Dagur - 30.04.1952, Blaðsíða 12
12
Dagur
Miðvikudaginn 30. apríl 1952
FUF vill samstarf umbótaaflanna
Taft sækir á
Telur að það verði að byggjast í meginatriðum
á grundvelli samvinnunnar
Að undanförnu liefir F. U. F. í
Reykjavík haldið þrjá fjöruga um-
ræðufundi um vinstra samstarf.
Flafði Hermann jónasson. formað-
ur Framsóknarflokksins, framsögu
á fyrsta fundinum, en að framsiigu-
erindi hans loknu liófust almennar
umræður. Fundarstjóri allra fund-
anna var Ragnar Olafsson.
Umræðunum lauk sl. þriðjudags-
kvöld, og voru þá eftirtaldar tillög-
ur, sem bornar voru fram af stjórn
F. U. F. og S. U. F. óg fleirum,
samþykktar:
,.Fundur, haldinn í Félagi ungra
Framsóknarmanna í Reykjavík,
þriðjudaginn 22. apríl 1952, lítur
svo á> að heilbrigt stjórnmálaástand
skapist ekki í lándinu. fyrr en var-
anleg samstaða hefir náðzt milli
umbótaaflanna. Telur ftindurinn.
að eðlilegt framhald slíkrar sam-
stöðu sé sameining þeirra í eina
fvlkingu. Sem leið að þessu marki
bendir fundurinn á eftirfarandi:
1. Sameiginlegt framboð lýðræð-
issinnaðra vinstri manna við næstu
alþingiskosningar á grundvelli mál-
efnasamnings, er niiði að því að
tryggja alþýðu manna viðunandi
lífskjör, skapa atvinnuöryggi í land-
inu og koma í veg fyrir okur og
sérréttindi stóreignamanna.
2. Stjórnarskrárbreyting í sam-
ræmi við ályktanir 4. þings S. U. F.“
„Fundur, haldinn í F. U. F. í
Reykjavík, þriðjudaginn 22. apríl,
1952, lítur svo á, að raunhæfustu
aðgerðirnar til varanlegs atvinnu-
öryggis, efnahagslegs jöfnuðar og
réttlætis, felist í framkvæmd sam-
vinnustefnunnar á sem flestum
sviðum þjóðlífsins, þar sem hún
tryggir miinnum afrakstur vinnu
sinnar og viðskipta í hlutfalli við
þátttiiku, skapar sannvirði, cf hún
er framkvæmd sem neytendahug-
sjón, en sættir fjármagn og vituiu,
ef hún er framkvæmd sem frani-
leiðsluhugsjón. og dregur þar mcð
verulega úr misklíðarefnum á milli
vinnuveitenda og vinnuþiggjeuda.
Bendir fundurinn á. að sam-
vinnustefnan cr heilsteyptari og
heilbrigðari þjóðfélagsstefna og
vænlegri til sannra framfara á ís-
landi en nokk'ur önnur þjóðfélags-
stefna sem nú þekkist.
Vi.ll fundurinn í þcssu sambandi
benda á. að þjóðnýtingin liefir víð-
ast livar brugðizt vonutn man'na,
einkareksturinn yfirleitt brugðizt,
þegar illa árar, cn samvinnurekstur-
inn stöðugt aukið við sig.
Guðbrandur Hlíðar
dýralæknir í ársleyfi
Guðbrandur Hlíðar héraðs-
'dýralæknir er á förum til Sví-
þjóðar, til náms- og heilsudvalar
og hefur fengið ársleyfi frá störf-
um hér. í maímánuði gegnir
Magnús Andrésson frá Sauðár-
króki dýralæknisstörfum í hérað-
inu, en eftir það Sverrir Markús-
son dýralæknisnemi, er stundar
nám við dýralæknaháskólann í
Stokkhólmi.
■|' ' > g
AÝkur fúhdúrinn athygli á því. <
að'feiiín helzti kenniniaður brezkra ' ' ' \
jafnaðarmanna síðan dr. Hárold
I.aski lézt; prófessor G: D. H. Cole
í Oxford, lýsir því í bók sinni, „The.
British .Cotopexative Mpvemcnt in
ii Socinlist State“ að þjóðnýtingin ' -^á
hafi brugðizt, vonrim rnatina og að|
jafnaðarmenn þurfi framvegis að
leggja ípeiri ,á framkvæind
samvinnustefnunnar en þjóðnýt-
ingarinnar, ef þeir eigi að halda
velli.
Einnig vekur fundurinn athygli
á uppgjöf einstaklingshyggjumanna
í andstöðti þeirra við samvinnufé-
lögin, en sú uppgjöf kcmur m. a.
fram í J>ví, að flokkur þeirra er
farinn að gangast fvrir starfrækslu
samvinmtfélaga.
íslenzkar getraunir teknar til
starfa hér á Akureyri
Tveir umboðsmenn þegar útnefndir
fens G uðbjömsson, fram-
nokkrum dftgum til þess að koma
í ’ r r , r
,' gctraunum hér á laggirnar og út-
nefna umboðsmenn fyrir fyrir-
tækið.
