Dagur - 28.05.1952, Blaðsíða 1
XXXV. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 28. maí 1952
22. tbl.
Sjálfboðaliðar við skóggræðslu í nágrenni Akureyrar
Þessi mynd er af starfinu við gróðursetningu trjáplantna í hinu nýja skógræktarlandi Skógræktar-
félags Akureyrar syðst í bæjarlandinu, þar seni koma á Kjarnaskógur, frá þjóðveginum sunnan við
Brunná, til fjalls. Fjöldi manna starfaði að þessu verki í sl. viku. Næsta ferð verður á morgun og
fyrst um sinn þrisvar í viku. Sjá frásögn annars staðar í blaðinu í dag. (Ljósm.: V. Guðm.).
Mikið kal í túnum
Bændur í innsveitum Ey i a -
fjarðar segja mikið kal í túnum
þar og sízt minna en í fyrra, en
þá var kal með langmesta móti og
rýrði töðufeng sl. sumar. Snjó-
létt hefur verið í þessum sveitum
seinnipart vetrar og vor. Kals
mun minna gæta í útsveitum
héraðsins, sem hafa búið við
meiri snjóþyngsli og harðari vet-
ur en við hér innra.
Þrjú framboð
í tilsettum tíma voru lögð fram
í dómsmálaráðuneytinu þrjú
framboð til forsetakosninganna
29. júní næstk. og eru frambjóð-
endur: Asgeir Ásgeirsson, fyrrv.
forsætisráðherra, séra Bjami
Jónsson vígslubiskup og Gísli
Sveinsson, fyrrv. sendiherra.
Lystigarðorinii
verðtir opnaðnr
1.
Lystigarðurinn vcrður opn-
aður 1. júní, ef veður leyfir,
sagði frú Margarethe Schiöth
blaðinu í gær og verður cp-
inn i sumar eins og venju er,
ókeypis fyrir alla. Gróður er
enn fremur skanunt á vcg
kominn vegna þess hve vorið
heftu- verið kalt. Garðurinn er
og óvenjulega blautur nú og
því er áríðandi eð gestir gæti
þess að ganga vel um, fari ekki
út fyrir gangstígina. Sagðisí
frú Schiöth treysta bæjar-
mönnum nú sem fyrr til þess að
umgangast hinn veika gróðui'
af nærgætni og umhyggju og
hauð þá hjartanlega velkomna
í garðinn í sumar.
ingarferðum Skógrækfarfélagsins
6700 plöntur voru gróðursettar í væntan-
iegum Kjarnaskógi
Þáttaka sjálfboðaliða í gróður-
setningarferðum Skógræktarfé-
lagsins reyndist góð í tveimur
fyrstu ferðunum sl. fimmtudags-
og laugardagskvöld. Fóru 86 í
fyrri ferðina og um 50 í seinni
ferðiha og gróðursettu alls um
6700 plöntur, að því er Þorst.
Þorsteinsson varaformaður skóg-
ræktarfélags Akureyrar skýrði
blaðinu frá nú eftir helgina. —
Báðar ferðirnar voru famar
í hið nýja skógræktarland Skóg-
ræktarfélags Akureyrar hér syðst
í bæjarlandinu, þar sem félagið
ætlar að koma upp skógi, frá
þjóðveginum til Löngukletta uppi
í fjalli. í þetta sinn voru gróður-
settar birkiplöntur, og nokkuð af
furu og öðrum barrplöntum. —
Þrjár ferðir í viku.
Enn er mikið verk að vinna í
Kjamalandi og öðrum gróðrar-
reitum á þessu vori og vænta for-
ráðamenn félagsjns góðrar þátt-
töku í næstu vinnuferðum. Farið
er þrisvar í viku, frá torginu vio
Hótel KEA, á þriðjudögum og
fimmtudögum kl. 7,30 e. h. og á
laugardögum kl. 3,30 e. h. Öll að-
stoð er þakksamlega þegin, hvort
heldur er þáttaka í sjálfri gróður-
setningunni, akstur, bílalón eða
fjárframlög
Norðmennirnir komu í
gærkvöldi.
Hingað komu í gærkveldi 8
norskir skógræktarmenn, er
dvelja hér á vegum Skógræktar-
félags Eyfirðinga þangað til 5.
júní. Munu þeir vinna að gróður-
setningu í gróðrarreitum félags-
ins og hjá félagsdeildunum í hér-
aðinu. Fer þessi flokkur Norð-
mannanna til starfs á hverjum
degi fram til 5. júní, eftir hádegi,
og geta menn haft samband við
þá með milligöngu Ármanns Dal-
mannssonar.
Sjö manns munu fara úr hér-
aðinu til skógræktarstarfa í Nor-
egi í sumar, í skiptum fyrir Norð-
mennina og stai'fa að gróðursetn-
ingu þar nokkra hríð og kynnast
öðru skógræktarstarfi. Blaðinu er
kunnugt uxn að þessir fara: Sig-
urður Jósefsson, Torfufelli, Hjör-
dís Elinórsdóttir, Akureyri, Sig-
ríður Helgadóttir, Þórustöðum,
Bjöm Sigúrðsson, Möðruvöllum,
Magnús Stefánsson, Fagraskógi,
Auður Björnsdóttir, Ölduhrygg.
