neftóbak var hér fyrr 100 —120 au. kg. Munntóbak var venjuleg aaðeins dýrara. Þama er þá allmikið meiri hækkun en á vörum bændanna, og furðu lítið um það kvai’tað, enda sem betur fer, allmargir sem kaupa ekki nema aðra vöruna. Þá eru skemmtanir með svo mörgu móti, að ómögulegt er að nefna þar nokkra sérstaka, en all- ar hafa þær það sameiginlegt, þ. e. að ná í peninga. Þá eru alls konar happdrætti, friðsömum mönnum til ergelsis, að vísu flest gerð fyrir einhverja starfsemi, en þó til að ná í peninga. Þessir 2 síðustu útgjaldaliðir þekktust naumast um síðustu aldamót. H. Þ. Katyn-morðin verða sennilega kærð fyrir SÞ Katln-morðin verða sennilega kæ Ei'lend blöð eru full af frá- sögnum af stai'fi amerísku þing- nefndarinnar ,sem vinnur að því að upplýsa morðin á pólsku liðs- foringjunum í Katynskógi. Þar fundust lík 4200 pólskra foringja og kenndu hvoi’ir öðrum um morðin, Rússar og Þjóðverjar, en. þau voi’u framkvæmd í marz eða apríl 1940. Þingnefndin hefur yfirheyrt mörg vitni, m. a. lækna frá Ðanmörk, Sviss og víðar, sem rannsökuðu líkin 1943. Læknar þessir bera m. a. að þeir hafí fundið plögg í vösum pólskra for- ingja þama, sem hafi vei’ið ski’if- uð í Koelze í ársbyrjun 1940, er, í Koelze, segir í þessum fregnum. voru fangabúðir, er Rúss'ar geymdu Pólverja í eftir innrásins. 1939.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.