Hafa tvö umboð þegar verið
útnefnd, umþoð á vegum Flug-
félags íslands, skrifstofa við
Kaupvangsstræti, og Bókaverzl-
un Axels Kristjánssonar við Ráð-
hústorg.
Skorar fundurinn á Framsóknar-
menn um land allt, að láta Jiessa
viðurkenningu • andstæðinganna á
stefnu Framsóknarflokksins verða
sér hvatning' til J>ess að bcita sér
fyrír áukinni framkvæmd hennar á
sem flestum sviðum atvinnu- og
víðskiptalífsins, og kappkostá að
frarrikvæmd liennar vcrði einn meg-
inþáttlif húgsanlegs samstatfs um-
bótááflá íándsins í náinni framtíð."
Robert A. Taft, öldungadeildar-
þingmaður frá Ohio, sem keppir
að því að verða frambjóðandi Re-
públikana við forsetakosningam-
ar í Bandaríkjunum í haust, hefur
unnið talsvert á í prófkosningum
að undanfftrnu, eftir byrjunar-
ósigra sína í viðureigninni við
Eisenhower. T. d. fékk hann mun
meira fylgi í Ncw Jersey fylki en
búizt hafði verið við. Enn sein
komið er hefur Taft hlotið fleiri
kjörmenn en Eisenhower, en kjör
er eftir í sumurn mannflestu
fylkjunum.
26 iðíinemar brautskráðir frá Iðnskóla
Akureyrar við skólaslit í gær
Idmhóln /\hureyrnr vnr sqgt vpp
i gier, pg birti shólqstjórinn. Jóhntni
Frimqnp, cinhunnir 26 brnvt-
shrdðrn iihincmn vi<I shólnslitin.
þessir Ithúu brottlararskirtciui:
AUla GuðimmdsdóUir. hárgrni. II. 6.59
Itjarni St. Konráðsson. múrari 11.6.67
Friðrik Baldvinsson. nuirari II. 7.18
Guðjón Giinnlatigsson. húsasni.T. 8.33
Gtiðni: I. Magtiúhs'On. liúsásm: IT. 6.17
Gunnar I.úðvíksson, hilvélav. ' 1.8.08
Hallgr. Ingólfsson. bifvélav. III: 5.00
Hauknr Arnason. hósasm, 1.8.95
Hcnning Finnhogason, bifvclav. 1.7.72
Iljördís Thorarénscn. hárgr.m. II. 7.07
Hrcinn jónasson, rafvirki 1,8.11
Itjgyi Böðvarsson. bakari 11.6.57
Ing\i R. I'losason, rakari 111,5.15
Jóh. F. Sigurbjörnss., bifvélav. III. 5.42
Karl B. Jónsson, prcntári II. 6.05
I.anfcy A. l.úðvíksd., hárgr.m. II. 6.00
Magnús horgeírsson. Ínisg.sm. 11.6.74
Nú er Picasso kominn
á svartan lista!
Franski kommúnistaflokkurinn
hefur í hyggju að bannfæra Pablo
Picasso, málarann heimsfræga,
sem lagði kommúnistum þó til
mýndina af friðardúfunni frægu.
Segja kommúnistar að Picasso
skorti „sósíaliska raunsæi“. Yfir-
leitt er 'þáð’ 'hú stefna frönsku
kommúnistanna í listmálum, að
útiloka „borgaralegan’ formalisma
innan kommúnistaflokksins“, eins
og forvígismaður þessarar hreins-
unar, þihgmaðurinn Laurent
Casanova orðaði hugsunina ný-
lega.
Pálmi Pálmason. rafvirki I. 7.8G
Signrður Stefánsson, bifvélav. 1.8.07
Sigþór Valdimarsson, rcnnism. II. 6.52
Stcfán Valdimarsson, vclvirki I. 8.88
Valdimar Pálsson. húsg.bólstrari I. 7.47
Þorst. Steingrímsson, bifvclav. III. 5.03
Þorv. Sna björnsson, rafvirki III. 5.72
Þórh. M. Kinarsson, rafvirki 1.8.02
Þráinn Þórhallsson, prentari II. 6.88
Tekjur í íþróttasjóð.
Til getraunanna er stofnað til
þess að afla tekna, fyrir íþrótta-
sjóð, er hefúr það hlutverk með
höndum, samkv. íjrróttalögunum,
að bæta skilyrði til iþróttaiðkana
og auka íþróttamenntun. Flest
íþróttamannvirki njóta styrks úr
sjóði þessum.
Úrslit íþróttakappleikja.
Getraunirnar eru í því fólgnar
að segja fyrir um úrslit íþrótta-
kappleikja og mun fara fram í
hverri viku allt árið, að undan-
skildum stuttum hléum um
páska, hásumar og jól. Erlendis
er þessi starfsemi mjög útbreidd
og tekur mikill mannfjöldi þátt í
getraununum allan ársins hring.