Állir Akureyraríogai-
annr i höm í gær
Allir fjórir Akureyrartogar-
amir voru hér í höfn í gær. „Jör-
undur“ átti að landa í Ólafsfii'ði,
í frystihús, en komst ekki inn á
fjörðinn vegna veðui's. Skipið
hefur um 100 lestir. Harðbakur
og Kaldbekur voru að landa í
gær, 150—170 lestum af fiski
hvor ,og Svalbakur hafði um 130
lestir eítir skemmri útivist. í ráði
er að senda Kaldbak og Harðbak
á Grænlandsmið nú á næstunni,
en ói-áðið var í gær, hvort Sval-
bakur mundi halda þangað líka.
Þúsundir mðnna hlýddu á útisöng
Geysis síðaslliðinn
í Kristiansand
Hljómleikar í Osló í kvöld - gengið fylktu liði
við lúðrablástur frá skipi til söngstaðar
Einkaskeyti til Dags.
Oslo, þriðjudag.
„Geysir gisti Kristiansand á
sunnudaginn og var þar hátíðleg-
ur haldinn „sangens og musikk-
ens dag“ og var Verzlunar-
mannakórinn í borginni gestgjafi
Geysis ásamt ræðismanni íslands
í borginni, Otto Christiansen.
Þáði kórinn hcimboð ræðis-
mannsins.
Þá var farið til Ravnedalen á
vegum gestgjafanna og síðan um
kvöldið gengið fylktu liði til úti-
söngstaðar. Voru þar mættir
fimm aðrir kórar og var sungið
þar fyrir þúsundir áheyrenda
við ágætar viðtökur.
Koman til Oslo.
Hekla kom til Oslo klukkan 10
á mánudagsmoi’guninn og tók
sendiherra Islands í Oslo, Bjarni
Ásgeirsson, á móti ferðafólkinu.
Þar var og mættur Haraldur
Kröyer sendifullti-úi og frú hans.
Einnig Oslo Mannskor, sem bauð
Geysi til Frognesæteren um
kvöldið, en sendiherrann bauð
konum Geysismanna heim. —
Hljómleikar Geysis ex-u í kvöld í
Aulae nog vei’ður gengið fylktu
liði frá skipi til söngstaðar.
Dásamleg veður.
Veður hefur verið dásamlegt
allan tímann og er heilsa ferða-
fólksins ágæta og allir í sjöunda
himni yfir fei'ðalaginu. Farið
vei'ður fi-á Oslo á miðnætti
(þriðjudag) til Göteborg.“
Hvarvetna ágætar móttökur.
I síðasta blaði var skýrt frá
komu kórsins til Þrándheims og
Molde. Fiá Molde var haldið til
vinabæjar Akureyrar, Álasunds,
og dvalið þar 21.—22. maí. Þar
afhentu Geysismenn borgar-
stjóminni Flateyjarbók fyrir
hönd Akureyrarkaupstaðar. Síð-
an var farið um Bei'gen, Hauga-
sund og Stavanger til Kristian-
sand, sem fýrr greinir. Alls stað-
ar voru haldnir hljómleikar við
hinar beztu viðtökur og dóma, og
var fslendingunum fagnað hið
bezta. — Fei'ðafólkið heimsótti
marga mei'ka staði og rómaði
mjög allar móttökur á þessum
stöðum.
Ferðalok.
Kórinn á að syngja í Gautaboi-g
í dag, en halda til Álaborgar á
Jótlandi á morgun og koma til
Kaupmannahafnar 30. maí. Heim
ferðin hefst 1. júní, 3. júní vei'ður
komið við í Færeyjum, og hinn 5.
komið til Akureyrar.
Lofsamleg osiimælí söngdómara
Blaðinu hafa borizt fyrstu
blaðaummæli frá Noregi um s.öxig
Geysis. Adresseavisen í Trond-
hjem segir svo 20. maí.:
„Hljómleikarnir í gærkvöld
reyndust sannarlegur viðbui'ður.
Hér bar alls ekkert vott um
minnstu hnignun eða aftui'för á
þessum vettvangi, því að svo
(Framhald á 2. síðu).
Þessi mynd af Akureyringum í Þrándhcimi birti Adresseavisen þar
í borg 20. þ. m. Myndin var tekin í boði bæjarstjórnarinnar í Erki-
biskupsbæmim (Erkebispegarden). Á myndinni eru, fremri röð frá
v., Ingimundur Ái'nason, söngstjóri, Kári Johansen, úr stjóm Geysis,
Hermann Síefánsson ,formaður kórshis og Oddur Kristjáixsson, hhm
eini Geysismaniia, sem einnig tók þdtt í söngför Altureyringa (gömiu
Heklu) til Noregs 1905. Aftari röð, frá v., frú Sigríður L. Árnadóttir,
frú Gréta Jónsdótíir, frú Halldóra Sigurðardótti, frú Droplaug Páls-
dóttir og frú Guðrún Árnadóttir.