Hér á landi verða getraunirnar
tengdar knattspyrnukappleikjum
milli viðurkenndra félaga, ensk-
um knattspyrnukappleikjum og
skandinaviskum. Getraunirnar út
búa sérstaka getraunaseðla, sem
þátttakendur fylla út. Er þetta
einfalt form og fljótlegt að komast
niður í því. Umboðsmenn fyrir-
Vamarviðbúnaðurinn á íslandi
verður aukinn - segir danskt blað
Danska blaðið Politiken segir
frá því undir stórri fyrirsögn á
forsíðu í vikunni sem leið, að
ameríski herinn á íslandi hafi
ákveðið að auka' mjög varnarvið-
búnað sinn, og hafi 3 stór amer-
ísk flutningaskip losað' varning
til hersins að undanförnu.
„Á meðal þeirra mannvirkja,
sem í í-áði er að auka, er flugvöll-
urinn í Keflavík,“ segir blaðið,
„og verður f jöldi verkamanna þar
brátt aukinn um 200 íslendinga.
Foringjar frá verkfræðingadeild-
um hersins hafa nýlega ferðast
umhverfis landið til þess að rann-
saka möguleikana að bæta við
flugvöllum, að því er áreiðanlegar
heimildarmenn segja, og verk-
fræðingarnir eiga líka að hafa at-
hugað möguleikana á hafnargerð
um það bil 160 km. frá Rvík.“ —
Þannig er frásögn hins danska
blaðs, eftir United Press frétt frá
Reykjavík. Ýmislegt a£ þessu má
kalla fréttir fyrir íslendinga hér
heima, ef satt reyndist.
Leikskóli íngibjargar
Steinsdóttur
Leikskóla frú Ingibjargar
Steinsdóttur var slitið í gær. — í
skólanum hafa í vetur verið 9
reglulegir nemendur og 60 nem-
endur hafa tekið fleiri og færri
tíma. Bæjarstjóm Akureyrar
veitti nokkurn styrk til skóla-
haldsins, en Menntaskólinn ljáði
húsnæði. Frú Ingibjörg er ný-
komin til bæjarins frá Þingeyjar-
sýslu, en þar hefur hún stai'fað að
leiklistarmálum um hríð að und-
anförnu.
tækisins leiðbeina fólki að fylla
út seðlana og geta menn snúið sér
til þeirra til að afla frekari upp-
lýsinga.
Góð þátttaka þegar í byrjun.
Jens Guðbjörnsson fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins sagði
í viðtali við blaðið, að hann teldi
engum vafa undirorpið að get-
raunastarfsemi þessi mundi verða
mjög vinsæl hér á landi eins og í
nágrannalöndunum. Þátttaka í
fyrstu getrauninni hér varð t. d.
góð miðað við allar aðstæður, og
varð þó miklu meiri í annarri
getrauninni og vafalaust enn
meiri í þriðju getrauninni, sem er
í þessari viku, og á að ljúka úti á
feridr í dag. Jens kvað þátttökuna
utan Reykjavíkur þegar allmikla,
enda þótt umboðsmenn séu ekki
alls staðar teknir til starfa.
Tvö Eimskipafélagsskip
á Akureyrarpolli
í gærmorgun gat að líta sjald-
gæfa sjón hér á Akureyrarpolli.
Tvö af skipum Eimskipafélags ís-
lands lágu hér við bryggju og
hefur slíkt ekki hent um langan
tíma. „Goðafoss“ losaði hér ýmiss
konar vörur að sunnan, og „Sel-
foss“ tunnuefni til tunnuverk-
smiðju ríkisins hér í bæ.
Sjúkrahúsi Akureyrar hefur
borizt 10 þús. kr. minningargjöf
um Ingvar Guðjónsson útgerðar-
mann, fiá h.f. Ásvör í Kaupangi.
Krían kum í gær!
í gærmorgun komu fyrstu
kríurnar hingað til okkar, sett-
ust á Leirugarðinn, einar 50
talsins, að því er Kristján Geir-
mundsson skýrði blaðinu frá.
Eru þær óvenjulega snemma á
ferðinni í ár, hafa að undan-
förnu venjulega komið fyrstu
daga maímánaðar. A'ðrar fréttir
af gestum okkar eru þessar:
Fyrsta lóan hér um slóðir mun
hafa sést hér 16. apríl, su'ður
hjá Grund, og sá Svava Skapta
dóttir kennari hana fyrst. —
Guðmundur Karl Pétursson yf-
irlæknir er manna gleggstur á
fugla. Ilann sá þúfutittling 17.
apríl og jarðrakan — sjaldgæf-
an fugl liér nyrðra — 26. apríl.
Sveinn Bjarnas., Brúnarlandi í
Kaupangssveit, só lirossagauk
24. apríl og Kristján Geir-
mundsson maríuerlu 20. apríl.
Kristján sá líka lóuþræl og
sandlóu við Leirugarðinn 28.
apríl og litlugráandar lijón
sama dag, en sú andategund er
fremur fáséð hér um slóðir. Eru
þá flestir hinna kunnari far-
fugla komnir — a. m. k. nokkr-
ir einstaklingar af hverri teg-
und. — Enn vantar samt spó-
ann og óðinshanann. Enn er
með minna móti af skógar-
þröstum hér í bænum, en vel
má vera að þeiin fjölgi.